Norðurslóð - 27.10.1992, Page 1

Norðurslóð - 27.10.1992, Page 1
16. árgangur Priðjudagur 27. október 1992 8. tölublað G()N(;uda(;ur fjölskyldunnar var s.l. fimmtudag og af því til- efni var í Dalvíkurskóla brugðið út af venjulegri stundaskrá og farið með krakkana í göngutúra vítt og breitt um nágrennið. M.a. fóru nemendur 9. bekkjar ásamt með 8. og 9. bekkingum á Húsabakka og kennurum upp að Nykurtjörn. Einn óvenju- forsjáll Dalvíkingur, Hreggviður Símonarson, tók með sér skauta og geystist á þeim fram og aftur um tjörnina. Ekki vit- um við til þess að aðrir hafi áður unnið það afrek að skauta á Nykurtjörn enda er hún ekki beint í alfaraleið í um 700 m hæð yfir sjó. Þá er Nykurinn heldur ekkert lamb að leika sér við sé hann vakinn af vetrardvalanum. Af blessuðum kúnum - Framleiðsluréttur á frjálsum markaði Eins og flestum er kunnugt var í haust samþykktur nýr bú- vörusamningur milli Stéttar- sambands bænda og íslenska ríkisins. Samningurinn hefur í för með sér enn meiri samdrátt á framleiðslu landbúnaðaraf- urða. Mjólkurframleisla ís- lenskra bænda skal nú verða 100.000.000 lítrar á ári en það er áætluð mjólkurneysla J)jóð- arinnar sem stendur. I því skyni var samþykktur flatur niðurskurður um 4.4 % á alla mjólkurframleiðendur í land- inu sem þemur til fram- kvæmda á yfirstandandi verð- lagsári. Hér á svæði Búnaðar- sambands Eyjafjarðar nemur niðurskurðurinn ca 900.000 lítrum. Þá var verslun með framleiðslurétt (sem núna heit- ir reyndar greiðslumark) verið gefin frjáls innan búnaðarsam- bandssvæða sem þýðir að hver sem er getur selt hæstbjóðanda innan tiltekins svæðis rétt sinn til að framleiða búvöru. Margir bændur hafa óttast mjög þessa þróun og talið óheft við- skipti með t.d. mjólkurkvóta leiða til þess að efnameiri bændur söls- uðu undir sig æ meiri kvóta en hin- ir efnaminni sætu eftir með sárt ennið. A endanum færu smærri jarðir í eyði en eftir stæðu nokkur stórbýli í hverri sveit. Hvort sem þessi þróun er í uppsiglingu hér skal ósagt látið en að undanfömu hefur óvenjumikið verið um kaup og sölu á framleiðslurétti á milli bæja. Um „framleiðsluáramótin“ 1. september var seldur mjólkurfram- leiðsluréttur af tveim jörðum; Ing- vörum og Syðra-Holti og dreifðist sá réttur á milli allmargra kaup- enda í dalnum. Flestir kaupend- anna keyptu þó aðeins kvóta sem rétt dugir til að vega á móti þeirri flötu skerðingu sem lögð var á bú þeirra þetta árið og gera því lítið meira en að halda í horfinu í barátt- inni við niðurskurðarvaldið. Að sögn kunnugra er gangverð á fram- leiðslurétti nú um 100-110 krónur fyrir lítrinn (þ.e.a.s. fyrir réttinn til að framleiða einn lítra mjólkur á ári). Til samanburðar má geta þess að verð til bænda nú fyrir mjólkur- lítrinn er nú samkvæmt síðasta verðlagsgrundvelli Iandbúnaðar- afurða kr. 52,58. Getur þá hver sem er reiknað hversu langan tíma það tekur bóndann að borga upp keyptan kvóta með aukinni fram- leiðslu. Að lokum skal á það bent fyrir þá sem ekkert skilja í umræðunni um landbúnaðarmál og landbúnað- arframleiðslu að það er hreint ekk- ert skrýtið og raunar undarlegt ef svo væri ekki. Með hverjum nýjum framleiðslustjómunarsamningi við bændastéttina, hvort sem þeir heita búvörusamningar eða eitthvað annað, þá er fundið upp nýtt orð yfir „kvóta“. Einu sinni var það „búmark" síðan „framleiðslurétt- ur“ eða „fullvirðisréttur" og nú er það „greiðslumark“. Síðan tala menn jöfnum höndum um fram- leiðslurétt/full virðisrétt/kvóta/bú- mark/greiðslumark, allt í sömu andránni. Er nema von að fávís al- þýðan mglist í ríminu? Hj.Hj. Húsnæðisekla á Dalvík: A bærinn að byggja tíu íbúða blokk? - Ellefu íbúðir í smíðum á Dalvík og tíunda hver íbúð skipti um eigendur á árinu Viö Hringstún hafa risið nokkur einbýlishús á síðustu árum. Það er uppgangur á Dalvík. Það vita allir sem horfðu á Kastljós á dögunum. Umsvif- um og útþenslu fylgja þó ekki eingöngu kostir heldur getur það valdið ýmsum vanda ef vöxturinn er hraður. Einn vandi sem hefur látið á sér kræla á Dalvík að undanförnu er skortur á íbúðarhúsnæði. Fólk