Norðurslóð - 16.12.1986, Page 22
Frh. af bls. 11
Nú voru öll ljós slökkt eins og
áður. Síðan kveiktu menn á litlu
kertunum stóðu síðan upp og
gengu í einni halarófu upp að
háborðinu og settu kertin í þar
til gerðan platta, með hjartalagi
og var hann staðsettur fyrir
framan brúðhjónin. Reyndar
voru fleiri en einn platti. Þetta
var mjög hrífandi. Og meðan
menn gengu upp að háborðinu
með kertaljósin sungu menn
ljóðið, sem var á örkinni, sem
var vafin utan um kertin. En
ljóðið var búið áður en menn
höfðu losað sig við kertin og þá
var bara byrjað aftur.
Þau Óli og Maria þurftu oft
að standa upp og þakka fyrir
tiltal og gjafir, því að þeim
bárust margskonar gjafir og var
þeim raðað upp á sérstakt borð
og öllum til sýnis. Éggleymdi að
geta þess hér áður að Lars sonur
þeirra ávarpaði þau sérstak-
lega, einkar hlýlega og fallega,
enda vargóður rómurgerðurað
ávarpi hans. Ég vík aftur að
kertunum. Þessi ljósamessa var
hrífandi fögur og „rómantísk"
og ég hygg að allir munu
minnast þess lengi. Við heima-
alningarnir frá íslandi höfðum
aldrei séð neitt líkt þessu.
Borðhaldinu lauk svo um kl.
23.30 með því að þau Óli og
Maria þökkuðu vel fyrir sig.
Síðan var gestum boðið í annan
sal. Þar beið gestanna kaffi og
meðlæti og aðrir drykkir. Ég
hefi nokkrum sinnum nefnt
aðra drykki, svo margur gæti
haldið að þetta hefði verið
eitthvert fyllirís„party“. Það er
langur vegur frá að svo væri, því
að segja má að áfengi hafi ekki
sést á neinum manni en gleði og
fögnuður ríkti meðal allra.
Þegar menn höfðu hrest sig á
kaffinu hófst dansinn. Hann
hófst með því að brúðhjónin
stigu vals, en gestir röðuðu sér í
stóran hring, svo stóran, að
salurinn leyfði. Þá klöppuðu
menn taktinn, en hjónin döns-
uðu áfram. Síðan var hringur-
inn smá þrengdur, þar til brúð-
hjónin gátu ekki lengur dansað
og stóðu kyrr ágólfinu og þá var
ekkert annað fyrir þau að gera
en að kyssast eins og þau höfðu
gert fyrir 25 árum. Þeim var'það
ábyggilega ekkert á móti skapi.
Að loknum góðum kossi var
hringurinn víkkaður aftur og að
loknum þessum inngangsdansi
hófst svo ballið með mikilli
þátttöku þeirra sem til verka
kunnu, en hinir sátu hjá og
glöddust með öllum glöðum og
drukku kaffi og nutu annarra
góðgerða og þar blönduðu allir
geði hverjir við aðra og má segja
að hér hafi verið eins og hjá
pöstulanum Páli „enginn Páll,
enginn Kefas og enginn Appolo
og meira að segja enginn útlend-
ingur, heldur sannur, góðravina
fundur."
Þessi góði fagnaður stóð fram
eftir nóttu, eða til kl. 2. Þá var
gert hlé á dansinum og borið
fram það, sem danskir kalla
„natmad", en það var súpa með
litlum kjötbollum í og hveiti-
kúlum og náttúrlega bjór líka
eins og hver vildi hafa. Menn
gjörðu þessu góð skil eins og
matnum áður og furðaði okkur
nokkuð á því, hvað fólk gat
látið í sig. Auk þess sem áður
getur um súpuna var í henni
ýmiskonar grænmeti og þá var
einnig framborið franskbrauð
með henni.
Dansinum lauk á sama hátt
og hann hófst og honum lauk
áður en náttverðurinn var fram
borinn.
Er staðið var upp frá borðum
fóru menn að kveðjast og þakka
fyrir sig. Við hjónin gistum hjá
þeim Óla og Mariu. Við héldum
áleiðis heim til Kongens Lyngby
daginn eftir. Óli fór með okkur
til Seby og Lars sonur hans
einnig, sem varð svo leiðsögu-
maður okkar á heimleiðinni.
