Norðurslóð


Norðurslóð - 15.12.1993, Blaðsíða 4

Norðurslóð - 15.12.1993, Blaðsíða 4
4 — NORÐURSLÓÐ Kann ekkert annað en að vera Olafsfirðingur - Rætt við Jón Þorsteinsson söngvara 26. september 1986 fékk ég heimþrá. Ég get tíma- sett það nákvæmlega og endurlifað daginn og til- finninguna í smáatriðum. Ég var búinn að vera erlendis í meira en 14 ár og hafði aldrei fundið fyrir þessu allan þann tíma. I rauninni var þessi tilfinning í algerri mótsögn við þær hugmyndir sem ég gerði mér um sjálfan mig og fullkomlega andstæð sannfæringu minni. Ég hef oft hitt íslendinga í útlöndum sem þjáðust af heim- þrá og ég hef gert grín að þeim fyrir það. Sjálfur gat ég sagt í fullri einlægni að heimþrá til íslands væri það síðasta sem myndi hrella mig. Svo var það sem sagt þennan dag, 26. sept. 1986 að þetta helltist svona yfir mig. Haustin í Hollandi eru afskaplega falleg og þetta var einn þessara yndislegu hollensku haustdaga. Ég hafði verið með heimsókn frá íslandi og gest- irnir fóru þá fyrr um daginn. Þá fer mér allt í einu að líða svo undarlega innan í mér og það endar með því að ég fer heim og skríð undir sæng. Svo ligg ég bara þarna og er farinn að vatna músum án þess að ég hafi til þess nokkrar sýnilegar ástæður. Ég áttaði mig alls ekki strax á því hvað þarna var að gerast. Það leið langur tími áður en ég gerði það. Ég hélt náttúrulega áfram að stunda mína vinnu en þetta hélt áfram að þjaka mig; þessi al- gerlega óskiljanleg vonda tilfinning sem ég gat ekki losnað við, eins og innan í mér væri bjarg. Ég fór að verða önugur, óánægður með allt og alla og alveg sérstaklega þegar ég var staddur hér heima. Svo smám saman áttaði ég mig á því að þetta var ekkert annað en hreinræktuð heimþrá til íslands sem ég neyddist til að viðurkenna fyrir sjálfum mér. Og þegar ég segi til Islands þá meina ég náttúru- lega til Norðurlands - til Ólafsfjarðar. Ég hef í rauninni aldrei komist frá Ólafsfirði, frá fólkinu mínu og fjöllunum. Ég er einn af þeim og mun aldrei verða neitt annað. Ég kann ekki annað en að vera Ólafsfirðingur. Jón Þorsteinsson söngvari. Mynd: hjhj A efri myndinni er Jón í hlutverki Vazék í uppfærslu Hollensku ríkisóperunnar á óperu Smetana, Selda brúðurin, en á þeirri neðri er hann í söngferð á Ítalíu og það er borgin Flórens sem breiðir úr sér að baki honum. Jón Þorsteinsson heitir sá sem þetta mælir. Hann er söngv- ari og hefur undanfarin 22 ár búið erlendis, s.l. 13 ár í Hollandi, og sungið þar við holl- ensku ríkisóperuna. Auk þess hef- ur hann sungið vítt og breytt um Evrópu, óperutónlist, ljóðatónlist og einkum þó kirkjulega tónlist og nútímaverk. I sumar flutti Jón alkominn heim, sagði skilið við hollenska óperusviðið og áframhaldandi söngframa á erlendri grund til að setjast að við Eyjafjörðinn. Nú vinnur hann fyrir sér með því að kenna sönglist á Dalvík og í Ólafs- firði og býr að Tröðum á Sval- barðsströnd ásamt Gerrit Shuil píanóleikara. Síðastliðinn vetur birtist hann raunar á óperusviði á Akureyri eins og flestir vita, söng þar hlut- verk Eisensteins greifa í uppfærslu Leikfélags Akureyrar á Leður- blökunni eftir Jóhann Strauss. Jón sættist mildilega á koma í viðtal þegar blaðamaður Norðurs- lóðar fór þess á leit við hann fyrir nokkru. Er það árangur þess spjalls sem hér birtist lesendum. Viðtalið byrjaði raunar eins og flest sígild viðtöl á uppruna og uppvexti. Uppvöxtur í á Ólafsfirði Ég fæddist á Ólafsfirði 1951. Móðir mín heitir Hólmfrtður Jak- obsdóttir og faðir minn er Þor- steinn Jónsson vélfræðingur. Hann rak til margra ára vélsmiðjuna Nonna á Ólafsfirði. Ég ólst upp við venjuleg aðalfundarstörf eins og sagt er og gekk þessa hefðbundnu skólagöngu í bama og gagnfræða- skóla Ólafsfjarðar. - Hvenær tók hugur þinn að hneigjast til tónlistar? Það var mjög snemma. Móðir mín spilaði á píanó, tafi var í kirkjukór Ólafsfjarðar í 60 ár og pabbi er sömuleiðis mjög söng- elskur maður. Við systkinin lærð- um snemma að meta klassíska tón- list og vorum alin upp við hana. Ég