Norðurslóð - 29.10.1984, Qupperneq 7
Prófastshjónin og klukkan góða.
Fjárkaup af fjörrum slóðum
Svokallaðar riðunefndir skip-
aðar af sveitarstjórnum í
byggðarlaginu hafa verið starf-
andi undanfarið og hefur blaðið
eftirfarandi upplýsingar eftir
ritara Dalvíkurnefndarinnar,
Baldvini Magnússyni í Hrafns-
staðakoti:
Á fundi nefndanna með full-
trúa Sauðfjárveikivama, Sigurði
Sigurðarsyni dýralækni 4. des. í
fyrra voru settar fram nokkrar
ábendingar um hvaða leiðir
helst kæmu til greina í baráttu
við riðuveiki í sauðfé hér í sveit-
inni. Var bréf þar að lútandi
sent öllum sauðfjáreigendum til
yfirvegunar. M.a. var minnst á
algeran eða takmarkaðan niður-
skurð á svæðinu og sauðleysi
lengri eða skemmri tíma.
Þá var einnig nefndur sá
möguleiki að kaupa inn fé frá
ósýktu og helst fjarlægu héraði
til að viðhalda bústofni á
sýktum bæjum hér þar sem
vonlaust er talið að ala upp fé af
heimastofni.
Eftir viðræður við sem flesta
sauðíjáreigendur er það mat
nefndarmanna að þessi aðgerð
sé sú eina, sem unnt sé að setja í
gang á þessu stigi. Því var
ákveðið með samþykki Sigurðar
dýralæknis að fara þessa leið og
efna til þriggja ára tilraunar í
sambandi við hana. Þegar til
kom voru þó einungis 8 fjár-
eigendur, sem höfðu áhuga á
fjárkaupum, 4 í hreppnum og4 í
Dalvíkurumdæmi. Lömb eru
keypt úr N-Þingeyjarsýslu og úr
Srandasýslu sbr. frétt annars-
staðar í blaðinu.
Til viðbótar er áformað að
gera tilraun með sæðingum frá
sauðfjársæðingastöð þannig að
á 4 öðrum sýktum bæjum hér
verða sæddar 30 ær á hverjum
bæ með sæði úr 3 mismunandi
hrútum og sem flestar gimbrar,
sem út af þeim koma, látnar lifa.
Þetta yrði endurtekið í 3 ár.
Síðan er ætlunin að fylgjast
mjög nákvæmlega með afdrif-
um þessara einstaklinga, bæði
aðkeypta fjárins og sæðinga-
fjárins í samanburði við fé af
heimastofni á bæjunum. Eftirlit
og skýrsluhald í þessu sambandi
verður unnið í samvinnu milli
riðunefndanna og Sauðfjár-
veikivarna. Á vegum þeirrar
stofnunar hefur verið hér á ferð-
inni maður, Runólfur Sigur-
sveinsson kennari á Hvanneyri,
til að safna saman og skrá
upplýsingar um feril riðunnar,
einkum á þeim bæjum, sem hér
um ræðir.
Ennþá eygja menn helst von í
því að stofnar finnist, sem séu
ónæmari en aðrir fyrir veikinni.
í því sambandi hefur mönnum
orðið starsýnt á feril veikinnar á
Bessastöðum á Dalvík.
Þar var riðuveiki í fé í
algleymingi á 7. og 8. áratugn-
um uns svo var komið 1976 að
aðeins 6 ær lifðu eftir. Þær ær
veiktust aldrei og engin kind,
sem út af þeim hefur komið
síðan bæði heima á Bessastöð-
um og á öðrum stöðum þangað
sem fé út af þessum 6 ám hefur
borist.
Nú er ætlunin að fylgjast
grannt með þessu fé líka næstu
árin.
Prestar í sviðsljósinu
Ungu prestshjónin með soninn. Margrét Einarsdóttir, Hilmar, séra Jón
Helgi Þórarinsson.
yrða, að í þessum orðum felist
almennt viðhorf Svardæla til
prestsins sr. Stefáns, sem verið
hefur sálusorgari þeirra ogjafn-
framt góður félagi í 43 ár og til
konu hans, svarfdælsku bónda-
dótturinnar Jónu Gunnlaugs-
dóttur, sem staðið hefur dyggi-
lega við hlið hans í hans mikil-
væga starfi í blíðu jafnt sem
stríðu.
