Norðurslóð


Norðurslóð - 16.12.1986, Side 2

Norðurslóð - 16.12.1986, Side 2
NORÐURSLÓÐ Útgefendur og ábyrgðarmenn: Hjörtur E. Þórarinsson, Tjörn, Svarfaðardal Jóhann Antonsson, Dalvik Afgreiðsla og innheimta: Sigríður Hafstað, Tjörn Sími 96-61555 Ljósmyndari: Rögnvaldur Sk. Friðbjörnsson Prentun: Prentsmiðja Björns Jónssonar Norðurslóð 10 ára Með útkomu þessa tölublaðs lýkur 10. árgangi Norðurslóðar. Fyrsti árgangurinn var aðeins 2 tölublöð, þ.e. nóvember- og desemberblað 1977. Síðan hafa komið út reglulega 10 blaða árgangar þangað til í ár, að blöðin urðu 12. Núer því tilefni til að líta til baka og rilja upp, hvað vakti fyrir mönnum þegar þeir hieyptu þessu nýstárlega fyrirtæki af stokkunum. í ávarpi til lesenda segir m.a. á fyrstu síðu fyrsta blaðs: „Sú er von okkar, að regluleg útkoma slíks héraðsblaðs geti stuðlað að almannaheill, byggðarlagið verði skemmti- legri og menningarlegri staður fyrir þá, sem hér búa, og að hinir, sem brott eru fluttir, en eiga rætur sínar hér, eigi auðveldara með að fylgjast með gangi mála og halda lifandi tengslum við heimabyggðina." Þó að fáir séu góðir dómarar í eigin sök teljum við samt, að sú fróma von, sem þarna var látin í Ijós, hafi ræst að verulegu leyti. Það er nú sýnt og sannað, að það er hægt að halda gangandi svona starfsemi í svarfdælskri byggð þótt ekki sé hún fjölmennari en hún er. Til þess þarf þó vinnu og vakandi áhuga og ekki síst úthald til að gefast ekki upp í miðjum klíðum, þó að eitthvað blási á móti. Þessir nauðsynlegu þættir hafa enn sem komið er verið til staðar ínægilega ríkum mæli til að útkoman hefur verið regluleg. En hvað um framtíðina? Lífsskilyrðin eru ílagi, þaðhöfum við séð. Tryggð lesenda við blaðið hér heima fyrir hefur ekki minnkað og þaðan af síður meðal brottfluttra Svarfdæla. Fjárhagsgrundvöllurinn er líka til staðar, ef dáiítið er unnið á auglýsingaakrinum. Samt eru blikur á lofti, sem geta orðið þess valdandi að þráðurinn slitni þegar minnst varir. Með þessum orðum er ekki verið að boða endalok útkomu Norðurslóðar. Hún mun væntanlega birtast lesendum sínum enn á ný eftir áramótin. Hinsvegar teljum viðrétt aðminna á, að það er ekkert sjálfsagt, að svona blað komi út áratugum saman, arm.k. ekki í óbreyttu formi. Fjölmiðlaheimurinn er mettaður efni fyrir augu og eyru svo út af flóir, líka hér íokkar litla byggðarlagi. Öllu má ofgera. Hvað sem öðru líður sendum við lesendum okkar bestu kveðjur og þakkir fyrir viðskiptin frá upphafi. Gleðileg jól, farsælt komandi ár. HEÞ JA Stofnendur Norðurslóðar f.v. Hjörtur E. Þórarinsson, Jóhann Antonsson og Óttar Proppe. Myndin tekin fyrir 2 árum. Góðir lesendur í þessu blaði munuð þið finna okkarhefðbundnujólaþrautir. Ljóðagetraunin er á einum stað, á öðrum gátuvísur og á þeim þriðja samheitaleikur Árna Rögnvaldssonar. Fyrir réttar lausnir allra þessara þrauta veitir blaðið bókaverðlaun, sem gefin eru af Bókaútgáfuni Skjaldborg eins og venjulega. Og að lokum kemur hér ein vísubyrjun. Getur nokkur botnað? Yfir dalsins byggð og bœ breiðist jólasnjórinn. Aðalbjörg Jóhannsdóttir Örnefni í Böggvisstaðalandi II Það var sumarið 1978 að ég fór til Baldvinu, dóttur Þorsteins frænda, og fékk hana með mér í leiðangur um Böggvisstaðahóla. I þeirri ferð var iögð undirstaða að því sem hér fer á eftir. Þó var það ekki fyrr en íhaust 1986 eftir24árfrá því við Þorsteinn byrjuðum að ég heimsótti frændsystkini mín á Bjarkarbraut 7, Hildi, Bergljótu og Guðjón til skrafs og ráðagerða og upp úr þeim umræðum lauk ég við allt plaggið, með þeirra leiðbeiningum og ráðum. Við Baldvina á Ögðum upp í Hólum 7. ágúst 1978. Við göngum suður Böggvis- staðahóla neðan víð Stórhól. Stórhólstjörn er ofan við hólinn, hún þornar alltaf síðsumars og er þur nú. Þegar farið er suður með skógræktargirðingunni að vestan er Böggvisstaðastekkurá hægri hönd sunnarlega. Dala- götur liggja frá Böggvisstöðum út og upp fjall austan í Strýtu- hól, upp á Leppamel, neðan við hvers, sem þar vill koma og þar sprettur góðgæti. Miðhjalli er sá sem Þrimelar og Tveirmelar mynda, en Efsti- hjalli er suður af Selhól fjall sem skarðið eða lautin sunnan við efri togbrautina sker í sundur. Krókhjallinn sem er syðst í fjallinu, liggur út og suður ofan við bæina sunnan við Böggvis- staði. Af honum er brött brekka og þar niður undan grænir flákar sem heita Teigar. Þarna erum við komnar suður úr Böggvisstaðalandi. Einsogáður ersagt heitir íjallið allt Böggvis- staðafjall, en yst og syðst tilheyrir það nágrannabæjum. Böggvisstaðahlíðin er framan í miðfjallinu ekki skýrt afmörkuð en örugglega í Böggvisstaða- landi. Gæti hafa verið milli merkja upphaflega. Mamma talaði oft um Hlíðina og þá hlýjum rómi. Við höldum áfram suður og upp fyrir ofan Böggvisstaði og komum að kvos, það er Volgu- tjarnarstæðið. Sunnan við Við fórum upp brekkuna og þarna er gamli vegurinn fram sveitina meðfram girðingunni fyrir ofan bæina, vel sýnilegur og götutroðningar sumstaðar mjög djúpir, svo greinilega hefur verið þarna mikil umferð. Gerðin eru milli bæjanna Böggvisstaða og Hrafnsstaða. Þar var áður býlið Kofi. í suðaustur blasir við flatlendi, það er Breiðan. Vestur af henni, þegar landið hækkar, eru Holts- móar. Meðfram Breiðunni rennur Svarfaðardalsá í styttu máli Dalsá og þarna er hún farin að streyma lygn á leið sinni til sjávar. En við vorum að tala um veginn, hann lá þarna í norður ofan við túnið í stefnu ofan við Bergþórshvol og út ogniðurþar sem var Gamla-Sogn. En ef farið var frá Böggvisstöðum, ti) dæmis til kirkju, að Upsum, var farið beint í áttina að Upsum og yfir Brimnesána á borði hjá Brimnesi. Við lítum til norðvesturs. Hvar eru Böggvisstaðasvarð- mýrarnar? Ekki lengur til, orðnar tún og skurðir og_ eitthvað komið undir byggð. Úr mýrun- um seytlaði smálækur fyrir utan Vegamót og um ræsi þar á veg- inum, sameinaðist svo F'læðun- um sem er mvrlendið frá | I Böggisstaðabærinn eftir aldamótin. Selhól, framhjá Löngulaut efst, í áttina upp á Dal og eigum við Dalvíkingar sunnan ár við Böggvisstaðadal þegar annað er ekki tekið fram. Sama er með