Norðurslóð - 15.12.1993, Page 2
2 - NORÐURSLOÐ
NORÐURSLOÐ
Útgefandi: Rimar hf.
Ritstjórar og ábyrgðarmenn:
Jóhann Antonsson, Dalvík
Hjörieifur Hjartarson, Laugahlíð
Framkvæmdastjóri:
Sigríður Hafstað, Tjörn. Sími 96-61555
Blaðamennska og tölvuumbrot:
Þröstur Haraldsson, Dalvík
Prentun: Dagsprent hf. Akureyri
A jólanótt
Lag Jóns Ásgeirssonar við ljóðið Á jólanótt eftir Einar Braga er
án efa eitt fegursta jólalag sem samið hefur verið á Islandi.
Höfundur veitti Norðurslóð góðfúslega leyfi til birtingar á því.
Ekki vitum við til þess að það hafi birst opinberlega fyrr.
Hver blundar svona blítt í húmi nœtur?
O, barnið mitt, þú sefur vœrt og rótt,
því drottinn sjálfur litla hvarma lætur
lokast í hljóðum draumi þessa nótt.
Og hjá þér stendur Jesúbarnið bjarta
og brosir til þín, litli vinur minn,
því auðmýktin sem er í þínu hjarta
hún opnað getur sjálfan himininn.
Þig dreymir, barn mitt, blika'í norðurljósum
svo bláar stjörnur nœturhimni frá.
Þaðfellur niður regn afhvítum rósum
á rúðu litla stokknum þínum hjá.
I dýrð, sem aðeins draumalönd þín geyma,
þar drottning nœturinnar hljóðlátfer
og opnar hulda œvintýraheima,
sem aðeins voru byggðir handa þér.
Hún kemur til þín, hvítar rósir anga,
og krýpur engilbjört við stokkinn þinn.
Hún þrýstir mjúkum kossi á munn og vanga
og mildar hendur strjúka þér um kinn.
Hútn hvíslar að þér: Hvíl í örnutm mínunt,
að kynjaströndum nýjum þig ég ber.
O barn mitt góða, gleym ei draumum þínum,
geym œvintýrið vel t hjarta þér.
hlllL L ýium-i -Ufl'o, fcllUcí L- nori-ur- tjí* - um ivo barn-ii mitt, bli - o.r íljSm - u r -tcrýp-ne túq - - r # Haf . r—T~~i tcf- uf vttH <*) rótt, i>rí ruð'Z-ur .4imni - 6i3ti viííKkkixu fci»«.
¥ f r r f ; ■ -l-f-u 1 r-1- •
IpllIililÉiIil ^ J I-i=
f r ^ i þ - hroi - *r -W ÚÁt- * v(m1- !*r mmttj jfrr'. *xi - - aJ ■ Jnu-ar -62,oJ-tÁA Ctr oq ^ A • iFftd - u* lýj'Uin f 'uj fcW. 0) ■J | (UxT- nuflU - op k - (Xt -icufei. - «. barv* J
— ■ -r-—=
LX u fu'* - U kjarJ - A ilún OPrt '<xi . <M- in • -o. • A, ti- ti>u >ror *.—CýitHr* ti ttituun-uat þíu- umJ qiqn a\J-\n-Ujr - \*t Sj<U/;an A!r».i* - in*. If ^aaifr ^urué/.A i£ vti * -Lftxct -a. ‘þj*.
— J 4—J--KfH
p-hr i—J J -ttr m. r i—J- —
J i J =
rfAZt ,
1*9-\ X T -7 J II 1 * " 1 — ~
3. Þún fo-J—J- j. <-J
m J, r f Lr í-f-r-F -
m 1 i: j n J þ- t- Mr ■-{—íU^eseII
Hér vantar spilasal!
- Hópur nemenda úr Grímsey býr nú á Húsabakka
Grímseyingar á Húsabakka taldir ofan frá frá vinstri: Anna Dóra, Björg,
Óli, Henning, Hafrún, Helga, Halla, Bjarney, Selma og Vilberg. Mynd: hjhj
Sem kunnugt er bættust skóla-
krakkar úr Grímsey í hóp nem-
enda Húsabakkaskóla nú í
haust. Nú eru í skólanum sjö
nemendur í 8. og 9. bekk en auk
þeirra búa þrír 10. bekkingar
úr Grímsey á heimavistinni og
sækja skóla til Dalvíkur.
