Norðurslóð - 06.07.1989, Síða 2
2 - NoRÐURSLÓÐ
NORÐURSLÓÐ
Útgefendur og abyrgðarmenn:
Hjörtur Þórarinsson, Tjörn, Svarfadardal
Jóhann Antonsson, Dalvík
Afgreiösla og innheimta: Sigríöur Hafstaö, Tjörn
Sími 96-61555
Ljósmyndari: Rögnvaldur Sk. Friöbjörnsson
Prentun: Dagsprent
Orkufrekur
iðnaður
Enn á ný er hafin umræða um aukningu orkufreks
iðnaðar hér á landi og Eyjafjörður m.a. nefndur til sem
líklegur staður til að hýsa slíka starfsemi. Fyrir
nokkrum árum voru uppi ráðagerðir um álbræðslu sem
valinn yrði staður á vesturströnd fjarðarins skammt
innan Hjalteyrar. Þar er búskapur lítill en landrými
mikið á eina stóra, oræktaða láglendissvæðinu í sýsl-
unni.
Mikill ágreiningur kom strax í Ijós um réttmæti þess
að setja niður stóriðjuver í héraðinu. Meðmælendur
færðu fram rök er lutu að nauðsyn atvinnuaukningar og
viðnáms gegn brottflutningi fólks af Eyjafjarðarsvæð-
inu. Andmælendur lögðu áherslu á hættu á óheppilegri
röskun byggðar innan héraðs og sérstaklega á mikilli
inengunarhættu vegna náttúrulegra aðstæðna við
fjörðinn.
Ekki er vafi á því að nú upphefst aftur heit deila
meðal héraðsbúa um málið og öll hin gömlu rök verða
dregin fram aftur og blásið af þeim rykið. Sitthvað
hefur þó gerst síðan hugmyndin um iðjuverið á vegum
hins kanadíska félags stóð sem hæst, sem getur breytt
afstöðu manna. Lengri reynsla er fengin af stórum
málmiðjuverum fyrir sunnan (Straumsvík, Grundar-
tangi), sem dregið hefur úr ótta manna við félagslegan
ófarnað af slíkri starfsemi, en þar er annað verið fast
við stóran kaupstað en hitt nánast úti í sveit þótt við
sjóinn sé. Þá eru líkurnar fyrir óviðráðanlegum meng-
unaráhrifum frá málmbræðslum stöðugt minnkandi
með nýrri varnartækni á því sviði.
Jafnframt hefur það sýnt sig að jafnvel hérað sem
Eyjafjörður með fjölbreyttu atvinnulífi, þar á meðal
margskonar léttum iðnaði, megnar ekki að halda í fólk
sitt og fjármuni gegn aðdráttaraflinu mikla frá höfuð-
borgarsvæðinu, sem nærist eftir ótal sterkum rótum,
þar á meðal stóriðju með öllum þeim umsvifum, sem
henni fylgja.
Að svo komnu máli liggur ekkert fyrir um það, að
Eyfirðingar standi frammi fyrir því á næstu árum að
eiga að taka ákvörðun með eða móti uppbyggingu
orkuiðnaðar í liéraði sínu, þó að það megi teljast
líklegt. En víst er það, að niðurstaðan mun hafa víðtæk
áhrif á þróun byggðar við fjörðinn og raunar á landinu
öllu. HEÞ
Dagbók Jóhanns
á Hvarfi
- Anno 1897
1. jan. Fór margt til kirkju. Ég
var heima, skrifaði í sparisjóðs-
bækur og fleira.
2. jan. í dag enti ég við skýrslu
yfir jarðskjálftaveitu úr Valla-
sókn kr. 62,10, sent með Stefáni í
Hofsárkoti á morgun. (Söfnunar
gjafafé vegna jarðskjálftanna
miklu á Suðurlandi.
9. jan. Kom Jói heim úr
Sökku, hefir verið þar heimilis-
kennari í 8 vikur.
23. jan. Kom Grímur sagði
fréttir af kaupfélagsfundi. Afráð-
ið að halda áfram pöntun og
senda sauði er slátrast í Englandi
við affermingu, líka ráðið að taka
smjör, tólg, kæfu, saltkjöt, haust-
ull, og sv. frv.
29. jan. I nótt kom Sigurður í
Sælu yfir á leið að Tjörn að sækja
yfirsetukonu. Fór Þórunn heim
að kvöldi, var fylgt yfir að
Grund.