fjallið og hólana, við förum upp í Fjall og Hóla í styttu máli og stundum líka upp á Dal, en það er styttra en að fara fram á Dal. Svo fór maður í gamla daga upp í Móa en þangað var stutt og ég held að þeir séu komnir undir byggð. Dalagötur sjást orðið illa en eru vel finnanlegar. Þær voru oft hafðar til viðmiðunar, hve langt er farið upp í fjall, til dæmis hvort farið var utan eða sunnan við Leppamel. En að fara „sunnan við Stekk“ þá var ekki farið að halla upp í fjallið. Stekkjarhjalli og Neðstihjalli er það sama, nokkuð upp af Stekknum. Nokkru ofar eru grasi grónar Grænurnar, og skera sig vel úr annars vel grónu íjallinu, í þeim eru dý og nokicur raki, en annars'.er fjallið mjög þurrt. Fjallið er mikill dýrgripur, það skiftir litum úr grænu í rautt, í hvítt og ótal fleiri Jiti eins og það væri að spila við okkur Olsen Olsen. Þar er friður og frelsi og laut, hóll, hjalli, stallur eða brekka til afnota eftir smekk tjarnarstæðið er melurinn Langi- hryggur og liggur fyrst út og suður en síðar suður og upp. A melnum er stór steinn og annar minni, mikið sprunginn. ,,í þessum steinum héldum við krakkarnir að væri huldufólk“ segir Baldvina. Volgatjörn hefur verið ræst fram nú, hún var beint ofan við Böggvisstaði fyrir ofan girðinguna. „Hún var alltaf volg yfir sumarið“ segir Baldvina, og það sagði mamma líka. ,,Já,“ segir Hildur, „við fórum í fótabað í volgri tjörn- inni og tróðum löppunum niður í leirinn". Tjörnin þornaði alltaf síðsumars. Austan við Volgu- tjörn er brekka og þegar kemur upp í brekkuna eru nokkrir steinar jarðfastir. Einn þeirra er flatur og stór og Baldvina segir: „Þarna gerðum við stelpurnar drullukökur því auðvelt var að ná í efni úr tjörninni, vatn og leir, svo þetta var þægilegt athafnasvæði. Einu sinnivorum við búnar að raða kökum á allan steininn og ætluðum að baka yfir nóttina. En daginn eftir þegar við komum að, var búið að eyðiJeggja allt. Við kenndum Manga í Hrafnstaða- koti og Stebba á Hrafnsstöðum um spjöllin.“ Sandgerðistjörn (Flæðatjörn) að Svarfaðardalsá og vestur að bökkum neðan við veginn. Ofan við þetta ræsi var smápollur eða uppistaða. Þarna stoppaði maður oft þegar kýrnar voru reknar, lagðist á magann eða settist til þess að horfa á hornsílin, barði öðru hvoru í bakkann og þá iðaði allt af lífi. Meðfram bökkunum vestur af Flæðunum voru víða djúp dý. Flæðarnar voru beitiland fyrir þýr kauptúnsins á mínum barns- árum og lengur, en vegna dýjanna rákum við þær oftast suður að á og austur árbakkann, heitir hann nú Kúabakki. Það nafn heyrði ég ekki fyrr en ég var orðin fullorðin. Hefir það líklega orðið til á þeim árum, sem launaðir „rektorar" gættu kúnna. Svo færum við okkur upp á stóran og mikinn hól, það "er Snælduhóllinn. Þar er víðsýnt og Baldvina segir: „Hingað fór Baldvin afi þegar hann vildi sjá vel út á sjóinn og niður á Böggvisstaðasand, það gerði Loftur frændi líka. Þelr þurftu oft að ganga út og upp á hólinn.“ Framhald í næsta blaði. 2 - NORÐURSLÓÐ

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.