Norðurslóð - 23.06.1994, Page 3
NORÐURSLÓÐ —3
Sveitarstjórnarkosningarnar:
Nýr meirihluti myndaður á Dalvík
- Hreppsnefnd enn kvenmannslaus í Svarfaðardal, en konur komust í oddaaðstöðu í Hrísey
Sveitarstjórnarkosningarnar á
Dalvík breyttu nokkuð hlutföll-
um í dalvískri pólitík. Sjálfstæð-
isflokkurinn sem verið hafði í
meirihluta ásamt einum fulltrúa
Jafnaðarmannafélags Dalvíkur
missti einn mann til Fram-
sóknar. Við það féll meirihlutinn
og varð það úr að sigurvegarar
kosninganna, Framsóknar-
menn, mynduðu nieirihluta
ásamt tveim bæjarfulltrúum I-
listans.
Kjörsókn var góð á Dalvík. Af
1.070 á kjörskrá mættu 802 á
kjörstað, en 180 greiddu atkvæði
utan kjörstaðar. Alls kusu því 982
sem jafngildir 91,8% kjörsókn og
er það heldur meira en fyrir fjórum
árum.
Af þessum atkvæðum fékk B-
listinn 390 og þrjá fulltrúa kjörna,
þau Kristján Ólafsson, Katrínu
Sigurjónsdóttur og Stefán
Gunnarsson. D-listinn hlaut 329
atkvæði og tvo menn kjörna, þau
Trausta Þorsteinsson og Svan-
hildi Árnadóttur. I-listinn hlaut
239 atkvæði og tvo menn kjörna,
þau Svanfríði Jónasdóttur og
-A-
Nýkjörin bæjarstjórn á Dalvík á fyrsta fundi sínum. Sitjandi frá vinstri: Svanhildur Árnadóttir, Svanfríður Jónas-
dóttir, forseti bæjarstjórnar, og Katrín Sigurjónsdóttir. Standandi frá vinstri: Bjarni Gunnarsson, Kristján Ólafsson,
Trausti Þorsteinsson og Stefán Gunnarsson. Mynd: -i>u
Bjarna Gunnarsson. I-listinn
fékk því kjörna þá tvo menn sem
Jafnaðarmannafélagið og Frjáls-
lyndir höfðu áður.
Nýr meirihluti
Þessi úrslit túlkuðu Sjálfstæðis-
menn og fleiri sem svo að þeir ættu
að taka sér frí og fulltrúar B- og I-
Agætlega sáttur við
þennan tíma
- segir Kristján Pór Júlíusson sem sestur er í
bæjarstjórastól vestur á Isafirði
Kristján Þór Júlíusson hefur
verið bæjarstjóri á Dalvík und-
anfarin 8 ár en er nú á förutn til
Isafjarðar og verður væntanlega
sestur þar í stól bæjarstjóra þeg-
ar þetta blað kemur út. Við hitt-
unt Kristján að máli áður en
hann fór vestur og lögðum fyrir
hann nokkrar spurningar.
Ert þú áncegður með þróun
bœjarmála á Dalvík þegar þú lítur
yfirfarinn veg sl. 8 ár?
- Já ég er ágætlega sáttur eftir
þennan tíma. Það hafa átt sér stað
miklar breytingar á einstaka þátt-
um í starfsemi bæjarins. Á þessum
tíma hafa setið 2 bæjarstjórnir og
hefur bæjarfulltrúum auðnast að
taka ákvarðanir í bæjarmálum sem
hafa orðið til góðs að mínu mati.
Fjárhagsstaða bæjarins og fyrir-
tækja hans er traust. Hér hefur ver-
ið næg atvinna. Aukning hefur
orðið á þjónustu við bæjarbúa en
skattaálögur verið tiltöluiega lágar.
Bærinn kemur vel út úr saman-
burði við önnur sveitarfélög. Fólki
hefur fjölgað hér um 200 manns á
þessum 8 árum.
Ef við förum ofan í einstaka
gjöminga sem ég er sérstaklega
Greiðið áskrift-
argjaldið!
Blaðinu fylgir að þessu
sinni gíróseðill með áskrift-
argjaldi Norðurslóðar.
Glöggir lesendur sjá að það
hefur hækkað, en því veld-
ur að nú er búið að leggja
virðisaukaskatt ofan á
áskriftargjaldið. Við látum
þá hækkun þó ekki falla af
fullum þunga á áskrifend-
um, heldur hækkuin úr kr.
1.400 í kr. 1.500. Það er von
okkar að áskrifendur
bregðist fljótt og vel við.
Kristján Þór Jólíusson fyrrverandi
bæjarstjóri á Dalvík.
ánægður með, þá stendur upp úr ný
vatnsveita, hafnarmálin og sala á
hlut bæjarins í Útgerðarfélagi Dal-
víkinga.
Kveðurþú starfið með söknuði?
