Norðurslóð - 06.07.1989, Blaðsíða 4

Norðurslóð - 06.07.1989, Blaðsíða 4
4 - NORÐURSLÓÐ Þankabrot Norðurslóð, blað Svarfdælinga er nú komin á 14. árið og er alltaf jafn vinsæl meðal les- enda sinna. Svo er fyrir að þakka bjartsýni og dugnaði útgefenda og aðstandenda Norðurslóðar að blaðið hefur komið út samfellt í öll þessi ár, ef frá er talinn sumartíminn, Ég man það að þegar fyrsta tölublað Norðurslóðar kom út fyrir jólin 1977, þá sýndi ég það kunningja mínum einum í Reykjavík og sagði að nú væru Svarfdælingar farnir að gefa út héraðsblað. Hann tók því fremur dauflega og spáði að blaðið mundi ekki endast árið. En annað hefur komið á daginn og hafi allir þeir sem þar hafa lagt hug og hönd að verki heiður og þökk fyrir. Heimildabanki Norðurslóð er dýrmætt blað, þar er að finna marga þætti í sam- tímasögu byggðarlagsins, frá- sagnir og myndir af mannlífi, við- burðum og veðurfari, auk greina og þátta frá liðnum tíma, sem um margt eru stórmerkilegar lieim- ildir. Ég nefni til dæmis þátt Aðalbjargar frá Sogni “Dagbók Jóhanns á Hvarfi“ sem hún hefur unnið upp úr dagbókum afa síns. Pessi sérstæða samtímaheimild gefur okkur glögga mynd af lífi og kjörum Svarfdælinga fyrir hundrað árum. Jóhann Jónsson bóndi á Ytra- Hvarfi (1836-1901) var ráðsnjall og hagsýnn gáfumaður, forystu- maður Svarfdæla á síðustu ára- - Hugsað heim tugum 19. aldar, hreppstjóri þeirra, oddviti og dýralæknir. Hann var hugsjónamaður og átti frumkvæðið að stofnun Spari- sjóðs Svarfdæla og var aðal- stofnandi Búnaðarfélags Svarf- dæla. Þegar Þorsteinn Þorkelsson á Syðra-Hvarfi stofnaði Lestrar- félag Svarfdæla 1880 mun Jóhann hafa stutt það merkilega menn- ingarstarf með ráðum og dáð. Nýtt hlutverk handa þinghúsinu ? Ég hef frétt að búið sé að stofna golfklúbb heima í Svarfaðardal með félögum úr sveit og kaup- stað. Golfvöllur muni verða á Ytra-Garðshornshólmunum og máske lengra úteftir. En golf- skálinn ? Þinghúsið á Grund vona ég ! Þar með fengi hið aldna Dr. Kristján Eldjám. og söguríka hús nýtt og verðugt hlutverk. Þinghúsið verður 100 ára 1992 en ekki 1996 eins og ég hafði áður skrifað um hér í Norðurslóð, en vissi ekki betur eftir þeim heimildum sem ég þá hafði. Reyndar ætti að vera búið að friðlýsa Þinghúsið til að koma í veg fyrir að það verði rifið. Eins og ég hef áður bent á (í Norður- slóð 1987) er Þinghúsið með merkustu menningarsögulegu minjum í Svarfaðardal ásamt með kirkjunum í dalnum og Sundskálanum. Minningardeild um Kristján Eldjárn í safnahúsi í Dalvík Síðast en ekki síst langar mig til að koma þeirri tillögu á framfæri að stofnuð verði sem fyrst minn- ingardeild um þjóðfrægan sveit- unga okkar og ástsælan forseta þjóðarinnar, Kristján Eldjárn frá Tjörn, annað hvort við Minjasafn Svarfdæla eða Héraðsskjalasafn Svarfdæla á Dalvík. Þegar hefur verið komið upp af myndarskap og að verðleikum sérstöku safn- herbergi í Minjasafninu um annan nafnkunnan sveitunga, Jóhann Kr. Pétursson frá Brekkukoti. Við Svarfdælingar eigum þá líka að hafa þann metnað að sýna minningu hins látna forseta og góða og merka Svarfdælings þann sóma að koma á fót sérstakri safndeild um hann á heimaslóðum. Þar verði færð á einn stað öll rit hans og bækur, ljósrit af hand- ritum og völdum bréfum (frumrit Þinghúsið. Nýtt hlutverk? Miðhlutinn frá 1892. verða væntanlega geymd á Þjóð- skjalasafni), einhverjir af munum hans og loks myndir af honum og fjölskyldu hans. Ennfremur myndir og frásagnir af lífi hans og starfi. Einnig þyrfti þar að vera a.m.k. lágmynd af Kristjáni sem komið yrði fyrir á vegg safn- deildarinnar. Svo vill til að ég hef undir höndum stækkaða mynd af Kristjáni Eldjárn, sem ég hef fyrirhugað að senda því safni á Dalvík þar sem minningardeild um hann yrði stofnuð. Með þökk fyrir Norðurslóð og bestu kveðjum. Júlíus J. Daníelsson. Konur úr Kvenfélaginu Tilraun við gróðursetningu í reit sínum að Húsabakka um sl. helgi. Frá útimarkaðinuni við Víkurröst á Dalvík sl. laugardag. Til sölu var allt frá svepp- um til sólstóla. Dalvíkingar - ferðafólk athugið! Söluop verða opin alla daga vikunnar í júlí og ágúst eins og hér segir: Mánudag til föstudags kl. 18-19,30 og 20,30-22. Laugardag og sunnudag kl. 10-12, 13,30-19,30 og 20,30-22. Hvetjum viðskiptavini okkar til að notfæra sér tilboðsverð á lambakjöti sem nú stendur yfir.

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.