Norðurslóð


Norðurslóð - 23.06.1994, Page 4

Norðurslóð - 23.06.1994, Page 4
4 — NORÐURSLÓÐ 17. júní 1994 á Dalvík Mikil þátttaka var í hátíðarhöld- um í tilefni af lýðveldisafmælinu á Dalvík, þrátt fyrir heldur hvimleitt veður. Dagskráin stóð lungann úr deginum og hér sjá- um við nokkrar svipmyndir frá hátíðarhöldunum. Í . t í ■ Fallhlífarstökkið vakti mikla hrifn- ingu, ekki síst nákvæmnin í lending- unni. Fjallkona var H jördís Jónsdóttir og fór meö kvæði eftir Tómas Guð- mundsson. ' Hestamenn fóru fyrir skrúðgöngu sem fór frá Ráðhúsinu suöur á íþróttavöll. Á eftir hestamönnum komu fulltrúar annarra félagasamtaka á Dalvík, en þar á eftir almenningur sem fjölmennti. Lúðrasveitin var fjarri góðu ganini enda stjórnandinn suður í Reykjavík. Að inorgni 17. júní gengust félagar í hestamannafélaginu Hring fyrir hesta- sýningu þar sem ma. var skyggnst inn í fortíðina, hey bundið upp á hest og skreið reidd á klakki. Hér eru þeir Karl Sævaldsson, Víkingur Daníelsson og Sigurlijörtur 1‘órarinsson liver með sinn trússhestinn á leið inn í 20. öldina. Myndir: SH/-ÞH Tjarnarkvartettinn kemur fram í ýmsum dulargervum. Á lýðveldisafmælinu kölluðu þau sig félaga úr Leikfélagi Dalvíkur og fluttu ma. nokkur lög úr söngleikjum eftir Jónas Árnason. Hér hafa þau fengið liðsstyrk barna sinna við að flytja barnalög. Omurleg örlög í Skíðadalsbotninum Nú er senn nóg komiö af hrakfallasögum, sem gerst hafa í sambandi við geymslu búfjár í botni Skíðadalsins. Samt ætla ég að klykkja út með einni dapurlegri frásögn. Surnar nokkurt á síðari hluta 9. áratugarins var fjöldinn allur af nautgripum á sumarbeit í Skíða- dalsafréttinni af ýmsum bæjum, þar á meðal frá Tjörn. I fyrstu fjárgöngum upp úr miðjum sept- ember huguðu gangnamenn eftir nautastóðinu, sem ætlunin var að sækja eftir nokkra daga. Gangnamenn voru undrandi á að sjá að margir nautgripir voru mjög framarlega á Vesturárdal, framar öllum venjulegum nauta- högum. Ekkert var samt hugað frekar að því, enda skyldu allir nautgripir sóttir einhvern næstu daga. Þegar svo safnið var sótt og rek- ið niður til réttar kom í Ijós, að það vantaði 4 gripi, kvígur og uxa, líklega öll úr Tjörn, að því er fyrst var talið. Þetta þótti mönnum varla einleikið en minntust þess þó, hvað gangnamenn höfðu sagt urn naut- gripi hátt uppi á Vesturárdal í 1. göngum. Nautgripir í jöklaferð En áður en ráðrúm gafst til að gera út sérstakan leitarleiðangur var hringt úr Skagafirði til fjallskila- stjóra, Jóns Þórarinssonar á Hær- ingsstöðum. I símanum var bónd- inn á Syðri-Hofdölum í Viðvíkur- sveil í Skagafirði. Hann hafði þá sögu að segja að gangnamenn þeirra, sem leitað hefðu í seinni göngurn svonefndan Skíðadal, sem er næsti þverdalur innan við Helj- ardal, hefðu riðið fram á 2 naut- gripi, naut og kvígu, mjög framar- lega á dalnum. Hjaltdælir komust að raun um það, að skepnurnar væru úr Svarfaðardal og létu því fjallskilastjórann þar í hreppi vita. Þetta voru ótrúleg tíðindi. Þarna höfðu þessi vesalings. ringluðu dýr unnið furðulegt þrekvirki: að klöngrast yfir stórgrýtisurðir og jökla, sem eru á þessari leið og nær í 12-13 hundruð metra hæð. Það er að segja 2 dýr af 4 höfðu brotist vesturyfir. Önnur tvö hafa farist á leiðinni, beinbrotið sig í urðinni eða hrapað í jökulsprungur. Tilraun var gerð til að rekja slóð hinna afvegaleiddu nautgripa, upp úr Vesturárdal, en veður- og leitar- skilyrði