- Nei, það eru engin sárindi í
mér persónulega. Mér gremst hins
vegar að sjá Dalvíkinga hafna
manni eins og Trausta Þorsteins-
syni til forystu í sveitarfélaginu á
þeim tímum sem í hönd fara. Starf
bæjarstjóra er aldrei annað en
tímabundið starf og ég vissi að
hverju ég gekk þegar ég réði mig
til þess í upphafi.
Telur þú œskilegt að bœjar-
stjórar sitji lengur en tvö kjörtíma-
bil?
- Það fer alveg eftir því hvernig
hann stendur sig í starfi. Menn sitja
í þessu starfi allt frá einu ári upp í
30 ár. Það veltur á því hvort fólk er
ánægt með störf þeirra eður ei.
Bæjarstjórinn einn gerir hins vegar
engin kraftaverk. Hann er fram-
kvæmdastjóri 7 kjörinna bæjarfull-
trúa og allt veltur á því hvemig
samstarfi þessara aðila er háttað?
Þú réðst þig vestur á Isafjörð
með nánast engum fyrirvara.
- Já, strax daginn eftir kosning-
ar frétti ég af fyrirspumum um mig
og á mánudeginum var haft sam-
band við mig frá fleiri en einum
aðila.
Gekk vel að taka ákvörðun?
- Ja, ég hafði ávæning af því að
B-listi og I-listi ætluðu að mynda
meirihluta og bæjarstjórastaðan
yrði auglýst svo ég gat þess vegna
strax gefið grænt ljós vestur á Isa-
fjörð. En mér hefði fundist eðlilegt
og sjálfsögð kurteisi að verðandi
meirihluti ræddi við sitjandi bæjar-
stjóra um starfslok hans. Nú þrem
vikum eftir kosningar hefur enginn
úr þeim hópi sýnt lit í því efni.
Þekkirþú eitthvað til á Isafirði?
- Nei ég þekki sama og ekkert
til bæjarlífsins en Isafjörður er svo
sem ekkert frábrugðinn öðrum
íslenskum sveitarfélögum sem ég
tel mig þekkja býsna vel. Starfsemi
sveitarfélagsins ætti ekki að vera
svo lengi tekin.
Það er heldur ótryggt starf að
vera bœjarstjóri. Ætlar þú að end-
ast lengi á þessum staifsvettvangi?
- Starf bæjarstjóra er vissulega
ekkert ævistarf, því ráðning hans
hverju sinni er einungis til fjögurra
ára. Eg hef ráðið mig næstu fjögur
ár til ísafjarðar og framhaldið hlýt-
ur að ráðast af þvf hvemig gengur í
starfinu. Hvað þá tekur við er jafn-
óákveðið og næstu fjögur ár.
Hvernig leggst þetta ífjölskyld-
una?
- Þetta leggst ágætlega í fjöl-
skylduna. Það eru náttúrulega ekki
allir jafnsáttir eins og gengur. En
það er aldrei hægt að gera svo allir
séu fullkomlega ánægðir.
Komið þið aftur til Dalvíkur?
- Já ég veit að við komum aftur
til Dalvíkur en til hvaða starfa veit
ég ekki.
Eitthvað að lokum?
- Eg vil bara þakka Dalvíking-
um ágætt samstarf þennan tíma
sem ég hef verið bæjastjóri. Eg er
mjög sáttur við þennan tíma og ég
vona að þeir séu það líka. hjhj
lista settust strax að samningum.
Samkomulag náðist fljótlega um
samstarf og gengið var frá ntál-
efnasamningi og skiptingu emb-
ætta áður en ný bæjarstjórn tók við
völdum á fundi þann 14. júní. Þar
var samþykkt tillaga nýja meiri-
hlutans um að auglýst skyldi eftir
nýjum bæjarstjóra. Forseti bæjar-
stjórnar var kjörin Svanfríður Jón-
asdóttir af I-Iista og fonnaður bæj-
arráðs Bjarni Gunnarsson af I-
lista, en auk hans eiga sæti í ráðinu
þau Katrín Sigurjónsdóttir og
Svanhildur Árnadóttir.
Á bæjarstjórnarfundinum var
einnig samþykkt tillaga frá oddvit-
um meirihlutans um að fela Olafi
Nílssyni endurskoðanda að gera
úttekt á fjárhagsstöðu Dalvíkur-
bæjar. Á hann einnig að leggja mat
á verðmæti eignarhluta bæjarins í
atvinnufyrirtækjum og meta þær
ábyrgðir sem bærinn hefur gengist
í. Loks var samþykkt að flytja bæj-
arstjórnarfundina úr Ráðhúsinu í
Safnaðarheimili Dalvíkurkirkju
þar sem þeir verða fyrsta og þriðja
þriðjudag hvers mánaðar og hefj-
astkl. 17.
Ekki hefur enn verið kosið í
nefndir og ráð á vegum bæjarins,
að bæjarráði frátöldu, en það verð-
ur gert á síðasta fundi bæjarstjórn-
ar fyrir sumarleyfi þriðjudaginn
28. júní nk.
