Norðurslóð - 27.10.1992, Side 6

Norðurslóð - 27.10.1992, Side 6
6 _ NORÐURSLÓÐ Dalvík - nágrenni Tökum að okkur að fletja út laufabrauðskökur. Pantið tímanlega í síma 6-14-32. Axið hf. Samtök Svarfdælinga í Reykjavík og nágrenni Árshátíð Vetrarfagnaður 7. nóvember 1992 Góðir sveitungar og aðrir félagar. Hér meö auglýsum viö vetrarfagnað/árshátíð Samtakanna laugardaginn 7. nóvember nk. sem haldinn veröurí veitinga- húsinu Ártúni, Vagnhöföa 11 í Reykjavík. Gert er ráö fyrir aö fólk mæti kl. 19:00 og matur verður borinn fram um kl. 19:30. Miðaverð er aðeins kr. 2.800 en í því er innifalin þrí- réttuð máltíð ásamt því að ein fjölhæfasta danshljómsveit landsins, Hljómsveit Örvars Kristjánssonar mun leika fyrir dansi aö loknu borðhaldi. Munu Örvar og félagar þá í fyrsta sinn að því er best er vitaö fá heiðurinn af því að leika fyrir ærlegum svarfdælskum marsi og eru útvaldir Svarfdælingar þegar byrjaöir á því að undirbúa hljómsveitina fyrir átökin. Öll aðstaða í veitingahúsinu er hin ágætasta og við húsið eru næg bílastæði. Dagskrá: Formaöur stjórnar Samtakanna setur samkomuna Veislustjóri verður Atli Rúnar Halldórsson Ræðu kvöldsins, minni Svarfaðardals, flytur Þórarinn Eldjárn Guðrún Lóa Jónsdóttir syngur við undirleik Kára Gestssonar „Fréttapistill" að norðan verður fluttur Félagar úr Kirkjukór Datvíkur koma í heimsókn og „taka lagið" Ef færi gefst verður „brugðiö á leik" (?) Dagmann Ingvason mun leika af fingrum fram meðan á borðhaldi stendur Svo tökum við auðvitað öll lagið saman annað veifið Miðapöntunum veröur veitt móttaka 4. og 5. nóvember milli kl. 18 og 21 í símum: 623815 Helga Hjörleifsdóttir 814646 Kolbrún Arngrímsdóttir 688507 Sigurlína Steinsdóttir 22244 Atli Rafn Kristinsson Fólki er heimilt aö hringja fyrir þennan tíma.en þaö eru eindreigin tilmæli aö þátttaka sé tilkynnt eigi síðar en 5. nóv. Hægt er aö greiða meö greiðslukortum: VISA og Eurocard. Stjórn Samtakanna stefnir aö því að halda jólaball í byrjun desember. Þess vegna var ákveðiö að halda al- mennan félagsfund Samtakanna einhvern tímann í byrjun næsta árs. - Meira um þetta síðar Lifiö heil! Reykjavík 21. október 1992 Stjórn Samtakanna og skemmtinefnd Matseðill: • Kóngasveppasúpa • Villlkryddað lamb með tllheyrandi grænmeti og rauðvínssósu • Sérrítriffle Sveitungar á heimaslóð og aðrir sem ekki búa á höfuð- borgarsvæðinu eru minntir á að svæðisnúmeriö er 91. Sauðfjárslátrun úr Svarfdæla- deild KEA haustið 1992 Lokið er á Akureyri suðfjár- slátrun í sláturhúsi KEA á Oddeyrartanga. Af því tilefni hafði Norðurslóð samband við Gunnar Hallsson, tölvustjóra kaupfélagsins og innti hann eft- ir útkomunni úr siátrun í Svarfdældeild, þ.e. Svarfaðar- dal/Daivík. Þessar eru helstu niðurstöður: Úr deildinni var slátrað alls (innl. og heimt.) 1126dilkum Meðalfallþungi var 17,7 kg Jónas Pétursson heitir maður frá Hranastöðum í Eyjafjarð- arsveit, þeim hiutanum sem áður hét Hrafnagilshreppur. Hann var fyrst bóndi á Hrana- stöðum, síðar tilraunastjóri á Skriðuklaustri austur en því næst þingmaður fyrir Sjálf- stæðisflokkinn á Austurlandi. Jónas býr nú í Fellabæ á Fljóts- dalshéraði, kauptúninu norðan Lagarfljótsbrúar gegnt Egilsstaða- kaupstað. Þrátt fyrir háan aldur hefur Jón- as enn brennandi áhuga á þjóðmál- um og lætur skoðanir sínar hik- laust í Ijós, m.a. í blaðagreinum sem alltaf vekja athygli. Honunt liggja þungt á hjarta örlög Krist- neshælis í Eyjafirði, en þau eru í mikilli tvísýnu um þessar mundir, eins og lesendum Norðurslóðar er eflaust vel kunnugt. Jónas sendi á dögunum blaðinu eftirfarandi pist- il, sem við birtum með ánægju. Grein sína kallar hann: Kristneshæli - ein af stóru minn- ingunum frá bernsku minni og æsku Ógnvaldur lá í loftinu yfir œslcu- fólkinu í Eyjafirði, berklarnir eða „Hvíti dauðinn“ eins og oft var til orða tekið. Alda viðnáms fór um Á slátursvæðinu öllu var meðalþunginn 14,7 kg Mismunurinn er 3 kílógrömm, hvorki meira né minna, sem svarf- dælsku dilkamir vom vænni en meðaltalið. Má fyrr gott kalla. Mestur meðalþungi dilka mun hafa verið hjá Gunnari í Dæli. Hann lagði inn 42 lömb með með- altalsfallþunga (og nú má lesand- inn ekki láta líða yfir sig) 21,0 kg. Næstur