Norðurslóð - 20.02.1985, Side 1
Svarfdælsk byggð & bær
9. árgangur
Miövikudagur 20. febrúar 1985
2. tölublað
Úr vinnslusal SFD. Hluti af nýju tækjunum fremst á myndinni. Kristján Þorhallsson t.v., Cunnar Kristinsson að
vigta t.h.
Vinnusparnaður - meiri gæði
Á síðasta ári voru keypt ýmis
tæki fyrir rækjuvinnslu Söltun-
arfélags Dalvíkur afTrausth/fí
Reykjavík.
Tækin höfðu beðið uppsetn-
ingar nokkurn tíma, en voru sett
upp um og fyrir síðustu áramót.
Norðurslóð leitaði til Kristjáns
Þórhallssonar, verkstjóra Sölt-
unnarfélagsins og spurði hann
frétta um þessi mál.
- Hvers konar vélar voru
setta upp í verksmiðjunni?
Ef við byrjum á móttökunni
þá var sett þar upp þvottavél
í'yrir rækju. 1 henni þvæst burt
leir og óhreinindi sem alltaí'
koma með úr sjónum. Úr
þvottavélinni fer rækjan í dælu
sem flytur hana upp á efri
hæðina og beint í pillunarvlina.
Áður voru kassarnir hífaðir upp
á milli hæða og losað úr þeim
beint í pillunarvélina. Þá fóru
leir og önnur óhreinindi með, en
nú kemur hún semsagt hrein
sem er mikill kostur t.d. hvað
varðar viðhald á vélinni.
- Þú talar um pillunarvél. Er
bara ein?
Já, ennþá er bara ein, en allur
búnaður, bæði á undan og á
eftir pilluninni, er miðaður við
tvær vélar, og meiningin er að
innan skamms verði sett upp
önnur vél. Aðal breytingin í
vinnslurásinni núna er eftir að
rækjan kemur fínhreinsuð af
bandinu. Þar hafa orðið algjör
umskipti.
- Hvernig fór þetta fram
áður?
Þegar rækjan kom af hreinsi-
bandinu fór hún í bakka sem
dýft var í pækil. Síðan var henni
dreift á pönnur sem settar voru í
rekka og inn í frysti.l Þegar
rækjan var frosin voru rekkarnir
teknir út, rækjan vatnsúðuð og
sett í umbúðir. Eins og þetta er
núna kernur mannshöndin hvergi
nærri lrá því rækjan kentur af
hreinsibandinu þar til hún er
komin í pokana.
- í hverju felst þessi sjálf-
virkni?
Rækjan fellur af hreinsiband-
inu í rennu með pækli sem
lleytir henni að færibandi inn í
frysti. Hún kemur svo á öðru
bandi út úr frystiklefanum oger
þá fullfrosin. Þá fer hún í sjálf-
virka úðun sem skilar henni
beint í poka.
- Er mikil hagræðing af
þessu, vinnusparnaður t.d.?
Það þarf nú færra fólk við
vinnsluna en áður, og þegar
afköstin verða aukin með annari
pillunarvél þarf hvergi að fjölga
fólki nenta við hreinsibandið.
Ég álít að það láti nærri að þá
verði jafnmargt starfsfólk og
var áður með einni vél og gamla
laginu. Þá er rétt að það komi
fram að rækjan er núna mun
betur lausfryst en var og því
betri söluvara og í sumum tilfell-
um fæst betra verð fyrir hana.
Það er því ótvíræður hagur af
þeim breytingunt sem gerðar
hafa verið.
Góð reynsla og skemmtileg
Viðtal við Daníel Hilmarsson
Okkar ágæti skíðamaður, Daníel
Hilmarsson, hefur verið einna
mest í sviðsljósinu af íslenskum
skíðamönnum í vetur, Daníel er,
sem kunnugt er, nýkominn heim
eftir þátttöku í heimsmeistara-
mótinu í alpagreinum. Það er
ekki á hverjum degi að við
Dalvíkingar eigum fulltrúa á
slíkunt vettvangi og þótti því bera
vel í veiði, þegar við fréttum að
hann væri stadur á Dalvík, að
eiga við hann viðtal.
Hvað ertu búinn að vera lengi í
skíðalandsliðinu?
Eg er búinn að vera í liðinu frá
því ég var 14 ára. Starfsemi
skíðasambandsins hefur breyst
talsvert á þessum árum, meðal
annars vegna þess að það hafa verið
gerðar auknar kröfur til þeirra
sem í liðinu eru. Ti! að nefna
dæmi um þessar kröfur, þá
verða menn nú að æfa allt árið
um kring, á sumrin líka. Af
augljósum ástæðum hefur þetta
útilokað nokkra. I fyrravor leit
út fyrir að ég einn gæfi kost á
mér í liðið, en sem betur fór
rættist þannig úr því að við
urðum fjórir. Auk mín, þeir
Árni Þór Árnason frá Reykjavík
Árni Grétar Árnason frá Húsa-
vík og Guðmundur Jóhannsson
frá Isafirði.