31. jan. Frétti að Anna Þor-
steinsdóttir á Hellu hafi dáið í
fyrradag hún var ekkja Vigfúsar
sál. er þar bjó lengi, þau hjón
áttu þá jörð og leifa sér ágætan
orðstýr. (Anna var frá Skáldalæk
alsystir Jóns á Hóli út, föður Jóns
í Framnesi.)
21. feb. Kom Jón Þórðarson
frá Syðra-FIolti, fór ég með hon-
um fram í Hnjúk ....... kom úr
kaupstað sagði Ólaf Þorsteinsson
póst hafa fallið fyrir björg niður í
fjöru nálægt Miðvík eða Ytrivík,
á hesti, fórst hvorutveggja. Gísli
fór með okkur fram í Hnjúk,
gistum þar allir.
22. feb. Gerður samningur að
Jón (Þórðarson) byggi sér hús-
næði á stekknum í vor 1897.
Ýmislegt þessháttar skrifað, gekk
allur dagur í það svo við gistum
aftur. (Þetta er Hlíð sem á að
fara að byggja útúr Hnjúki.)
23. feb. Fórum út á stekk,
skoðað stæði fyrir bygging og
fleira. Fórum heim. Útlit ljótt.
25. feb. Jarðlaust . . . Áfreði.
Kom Jóhann í Árgerði með 100
þorskhöfuð g 3 fjórðunga af fiski,
sem hann færði mér, fékk aftur 3
poka af töðu. Hann hafði hest og
sleða.
4. mars. I nótt norðaustan
stórhríð, hægði að morgni og
dreif niður í logni í allan dag.
10. mars. Sagt að Jón Magnús-
son liggi í lúngnabólgu inn á
Skriðulandi, var þar að sauma
segl á skipið Storm.
14. mars. Hefur Jói kennt pilt-
Dagbók Jóhanns í fjölriti?
Undanfarin misseri hefur þetta
blað birt reglulega útdrátt úr dag-
bók Jóhanns Jónssonar á Ytra-
Hvarfi, þeirri sem liann hélt yfir
árin 1888 til 1900, að báðum
meðtöldum. Nú er meirihluti
áranna 13 þegar kominn á prent,
en eftir er samt efni til heils árs
eða meir, og er að sjálfsögðu
ætlun blaðstjórnar og
Aðalbjargar Jóhannsdóttur, sem
ritstýrir þættinum, að Ijúka verk-
inu í líkum dúr og hingað til.
Ekki fer á milli mála, að
skiptar skoðanir eru á því, hvort
svona efni eigi erindi í blað eins
og Norðurslóð. Við vitum vel, að
ýmsir fussa og sveia þegar þeir
sjá pistilinn og fleygja frá sér
blaðinu. Aðrir, og þeir eru furðu
margir, lesa þetta af áhuga og
athygliu og vilja fá sem ýtarleg-
astan útdrátt úr dagbókarfærsl-
unum. Þetta er sjálfsagt flest
roskið fólk, sem man tímanna
tvenna og hefur ræktað með sér
áhuga á sögu byggðarlagsins.
Sannleikurinn er líka sá, að sé
vel lesið kemur fram af þessum
blöðum skýr og stórfróðleg mynd
af lífi og stríði og starfi forfeðra
okkar og mæðra hérna í sveitinni
og spírandi kauptúni á Sandinum
fyrir og um aldamótin. Þetta er
eiginlega ómetanleg heimild og
gefur tilefni til margskonar hug-
leiðinga um þetta merka tíma-
skeið í svarfdælskri sögu.
Nú má ekki gleyma því, að
þetta, sem birt er í Norðurslóð er
einungis minnihlutinn af þessu 13
ára verki Jóhanns á Ytra-Hvarfi.
Meirihlutinn er hvergi til nema í
handritinu, sem að vísu er vel
geymt í Skjalasafni Svarfdæla í
Ráðhúsinu á Dalvík. Undir-
rituðum hefur dottið til hugar, að
ástæða væri til að koma þessu
verki í aðgengilegri búning en
það er í handritinu með góðri, en
ekki sérlega læsilegri rithönd
Jóhanns. Þetta hefur vafalaust
fleirum dottið í hug þ.á.m. konu
sem hringdi nýlega frá Reykja-
vík. Hún heitir Ráðhildur Jóns-
dóttir, frænka Kristínar Páls-
dóttur á Símstöðinni og ekkja
Sigurðar heitins Gunnlaugssonar
frá Hofsárkoti. Hún gerði það að
tillögu sinni, að Dagbókin væri
gefin út sem bók.