Fyrst fórum við með ,,buss“ til
Roskille, en tókum lest þaðan.
Þetta var fyrsta lestarferð okkar
beggja og það var gaman að
prófa það.
Þessi silfurbrúðkaupsdagur
mun aldrei líða okkur úr minni
og svo dönsk vorum við orðin
að það lá við að við byðum
hvort öðru góða nótt á dönsku.
Þess má einnig geta að daginn
eftir brúðkaupið spiluðum við
„gömlujónfrú" við þau hjónin
og börn þeirra, en það spil
spilaði Óli oft við krakkana
heima á Völlum.
Hér lýkur frásögn minni að
sinni. Við hjónin sendum
þakkarkveðjur heim í dalinn
og óskum öllum Svarfdæling-
um heima og heiman gleðilegra
jóla og árs og friðar á komandi
ári.
Fréttahornið frh.
vera af Dalvík, en 6 úr hreppn-
um. Annað er það, að framvegis
kýs hreppsnefnd Svarfaðardals-
hrepps fulltrúa í sjóðsstjórnina í
stað sýslunefndar Eyjafjarðar-
sýslu, sem bráðlega er úr
sögunni. Það liggur því fyrir
stjórn sjóðsins að tilnefna 10
nýja ábyrgðarmenn á Dalvík.
í sjóðsstjóminni eru nú Jóhann
Antonsson, formaður, Baldvin
Magnússon,. Guðríður Ólafs-
dóttir, varamaður Halldórs
Jónssonar, sem er fluttur burt af
starfssvæðinu, Hjörtur E.
Þórarinsson og Óskar Jónsson.
Enn á ný viljum við minna á opnunar-
tíma Byggingavörudeildar og Svarf-
dælabúöar, nú þegar jól og áramót
fara í hönd.
Laugard.
Þriðjud.
Miðvikud.
Miðvikud.
20. desember kl.
23. desember kl.
24. desember kl.
31. desember kl.
10.00-22.00
9.00-23.00
9.00-12.00
9.00-12.00
Föstudaginn 2. janúar 1987. Lokað vegna
vörutalningar, en sölulúga opin frá kl. 15.00-
19.00.
Auk þess verður sölulúgan opin laugard. 27.
des., sunnud. 28. des., laugard. 3. jan,, og
sunnud. 4. jan. frá kl. 10.00-12.30 og 13.30-
19.00.
Kaupfélag Eyfirðinga
Utibúið á Dalvik
Okkur er það kappsmál að bjóða aðeins
vandaðar vörur á hagstceðu verði.
Verslum heima fyrir jólin!
SVARFDÆLABÚÐ:
Gífuriegt úrval af ódýrum og góöum gjafavörum
og leikföngum.
Ferskir ávextir á fersku verði.
Jóiakonfektiö á jólaverði.
Bökunartilboð - allt í jólabaksturinn.
Tiiboðsverð á:
Grænmeti frá K. Jónsson,
Sana gosdrykkjum í 1,5 lítra flöskum,
Emmess ís og Kjör ís.
Og að sjálfsögðu allt í jóiamatinn á mjög
hagstæðu verði.
B YGGIN G A V ORUDEILD:
Heimilistæki í heilmiklu úrvali.
Jólaijós og jólaseríur í öllum regnbogans litum.
Skíði og snjóþotur í úrvali.
Málningarvörur - óskalitir, handverkfæri ofl.
4.
Sendum félagsmönnum,
starfsfólki og viðskiptavinum
bestu jóla og nýársóskir.
Þökkum samstarfið.
\
KAUPFELAG
EYFIÍÖÐINGA
útibúið á Dalvík.
22 - NORÐURSLÓÐ
Jólaölið frá Sana
Sala er hafin á vinsœla jólaölinu
frá Sanitas /57 brúsum.
Ath. pantanir óþarfar.
Nú er glerburður gamaldags. Mix,
Appelsín, Appelsín sykurlaust, Diet
Pepsi, Pepsi Cola, 7 up, Diet 7 up, í
1,5 l umbuðum.
Nýjung í dag, allar gosdrykkja-
tegundir í dósum.
Umboð f. Panda konfekt, Panda
súkkulaði.
Sana umboðið Dalvík óskar
öllum viðskiftavinum sínum
gleðilegra jóla og
farsœldar á komandi ári.