Norðurslóð - 14.12.1982, Qupperneq 3
Árshátíð samtaka Svarfdælinga:
Minnst 25 ára aftnælis
Kvenþjóðin við stjórnvölinn
Skyndikórinn: Halla Jónasdóttir, Björk Guðjónsdóttir, Edda Ögmunds-
dóttir, Halla Baldvinsdóttir, Nanna Jónasdóttir, Jóhanna M, Gestsdóttir
og Eyvör Friðriksdóttir. Ljósm. Sólveig Sveinsdóttir.
Þann 26. nóvember 1982 voru
liðin 25 ár frá því að Samtök
Svarfdælinga í Reykjavík og
nágrenni voru stofnuð.
Þann 13. nóvember s.l. var
árshátíð Samtakanna baldin og
við það tækifæri var Gísli Krist-
jánsson fenginn til að stíga í
ræðustól og minnast atriða úr
sögu Samtakanna.
Gísli mælti m.a. á þessa leið:
Þann 26. nóvember í ár eru
25 ár liðin síðan samtök okkar
voru stofnuð, en þá höfðum við
- nokkrir sveitungar undir
forystu vinar okkar og frænda
Snorra Sigfússonar - undirbúið
jarðveginn um hálfs árs skeið. I
stjórn með Snorra vorum við
Kristján Eldjárn svo tveir um
áraröð, nú stend eg hér einn,
aldinn og gráhærður, hinir eru
horfnir yfir móðuna miklu, en
gott er að gnótt er af ungu fólki
að axla verkefnin.
Samtökin voru stofrluð án
laga eða nokkurra fyrirmæla um
starfsháttu, en þegjandi sam-
komulag var um að megin-
hlutverkið skyldi vera að móta
tengsl, - byggja brýr - milli
heimamanna og hinna, en þessir
hinir, það erum við, sem að
heiman höfum flutt, og svo
skyldi líka með kynningu tengja
saman yngri og eldri kynslóðir.
Allir voru á einu rnáli um að
kynning og skemmtiatriði
skyldu vera og verða efst á
dagskrá. Sumir spurðu í upphafi
hvers þau Samtök mundu
megnug, sem hvorki hefðu lög
Allmargir Svarfdælingar komu að norðan á mótið. Hreinn bóndiá Klaufa-
brekkum og Jóna kona hans fremst.
PistUl frá bæjarstjón
I. Mannaskipti í stjórn og
störfum hjá Dalvíkurbæ:
I bæjarstjórn Dalvíkur urðu miklar
breytingar á síðasta vori, sex af sjö
bæjarfulltrúum sátu ekki í fyrrver-
andi bæjarstjórn, það eru Helgi
Þorsteinsson, Svanfríur Jónasdóttir
og Jón Baldvinsson, Guðlaug Björns-
dóttir, Gunnar Hjartarson og Oskar
Pálmason.
Starfsmannaskipti:
Á árinu Iétu af störfum hjá
Dalvíkurbæ, Kristín Þorgilsdóttir,
bókari, Petra lngvadóttir, skrif-
stofustúlka, Karl Guðmundsson,
bæjarritari, og um áramót lætur
Valdimar Bragason, fyrrverandi
bæjarstjóri af stöfrum eftir rúm 10
ár í þjónustu bæjarins.
Til starfa hafa komið Garðar
Björnsson, hafnarvörur, Valur
Harðarson, veitustjóri, Jón E.
Gylfason, starfsmaður Áhalda-
deilda, Helga Níelsdóttir,skrifstofu-
stúlka í 70% starf, Guðrún Konráðs
dóttir, skrifstofustúlka í 50% starf,
Sigurlaug Stefánsdóttir, bókari, í
53,3% starf, Snorri Finnlaugsson,
bæjarritari og Stefán Jón Bjarnason,
bæjarstjóri. Þá var og ráðin til
bókasafnsins Birna Kristjánsdóttir.
Heilsugæslustöð:
Á árinu var Þóra Ákadóttir sett
hjúkrunarforstjóri. Nokkur hrey-
ing hefur verið á læknum á árinu, nú
eru starfandi læknar þeir Bragi Þ.
Stefánsson og Ingvar Þóroddsson.
Enn hefur ekki komið tannlæknir til
starfa síðan Rúnar Lund fór s.l.
sumar.
Aðstaða fyrir tannlækni í húsnæð-
inu er nú tilbúin og búið að setja upp
allan tækjabúnað.
Krílakot:
Elín Jóna Þórsdóttir lét af störfum
forstöðukonu og við tók Ásta
Einarsdóttir.