Spurningin er því þessi, hvort
einhver vill ganga fram í að láta
vélrita upp allt verkið. Það er
töluvert vandaverk, því dálítið
þarf að fara höndum um staf-
setningu og þó einkum setningu
greinarmerkja. Og þetta þarf að
setja upp af smekkvísi svo vel fari
í riti.
Þetta kostar auðvitað ein-
hverja peninga, og hver vill og
getur lagt þá fram? Hefur t.d.
safnið nokkra fjárveitingu til að
kosta svona verk? Kæmi til mála
að fjölfalda þetta og selja ritið til
að hafa upp í kostnað? Svona má
spyrja.
Hér með er þessari hugmynd
komið á framfæri, öllu meira
getur þetta blað ekki gert í mál-
inu. HEÞ.
um aðkomandi hér heima í 8
vikur, fara allir heim í dag, í dag
fór gufuskipið Vesta inn Eyja-
fjörð sína fyrstu ferð á þessu ári.
Reikningshalli landinu í óhag
næstliðið ár var 61 þúsund og 400
kr. rúmlega.
19. mars. Kom Sigurjón í
Tungu (Dagverðartungu) í Hörg-
árdal, hafði komið Blængshólsdal
gær gengið upp frá sér, sagði
snjólaust í byggð þar innfrá og
það væri búið að aka trjávið í brú
á Hörgá sem setja á í vor undan
Hallfríðarstöðum, var brú þessi
smíðuð á Oddeyri af Snorra
Jónssyni, kvað hann leggja allt til
og flutning og koma henni á
stólpa fyrir 1100 kr. að sagt er,
mun brú þessi vera 28 álnir yfir-
byggð.
27. mars. Sóttur læknir í dag til
barna er liggja og talið vera
lúngnabólga ásamt kíghósta.
30. mars. Sunnan kulda storm-
ur, frost 13 stig. Norðan í lofti. í
dag kom skjal um að kíghósti sé
á Tjörn, Böggvisstöðum, báðum
Holtunum, Brekku, Brekkukoti,
Melum, Urðum, Grund og ef til
vill víðar, skjalið undirritað af
séra Kristjáni og á að berast fram
um Skíðadal.
2. apríl. Var farið vestur með 8
hesta til hagagöngu úr Svarfað-
ardal í þessari viku. Þar kvað
vera rauð jörð.
3. apríl. Dó barn á Tjörn, Þór-
unn dóttir Jóns þar ekkjumanns.
10. apríl. Gaddur yfir allt, frost
1 stig. Þæfði Jóhannes í Skriðu-
koti vaðmál, Jói þræddi togdúk
(Jói hans).
17. apríl. Kom Sigurður læknir
í nótt var sóttur í Tungufell kom
í Syðra-Hvarf og Dæli. Árni fékk
meðul hjá Sigurði.
18. apríl. Fór ég í Dæli var hjá
Árna til kvölds.
19. apríl. Sprakk kverkamein
Árna og honum fór batnandi að
vonum, fór ég þaðan að kvöldi.
20. apríl. Hiti að morgni, besta
hláka. I nótt fór ég í Syðra-Hvarf
en Jói með Steina í Tjörn að
sækja séra Kristján, dó Dagbjört
Gísladóttir úr kíghósta 5 ára frá-
bært barn að öllu leyti.
25. apríl. Fórum við Stefán
ofan fengum byttu á Upsum og
fórum út í Syðri-Vík og fengum
grásleppu hjá Guðjóni og Frið-
finni og fluttum suður á Möl.
Tókum hesta okkar á Upsum og
héldum heim.
27.-28. apríl. Gerð ýms vor-
verk svo sem stungið út.
2. maí. Norðan stórhríð í alla
nótt hefur komið fjaska snjór,
frost 7 stig, brast á kl. 7 í
gærkvöld, lömbin 5 sem vöntuðu
voru sunnan undir ysthúshlöðu,
átt nær norðvestan, heyrist
brimsuða hingað.
4. maí. Frost 7 stig stóð allt
inni varð engu brynnt, Rögnvald-
ur á Skeggstöðum á ekki strá fyr-
ir kýr og kindur, ekkert verður
komist og óvíða neitt til. Enginn
veit hvað langt verður þetta voða
kast.
5. maí. Stórhríð. Stórhríð hef-
ur ekki lint í 4 sólarhringa. Rögn-
valdur fékk 4 poka hey.
6. maí. Frost 7 stig, birti upp,
glaða sólskin.
7. maí. Hlýnaði og hiti 7 stig.
