Norðurslóð


Norðurslóð - 14.12.1982, Page 5

Norðurslóð - 14.12.1982, Page 5
Gunnar Stefánsson: „Upsastrandar ysta eg á bænum var“. Um Æviraurt Þorvalds Rögnvaldssonar í Sauðanesi Það hefur löngum verið vin- sælt hér á landi, og þó aldrei eins og síðustu áratugi, að segja ævi- sögu sína, rekja fyrir almenningi feril sinn, störf og margháttaða lífsreynslu. Svarfdælingar hafa látið sér hægt um slíka bóka- gerð, og minnist ég í svip ekki annarra en Snorra Sigfússonar er samið hafi sjálfsævisögu. Það er þó nokkur bót í máli að ef við lítum nokkrar aldir aftur í tímann verður fyrir okkur ævi- saga bónda í Sauðanesi, og það í bundnu máli. Þetta er kvæðið Æviraun eftir Þorvald Rögn- valdsson sem uppi var á sautjándu öld. Eftir hann liggur raunar ýmislegt fleira af kveð- skap, þar á meðal rímur, en ævi- kvæðið er merkast og frá því og skáldinu ætla ég að segja dálíið. Kvæðið Æviraun er prentað í Blöndu 1921-23. Jón Þorkelsson sá um útgáfuna og ritar formála um skáldið. Er hér vitnað í kvæðið eftir þeirri útgáfu. Nýlega hefur verið sagt nokkuð frá Þorvaldi, í fyrsta bindi Sögu Dalvíkur eftir Kristmund Bjarna- son. Þar er vitnað í kvæðið og orðamunur töluverður við Blöndu, hvernig sem á því stendur. Þorvaldur Rögnvaldsson fæddist í Sauðanesi, líklega árið 1596. Æviferill hans virðist í fáu hafa verið frábrugðinn, á ytra borði, lífi alþýðumanna á þeirri tíð. Kvæði sitt yrkir hann sjötug- ur, einkum til að minnast konu sinnar sem nýlátin var. Hann var bóndi á ýmsum bæjum á Upsaströnd, þar á meðal fæðingarstað sínum, og var við þann bæ kenndur. - Skulum við nú líta yfir ævi Þorvalds og fikra okkur eftir frásögn hans í kvæðinu. Hann byrjaði á að vísa til þess að menn hafi löngum sagt ævi- sögu sína og er fullur auðmýktar út af því að hann skuli nú ætla að fara að dæmi sér meiri manna og láta „minnis dyr sínar opnar“, þótt hann hafi fátt merkilegt fram að færa. Síðar segir: Ungur eg með fysta (þ.e. fyrsta) ekki lœrði par, féll því fátt til lista, fram svo aldur bar, vandist við að kvista og veiða fisk úr mar. Upsastrandar ysta eg á bœnum var. Snemma varð hann að taka til hendi, lærði að róa og slá, en tilsagnar naut hann lítt í bókleg- um efnum, lærði þó að lesa í foreldrahúsum, en mest af sjálfum sér. Rúmlega tvitugan „fýsti hann að gifta sig“ og hóf búskap örsnauður, bæði að Gunnar Stefánsson búpeningi og verkfærum. Alls- laus var hann þó ekki: Mín var engin eiga utan konan sjálf. Sjó sótti Þorvaldur af kappi eins og bændur á Upsaströnd gerðu löngum. Smám saman vænkaðist hagur hans: Vandist eg við víðir (víðirtsjór) veiðistöðum hjá eins og aðrir lýðir, er aflann vildu fá, hafði eg, sem hlýðir, Hlés við verka stjá. kom svo karl um síðir kneri átti þrjá. Þótt þau hjón yrðu þannig vel bjargálna virðist auðlegð aldrei hafa orðið þeim við hendur föst, því bæði voru örlát og greiðvikin nauðleitamönnum. - Dóttur eina áttu þau og andaðist hún sautján vetra úr bólusótt. Varð þeim hjónum það mikill harmur sem nærri má geta. Aður en það gerðist hafði annað reiðarslag dunið yfir Þorvald sem hann segir frá í nokkrum erindum kvæðisins. Bróður