byrjaði að læra á píanó í Tónskóla Ólafsfjarðar þegar Magnús Magn- ússon stofnaði hann árið 1965. Þá hafði reyndar þýsk kona kennt á píanó einn vetur og hafði ég sótt tíma til hennar. Sautján ára gamall fór ég sem skiptinemi til Banda- ríkjanna og var þar í rúmt ár. Þar laukst upp fyrir mér nýr heimur. Þar hélt ég áfram píanónámi og þar lærði ég einnig nudd. Hugur minn stóð alla tíð til þess að læra til hjúkrunarstarfa og þá datt mér ekki í hug að ég myndi leggja fyrir mig tónlist eða að ég hefði eitthvað í það að gera að verða söngvari. Þegar ég kom frá Bandaríkjun- um 1970 vann ég fyrst sem skrif- stofumaður á Ólafsfirði en fór svo suður. Þar starfaði ég á Kleppi en vann auk þess við nudd. Á þeim árum fór ég að syngja í Pólýfón- kómum og sótti söngtíma til Ruth Magnússon. Þar lærði ég gríðar- lega mikið í tónlist sem ég bý enn að. Engu að síður var þá enn víðs fjarri mér að leggja sönginn fyrir mig. Til Noregs Árið 1973 fer ég til Noregs að læra hjúkrun. Með mér vann hjúkrunar- kona sem jafnframt var söngkona. Það er eiginlega þessari konu að kenna að ég leiddist út í sönginn. Hún hálft í hvoru þröngvaði mér út á tónlistarbrautina. Hún heyrði mig eitthvað raula og vildi endi- lega að ég færi í söngtíma. Ég gerði það nú mest fyrir hana að fara í þessa tíma en röddin var fljót að opnast og þar með efldist áhugi minn. Þá var ég 23 ára. Þetta var býsna strembinn tími, ég fékk engin námslán og varð því að vinna mikið. Ég var á nætur- vöktum á geðdeild fyrir geðsjúka glæpamenn við ríkisfangelsið í Osló jafnhliða skólanum og svo bættist söngnámið við. Þetta var náttúrulega full mikið álag svo ákvað að taka mér frí frá hjúkrun- amáminu eitt ár til að gefa söngn- um meiri tíma. En það teygðist sem sé dálítið á þessu eina ári og nú hefur það staðið í rúm 18 ár. Ég innritaðist í söngnám við Tón- listarháskólann í Osló og lærði þar hjá Marit Isene sem var þekktasti söngkennari Noregs á þessum tímum. Einnig söng ég þá í Norska óperukómum. Eins og ég sagði áðan var röddin fljót að taka við sér. Mitt „debút“ var sem sólóisti í Magnificat eftir Bach árið 1975. Vistaskipti í Noregi var ég í tæp 4 ár en ég festi þar aldrei rætur og 1977 flutti ég til Árósa í Danmörku til áfram- haldandi náms. I Tónlistarháskól- anum í Árósum var ég í 3 ár og þar fékk ég eins gott tónlistaruppeldi og hugsast getur. Skólinn var af- skaplega góður á þeim tíma og bauð upp á mjög viðamikla alhliða tónlistarmenntun. Þama komu heimsfrægir menn eins og Peter Pears, Eric Ericsson, Lars Eric Welle og fleiri og héldu námskeið. Maður fékk þrjá tíma í viku hjá prófessor, einn tíma hjá assistant og fjóra með undirleikara. Með- fram náminu var ég svo alltaf að syngja bæði hér heima og vítt og breitt um Skandinavíu, aðallega ljóða- og kirkjutónlist. Eftir 3 ár í Árósum var röddin mín orðin það góð að ég hélt þaðan á brott og fór þá til Bayreuth að syngja þar í óperukómum. Ég tek það fram að ég hef aldrei verið beðinn um að sýna nein próf. Þannig ganga hlutimir einfaldlega ekki fyrir sig í Evrópu. Maður syngur einfaldlega fyrir, og eftir því er dæmt hvort maður er starf- inu vaxinn eða ekki, en ekki eftir því hvort maður hefur einhver próf upp á vasann. Ég er afar mótfallinn þessari ofuráherslu sem lögð er á allskyns pappíra og próf hér á ís- landi. Ég veit ekki hvaðan ís- lendingum kemur þessi hugsunar- háttur að verðleikar manna séu metnir eftir einhverjum pappímm Árið 1981 var mér boðið að sækja um í óperustúdíó ríkisóper- unnar í Amsterdam. Ég gerði það og var svo heppinn að komast þar inn næstu 3 árin. Að vera í óperu- stúdíói er eins konar launuð menntun. Þar fær maður ótak- markaða tilsögn en það er líka þrotlaus þrældómur. Á þessum þrem ámm söng ég 23 ópemhlut- verk á sviði. Svona fyrirbæri er náttúmlega mjög dýrt í rekstri og stúdíóið var lagt niður 1986. Þá var ég farinn að syngja við Ríkisóper- una í Hollandi sem ég starfaði við þangað til ég flutti heim.

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.