Fréttist að 2 skip hafi strandað að
kvöldi 1. þessa mánaðar á Horn-
vík Elliði og Hannes og 3 önnur
af Vestfjörðum á sama stað allir
björguðust . . . Vanta 4 eða 5
hér af Eyjafirði sem enn er eigi til
frétt. Kom Mínerva af Akureyri
sagði Jón (J. Upsum skipstjóri á
Mínervu) stórhríð mikla þar hafa
verið þessa viku.
8. maí. Stórhríð að morgni.
Komin mikil fönn ofaná gadd,
flestallir í heyþrotum, útlit ljótt.
9. maí. Var sótt úr Hofsá 4
pokar, Skeggstöðum 4 pokar.
Fréttist að skipið Kristján hafði
komið í gær, formaður Sigurður í
Tjarnargarðshorni og margir
héðan, var orðið órótt að fá eigi
fréttir af honum.
10. maí. Keypti Þórður á
Hnjúki rauðan fola í Brekku á
120 kr.
13. maí. Frostlaust. í nótt bar
fyrsta ærin Dilkhyrna og var tví-
lembd og 2 báru í dag.
14. maí. Fór Jón á Skeggstöð-
um hingað (Jón er bróðir Rögn-
valds bónda líka kallaður Nonni
en ekki sonur hans eins og nris-
sagt var áður, sá Jón er ungur
drengur ennþá) og Guðrún Arn-
grímsdóttir en Filippía Sigurjóns-
dóttir inn á Akureyri.
16. maí. Hvessti sunnan, hiti
fór í 9 gráður, tekur mikið.
Komu Svarfdælir með kornklifj-
ar, hefir kaupstaðarferðin gengið
fljótt og vel. Lág það gelda úti,
báru 5 ær. Er nú að kalla töðu-
laust á öllum, bæjum út að Hofs-
ánni og ekkert úthey á Hofsá og
Skeggstöðum.
18. maí. Kom Jói litli úr
Kaupstað tók fyrir mig 300 pund
korn 1 p. tóbak. 6 p. sykur, 2 p.
kaffi, 3 potta brennivín og eina
flösku.
19. maí. Kom Ólafur á Völlum
talaði ýmislegt við mig. Frost-
laust um nætur nú 3-4 næstliðnar.
20. maí. Fór Sólveig að Völlum
tafði lengi kom heim að kvöldi.
23. maí. í dag var mér birt
stefna frá Ólafi, ákveðinn sátta-
fundur þann 26. lágu ær úti í nótt
allar. er það önnur nótt þeirra.
Bar Golta goltóttum hrút undan
Hóla-Flekk.
Engarfréttir komnar lengra að
utan það sem áður hefur heyrst af
skipströndum að vestan. Elliði og
Hannes á Hornvík allir menn
björguðust af þeinr. En Draupnir
frá Oddeyri fórst og það drukkn-
uðu allir menn af honum vestur
við Strandir, og enn hefur eigi
frést af Stormi nýju skipi eign
þeirra bræðra Magnúsar og Jóns
á Galmasstöðum, talið líklegt
tapað. (í árs ágripinu telur hann
þriðja þilskipið Gest.) Líka 2
skipskaðar sagðir að vestan frá
ísafirði og Ströndum í sama hríð-
argarði sem byrjaði 1. þ.m. Einn-
ig hafði þá fennt og farið í sjó 20
kindur á Hrauni í Fljótum.
24. maí. í nótt fór Þóra í Litla-
Skóg til Lilju, börn liggja þar í
kíghósta.
26. maí. Fór á sáttafund útaf
kæru Ólafs á Völlum gegn mér,
eftir nokkra umræðu féll málið
niður dautt og ómerkt. Sátta-
maður í minn stað var Jón á
Hreiðarsstöðum, einnig kom séra
Kristján, var þá allt lagað orðið
svo eigi þurfti til.
30. maí. Fór ofan í Böggvis-
staði. Eigi fréttist neitt af Stormi
sem enn vantar síðan í garðinum,
er hann líklega tapaður. Kom
Mínerva að utan hefur góðan
afla. Kristján kom innanað. Gisti
ég á Böggvisstöðum.
31. maí. Byrjað ^að mynda
stólpa yndir brú á Brimnesá eigi
langt fyrir ofan bæinn. Var ég aft-
ur nótt komandi á Böggvisstöð-
um. Sett ofan í garðinn út og upp
kartöflur.
1. júní. Fór ég í Syðra-Hvarf
með boðin frá Baldvin að smíða
brúna á Brimnesá. Fór Jói í Arn-
arnes að kenna sund.
2. júní. Réri Ágúst á Hóli (Á í
Felli) fékk 44 í hlut.