Norðurslóð - 20.02.1985, Síða 8
Svarfdælsk byggð & bær
Skákannáll 1984
Blómlegt starf hjá Taflfélagi Dalvíkur
Tímamót
Afmæli
Þann 9. febrúar sl. átti 60 ára afmæli Jóna Gunnlaugsdóttir
fyrrverandi prófastfrú á Dalvík, nú að Melabraut 41 á
Seltjarnarnesi.
Norðurslóð sendir hjónunum heillakveðjur.
Brúðkaup
9. febrúar voru gefin saman í hjónaband í Dalvíkurkirkju,
Sigurður Gísli Lúðvíksson tannlæknir og Hanna Sigurbjörg
Kjartansdóttir hjúkrunarkona. Heimili þeirra er Drafnar-
braut 7, Dalvík.
Andlát
Þann 21. janúar dndaðistAnnaArnfríðurStefánsdóttir. Hún
var fædd á Völlum I. desember 1909. Árið 1934 giftist hún
Jóni Jónssyni skólastjóra og eignuðust þau 9 börn. Þau
bjuggu m.a. í Gröf og á Böggvisstöðum en fluttu til Dalvíkur
1958, og áttu nú síðast heimili á Dalbæ.
Anna var jarðsungin frá Dalvíkurkirkju 2. febrúar.
J.H.Þ.
Mér er spurn?
Hvernig getur staðið á því að
ekki er hægt að kaupa sér skyr-
mysu í kaupfélagsbúðinni á
Dalvík. Þessi drykkur er þó
framleiddur hjá Mjólkur-
samlagi KEA og fæst t.d. í
Hagkaupum á Akureyri á
fernum?
Hvernig stendur ennfremur á
því, að ekki er hægt að kaupa
aðrar unnar kjötvörur í mat-
vöruverslun KEA á Dalvík en
vörur frá Kjötiðnaðarstöðinni á
Akureyri. Þær eru vissulega
góðar, en Ijölbreyttar eru þær
ekki. Hvers vegna selur t.d.
kaupfélagið ekki Goðavörur frá
SÍS eða kjötvörur frá Kaup-
félagi Svalbarðseyrar. Þessi
fyrirtæki eru þó innan fjölskyld-
unnar? Svar óskast.
Kjötkrókur.
Svar:
Kjötkrókur spyr um skyr-
mysuna. Hún hefur verið seld í
lausu máli í Matvörudeild og
Kjörbúð, en einnig hefur hún
verið fáanleg á síðarnefnda
staðnum í fernum.
Einnig er spurt um unnar
kjötvörur. ÚKE á Dalvík hefur
lagt áherslu á að selja fram-
leiðsluvörur Kjötiðnaðarstöðvar
KEA, enda hafa þær líkað vel
hjá neytendum. Óhætt er að
fullyrða að tegundafjöldi er síst
minni frá Kjötiðnaðarstöð KEA
en sambærilegum stöðvum. Með
tilkomu nýrrar verslunar á
Dalvík verður lögð áhersla á
meira úrval kjötvöru.
Stjörnuspeki
REGULUS
• ^ LJONID
ARCTURUS
M.oiun
/ TVIBURARNIR
* :
< >* *
• karlsvagninn
\ ** **
LITLI BJORN *
POLSTJARNAN
• MARIUSTAKKUR * ★ <k
* * * \ ^
Ætli einhverjir lesendur Norður-
slóðar hafi ekki áhuga á að
fygljast með gangi himintungla?
Á þessum veðurblíða vetri hafa
menn haft óvenjulega góð skil-
yrði til að horfa á stjörnur
himinsins og virða fyrir sér
hreyfingar þeirra.
Frá því snemma í vetur hefur
ástastjarnan Venus skartað sínu
fegursta á kvöldhimninum í
suðri. Hún hverfurundir vestur-
fjöllin um það leyti sem
fulldimmt er. Menn skyldu
horfa vel á hana meðan færi
gefst, því þegar líður á veturinn
Árið 1984 voru skákæfingar yfir
vetrarmánuðina á þriðjudags-
kvöldum, heima hjá Jóni
Stefánssyni, að Hafnarbraut 10.
Haldin voru nokkur skákmót á
vegum taflfélagsins og einnig
tóku félagsmenn þátt í skák-
keppni utansveitar.
Hér á eftir verður í stuttu máli
gerð grein fyrir starfseminni
1984.