átti Þorvaldur er Jón hét og bjó á Krossum á Arskógs- strönd. Hann var borinn þeim sökum að hafa farið með galdur, vakið upp draug fyrir áeggjan nágranna síns á Hellu og sent að Urðum þar sem hann gerði ýmsan óskunda, en Hellubóndi átti í brösum við Urðamenn. Jón Rögnvaldsson bar af sér sakir, en í fórum hans fundust blöð með torkennilegri áletrun. Var nú ekki framar að sökum að spyrja ogsýslumaður Eyfirðinga dæmdi Jón til að brennast á báli. Var það fyrsta galdrabrenna á íslandi og fór fram á Melaeyrum sumarið 1625. Er dapurlegt til þess að vita að Svarfdælir skyldu verða fyrstir til að hlaða manni bálköst hér á landi, en gaidra- brennur komust ekki í algleym- ing fyrr en nokkrum áratugum síðar. Er þó þess að minnast að Sauðanesið séð norðanfrá. galdrafár varð aldrei mjög magnað hér, andstætt því sem gerðist víða í Evrópu. Þorvaldur segir að Jón bróðir sinn hafí verið saklaus brennd- ur, enda verið „allt um of einfaldur" til að geta náð tökum á galdri. Sjálfur lýsir hann sök á sig fyrir að hafa ekki haft kjark til að rísa upp bróður sínum til varnar: Var eg drengur deigur dofinn til hyggju steins hvorki vitur, né veigur að verja málið sveins, því olli illur beygur annars málma reins, fyrir það var hann feigur eg fœr var ei til neins. Sorgartreginn sesti sveið um hyggju rann, bolt á barma festi (barmitbróðir) burðugur sýslumann, dæmdi dóm án fresti dauðaverðan hann, kynti bál með kesti kola svo til brann. Þorvaldur hefur óttast sýslu- mann og ekki talið sig geta risið gegn ofurveldi hans. Svo er á hitt að líta að Þorvaldur var barn sinnar aldar sem aðrir menn. Hann er að vísu fullviss um sakleysi bróður síns, en hvergi kemur fram að hann efist um tilvist galdra eða sé í vafa um að menn geti ofurselt sig óvinin- um, en sú var trú manna að galdramenn gerðu. Sá vondi var hvarvetna nálægur á þeirri tíð. Þorvaldur huggar sig við hinn forna vísdóm sem Njáll hafði uppi forðum, að guð muni eigi láta menn brenna þessa heims og annars. A þessu var dauða- refsing galdramanna grundvöll- uð: bálið átti að stytta vist þeirra í eldinum annars heims; þar mun Jón Rögnvaldsson „eigi/ eldsins kenna á glóð/ nær á dómadegi/ dæmir Kristur þjóð“. Trúarskoðun skáldsins er í fullu samræmi við rétttrúnað sautjándu aldar, en honum getum við kynnst í fullkomnastri mynd í Passíusálmum séra Hallgríms. Trú Þorvalds í Sauðanesi var honum huggun í hörmum. Hann ávarpar „engla kóng“svo: A lifandi manna landi loft þig menn og frúr, syngjum samfagnandi, sést þá ekkert stúr. Þor^aldur mátti sjá á bak mörgum sem honum voru kærir um dagana. Systir hans dó af barnsförum, faðir hans drukkn- aði og systursynir hans „sukku í djúpið þrír“. Hann minnist og í kvæðinu ýmissa vina sinna sem horfnir eru. Mest var þó sorgin að missa eiginkonuna eftir hálfrar aldar hjúskap. Síðasti hluti Æviraunar er tregaljóð eftir hana, en huggunin er sú að eiga brátt eftir að hitta hana aftur „á lifandi manna landi“: I þeim engla höllum aftur hver sinn fœr. Þorvaldur átti enn meira en áratug ólifaðan er hann kvað Æviraun. Hann andaðist liðlega áttræður 1679. Kvæðið er minnisvarði yfir