Blaðið Norðurslóð vill hér
með senda þeim prestshjónun-
um hugheilar kveðjur og óskir
um gæfu og gengi í nýju heim-
kynnunum. Jafnframt þakkar
það sr. Stefáni sérstaka vinsemd
í sinn garð frá upphafi.
Kosning á Dalvík. F. v. Kristján L. Jónsson, Árni Óskarsson, Kristján
Ólafsson, Valur Júlíusson greiðir atkvæði.
Sóknarnefnd Vallarkirkju að störfum. F. v. Sigurjón Sigurðsson, Olga
Steingrímsdóttir, Sigurður Kristjánsson.
Svarfdælingar munu trúlega
minnast sumarsins 1984 fyrir
tvennt öðru fremur: Það var
einmuna veðurblíða og það
urðu prestaskipti. Um veðrið er
rætt lítillega annarstaðar i blað-
inu, hér minnumst við svolítið á
prestana.
Prestkosning fór fram í
sóknarkirkjunum 4 sunnudag-
inn 12. ágúst í blíðskaparveðri
eins og oftast var á þessu
blessaða sumri. Umsækjendur
voru tveir: Jón Þorsteinsson
sóknarprestur í Grundarfirði og
Jón Helgi Þórarinsson settur
aðstoðarprestur við Fríkirkju-
söfnuðinn í Hafnarfirði. Þessir
ungu prestar voru hér í nokkrar
vikur fyrir kosninguna og mess-
uðu hvor fyrir sig á öllum
kirkjunum auk þess sem þeir
heimsóttu öll heimili í sveitinni
og ýmsa vinnustaði á Dalvík.
Messugerðir þessar voru nefndar
í gamni, bæði af þeim og öðrum,
Jónsmessur.
Það er mál manna að fram-
koma þessara ungu manna og
kvenna þeirra, sem stóðu dyggi-
lega við hlið þeirra, hafi verið til
fyrirmyndar og með sannköll-
uðum menningarbrag. Þaðmun
líka mála sannast að mikill
fjöldi kjósenda hafi átt í tölu-
verðu sálarstríði þegar ákveða
skyldi, hvar krossinn færi á
kjörseðilinn.
Úrslitin urðu hinsvegar kunn
nokkrum dögum síðar: sr Jón
Helgi hafði orðið hlutskarpari
og hlotið löglega kosningu með
nokkuð verulegum yfirburðum
yfir nafna sinn. Tekur hann við
embætti hér í byrjun nóvember
nú í haust.
Séra Stefán Snævarr
kveður
hvaða sess þakklætis og virðing-
ar þau hafa skipað í hugum
sóknarbarna sinna.
Við þetta tækifæri var þeim
afhent gólfklukka gerð af Adam
Magnússyni á Akureyri. Á hana
er festur skjöldur með áletrun-
inni: Til hjónanna Jónu og sr.
Stefáns Snævarr, með þökk og
virðingu frá sóknarbörnum
Vallaprestakalls. Má óhætt full-
^ ,
Skáldað í rjóma.
Sr. Stefán Snævarr, síðasti
prestur á Völlum og fyrsti
prestur á Dalvík, hefur nú kvatt
Svipmynd úr kveðjusamsæti.
sóknarbörn sín og haldið suður
yfir heiðar. Þau hjónin munu nú
setjast að á Seltjarnarnesi, þar
sem þau hafa keypt hús í félagi
við son þeirra Gunnlaug
Valdemar, endæturnarStefanía
Rósa og Ingibjörg eru þar
einnig á næstu grösum.
Síðari hluta ágústmánaðar og
í byrjun september hélt sr.
Stefán kveðjumessur í kirkjun-
um öllum. Voru þær fjölsóttar
sem að líkum lætur og hinar
hátíðlegustu.
Þann 11. september stóðu
sóknarnefndirnar síðan fyrir
kveðjusamsæti fyrir þau hjónin
Jónu ogStefán. Varþað haldið í
Víkurröst á Dalvík og var fjöl-
mennt mjög bæði af eldri og
yngri sóknarbörnum. Kom vel
fram í ræðum manna hvílíkra
vinsælda þau hjón hafa notið og
og oáZ&isn. x. // k/rtei..
JjtnJtoLrri. lýúf cx -ktí-t&fiXAÍunxci.,
^yUltyc^isctyri oeJtcit. fcjÁcJ ®
L-. J lh I t
. t *
NORÐURSLÓÐ - 7