var Jón bóndi Þórarinsson á Hæringsstöðum, sem lagði inn 62 dilka og fékk meðaltalið 19,8 kg. héraðið fyrir 1920 og nœstu ár á eftir. Akveðið að reisa heilsuhœli fyrir berklasjúklinga í Kristnesi. Fjarsöfnun hafin hjáfólkinu. Hver einasti bær, hver einasti maður gaf af fremstu getu. Tvenn hjón í Hrafnagilshreppi gáfu hvort í sínu lagi stórfé til hœlisins. Bœði höfðu þau misst einkasoninn af völdum Hvíta dauðans. A síðustu árum, er ég kem að Kristneshœli, finnst mér ég standa á helgri jörð. Eg minnist hins far- sœla lœknis, Jónasar Rafnars, sem Hfði þar í raun að sjá fegurra hvolf með nœr fullum sigri yfir Hvíta dauðanum. Hann vann sigra sína ásamt með farsælu, traustu, áhugaríku staifsliði, sem Ijúfu geði blandaði daglegu lífi. Eg man vígsludaginn í haust- veðri. Jónas Jónsson frá Hrifiu, fulltrúi ríkisstjórnar fiutti mikla rœðu. Eg man þessi orð, er hann lýsti sjóndeildarhringnum, er knúði átakið: „Að baki býr mikil sorg, óendanleg sorg“. Þessi setn- ing segir í raun allt! Velferð hyggða, þjóðar, er háð því, að fólkið slíti aldrei sögu- þráðinn. A tuttugustu öld er Krist- neshœli mesta og giftusamasta afrek í íslenskri byggð. Á höfuðdaginn 1992. Jónas Pétursson frá Hranastöðum P.S. Með þakklœti og vinarkveðju sendi ég þetta til Norðurslóðar. Heill því einstæða blaði. JP Samt var það hvorki Dælis- bóndi né fjallskilastjórinn á Hær- ingsstöðum, sem vænstan átti dilk- inn. Heldur var það Þorleifur bóndi Karlsson á Hóli á Upsaströnd, Dal- vík. Hann lagði inn dilk, sem vó 29,1 kg, segi og skrifa - tuttugu og níu komma eitt kílógramm. Býður nokkur betur? XX Stökur mánað- arins III Við höldum áfram að kveðast á við sjálfa okkur og eigum nú að koma með vísu, sem byrjar á H. Af nógu er að taka, en við velj- um eina, sem er dálítið erfið. Það er sagt, að vísur séu „dýrt kveðnar" þegar þær hafa „inn- rím“ auk endarímsins. Með þessari vísu þarf Ifka að fylgja svolítil saga, svo aðhún skiljist: Jón prestur Þorláksson á Bægisá var fátækur maður. Hann var að ganga út í kirkju til að messa einn sunnudagsmorg- un þegar vinnumaður hans kom hlaupandi og sagði þær fréttir, að uppáhalds reiðhryssan hans væri dauð niðri í pytti utan við túnið. Vinnumaðurinn hélt, að prestinum yrði svo mikið um þessa frétt, að hann treysti sér ekki til að tnessa yfir söfnuðin- um, sem beið í kirkjunni, og spurði því, hvort hann vildi ekki bara boða messufall. Þá er sagt, að Jón prestur hafi þagað við stundarkom. en mælt síðan fram þessa dýrt kveðnu stöku um leið og hann gekk virðulega inn í kirkjuna: Hryssutjón ei hrellir oss, hress er ég þótt drœpist ess. Missa gerði margur hross, messað get ég vegna þess. Orðið ess er óvenjulegt, en það þýðir bara hross. Og nú þarf að finna vísu, sem byrjar á Þ. Við veljum eina með innrími. Svona vísur eru kallaðar hring- hendur. Hún er eignuð Vatns- enda- Rósu: Þó að kali heitur hver, hylji dalurjökull ber, steinar tali og allt hvað er. aldrci skal ég gleyma þér. Aftur verðum við að finna vísu, sem byrjar á Þ. Við velj- um vísu eftir hinn fræga gaman- hagyrðing, Kristján Níels Júlí- usson, sem var kallaður Káinn eftir upphafsstöfunum í skímar- nöfnurn hans. Hann var Eyfirð- ingur en fluttist ungur til Amer- íku. Þegar deilur voru svo mikl- ar meðal íslendinga fyrir vest- an, að m.a.s. Þjóðræknifélag þeirra klofnaði, orti Káinn þessa makalausu vísu: Þetta er ekki þjóðrœkni og þaðan af síður guðrœkni. heldur íslensk heiftrækni, helvítis bölvuð langrœktti. Næst eigum við að finna stöku, sem bytjar á L. Ekki ætti okkur að verða skotaskuld úr því. HEÞ. DALVIKURBÆR Aðalskipulag fyrir Dalvík 1992-2012 Samkvæmt 17. gr. skipulagslaga er hér meö auglýst eftir athugasemdum viö skipulagstillög- una. Tillagan ásamt greinargerö veröur til sýnis á bæjarskrifstofu Dalvíkurbæjar, Ráöhúsinu til 7. desember 1992. Athugasemdum skal skila skriflega til skrif- stofu Dalvíkurbæjar fyrir 21. desember 1992. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna fyrir ofangreindan tíma teljast samþykkir skipu- lagstillögunni. Dalvík 22. október 1992 f.h. skipulagsnefndar Dalvíkurbæjar Bæjartæknifræöingur DALVIK Um Kristneshæli

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.