Norðurslóð birtir málefnasamn-
ing hins nýja meirihluta á bls. 5.
Svarfaðardalshreppur
I Svarfaðardalshreppi voru litlar
sviptingar í tengslum við hrepps-
nefndarkosningar að þessu sinni,
en þargreiddu 144 af 185 atkvæði.
Fjórir sitjandi hreppsnefndar-
manna voru endurkjörnir, þeir Atli
Friðbjörnssson oddviti á Hóli,
Kristján Hjartarson varaoddviti
á Tjöm, Oskar Gunnarsson í
Dæli og Gunnar Jónsson í
Brekku. Jón Þórarinsson baðst sem
kunnugt er undan endurkjöri og í
hans stað kont Gunnsteinn Þor-
gilsson bóndi á Sökku inn sem
fimmti maður. Hreppsnefndin er
því eftir sem áður kvenntannslaus
en í varamannasætum er aftur á
móti kvennaval. Þar sitja Svana
Halldórsdóttir, Filippía Jónsdóttir,
Jón R. Hjaltason, Margrét Gunn-
arsdóttir og Jóhanna Gunnlaugs-
dóttir.
Arskógshreppur
I Árskógshreppi urðu meiri
mannabreytingar en þar var eins
og í Svarfaðardal um óhlutbundna
kosningu að ræða. Aðeins tveir
sitjandi hreppsnefndarmanna gáfu
kost á sér og voru endurkjörnir.
Það eru þeir Kristján Snorrason á
Hellu sem nú hefur tekið við odd-
vitastarfi af Sveini Jónssyni, og
Pétur Sigurðssson Árskógssandi,
varaoddviti. Auk þeirra hlutu
kosningu þau Hildur Marínós-
dóttir á Árskógssandi, Kristján
Tryggvi Sigurðsson (frá Brautar-
hóli) Hauganesi og Kolbrún Ól-
afsdóttir Hauganesi. Varamenn
eru þeir Hermann Guðmundsson,
Brynjar Haukur Sigfússon, Jón
Ingi Sveinsson og Hörður Gunn-
arsson. Alls kusu 175 af 246 á
kjörskrá.
Hrísey
I Hrísey voru í fyrsta sinn lista-
kosningar sem komu til af því að
konur í eynni riðu á vaðið og buðu
frant Nornalista. Karlarnir gátu
ekki látið því ósvarað og buðu
fram tvo lista. E-listi, Eyjalistinn,
hlaut 66 atkvæði og tvo fulltrúa, þá
Smára Thorarensen og Narfa
Björgvinsson. J-listi framfara og
jafnréttis hlaut einnig 66 atkvæði
og tvo fulltrúa, þá Björgvin Páls-
son og Einar Georg Einarsson.
N-listi, Nornalistinn, hlaut 43 at-
kvæði og einn fulltrúa, Þórunni
Arnórsdóttur. Konurnar lentu því
í oddaaðstöðu og nýttu sér hana til
að komast í meirihlutasamstarf
með Eyjalistanum. Þórunn verður
oddviti en Smári Thorarensen
varaoddviti. Ekki var Ijóst hvort
Jónas Vigfússon sveitarstjóri yrði
endurráðinn þegar blaðið fór í
prentun en viðræður hans og nýja
meirihlutans stóðu þá yfir.
-ÞH/hjhj
Sumaráætlun
Ferðafélagsins 1994
Ferðafélag Svarfdæla hefur
birt sumaráætlun sína. Á ári
fjölskyldunnar þótti tilhlýði-
legt að hafa Ileiri svokallaðar
fjölskylduferðir en áður.
Áætlunin hljóðar þannig.
24. júní: Miönætursólarferö
að Hálshorni
9. júlí: Fjölskylduferö á Þor-
valdsdal
30. júlí: Gönguferö yfir Helj-
ardalsheiöi
13. ágúst: Fjölskylduferð aö
Skeiösvatni
27. ágúst: Vinnuferð á
Tungnahrygg
17. september: Haustlita-
ferö í Karlsárskóg.
Þarna ættu allir að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi.
Þeim sem alls ekki treysta sér í
gönguferðir skal bent á að bæði
fram í Þorvaldsdal og upp að
Skeiðsvatni er hægt að aka á
duglegum bílum og sama er
reyndar að segja um Heljar-
dalsheiði þegar snjór er farinn
af heiðinni síðsumars.
Upphaflega var var ætlunin
að fara miðnætursólaiferð á
Jónsmessu upp að Skriðuvatni
upp af Hofsárkoti en vegna
fannfergis á fjöllum var ákveð-
ið að fara í staðinn austur að
Hálshomi og verður hist við
þjóðveginn á Hámundarstaða-
hálsi kl. 10. að kvöldi 24. júní.
Þá má geta þess að árbók
Ferðafélags Islands er kontin
út. Hún fjallar að þessu sinni
um Ystu strandir norðan Djúps
og verður borin í hús til félaga
Ferðafélagsins á næstunni.