Norðurslóð - 06.07.1989, Page 5
NORÐURSLÓÐ - 5
Fjölmennt niðjamót
Niðjar hjónanna Jóhönnu M. Bjömsdóttur og Júlíusar J.
Daníelssonar héldu ættarmót í Svarfaðardal um Jónsmessuna
Dagana 23.-25. júní 1989
héldu niðjar hjónanna
Jóhönnu Maríu Björnsdóttur
og Júlíusar Jóns Daníelssonar
ættarmót á Húsabakka í Svarf-
aðardal. Þau bjuggu búi sínu
alls 54 ár í Svarfaðardal, þar af
í 48 ár í SyðraGarðshorni og
skiluðu miklu ævistarfi.
Frá Syðra-
Garðshornshjónum
Júlíus var fæddur á Skeiði 27. júlí
1859 en ólst upp á Tjarnargarðs-
horni hjá foreldrum sínum.
Þegar hann var á 16. ári hvarf
Daníel faðir hans í hafið með
hákarlaskipinu Hreggvið í af-
takaveðri í maímánuði 1875, frá
konu sinni og 6 börnum. Hið sjö-
unda bar hún í skauti sér. Varð
þá Júlíus að takast á hendur að
vera ásamt Guðrúnu rnóður sinni
forsjá og fyrirvinna fjölskyldunn-
ar í Tjarnargarðshorni og hugsa
og starfa eins og fullorðinn væri.
Það lánaðist honum vel. Þegar
hann síðar ungur og kvæntur fór
að búa eigin búi fór hann hinu
sama fram.
Jóhanna M. Björnsdóttir var
Þingeyingur í báðar ættir, en
fædd á Einarsstöðum í
Kræklingahlíð 7. apríl 1861. For-
eldrar hennar fluttust búferlum
neðan af Ufsaströnd fram í Syðra
Garðshorn árið 1876. Þá var hún
15 ára.
Júlíus og Jóhanna giftust árið
1881 og bjuggu í Tjarnargarðs-
horni fyrstu árin en síðar í Syðra
Garðshorni frá 1885-1934, síð-
ustu 16 árin á fjórðungi jarðar-
innar í tvíbýli við Daníel son sinn
og Önnu Jóhannsdóttur konu
hans.
Jóhann Daníelsson var mótsstjóri.
Séra Stefán Kristinsson. pró-
fastur á Völlum hefur skrifað um
Júlíus að hann hafi verið “maður
frábær að dugnaði og harðfengi.
garpur til allra starfa svo á sjó
sem á landi og að sama skapi fjöl-
virkur og vandvirkur..." Júlíus
bætti mjög jörð og hús í Syðra
Garðshorni, bjó alla tíð traustu
búi og varð einn hinna gildari
bænda í Svarfaðardal. Hann tók
þátt í sveitarmálum og sat í
hreppsnefnd. Hann stundaði
sjóinn frá unglingsaldri langt
fram eftir ævi við hákarla -og
fiskiveiðar eftir árstíðum, for-
maður á fiskibátum um fjölda
vertíða. Jóhanna kona hans þótti
atgerviskona “prúð, fríð og vel
viti borin", hæglát kona og barst
ekki á.“ Hún var þekkt fyrir
dugnað í störfum, gjafmildi og
góðvild" skrifar Björn á Grund
um hana.
Þó að Júlíus og Jóhanna væru
ólík um skapsmuni var hjóna-
band þeirra einstaklega gott og
farsælt. Þau eignuðust 7 börn
sem upp komust en tvö dóu ung.