hann og full- gott dæmi um lífsskoðanir og kvæðastíl aldar hans. Allt þekkjum við það þó með stór- felldum svip annars staðar. En skáldið í Sauðanesi lýsir hér einkum sjálfum sér. Við kynn- umst manni sem háði æðrulaust sína lífsbaráttu á Upsaströnd, til lands og sjávar, og mætti sýnist þvt til fyrirstöðu að sami margháttuðum raunum og maður hafi ort þessa vtsu og sá áföllum með stillingu. Hann var er kveður í Æviraun um hin líklega ekki skörungur sem þyngstu áfötl. Hann er í lífi sínu kallað er, og í engu uppreisnar- æðrulaus og jafnhugaður, eins maður. En hitt er vafalaust sem og Grímur kvað um Haltdór Páll Eggert Ólason segir í riti Snorrason. Bærinn á Sauðanesi um aldamótin. sínu, Menn og menntir: „Æviraun sýnirglöggt vandaðan mann og guðrækinn, ræktar- saman ættmennum, greiðvikinn og líknsaman.“ Æviraun er öll með alvarleg- um blæ. Við hressilegri tón kveður í vísu sem Þorvaldi er eignuð. Svo segir að eitt sinn hafi fallið snjóflóð og farist sauðir hans allir og brotnað bátur sem hann átti. Kona hans bar sig illa yfir missinum, en Þorvaldur kvað: Mas er að hafa mammonsgrát þó miðlist nokkuð af auði. Nú skal efna í annan bát og ala upp nýja sauði. Með svo karlmannlegu æðru- leysi tók þessi gamli sveitungi vor skaða sínum. Og ekkert Trúarsannfæring Þorvalds hefur verið honumstyrkuríævi- raun. Hann átti líkaþágáfusem Egill kallaði bölva bætur, og fyrir hennar kraft ‘gat hann kveðið sig í sátt við tífið og dauðann. Af því að fæðingar- háttð frelsarans fer nú í hönd skulum við ljúka upprifjun um skáldið í Sauðanest með þessum orðum hans, þarsem hann biður lausnarann að leiða sig inn í ljóma paradisar: O, hvað mun eg nurta móður drottins sjá og soninn hennar sæta sínunt föður hjá, - huggararnt hyggiu strceta. heilagur andinn sá. er allt kann endurbæta. og unaðssemdin há. Þóreyjarvísur Neðanskráðar vísur eru skrifaðar með skýrri en fremur við- vaningslegri hendi á síðu sem auð hefur verið í handriti einu í bók þeirri sem kallast Urðabók eða Hæringsstaðabók ogerí Landsbókasafni, ÍB 387 8vo. Þetta er allskonar kvæða- og sálmatíningur sem til var á Urðum, einkanlega frá dögum Jóns Sigurðssonar, hins efnaða og ágæta bónda. Þórey sú sem vísurnar eru til er einkadóttir Jóns og seinni konu hans Önnu Guttormsdóttur. Þórey bar nafn fyrri konunnar og varð seinna húsfreyja á Urðum, kona Jóns Sveinssonar. Vísurnar hefur Anna sennilega sjálf ort til litlu dóttur sinnar og það mun vera hennar hönd sem þær eru skrifaðar með á blaðið. Margt bendir til að óvenjulegt menningarheimili hafi veriðá Urðum á dögum þessa fólks. Ungit börnin iðka sig aft í lestri kvera, Þórey litla, mundu mig minni þeim ei vera. Litlu börnin leika sér og láta vel í máta, fá sér það sem fa/legt er en fara ei að gráta. Vœnu börnin vilja þrátt verða iðin að þjóna, sitja kyrr og hafa ei hátt, horfa í kver og prjóna. Góðu börnin gá að því góðlynd jafnan vera, góðum fylgja góðu í gott svo mætti upp skera. Mundu að stunda mennt og list meður prýðidáðum hafðu með þér Herrann Krist helst í öllum ráðum. NORÐURSLÓÐ - 5

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.