Þessum nýju Húsbekkingum
fylgja ferskir vindar af
Grímseyjarsundi og hefur
skólalífíð á Húsabakka tekið
ýmsum breytingum með komu
þeirra. Nú þarf t.d. að halda
fyrir þá heimili um helgar og þá
heyrir það til nýjunga að
nemendur 1.-4. bekkjar eru
keyrðir tii og frá skóla því
heimavistin rúmar ekki fleiri.
Blaðamaður Norðurslóðar tók
Grímseyjarkrakkana tali fyrir
skemmstu til að forvitnast ögn
uin hagi þeirra.
Aðspurð um hvemig þeirn
hefði orðið við þegar þau fréttu að
þau ættu að fara í Húsabakkaskóla
voru þau sammála um að það
hefði verið hálfgert reiðarslag.
„Við urðum alveg brjáluð og
neituðum að fara,“ segir Hafrún í
9. bekk og Bjarney bekkjarsystir
hennar bætir við: „Við vildum
bara vera áfram á Dalvík. Þetta
var eins og að fara í klaustur. En
svo þegar við komum hingað þá
kynntumst við krökkunum eins og
skot, sérstaklega krökkunum í
okkar bekk og það var mjög
gaman.“
Þau taka öll undir það að þeim
hafi verið tekið opnunt örmum af
jafnöldrunum úr sveitinni og að
ótrúlega vel hafi gengið að
kynnast krökkunum. En var
skólinn frábmgðinn því sem þau
áttu að venjast?
„Já, hann er stærri og líka erf-
iðari en skólinn heima,“ segir
Helga í 8. bekk. „Það eru líka
strangari reglur á heimavistinni
héma en niður á Dalvík," bætir
Björg í 9. bekk við. En maturinn
er góður. Um það eru þau sam-
mála.
Eins og áður segir búa Gríms-
eyjarbörninn á heimavistinni um
helgar og þau hafa aðeins 2svar
farið heim síðan skólinn byrjaði í
haust. Það liggur því beint við að
spyrja hvort þau sakni ekki for-
eldra sinna. „Jú stundum," segja
nokkur í kór og Halla í 8. bekk
bætir við: „Það er alltaf gaman að
koma heim.“ Þau hin samsinna
því.
- En hvað gerið þið um
helgar?
„Við förum stundum í sund,“
segir Vilberg í 8. bekk, „...og nið-
ur á Dalvík,“ bætir Selma í 10.
bekk við. „Við druslumst mest í
náttfötum og látum okkur leiðast,“
grípur Anna Dóra í 10. bekk fram
í. „Það þyrfti að vera spilasalur
hérna,“ segir Henning í 8. bekk.
Þessi síðasta athugasemd vekur
almenna kátínu og hefjast nú líf-
legar umræður unt hvernig
draumafyrirkomulagið ætti að
vera. Hafrún í 9. bekk kveður loks
upp úr: „Ég ætla ekki að vera á
heimavist næsta vetur.“ En niður-
staða þessara umræðna er þó í
stórum dráttum sú að á skólatíma
sé ágætt að vera á heimavist en
urn helgar væri betra að vera á
heimilum í sveitinni.
hjhj
Svarfdælsk epli
Á myndinni hér að ofan sjáið
þið fögur epli á grein og ljós-
hærða stúlku, sem á þau horfir
dreymandi augum. Haldið þið
e.t.v. að myndin sé frá Suður-
Afríku eða kannske Kaliforníu.
Nei, ónei. Hún er frá Hofsá í
Svarfaðardal og stúlkan er dótt-
urdóttir hjónanna þar, Heið-
bjartar Jónsdóttur og Gísla
Þorleifssonar. Stúlkan heitir
Hulda Berglind Árnadóttir 6
ára, en myndin er tekin nú í
haust í gróðurhúsi Heiðbjartar
húsfreyju.
Hún á tvö eplatré nokkurra ára
gömul. Annað þeirra blómgaðist
fagurlega í fyrravor og þroskaði
260 epli nú á haustdögum. Eplin
eru heldur smá og meira græn en
rauð á lit. En þau eru mjög góm-
sæt, sætsúr á bragðið, eins og epli
best geta orðið. Þess skal sérstak-
lega getið, að í gróðurhúsinu á
Hofsá er alls engin upphitun
önnur en sú, sem frá sólinni
kemur og öllum veitist ókeypis.
Þetta er þá hægt við 66.
breiddarbauginn í honum
Svarfaðardal. Og geri aðrir betur.
(Myndina tók Asdís Gísladóttir.)