Dalbær:
Einnig þar urðu mannaskipti er
Guðjón Brjánsson, forstöðumaður,
hætti og til starfa kom Gunnar
Bergmann.
Tónlistarskóli:
Þar starfa nú þrír kennarar.
Gestur Hjörleifsson, sem verið hefur
kennari við skólann frá upphafi,
Jóhann Olafsson, sem kennir nem-
endum að Húsabakkaskóla og
enskur tónlistarmaður Colin P. Virr
sem ráðinn var 15/11 og kennir nær
1 1/2 stöðu. Biðlisti er nokkur, en
kennslukvóti meira en fullnýttur og
þar að auki ekki hægt um vik að fá
kennara.
II. Framkvæmdir:
Dalvíkurskóli:
Framkvæmdum varhaldiðáfram
á árinu og tvær nýjar stofur teknar i
notkun, stéttar með hitalögnum
steyptar utanhúss og þrátt fyrir að
fullnaðarfrágangi sé ekk lokið er
allur fyrsti áfangi byggingarinnar
kominn í notkun. Á þessu ári hefur
verið framkvæmt mun meira við
skólann en áætlað var og fjárveiting
ríkissins gerir ráð fyrir.
Þá hefur nú í nóvember verið
hafin starfræksla mötuneytis fyrir
nemendur í húsnæði heimavistar-
innar og fer þareinnigfram kennsla
í heimilisfræðum.
Hafnarmannvirki:
Á fjárlögum 1982 voru kr,
1.400.000.- og var því varið til
greiðslu á framkvæmdum fyrri ára
og lokun áfanga 1981.
Ráðhús:
Þar var á þessu sumri unnið við
lagfæringar á þaki, gerðar stéttar
með hitalögnum og unnið að
frágangi lóðar.
Gatnagerð:
Jarðvegsskipti voru gerð í Stór-
hólsvegi Nýjar götur gerðar, þ.e.
Lækjarstígur og tengivegur milli
Ránarbrautar og Gunnarsbrautar.
Bundið slitlag, Dalbraut, Sunnu-
braut, Drafnarbraut, Öldugata og
Bárugata að hluta. Bundið slitlag er
nú orðið á u.þ.b. 70% af gatnakerfi
bæjarins. Gangstéttar voru í sumar
og haust lagðar við Ásveg, Karls-
braut, Hafnarbraut, Goðabraut að
hluta og Kirkjuveg að hluta. Gerð
var tilraun með hitalögn í gangstétt
við Karlsbraut og Kirkjuveg. Teng-
ingum er ekki lokið við Karlsbraut
en tilraunin lofar góðu við Kirkju-
veg og í stéttum við Ráðhúsið og
skólann.
Hitaveita:
Unnið var að endurnýjun á dreifi-
kerfi, asbestlagnir teknar og stálrör
sett í staðinn, og miðar því verki vel
fram.
Tekið var upp á árinu viss jöfnun
hitakostnaðar gagnvart þeim sem
ekki hita upp hús sín með hitaveitu-
vatninu.
Vatnsveita:
Miklar framkvæmdir voru við
inntaksmannvirki í Brimnesá, þar
sem tekið er kælivatn fyrir frystivél-
ar. Það tókst á haustnóttum að taka
þau mannvirki í notkun, en þó er
þar ólokið nokkru verki, svo sem
frágangi á síum í vatnsinntaki og 11.
Dalbær:
I samvinnu og samstarfi við
Svarfaðardalshrepp, hefur verið
unnið að framkvæmdum á neðri
hæð vesturálmu, þar verður aðal
matsalur hússins, dagvistun, sjúkra-
þjálfun og vinnuaðstaða. Vonir
standa til að hægt verði að taka
húsnæðið í notkun í febrúar - mars
1983. Búið er að gera pöntun í
fólkslyftu sem von er á síðar í vetur.
Verkamannabústaðir:
Lokið var byggingu sex íbúa við
Brimnesbraut og þær afhentar
kaupendum i júlí. Þá eru í fullum
gangi framkvæmdir við tvær íbúðir
við Lækjarstíg og ein íbúð hefur
verið boðin nefndinni til kaups og
hún auglýst til endursölu.
Aðrar byggingaframkvæmdir á árinu:
Hafin var bygging sjö íbúða,
fullgerðar 12 og í smíðum 19. Unnið
var að stækkun á einu fiskverkunar-
húsi og hafin bygging yfir tvö
iðnaðarfyrirtæki.
Eins og undanfarin ár unnu
unglingar í sumar mikið snyrti- og
fegrunarstarf víða um bæjarlandið.
Samgöngur:
Byggð var brú yfir Svarfaðardalsá
neðan við gömlu brúna, vegarstæði
breytt og brúin tengd.