voru upp á það versta þessa dagana og hafðist ekkert upp úr krafsinu. Hinsvegar fékk undirritaður duglegan mann með sér vestur í Kolbeinsdal til að leita þaðan, ef þess væri kostur, og svo til að sækja gripina tvo, sem af komust og voru geymdir á bænum Garða- koti í Hjaltadal. Það var Valdemar Bragason á Dalvík, sem ferðina fór með mér, en hann átti duglegan jeppa og kerru og er auk þess jafn- an fús til að leggja sig í nokkrar mannraunir ef svo ber undir. Nautgripanna leitað Nú ókum við vestur um Öxnadals- heiði eins og leið liggur í fremur leiðinlegu súldarveðri. Komum í Garðakot, fengum góðar leiðbein- ingar hjá Pálma bónda og skildum þar eftir kerruna. Síðan ókum við áfram og stefndum á „Grófina“ þar sem moldargötur liggja um hálsinn yfir í Kolbeinsdal. Allt var blautt og leiðinlegt í súld og þoku niður í miðjar hlíðar fjalla. Þó sigraðist Valdemar á erfiðleikunum og komumst við upp á hálsinn. Var þá liðið langt á dag og þoka að færast í aukana. Við hröðuðum því för sem mest við máttum fram Kolbeinsdalseyrar austan ár, fram hjá Heljardal og áfrarn uns við vorum á móts við Skíðadalinn og ekki varð farið lengra á bíl. Við vissunt hinsvegar, að nýlega höfðu bændur niðri í sveitinni gert göngu- og rekstrarbrú á Kolbeins- dalsá vel fyrir framan mót hennar og Skíðadalsár. En við vildum ekki tefja för okkar með slíkum útúrdúr, sem ekki var þó mikill. Hinsvegar síkk- aði þokan í fjöllunum ískyggilega og hratt og gerði sig m.a. líklega til að kúffylla Skíðadalinn með sínum þykka, gráa graut. Þar höfðu Skag- firðingar fundið nautgripina 2 og þar fannst mér líklegast að hinir 2 væru, væru þeir á annað borð lif- andi. Við klæddunr okkur því úr skóm og sokkum studdum hvor annan þ.e.a.s. Valdemar studdi mig, yfir straumstríða ána. Þá var næst að skunda upp lágan hálsinn (miklu lægri en Heljardalsháls) og skokka síðan fram dalinn, sem nú var óðum að fyllast af þoku. Árangurslaus leit Við vildum samt ekki gefast upp fyrr en í fulla hnefana, kálfarnir gætu verið bak við næsta leiti og einmitt langlíklegast, að þeir væru á bak við næsta leiti. Mér virtist líklegt að allir hefðu gripirnir kom- ist klakklaust yfir fjallið, en skilist að þegar komið var niður á efstu grös Skagafjarðarmegin. Allt reyndust það tálvonir. Að lokunt tókum við þá ákvörðun, að snúa til baka. Við vorum þá komnir fram- undir efstu grös, dalurinn pakk- fullur af þoku og súld og auk þess tekið að bregða birtu. Við skokkuðum niður kinda- göturnar allt niður á háls dalsins. I þetta skipti tókum við á okkur krókinn inn á göngubrúna og náð- um til bílsins þegar vel var tekið að skyggja. Þangað var gott að koma, þar biðu okkar síðustu nestisbitamir og heitur kaffidreitill á geymi. Þessi saga er ekki mikið lengri. Við ókum í Garðakot og tókum gripi okkar, sem þau Garðakots- hjón höfðu hýst nteð sínum eigin ungneytum í nokkra daga. Eftirmáli Gripimir voru teknir á gjöf strax og heim til Tjamar kom. Að nokkrum dögum liðnum fór ein- hver að tala um, að markið á ann- arri kvígunni væri torkennilegt. Við nánari athugun kom í ljós, að kvígan var alls ekki frá Tjöm, heldur frá Melum. Næsta dag kom Melabóndi glaður í bragði og sótti kvígu sína, sem sannarlega var heimt úr Helju. En undirritaður tapaði tveimur ársgömlum naut- gripum og á ekki von á að fá fréttir af örlögunr þeirra héðan í frá. HEÞ

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.