Norðurslóð - 15.12.1993, Qupperneq 8
8 — NORÐURSLÓÐ
Baldur, Olgeir og Jóna Heiða einbeitt við vinnu sína.
Föndur-
dagur
á Húsa-
bakka
Föndurdagar í skólunum eru
orðnir fastur liður í undir-
búningi jólanna. í Dalvíkurskóla
var föndurdagur 4 desember en
helgina áður föndruðu nemend-
ur og foreldrar í Húsabakka-
skóla oe drukku saman kaffí.
Grundarfjölskyldan mætti öll til
leiks. Karl Heiðar, Sigurbjörg, Frið-
rik og Atli.
Jenný, Anna Heiða, Erla og Eydís
gáfu sér ekki tíma til að líta upp frá
föndrinu fyrir Ijósmyndarann.
Myndir: hjhj
Ljóðagetraun
Norðurslóðar
1993
Enn er Ljóðagetraun Norðurslóðar á ferðinni - og
nú í 16. sinni. Búningurinn er með sama sniði og
hann hefur verið frá upphafi, en gerður úr léttara
efni en oftast áður, svo maður noti nú skáldiegt lík-
ingamál. Dæmi: Hvar situr Sigga litla systir mín?
Svar: Út í götu.
1. Hver eyðir sorg og ólund?
2. Á hverjum fór Rúnki ríðandi í réttimar?
3. Hverjir berast burt með tímans straumi?
4. Hvað ber dauðinn í styrkri hendi?
5. Hvert vill hugurinn hvarfla?
6. Hverjum veltir aldan?
7. Hvað fann krummi úti?
8. Hvar hafði fólkið hversdagsskemmtun á bænum?
9. Hvar gnæfir sú hin mikla mynd?
10. Hver er að lesa bænir ofanlút?
11. Hvað eykur mér óyndið?
12. Hverjir liðu inn í rökkurs hljóðar hallir?
13. Hverjum hlífír hulinn vemdarkraftur?
14. Hvar er aldrei fátt með ýtum?
15. Hvar er ekki rótt að eiga nótt?
16. Hver fannst mér þykkjuþung?
17. Hvað á ég í þessum handriðum?
18. Hver hlær við sínum hjartansvini?
19. Hver strýkur vanga minn blíðri hönd?
20. Hvað er mér ofarlega í sinni?
21. Hve lengi ert þú ljós lands og lýða?
22. Hver hefur blekkt oss vondslega?
23. Hvaða byggð fínnst oss fegurst á landi hér?
24. Hver fjarlægist sumarból?
• 25. Hverju sinnti hún ekki par?
26. Hver veit allt sem talað er hér?
27. Hvað græðir fjör um dalinn?
28. Hvem elskar Litla-Gunna lítið?
29. Hvar stendur jötunninn með jámstaf í hendi.
30. Hver þýtur eins og logi yfír eggjagrjótið?
Bókaverðlaun eru í boði eins og venjulega. Ekki er þess krafist
skilyrðislaust, að höfundur ljóðs sé tilgreindur. Þó gæti það skor-
ið úr og riðið baggamuninn ef fleiri en einn em með öll svör rétt.
Gjörið svo vel og góða skemmtun. HEÞ
Nafnagáta
Myndirnar hér að ofan eiga aö tákna nöfn valinkunnra Svarfdælinga ásamt bæjarnöfnum. Hverjir eru mennirnir/konurnar?
Vetrardagskrá
Ferðafélagsins
ákveðin
Vetrardagskrá Ferðafélags
Svarfdæla hefur nú verið ákveð-
in og er stefnt að einni ferð
fyrstu helgi hvers mánaðar til
vors. Sem fyrr er reynt að hafa
þar eitthvað við allra hæfí; kon-
ur og karla, börn og gamal-
menni, innipúka og göngugarpa.
Allmörg undanfarin ár hefur
það verið siður hjá dálitlum hópi
fólks að ganga fram í Stekkjarhús í
kring um áramótin og reyna með
þeim hætti að bæta að nokkm fyrir
syndir undangenginna hátíðisdaga.
Vetrardagskrá Ferðafélagsins hefst
einmitt á einni slíkri fjölskylduferð
sunnudaginn 2. jan og verður þátt-
takendum boðið upp á sjóðandi
heitan kaffisopa í Stekkjarhúsum.
Dagskráin er annars svohljóð-
andi:
Sunnudag 2. janúar - Fjöl-
skylduferð í Stekkjarhús.
Laugardag 5. febrúar - Fjöl-
skylduferð yfír Hamarinn, gamli
vegurinn frá Hamri að Völlum.
Laugardag 5. mars - Genginn
Þorvaldsdalur endilangur frá
Fomhaga að Stærri-Árskógi.
Laugardag 2. apríl - Gengið á
Kaldbak.
Allar em þessar ferðir hugsaðar
fyrir gönguskíði en að sjálfsögðu
fer það eftir færð og duttlungum
hvers og eins hvaða ferðamáta
menn viðhafa.