Norðurslóð


Norðurslóð - 15.12.1993, Blaðsíða 11

Norðurslóð - 15.12.1993, Blaðsíða 11
NORÐURSLÓÐ —11 skyldi það vera bókað á hans nafn. Áttum við að vera mættir í síðasta lagi kl. 10 um kveldið. Fórum við síðan allir og heimsóttum skyld- fólk sem við áttum í bænum. Jón og Svavar týndir Á tilsettum tíma var ég mættur við Hótel Gullfoss. Engan sá ég þar mættan af félögum mínum, sem mér þótti nú ekki neitt undarlegt, bjóst ekki við að þeir myndu standa þar utan dyra. Inni í and- dyrinu hitti ég fyrir stúlku eina sem mér leist að myndi vera starfs- stúlka þar á hótelinu. Spurðist ég nú fyrir um það, hvort ekki hefði verið pantað herbergi á nafni Jóns Ámasonar. Fór hún og leit í bók eina mikla sem lá þar á borði og kvað svo vera. Bað ég hana að vísa mér á herbergið sem hún sagði mér númerið á og var það á næstu hæð fyrir ofan. Fann ég fljótt herbergið eftir tilvísan stúlkunnar. Fór ég inn og hitti þar fyrir Halldór Jónsson. sem sagðist vera þangað kominn fyrir nokkurri stundu. I herberginu voru tvö rúm, eitt borð og stóll. Urðum við því sýni- lega að sofa saman tveir og tveir í rúmi. Ekki fannst mér nú neitt athugavert við það. Var nú ekki annað að gera en bíða eftir félögunt okkar, sem ekki létu enn sjá sig. Einhvem veginn var það svo að við vildum ekki fara að hátta fyrr en þeir Jón og Svavar væru mættir. Tylltum við okkur nú á rúmin og spjölluðum eitthvað saman um daginn og veg- inn og ferðina austur daginn eftir. Við lögðum af og til við hlustir, hvort vinir okkar væru nú ekki að koma. En tíminn leið og ekki komu þeir Jón og Svavar. Og nú hlaut að vera búið að loka hótelinu. Við stjákluðum um gólfið, tylltum okkur og stóðum upp aftur í full- komnu ráðaleysi. Eg stóð við gluggann í herberg- inu og horfði á nokkra upplýsta glugga inn Hafnarstrætið, og nokkur götuljós er vörpuðu draugalegri skímu á svo til mann- lausa götuna fyrir neðan. Það var orðið mjög áliðið. Hvar í fjand- anum gátu þeir verið að flækjast Jón og Svavar? Því í ósköpunum gerðu þeir þetta, og þurfa að leggja af stað eldsnemma að morgni? Og við ákváðum að fara bara að sofa. Við skriðum báðir upp í annað rúmið, teygðum yfir okkur, eftir því sem kostur var á, alltof mjóa sæng, og sofnuðunt von bráðar. Endurfundir og átök Fimmtán mínútum fyrir sjö vorum við Halldór báðir á fótum. Okkur varð fyrst fyrir er við vöknuðum, að líta yfir í hitt rúmið en það var autt. Þeir höfðu þá ekki komið um nóttina félagamir og nú fannst okkur fyrst illa horfa. Eftir fimm- tán mínútur áttum við að leggja af stað. Fórum við nú að staulast nið- ur stigana og koma okkur út. Því nú mundi bíllinn sem átti að flytja okkur yfir í Vaðlaheiðina fara að koma. Það stóðst á endum að þegar við komum út á götuna renndi bíllinn þar að. Svartur gljáandi Ford bíll. Hafði ég aldrei kornið upp í slfkt farartæki. Tæpast séð fólksbíl áð- ur. Bárum við nú upp vandkvæði okkar við bílstjórann með fyrir- hugað ferðalag, þar sem tveir fé- lagar okkar væru nú týndir. Sner- umst við æðistund þama á götunni og vissum ekki hvað gera skyldi. Kom það helst til ráða að bílstjór- inn færi heim en við færum að svipast um eftir félögum okkar. En sem við ræðum nú þetta, opnast gluggi á þriðju hæð á hótel- inu, og þar stingur höfðinu út Jón félagi okkar Ámason. Sér hann fljótt hvað um er að vera á götunni. Sendir hann okkur Dóra tóninn og kveður það furðu gegna að við skyldum ekki koma í heimboðið til Siggu Baldvins eins og um hefði verið talað, og svo hefðum við bætt gráu ofan á svart með því að koma svo ekki á herbergið sem hann hefði pantað handa okkur kveldið áður. Kom mér þessi ræða öll heldur ónotalega á óvart. Þar sem ég vissi mig og okkur Dóra saklausa af þessum ákúrum svar- aði ég því til að ég vissi ekki til þess að okkur Dóra hefði verið gert neitt heimboð kveldið áður. Og þar sem ég þekkti Siggu Bald- vins ekki neitt þætti mér ólíklegt að hún hefði boðið mér heim til sín. Um náttstað okkar væri það að segja að hann hefði verið á því her- bergi sem hann hefði sjálfur pant- að og okkur hefði verið vísað á. Deildum við nú svona nokkra stund, Jón og Svavar á náttfötun- um uppi í glugganum, en við Dóri niðri á götunni, og urðum við æ hávaðasamari. Var fólk farið að safnast að og athuga hvað hér væri um að vera. Bílstjórinn tvísté á götunni og leyndi sér ekki að hann gerðist mjög órór. Loks sagði hann er ör- lítið hlé varð á hávaðanum, og sá ég þá líka hvar lögregluþjónn var að koma norðan götuna. - Jæja, bræður, væri nú ekki rétt að slá botninn í þessa deilu og sættast á