Norðurslóð - 29.10.1984, Qupperneq 4
í glugga Dalvíkurskóla, október 1984.
Miklar breylingar á kennaraliði.
Skólastarfið á Dalvík
Skólastarf hófst í Dalvíkurskóla
miðviðkudaginn 12. september,
en þá komu nemendur 4.-9.
bekkjar til starfa. Forskóla-
nemendur ásamt nemendum 1,-
3. bekkjar og framhaldsdeildar
mættu svo til starfa mánudag-
inn 17. september. í skólanum
eru nú 294 nemendur, þar af 24 í
forskóla og 21 í framhaldsdeild.
Nokkur fækkun hefur orðið á
ijölda nemenda og stafar það
einkum af því að nemendur af
Árskógsströnd og úr Svarfaðar-
dalshreppi, sem komið hafa
hingað í 8. bekk eru nú í fyrsta
sinn í sínum heimaskólum. Þó
vegur upp á móti þessari
fækkun að nú koma 7 nemend-
ur frá Hrísey í 9. bekk, en 4 ár
eru nú frá því að nemendur
þaðan hafa komið í Dalvíkur-
skóla.
Kennaralið
Miklar breytingar hafa orðið á
kennaraliði skólans frá síðasta
skólaári. Trausti Þorsteinsson
skólastjóri hefur fengið árs leyfi
frá störfum og hefur Kristján
Aðalsteinsson kennari verið
settur skólastjóri í hans stað í
eitt ár. Þá hafa þær Guðrún Elín
Klemenzdóttir og Inga Sigrún
Matthíasdóttir fengið árs leyfi
frá störfum, en Helga Konráðs-
dóttir, Sigmar Þór Ottarsson og
Stefán Jóhannesson fóru til
framhaldsnáms. Einnig hafa
þeir Indriði Jónsson og Stefán
Björnsson horfið á önnur mið. í
stað þessara kennara voru ráðin
Ásrún Ingvadóttir, Ásta Einars-
dóttir, Kristján Júlíusson, Rakel
Sigurgeirsdóttir og Sigurbjörg
Karlsdóttir. Þá hefur Dóróþea
Reimarsdóttir komið aftur til
starfa eftir árs leyfi frá störfum.
Auk þessarra kennara starfa við
skólann 13 fastráðnir kennarar
og 6 stundakennarar.
Húsnæði
Nú í sumar og í haust hefur
verið unnið við lokafrágang
innanhúss í nýja skólahúsnæð-
inu. Þó mun ekki verða endan-
lega gengið frá öllu og ekki
hefur heldur verið farið í lóðar-
framkvæmdir eins og til stóð.
Þegar þessi áfangi er svo langt
kominn þá er kominn tími til að
huga að áframhaldandi fram-
kvæmdum. Síðastliðið vor var
ákveðið að næsti áfangi nýbygg-
ingar yrði áframhald í suður.
Þar fást 5 kennslustofur ásamt
stjómunaraðstöðu, aðstöðu fyrir
bókasafn skólans og vinnu-
aðstöðu kennara. Vonast þeir
sem að skólamálum starfa til að
hægt verði að hefja fram-
kvæmdir við þennan áfanga á
næsta ári, en til að svo geti orðið
þarf að tryggja fjármagn og það
gæti orðið erfiður róður.
Félagsstarf
Félagsstarf nemenda verður
með svipuðum hætti og verið
hefur. Þó má vonast til að
nokkur breyting geti orðið á,
með tilkomu félagsaðstöðu í
GIMLI. Skólinn hefur óskað
eftir samstarfi við æskulýðs-
fulltrúa staðarins um samnýt-
ingu húsnæðisins og um nánari
samvinnu þessara aðila. Ef vel
tekst til, gæti sú félagsaðstaða
sem þarna er að skapast orðið
hvalreki á fjörur barna og
unglinga á Dalvík, en til að svo
geti orðið verða allir sem að
æskulýðsmálum starfa að
standa saman.
Fólk hér í bæ veltir því eflaust
fyrir sér hvort nemendur 9.
bekkjar ætli sér nú að safna í
utanlandsferð eitt árið enn. Því
er til að svara að enn hefur engin
ákvörðun verið tekin í þeim
efnum, en nemendur 9. bekkjar
eru samt sem áður byrjaðir að
standa fyrir fjáröflun í ferða-
sjóð. Það er ljóst að hvort sem
nemendur fara til útlanda eða
ferðast mnanlands þá er gott að
eiga eitthvað í pokahorninu
þegar til kemur. Það má líka
benda á að nemendum er hollt
að læra að starfa saman og
stefna að einhverju ákveðnu
Húsabakkaskóli var settur mið-
vikudaginn 26. sept. sl. við
stutta athöfn í sal mötuneytis
skólans. Nemendur í grunn-
skóladeildum eru nú 48, heldur
fleiri en á síðasta vetri. Munar
þar mest um, að kennsla 8.
bekkjar hefur verið tekin upp
við skólann á ný. í forskóla-
deild verða 9 nemendur, en það
er óvenju stór árgangur.
Fastir kennarar skólans eru
þeir sömu og verið hafa undan-
farin ár, sömuleiðis starfsfólk
mötuneytis og við ræstingar.
Stundakennurum Qölgar frá
fyrra vetri. Steinunn P. Hafstað
kemur til kennslu við skólann á
ný. Þá eru tveir nýir stunda-
kennarar, þau Þórarinn Hjartar-
son Tjörn og Ásrún Ingva-
dóttir frá Bakka.
Fyrstu daga skólastarfsins á
þessu hausti unnu nemendur og
kennarar í sameiningu að fegrun
og snyrtingu skólans og um-
marki. Þeir verða samt sem
áður að gæta þess að láta ekki
námið sitja á hakanum.