Skákmót Ungmennasamb-
ands Eyjafjarðar var haldið í
Þelamerkurskóla í janúar og
febrúarmánuðum og voru 5
keppendur frá Dalvík á því
móti. Tefldar voru 7 umferðir
eftir Monradkerfi. Rúnar Búa-
son varð í 3. sæti með 5 vinninga
og Gunnar Bergmann í 5. til 10.
sæti með 4 vinninga.
26. febr. Hraðskákmót að
Hafnarbraut 10. Þátttakendur
10 tvöföld umferð.
Sigurvegari var Rúnar Búason,
17 vinninga, Gunnar Bergmann
15. v. Ottó Gunnarsson 12 v.
26. febr. Hraðskákmót fyrir
unglinga 16 ára og yngri. 9 þátt-
takendur, tvöföld umfer. Úrslit:
1.-2. Kristján Þorsteinsson, 14
vinninga. 1.-2. Sigurður Antons-
son, 14 v. og Friðrik Sigurðsson,
12. vinninga.
4. mars. 15-mínútna-skákmót
fyrir unglinga 16. ára og yngri.
Tefldar voru 7. umf. eftir
Monradkerfi. Úrslit urðu. 1.
Gunnar Sigurðsson 4 1/2. v. 2.
Krisján Þorsteinsson 3 1/2 v. 3.
Sigurður Antonsson, 3 1/2 v.
Þrír félagsmenn tóku þátt í
minningarmóti um Búa
Guðmundsson, sem haldið var
að Melum i Hörgárdal í mars og
aprílmánuðum s.l. Tefldar oru 7
umferðir eftir Monradkerfi.
Aðalsteinn Grímsson hlaut
4 1/2 v. Jón Stefánsson 4. v. og
Brvnjólfur Eiríksson 3 1/2 v.
1 tilefni 100 ára byggðar í
Ólafsfjarðarhorni hélt Taflfélag
Ólafsfjarðar afmælismót þann
1. september 1984. Til þessa
skákmóts var boðið eftirtöldum
taflfélögum: Taflfélagi Siglu-
fjarðar, Taflfélagi Fljótamanna
og Taflfélagi Dalvíkur. Þetta
var svokallað 15. mínútna skák-
mót, tvöföld umferð. 8. kepp-
endur voru frá hverju félagi. 6
fullorðnir, 1. unglingur og 1
kvenmaður.
Úrslit urðu eftirfarandi. Tafl-
félag Dalvíkur 34 vinninga,
Taflfélag Siglufjaðar 29. v.
Taflfélag Ólafsfjarðar 20 v. og
Taflfélag Fljótamanna 13 vinn-
inga. Taflfélag Dalvíkur hlaut
verðlaunabikar til eignar fyrir
sigur á mótinu.
Stefnt er að því að halda
svipaðri skákkeppni áfram milli
þessara félaga og verður næsta
mót á Dalvík í ágústmánuði
1985.
Skáksveit Taflfélags Dalvíkur
skipuðu eftirtaldir: Rúnar Búa-
son, Gunnar Bergmann, Ottó
Gunnarsson, Aðalsteinn Gríms-
son, Brynjólfur Eiríksson
Freygarður Þorsteinsson,
Kristján Þorsteinsson, og
Arnfríður Friðriksdóttir. Farar-
stjóri var Jón Stefánsson.
8. sept. var 15 mínútna
skákmót fyrir 17 ára og eldri. 9.
þátttakendur. Úrslit urðu: 1.
Aðalsteinn Grímsson 7 vinninga
Rúnar Búason, 6 1/2 vinning.
Freygarður Þorsteinsson 6. v.
14. okt. hraðskákmót. 16
þátttakendur. Úrslit. Rúnar
Búason 13 v. Brynjólfur Eiríks-
son 13. v. og Ottó Gunnarsson,
13. v.
20. okt. hraðskákmót unglinga
16 ára og yngri. Nr.l. Kristján
Þorsteinsson, 10 vinninga 2.
Sigurður Antonsson 7.v. og 3.
Gunnar Ómarsson 6. vinninga.
Skákmót Dalvíkur var haldið
á tímabilinu 16. okt. til 20. des.
1984. Þátttakendur voru 14.
Sigurvegari og þar með Skák-
meistari Dalvíkur 1984 var
Rúnar Búason með 13. vinninga
nr. 2 var Ottó Gunnarsson, 11.
v. og 3. Gunnar Bergmann 10
v. og 3. Gunnar Bergmann
10 1/2 v.
26. des. hraðskákmót 16 ára
og yngri tvöföld umferð. 6
þátttakendur. Sigurvegari var
Kristján Þorsteinsson, nr. 2
Gunnar Ómarsson nr. 3. Hákon
Stefánsson.