Brúin var svo opnuð umferð, án
viðhafnar eða viðbúnaðar og þykir
mönnum sem stundum hafi verið
látið hærra af minna tilefni.
Slitlag var lagt á veginn suður úr
bænum, ogeru þá ekki nerna umsex
km. af veginum frá Akureyri án
slitlags.
Samvinna:
Dalvíkurbær hefur samstarf og
eða samrekstur með nágranna-
sveitarfélögunum, um ýmsa þætti
þjónustu og má þar nefna Heilsu-
gæslustöðina, skóla, heimavist,
mötuneyti, Dalbæ og fleira. Meðal
annars stendur nú yfir samnings-
gerð um stækkun á starfssvæði
Tónlistarskóla Dalvíkur og mun
hann eftir þá samninga væntanlega
heita Tónlistarskóli Dalvíkur og
Svarfaðardals.
St.J.B.
né reglur að vinna eftir.
Svari því hver sem vill, en ég
vil ætla að fá átthagafélög hafi á
þessu skeiði sýnt meiri afrek en
hér hafa gerst.
Ritverkið Svarfdælingar er
virðulegur vottur um athafnir
og úr ýmsum áttum hafa
óskyldir aðilar í mín eyru tjáð
það sem stórfellt afrek. Og svo
kemur Saga Dalvíkur í kjölfarið
sem verkefni heimamanna,stórt
og viðamikið. Að þoka áleiðis
undirbúningi að Svarfdælingum
kostaði auðvitað veruleg fjár-
framlög einstaklinganna, sem
báru ábyrgð á skráningu hand-
ritsins, en þetta vannst og loka-
átakið berað þakka ómetanlegri
frammistöðu sem Kristján Eld-
járn sýndi með búningi þess
undir prentun og Valdimar
Jóhannsson með útgáfunni. Að
minu mati er þetta afrek með
ágætum þótt bresti og galla
megi í því finna. Að öðru leyti
má minna á félagsleg tengsl milli
Svarfdælinga á samtakasvæðinu
og sambandi við heimahagana
á ýmsa vegu.
I ræðu sinni rakti Gísli síðan
minningavef og atburðarás frá
Ingunn Klemenzdóttir, formaður skemmtinefndar og Edda ögmundsdótt-
ir, formaður Svarfdælingasamtakanna. Ljósm. S.Sv.
Gísli Kristjánsson í ræðustól.
svarfdælskum slóðum á fyrstu
áratugum okkar aldar, m.a.
samgöngumálin og sérlega þær
athafnir í vegamálum, er gerðu
Svarfdæli landsfræga með sam-
tökum þeirra í þegnskaparvinnu
þegar hafist var handa um gerð
akvegarins frá Böggvisstaða-
sandi inn í sveitina að vestan, og
í framhaldi af því einangrun
fyrri tíma með ntálfar og lífs-
hætti við staðbundin skilyrði.
Að lokum óskaði hann Sam-
tökum svarfdælinga alls vel-
farnaðar um komandi tíma og
lýsti velþóknun sinni yfir þvi,að
kvenþjóðin er nú mikilsvert afl í
störfunum og mæltist til þess, að
í þéttsetnum salnum tækju allir
undir með sér til að hylla atferli
þeirra maklega með lófataki.
Atvinnuleysi
gerir vart við sig
Á undanförnum þremur
vikum hefur borið á atvinnu-
leysi hér á Dalvík.
Samkvæmt upplýsingum
skrifstofu Dalvíkurbæjar
voru 28 á atvinnuleysiskrá
nú fyrir helgina. Langt er
síðan hér hefur verið nokkurt
atvinnuleysi skráð sem
nemur.
Eins og fram hefur komið í
síðustu blöðum Norðurslóð-
ar hafa menn óttast að
samdráttur væri í aðsigi í
atvinnulífinu og vofa
atvinnuleysis hangi yfir hér
eins og víða annars staðar.
Erfiðleikar í sjávarútvegi
valda óöryggi á stöðum, sem
byggja jafn mikið á þeirri
atvinnugrein og Dalvík.
Léleg aflabrögð síðustu
vikna hafa haft í för með sér
samdrátt hjá fiskvinnslu-
fyrirtækjum og þeir sem mist
hafa atvinnu sína vegna þess
hafa hvergi fengið vinnu
annars staðar.
Hver framvinda atvinnu-
mála verður á næstunni er
erfitt að spá um, en gera má
ráð fyrir að enn muni fjölga á
atvinnuleysisskrá fram yfir
áramót, en eins og svo oft
áður veltur allt á aflabrögð-
um í vetur.
NORÐURSLÓÐ - 3