Skólastarfið
Skólastarf verður með nokkuð
hefðbundnum hætti nú í vetur,
en þó eru nokkrar breytingar
sem vert er að minnast á. Fyrir
nokkrum árum var hér gerð
tilraun með nokkurs konar
„opinn skóla“, en þvístarfi varð
að hætta vegna húsnæðisskorts.
Nú þegar rýmkast hefur um
þótti kennurum ráð að reyna
svipað ,,kerfi“ aftur. Nú í vetur
mun því nemendum 1.-3. bekkj-
ar gefast kostur á því sem
kennarar vilja kalla „sam-
kennslu". Verður ekki farið út í
að skilgreina hana nánar hér, en
fólki er bent á að öllum er
velkomið að koma í skólann og
kynna sér þessa nýjung. Er
foreldrum nemenda í þessu
bekkjum sérstaklega bent á að
kynna sér starfssemina.
Þá er rétt að geta þess að
samræmd próf hafa verið breytt
og verða nú gefnar einkunnir í
tölum frá 1-10 en ekki í bókstöf-
um. Engin breyting verður þó á
prófgreinum (íslenska, stærð-
fræði, danska og enska).
Að loknu verkfalli BSRB
mun verða boðað til foreldra-
funda, þar sem kennarar munu
gera grein fyrir skólastarfi oger
vonast til að foreldrar sjái sér
fært að mæta og ræða málefni
þau er snerta nemendur, heimili
og skóla. K.A.
hverfis hans. Voru þessir dagar
til gamans kallaðir Haust-
þrælkunardagar. Meðal annars
máluðu nemendur húsgögn og
innréttingar á herbergjum sín-
um, útbjuggu ný gluggatjöld
fyrir kennslustofur, komu fyrir
pottaplöntum til skrauts og
hreinsuðu lóðina. Engin kennsla
var þessa daga nema sund-
kennsla. Sundskáli Svarfdæla
er nú kominn í það gott lag, að
mögulegt er að kenna í honum.
Þvi var ekki beðið með að
notfæra sér aðstöðuna þar.
Mánudaginn 1. okt. lögðu
kennarar skólans niður vinnu til
að mótmæla því að mánaðar-
laun þeirra höfðu ekki verið
greidd. Húsabakkaskóli starf-
aði því ekki nema 3 daga áður
en verkfall BSRB hófst þann
4. okt.
22. okt. 1984
Bj. Þ.
Húsabakkaskóli
Við tökum marsinn
Gamall draumur rætist.
Á síðastliðnu vori mátti lesa í
blöðum greinargerð frá út-
hlutunarnefnd Þjóðhátíðar-
Sigríður Valgeirsdóttir.
sjóðs. Meðal annarra styrkja til
menningarmála var 30 þúsund
krónu styrkur til prófessors
Sigríðar Valgeirsdóttur vegna
töku kvikmyndar „um gamlan
dans í Svarfaðardal“ eins og það
var orðað.
Þetta mun sumum hafa þótt
góðar fréttir, sem farnir voru að
halda að myndin góða, sem
tekin var í apríl 1980 væri týnd
og tröllum gefin.
En nú koma nýjar gleðifréttir.
Það er sem sé búið að koma
filmunni inn á vídeóspólu með
tali og öllu saman í 2-3 eintök-
um og eitt þeirra er m.a.s.
komið hingað heim til föður-
húsanna til eilífrar varðveislu.
Það er með öðrum orðum hægt
að sýna myndina í gegnum
vídeótæki og venjulegan sjón-
varpsskjá. Þessi áfangi náðist
loks með tilstilli Fræðslumynda-
safns ríkisins og Ríkisútvarps-
ins, sjónvarps.
En björninn er ekki að fullu
unninn þar fyrir. Nú er að koma
spólunni yfir á venjulega kvik-
myndafilmu sýnanlega á tjaldi.
Þá og þá fyrst verður hægt að
bjóða Svarfdælingum og eftir
atvikum öðrum forvitnum að
sjá gripinn í allri sinni dýrð.
Þetta á að gerast í kóngsins
Kaupmannahöfn nú á næstunni
(og verður það önnur ferð
myndarinnar út til borgarinnar
við Sundið).
Þegar lilman svo kemur aftur
heim eiga Svarfdælir kost á að
kaupa eintak og mun það kosta
þónokkurn pening. Nokkuð er
til í sjóði til þessara nota,
styrkur úr Menningarsjóði KEA
með vöxtum, en afganginn er
meiningin að filman vinni sér
inn sjálf með sýningum hér og
e.t.v. víðar.
Og svo er stóra spurningin: Er
nokkuð varið í þessa mynd eftir
allt saman. Því skal ekki svarað
hér, en þess látið getið að fólk
sem horfði á vídeóspóluna hér á
dögunum lýsti því yfir, að sér
hefði ekki leiðst þann hálf-
tímann, og þá ætti öðrum
heldur ekki að leiðast.
Tvö pör á gólfinu. Anna í S-Garðshorni og Eiður á Ingvörum, Zóphónías á
Hóli og Friðrikka í Víkurhóli.
Guðrún í Koti
Kveðja tíl ömmu frá bamabömum
Kæra, Ijúfa, elsku amma
ástarkveðju sendum þér,
okkur frá af heilum huga
hjartans þakkir til þín ber
fyrir allt sem fyrr og síðar
fyrir okkur gjörðir þú.
Þín og okkar mun á milli
megin sterka tengja brú.
Velunnari og vinur góður
varstu jaj'nan amma kœr.
Okkur vafði í arma sína
umhyggjunnar Ijúji blær.
Fögur orð og fyrirbœnir
frá þér okkar lýsa veg.
Um þig lifa mun í minni
minning björt og elskuleg.
4 - NORÐURSLÓÐ