Hólmfríður var elst, fædd 17. júlí
1882, síðar kona Jóhannesar
Björnssonar frá Hóli, bónda á
Steindyrum, Guðrún , f. 25. maí
1885, giftist Halldóri Sigfússyni
frá Grund, bónda í Brekkukoti,
Jóhanna f. 18. des. 1886, kona
Magnúsar Gíslasonar, múrara-
meistara á Akureyri, Daníel, f.5.
nóv. 1891, átti Önnu Jóhanns-
dóttur frá Brekkukoti, húsfreyju
í Syðra Garðshorni, Sigrún , f. 3.
nóv. 1894, kona Gests Vilhjálms-
sonar, bónda í Bakkagerði,
Friðrika, f. 27. des. L899.\ona
Sævaldar Ó. Konráðssonar,
kaupmanns á Norðfirði og Björn
Júlíusson, f. 14. apríl 1903, bóndi
í Laugahlíð, kvæntist Snjólaugu
Hjörleifsdóttur frá Gullbringu.
Júlíus keypti jöröina Syðra
Garðshorn árið 1911 af lands-
sjóði og var líklega að því er ráða
má af heimildum fyrsti
sjálfseignarbóndinn á þeirri jörð.
Flaustið 1931 áttu þau Jóhanna
gullbrúðkaup og þá var haldin
fræg veisla í Syðra Garðshorni
þar sem fjöiskylda, afkomendur
og vinir samfögnuðu þessum vin-
sælu heiðurshjónum.
Júlíus lést 18. september 1939
en Jóhanna 1. janúar 1949. Af-
komendur þeirra eru nú dreifðir
um allt land en einnig til útlanda
og í aðrar heimsálfur.
240 manna ættarmót.
Þessi fjölskylda hefur fengið orð
fyrir að vera frændrækin. Það
ásannaðist rækilega þegar henni
var stefnt til ættarmóts á Húsa-
bakka nú um Jónsmessuna.
Þangað söfnuðust saman um 240
manns, ættingjar og venslafólk til
að heiðra minningu hjónanna frá
Svðra Garðshorni, hittast og
kynnast nýjum einstaklingum.
Síðdegis á föstudegi fór að rísa
tjaldborg umhverfis Húsabakka-
skóla og undir kvöld voru komnir
að skólanum tugir bíla inóts-
gesta. Flestir bjuggu í heimavist
skólans og heimavist Dalvíkur-
skóla, aðrir hjá ættingjum eða í
sumarbústöðum.
Mótið hófst formlega úti við á
Húsabakka á föstudags-kvöld
23.6. með því að tendrað var
Jónsmessubál í hvammi einum
suður við læk. Þangað söfnuðust
þeir sem þá voru komnir, en
Jóhann Daníelsson frá Syðra
Garðshorni, mótsstjóri setti
þennan mannfagnað með ræðu,
bauð alla velkomna og skýrði frá
tilhögun og dagskrá. Menn undu
sér lengi kvölds viö bálið í bjartri
Jónsmessunóttinni og skemmtu
sér við gamanmál og söng við
gítarundirleik Gísla Más
Jóhannssonar. Yngsta kynslóðin
var sérstaklega dugleg að syngja.
Hver grein fjölskyldunnar bar
litla borða hvern með sínurn lit,
auk nafnspjalds í barmi, (þ.e.
Við Jónsmessubál.
hver afkomandi hinna sjö barna
Júlíusar og Jóhönnu) en auk þess
kringlótt barmmerki sameigin-
legt fyrir alla, þar sem m.a. var
dregin mynd af gamla Syöra
Garðshorni. Makar sem gifst
höfðu inn í þessa ætt, báru auk
þess hvítan borða. I einni
kcnnslustofunni á Húsabakka var
e.k. setustofa mótsgesta, þarsem
gömlum fjölskyldumyndum og
myndum frá Syðra Garðshorni
var komið fyrir á veggjunt.
Margir lögðu hönd að verki við
að undirbúa mótið.