málin og koma okkur svo af stað •sem fljótast. Gengið í fússi Að þessum orðum mæltum hurfu þeir Jón og Svavar úr glugganum og hófu að klæða sig. En ég, sem búinn var að æsa mig heilmikið upp, og var fullur réttlátrar reiði í garð félaga okkar, snaraði mér inn í bílinn og Dóri líka. Að stundu liðinni komu þeir Jón og Svavar af loftinu allfasmiklir og settust inn í bílinn. Var nú ekið af stað inn úr bænum. Fátt var talað og vorum við jafn hljóðir og við höfðum ver- ið hávaðasamir áður. Var bílstjór- inn við og við að leggja fyrir okkur spumingar um eitt og annað, svona Flugleiðir óska viðskipta- vinum sínum gleðilegra jóla og gœfuríks komandi árs. Um leið minnum við á okkar fjölbreyttu þjónustu. Styttið veturinn með Kanaríeyjaferð. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða FLUGLEIDIR Umboðið Dalvík Goðabraut 3 • Sími 61300 eins og til að prófa hvemig skaps- mununum liði. En hann fékk jafn- an stuttaraleg svör. Það sauð í okk- ur ólundin. En stilltum okkur þó um að fara að rífast aftur. Veður var gott. Bjart en skýjað, aðeins norðankul. Snjólítið var og færi gott á þessum vegarkafla sem við gátum farið á bílnum. Og fyrr en varði vorum við komnir á leið- arenda, en veginn þraut við Geld- ingsána út og yfir frá Akureyri. Lengra var hann ekki kominn þetta herrans ár 1928. Fórum við nú út úr bílnum og var bílstjóranum greitt fyrir keyrsluna. Tók hann í höndina á okkur öllum um leið og hann kvaddi. Bað hann okkur nú að jafna þennan ágreining sem upp hefði komið á milli okkar. Við önsuðum fáu þar um, en tókum á rás upp heiðina því í okkur var kuldahrollur þótt veður væri gott. Var nokkurt frost. Færi var mjög gott, snjólítið og frosin jörð. Bar okkur því fljótt yfir heiðina. Ekk- ert var talað, aðeins keppst við að ganga. Gengum við jafnan í hala- rófu með ofurlitlu millibili, á þann hátt fannst okkur víst þögnin þol- anlegri. Þannig var haldið áfram austur yfir heiðina, Fnjóskadalinn og austur í Ljósavatnsskarð. Austan- vert við Ljósavatnið stönsuðum við loks við læk, settum okkur nið- ur og fengum okkur matarbita sem við vorum með. Vorum við orðnir svangir því ekkert höfðum við bragðað um morguninn áður en við fórum af stað frá Akureyri. í mjúkum meyjarörmum Smátt og smátt fórum við að tala ofurlítið saman, en vorum eins og ofurlítið feimnir að láta heyra í okkur. En öll reiði var nú rokin út í veður og vind og langaði okkur held ég mest til að biðjast afsök- unar á öllu okkar háttalagi, en komum okkur víst ekki að því. En eftir nokkra hvíld og hressingu var aftur lagt af stað, og var mikið létt- ara yfir okkur en fyrr um daginn. Var eins og af okkur létt fargi er ólundin var úr okkur rokin. Bar okkur nú hratt austur yfir Bárðar- dalinn. Þegar við komum austur á Fljótsheiðina var komið svarta myrkur þar sem nú var ekkert tunglsskin. Höfðum við þó engar áhyggjur af því, því leiðina þekkt- um við nú nokkuð og stutt orðið í áfangastað. Brátt sáum við ljósin á Laugum og nú rann það upp fyrir mér að ég hlakkaði ekki minna til að koma þar aftur en ég hafði hlakkað til að fara þaðan fyrir rúmri viku. Og sú tilhlökkun lét sér ekki til skammar verða. Við feng- um hinar ágætustu viðtökur, því nokkrar skólasystur okkar, sem við höfðum kynnst það sem af var vetrinum og voru á Laugum um jólin, buðu okkur velkomna og tóku dýrðlega á móti okkur. Báru fyrir okkur mat sem við gerðum góð skil. Síðan höfðum við fataskipti. Því nú var gamlárskvöld og dans- leikur stóð yfir af miklu fjöri í skólanum þegar við komum. Við drifum okkur strax í dansinn. Þreyta eftir ferðina var öll á bak og burt. Við eyddum fyrri hluta næt- urinnar í fanginu á okkar yndislegu skólasystrum við dans og söng. Og voru þeirra atlot hlýrri og ljúfari en fangbrögðin við Kára í ferðalaginu heim. Minningin um þetta kvöld er ljúf og björt og fymist ekki þótt margt hafi síðan borið á sálar- gluggann. Við Jón, Svavar og Dóri héld- um áfram að vera sömu félagamir og áður, og aldrei, hvorki fyrr né síðar, var minnst á ævintýrið á Ak- ureyri, og aldrei vissi ég hvemig á þeim mistökum stóð er þar áttu sér stað. Sigvaldi Gunnlaugsson (Millifyrirsagnir eru blaðsins) Oskum viðskiptavinum vorum gleðilegra jóla og farsœldar á komandi ári. Þökkum viðskiptin á líðandi ári. Landsbanki íslands Strandgötu 1, Akureyri Brekkuafgreiðsla, Kaupangi Frystihús KEA Dalvík sendir starfsfólki og viðskiptavinum bestu jóla- og nýárskveðjur og þakkar vel unnin störfá árinu. Gleðileg jól, farsœlt komandi ár.

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.