26. des. Hraðskákmót með
þátttöku nokkurra utanfélags-
rhanna, var haldið í Dalbæ við
ágætis aðstæður og kaffidrykkju
að loknu móti. Vil ég nota þetta
tækifæri og færa forstöðumanni
Dalbæar og starfsfólki innilegar
þakkir fyrir veitingar og fyrir-
greiðslu.
Þátttakendur voru 15. Sigur-
vegari varð Jón Björgvinsson,
Akureyri, með 12 1/2 vinning.
Næstir urðu í 2.-4. sæti með 9.
vinninga, Rúnar Búason, Karl
Steingrímsson og Ottó
Gunnarsson.
Rúnar Búason var Hraðskák-
meistari Dalvíkur 1984 fyrir
flest stig úr þremur hraðskák-
mótum á árinu.
Þá vil ég að lokum geta þess
að Sparisjóður Svarfdæla hefur
falið Taflfélagi Dalvíkur að
gangast fyrir minningarskák-
móti um Svein Jóhannsson,
fyrrverandi Sparisjóðsstjóra
„Sveinsmót" og hefur spari-
sjóðurinn lofað að gefa vegleg
verðlaun til þessarar skák-
keppni, sem fyrirhugað er að
halda árlega næstu 10 ár.
Taflfélag Dalvíkur mun
auglýsa með nægum fyrirvara
þegar ákveðið er að halda þetta
mót.
Dalvík 17. febr. 1985
fh. Taflfélags Dalvíkur
Jón Stefánsson.
Skáksveit Taflfélags Dalvíkur i Ólafsfirði þann I. sept. 1984. Freygarður
Þorsteinsson, Gunnar Bergmann, Arnfríður Friðriksdóttir (með verðlauna-
bikarinn), Rúnar Búason, Aðalsteinn Grímsson og Jón Stefánsson.
Hraðskákmót unglinga í Dalbæ þann 26. des. 1984. Gauti Rúnarsson,
Kristján Þorsteinsson, Hákon Stefánsson, Gunnar Ómarsson, Rúnar
Kristinsson, Svavar Ingimarsson.
mun hún hverfa okkur sýn í
birtu sólar. Venus er nefnilega
reikistarna um sólu eins og
jörðin og nær sól en við. Þetta
vissu auðvitað allir, en ekkert
sakar að minna á það.
Lengi vetrar hefur önnur
reikistjarna verið að sveima
örskammt frá Venus, eða
þannig ber það við frá okkur
séð. Nú er hún svo sem 5-10
gráðum neðan við hana og
aðeins vinstra megin. Þetta er
daufleit rauð stjarna núna. Það
er stjarna herguðsins rómverska
og heitir eftir honum, Mars.
Mars er eins og allir vita
næsta stjarna utan við jörðina í
sólkerfinu og getur því aldrei
komið nærri Venus, en það vill
bara svo til núna að þær ber
svona skemmtilega saman, en
eru reyndar að fjarlægast um
þessar mundir.
Svo eru allar fastastjörnurnar.
Hér skal aðeins bent á þá
fegurstu þeirra allra. Sirius
Hundastjörnuna, sem frá
Dalvík séð kemur upp af
Rimunum innanverðum milli
kl. 9 og 10, hverfur um stund
undir Hvarfshnjúkinn, en kemur
aftur í ljós von bráðar og siglir
lágt yfir Skíðadalinn og
flýtur liídega aðeins yfir Stólinn
þaðan séð. Þetta er hennar
braut, sem hún fer ár og síð og
alla tíð, enda þótt uppkomu-
tíminn breytist. Hann erfyrr og
fyrr frá degi til dags svo munar 4
mínútum hvert sinn. Það skyldu
menn vel athuga, og eins er að
sjálfsögðu um allar hinar fasta-
stjörnurnar.
Að lokum skal minnt á sjálfa
leiðarstjörnuna, öðru nafni Pól-
stjörnuna, Stella Pólaris, sem
stendur óhreyfanleg uppundir
hvirfilpunkti. Hún er raunar
ekki sérlega björt stjarna, því
miður. Við getum fundið hana ef
við þekkjum Karlsvagninn, öðru
nafni Stóra-Björninn. Ef við
drögum ímyndaða línu frá
bakgafli „vagnsins” lendirlínan
á Pólstjörnuninni ca. 23gráðum
neðan við hvirfilpunkt. Frá
miðbæ Dalvíkur ber hana yfir
mitt Karlsárfjallið. Þaðersemsé
Þetta mundi vera nóg stjörnu-
fræði í bráðina. Kannske við
höfum aðra lexíu síðar.