sem vill flytja hingað og hefur ráðið sig til starfa hefur átt í erfiðleikum með að finna sér húsnæði. Þetta er í sjálfu sér ekki nýr vandi, en það hefur aldrei verið erfiðara að finna húsnæði handa aðfluttum en á þessu hausti. Tveir kennarar búa í sumarbústað í Svarfaðardal, einn fékk inni á Ar- skógsströnd og enn annar býr á Ólafsfirði þótt hann vilji eindregið flytja til Dalvíkur. Svipaða sögu er að segja um starfsfólk á Dalbæ og Heilsugæslustöð. Og í áðumefnd- um Kastljósþætti upplýsti Gunnar Aðalbjömsson frystihússtjóri að það vantaði tuttugu manns í hluta- störf í frystihúsinu. Síðan hefur fólk hringt í hann og spurst fyrir, en það strandar alltaf á húsnæðis- vandanum. Að byggja eða ekki byggja Viðbrögðin við þessum vanda hafa ma. verið þau að fólk vill að bær- inn byggi nýjar íbúðir. Ráðamenn Dalvíkurbæjar hafa ekki viljað taka undir slíkar kröfur. Einar Emilsson húsnæðisfulltrúi bæj- arins segir til dæmis í viðtali við Norðurslóð að hann vilji fara hægt í sakimar. „Ef við myndum rjúka til og byggja tíu íbúða blokk eins og lagt hefur verið til væmm við að taka töluverða áhættu. Slík bygging kostar fé og þeim útgjöld- um yrði að mæta annað hvort með lántökum eða niðurskurði á þjón- ustu. Og við hefðum enga trygg- ingu fyrir því að hér væri næg at- vinna þegar húsið er tilbúið," segir Einar. Það er þó ekki svo að menn sitji auðum höndum og hafist ekki að. Á Dalvík em fimm einbýlishús og tvö raðhús í byggingu á vegum Myndir: Bæjarpósturinn/hk einkaaðila og fjórar þjónustuíbúðir fyrir aldraða eru að rísa við Dalbæ. Bærinn hefur á sl. ári úthlutað 6 nýjum félagslegum íbúðum. Auk þess hefur bærinn lagt inn um- sóknir um lán til að byggja tvær fé- lagslegar leiguíbúðir og fjórar fé- lagslegar kaupleiguíbúðir. Þá hef- ur bærinn auglýst eftir tveimur fbúðum til kaups á almennum markaði. Eitt tilboð hefur borist og Einar vonast til að hægt verði að ganga frá þeim kaupum á næst- unni. Brotalöm í kerfinu Einar bendir hins vegar á að það sé ákveðin brotalöm í núverandi hús- næðislánakerfi og snertir almennu kaupleiguíbúðimar. „Þær íbúðir Einar Emilsson húsnæðisfulltrúi. em ætlaðar þeim sem eru með of miklar tekjur til þess að komast í félagslegar íbúðir en treysta sér ekki út á almennan markað. Láns- kjörin á þeim eru hins vegar með þeim hætti að íbúðimar verða allt of dýrar. Einstaklingur sem kaupir almenna kaupleiguíbúð þarf að hafa 10% kaupverðsins handbær, fær 70% lánað til 40 ára og 20% til 5 ára, hvort tveggja á 4,5% vöxtum ofan á verðtryggingu. Það em þessi 20% sem eru erfiðust og ráð- herra hefur fengið bréf með beiðni um að lengja þau lán. Það er líka misræmi í lánveitingunum því ef bærinn byggir þessa íbúð fær hann þessi 20% lánuð til 25 ára. Þar munar miklu í greiðslu- byrði. Kaupendur þessara íbúða verða að gangast undir greiðslumat og útkoman verður sú að það er ekki á færi nema fólks með góðar tekjur að kaupa þær. Þessa skekkju hlýtur að þurfa að laga. Eina leiðin sem kerfið býður upp á sem stend- ur er að bærinn kaupi gamlar íbúð- ir og breyti þeim í almennar kaup- leiguíbúðir," segir Einar. Mikil hreyfing Dalvfxurbær á nú 14 íbúðir sem hann leigir út. Auk þeirra hefur verið byggð 61 íbúð í félagslega kerfinu. Einar segir að mikið sé um endursölur íbúða í þessu kerfi og á síðasta ári komu 18 íbúðir til end- ursölu. Þá hafa 24 íbúðir verið seldar á frjálsum markaði í bæn- um. Að viðbættum nýju íbúðunum sex sem bærinn úthlutaði hafa samtals 48 íbúðir skipt um eigend- ur á Dalvík sl. ár. Það er ansi mikil hreyfing og samsvarar því að tí- unda hver íbúð hafi skipt um eig- endur. Það er hins vegar erfitt að spá um framtíðina. Það er þó reynt í nýju aðalskipulagi fyrir Dalvík sem nú hefur verið lagt fram til umsagnar. Þar er því spáð að á hverju ári þurfi að byggja 12-13 íbúðir næstu þrjátíu árin. Nú eru ellefu íbúðir í byggingu svo það fer nærri spánni. Það sem menn grein- ir hins vegar á um er hversu mikill hlutur bæjarins á að vera í þessum húsbyggingum. -ÞH

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.