Laugardaginn 24.6. á Jóns-
messunni, fóru mótsgestir hring-
ferð um dalinn. Yngra fólkið og
það aðkomufólk sem lítt var
kunnugt í Svarfaðardal óku í
tveim rútubílum en leiðsögu-
menn í þeim voru Garðshorns-
bræður Daníelssynir. Komið var
við í Syöra Garðshorni í boði
núverandi ábúenda, þeirra Vil-
hjálms Þórarinssonar og Ástu
Sigríðar Guðnadóttur. Þar var
tekin hópmynd. Klukkan 6 síð-
degis hófst svo hátíöarsamkoma í
Víkurröst á Dalvík og var snædd-
ur þar kvöldverður. Kristín
Gestsdóttir (dóttir Sigrúnar) frá
Bakkagerði setti samkomuna,
ávarpaði veislugesti og tilnefndi
Hörð Sævaldsson (son Friðriku)
veislustjóra, cn Jóhann Daníels-
son söngstjóra. Júlíus J. Daníels-
son flutti minningarræðu um afa
sinn og ömmu, Anna Guörún
Júlíusdóttir og Árni Daníel
Júlíusson fluttu þátt um gamla
bæinn í Syðra Garðshorni eftir
föður sinn, Hjörvar Sævaldsson
flutti gamanmál frá þeim dögum
þegar hann var í sveit í Syðra
Garðshorni. Gísli Már Jóhanns-
son (Daníelssonar) flutti frum-
samið lag og Ijóð tileinkað minn-
ingu langafa síns og langömmu
við eigin undirleik á gítar. Á milli
atriða var almennur söngur við
píanóundirleik Jóhanns. Yngsta
kynslóöin fjölmennti upp á svið
og söng barnalög af mikilli söng-
gleði. Gert hafði verið sérstakt
hefti með söngtextum sem útbýtt
var meðal gesta. Bryndís Björns-
dóttir (Daníelssonar) og maður
hennar séra Svavar A. Jónsson
hjöfðu gert kver með niðjatali
Júlíusar og Jóhönnu og gátu þeir
sem óskuðu keypt það á vægu
verði. Á eftir var dansað viö
harmónikuleik Hafliða Ólafs-
sonar í Urðum. Gísli Már, Hjör-
leifur Björnsson (Júlíussonar) og
Jóhann Daníelsson gripu öðru
hvoru í önnur hljóðfæri og léku
mcð Hafliða.
Veislustjóri þakkaði undir-
búningsnefnd mótsins frábært
starf, en skipulag og framkvæmd
hvi'ldi einkum á heimamönnum,
þótt önnur nefnd væri starfandi
fyrir sunnan. Mótiö var vel undir-
búið og skipulagt, m.a. voru
gefin út fréttabréf vegna þess.
Hörður Sævaldason tók helstu
viðburði mótsins á myndband.
Þetta niðjamót sótti fólk úr
flestum landshlutum og frá Dan-
mörku og Svíþjóð. Kristín Gests-
dóttir sleit samkomunni í Víkur-
röst um miðnætti.
Sunnudaginn 25. júní kl. 11
fjölmenntu mótsgestir til
minningarathafnar í Tjarnar-
kirkju. Þar flutti séra Trausti
Pétursson, prófastur emeritus
prédikun og bæn og minntist
hjónanna frá Syðra Garöshorni,
en viðstaddir kirkjugestir sungu
nokkra sálma við organleik
Jóhanns Daníclssonar. Að lok-
um afhenti Kristín Gcstsdóttir
lyrir hönd mótsgesta sóknar-
nefnd Tjarnarkirkju gjafabréf
fyrir peningaupphæð til
kirkjunnar, en Ástdís Óskars-
dóttir í Syðra-Holti, sóknarn,-
maður þakkaði. Blóm voru lögð
á leiði Jóhönnu og Júlíusar og
þeirra barna sem hvíla í Tjarnar-
kirkju-garði. Þá var haldið að
Húsabakka þar sem Jóhann
Daníelsson sleit mótinu, en
Jóhanna M. Gestsdóttir frá
Bakkagerði flutti þakkir frá þátt-
takendum. Bjuggust menn þá til
brottferðar eftir vel heppnað
gleði -og niðjamót.
Hópmynd af þeim þátttakendum sem fóru um dalinn í rútubílnum. Myndir: JJD.
J..I.D.