Hvenær æfið þið?
Á sumrin erum við í líkams-
þjálfun, við æfum sjálfir eftir
prógrammi sem þjálfarinn setur
upp fyrir okkur. Síðan eru tvær
samæfingar hjá okkur á sumrin í
Kerlingarfjöllum. Á haustin er
farin ein æfingarferð til Evrópu,
síðustu tvö haust hefur verið
farið til Himtertux í Austurríki.
Fyrir áramót förum við í
keppnis og æfingarferð til
Norðurlanda. Eftir áramót er
svo farin keppnisferð til Mið-
Evrópu, ég var einmitt að koma
úr þannig ferð núna. Á vorin
förum við svo keppnisferð,'. til
Norðurlandanna. Eftir svona
áætlun var unnið í fyrra og svo
aftur núna, þannig að gera má
ráð fyrir að í þessum dúr þúrfti
þeir að vinna sem verða í
landsliðinu á næstu árum.
Hvernig hefur svo gengið á
mótum í vetur?
Það hefur jafnan gengið
svona upp og ofan, en á heildina
litið er ég ánægður. I sjálfu sérer
ég ekki beint ánægður með
útkomuna úr neinu mótanna,
en ég hef tekið töluverðum
framförum svo þetta hefur
skilað talsverðum árangri.
Alþjóða skíðasambandið gefur
út töflu yfir punktafjölda hvers
keppanda og þannig er skíða-
mönnum raðað upp eftir styrk-
leika. Menn fá svo rásnúmer á
mótum í samræmi við punkta-
fjölda.
Frá því í haust hef égbætt mig
um tæpa 30 punkta. Utreiknis-
reglur eru flóknar og svona
upplýsingar segja fólki líklega
ekki mikið annað en að um
framför,,er að ræða.
LHver‘erú líeÍstu mótin áépi þú
hefur keppt á í vetur?
* h ^ ^ramh. á,fbls. 5
• ••!
Ferðaáætlun
Ferðafélag Svarfdæla hyggst gangast fyrir eftirtöldum
skíðaferðum á þessum vetri:
Laugardaginn 23. febrúar, ferð frá Koti í Svarfaðardal upp að
Skeiðsvatni. Létt ferð fyrir alla.
Laugardaginn 9. mars, ferð frá Syðra-Holti fram „heiðar“
með viðkomu á Nykurtjörn og niður hjá Steindyrum. Tveggja
til þriggja tíma ganga, hæð ca. 700 metrar.
Laugardaginn 23. mars, ferð suður yfir Hamarinn frá þjóðvegi
á Hrísamóum á þjóðveg hjá Sökku. Lauflétt ferð fyrir alla.
Laugardaginn 5. apríl, föstudaginn langa, yfir Heljardals-
heiði frá Atlastöðum að Hólum í Hjaltadal. Ca. 5-6 tíma
gangur.
Sunnudaginn 25. apríl, sumardaginn fyrsta, ferð í Tungna-
hryggsskála upp úr Skíðadal með aðstoð vélsleða.
Allir eru velkomnir til þátttöku í öllum ferðunum ekki síst
félagar í ferðafélögunum á Akureyri og í Hörgárdal.
Stjórn F.F.Sv.
- Hafið þið haft nægjanlegt
hráefni að undanförnu?
Við byrjuðum 16. janúar eftir
breytinguna og hefur verið
svotil samfelld vinna síðan.
Stundum höfum við orðið að
vinna um helgar. Þ\ í er þó ekki
að leyna að ailtaf ríkir nokkur
óvissa varðandi hráelnisöflun-
ina, ekki síst á þessum árstíma.
Að undanförnu höfum við haft
tvo stóra báta í viðskiptum,
Sólfell frá Hrísey og Blika. Bliki
er nú að fara í nokkurra vikna
stopp. Hinsvegar er Dalborg í
fyrstu rækjuveiðilerðinni en hún
hefur verið á fiskitrolli lrá
áramótum.
- Hversu mikið barst á land á
síðasta ári?
Vinnsla hófst seinast í mars
og við gerðum hlé á vinnslu í
nóvember. Þá vorum við búin
að vinna úr rúmum 700 tonnum
af rækju. Þess má geta að þetta
er lang mesti rækjuafii sem
unnin hefur verið hjá félaginu.
Síðastliðið vor og surnar var
unnið á tveimur vöktum alveg
fast og stundum var þriðju
vaktinni bætt við og unnið allan
sólarhringinn.
- Ertu bjartsýnn á framtíðina
í vinnslunni?
Ég hef ekki ástæðu til annars.
Norðurslóð þakkar Kristjáni
upplýsingarnar og vonar að
lesendur séu einhverju nær um
þá tækniþróun sem á sér stað í
rækjuvinnslunni.
Daníel Hilmarsson í svigbrautinni.