Norðurslóð - 23.06.1994, Síða 7
NORÐURSLÓÐ — 7
Kór Dalvíkurkirkju
Velheppnuð söngferð
um England og Skotland
Þegar til Grinisby kom var enginn mættur til að opna kirkjuna fyrir kórnum
svo Hlín greip til þess ráðs að slá upp ætingu undir kirkjuveggnum. Ensku
kirkjurnar voru voldugar, allar úr gráum steini, og hljómburður undantekn-
ingalaust góður. Myndir: -ÞH
Það var ekki mikið upp á veðurguðina að klaga meðan á Bretlandsferð Dal-
víkurkórsins stóð. Þó hefðu sumir þegið meiri sól. En þá sjaldan hún sást var
hún vel nýtt eins og sjá má af þessari mynd sem tekin er við suðursporð hinn-
ar voldugu Drottningarbrúar skammt frá Edinborg.
Kór Dalvíkurkirkju var í söng-
ferðalagi í Skotlandi og Eng-
landi dagana 31. inaí til 9. júní sl.
Kórinn söng víða á formlegum
og óformlegum tónleikum auk
þess að syngja við sjóntanna-
messu í Grimsby á sjómanna-
daginn. Þá tók kórinn þátt í
hátíðarhöldum í London á veg-
um íslenska sendiráðsins í tilefni
af 50 ára afmæli lýðveldisins.
Gefin var út vönduð söngskrá
fyrir ferðina sem prýdd var
myndum, þar voru einnig upp-
lýsingar um Dalvík, kórinn og
íslenska tónlist.
Ferðalagið hófst með þvf að
flogið var til Glasgow og komið
þangað seinnipart dags 31. maí.
Þau hjón Jón Helgi og Margrét
voru mætt á flugvöllinn með syni
sína Hilmar og Friðjón til að taka á
móti hópnum. Frá Islandi komu 46
og þegar þau fjögur voru komin í
hópinn voru það 50 manns sem
næstu daga ferðuðust saman í rútu
um Skotland og England. Fyrstu
nóttina var gist í Glasgow.
Næsta dag var snemrna lagt af
stað og stefnan sett á stað sem
heitir Stirling. Á leiðinni var siglt
með ferju á vatni sem heitir Lo-
mond eða Loch Lomond. I Stirling
var gist, en seinnipartur þessa dags
var nýttur til æfinga. Fyrstu reglu-
legu tónleikamir voru daginn eftir
í Pitlochry en þangð var komið um
miðjan dag og gist þar næstu nótt.
Á leið þangað var komið við í
smábæ sem heitir Dunblane og
dómkirkjan skoðuð. Kirkja þessi
er meðal annars fræg fyrir góðan
hljómburð og söng kórinn þar og
sannreyndi hljómburðinn. I þess-
unt bæ var einnig skoðað gamalt
og merkilegt bókasafn.
Tónleikamir í Pitlochry gengu
mjög vel. Aðsókn var góð, töluvert
á annað hundrað manns mættu.
Pitlochry er fremur lítill bær en
þangað kemur margt ferðamanna
og kom í ljós að áheyrendur voru í
bland ferðamenn og fbúar staðar-
ins. Kórnum var vel tekið og varð
að syngja mörg aukalög.
Á tröppum Sveinbjarnar
Daginn eftir var haldið til Edin-
borgar þar sem gist var næstu tvær
nætur. Tónleikar voru um kvöldið
í kirkju St. Michael and All Saints.
Aðsókn að tónleikunum var góð.
Margir Islendingar sem búsettir
eru í Edinborg voru þar saman-
kontnir. Meðal annarra var þar
Hafliði Hallgrímsson tónskáld, en
kórinn söng útsetningu hans á
þjóðlaginu Veröld fláa.
Að loknum tónleikunum fór
kórinn að húsi einu í Edinborg sem
er við London Street númer 15. I
því húsi var íslenski þjóðsöngur-
inn saminn fyrir 120 árum. Þarna
bjó Sveinbjöm Sveinbjörnsson og
starfaði í Edinborg sem hljómlist-
arkennari og píanóleikari. Skóla-
bróðir Sveinbjöms, séra Matthías
Jochumsson. dvaldi hjá honum
veturinn 1873-74 og orti þar fyrsta
erindið af lofsöngnum sem síðar
varð þjóðsöngurinn. Sveinbjöm
samdi síðar um veturinn eða vorið
lagið og var það flutt í Dómkirkj-
unni í Reykjavík í tilefni þjóð-
hátíðar 1874. í tilefni þessa alls
flutti kór Dalvíkurkirkju þjóðsöng-
inn á tröppum hússins númer 15
við London Street. Búið er að setja
skjöld utan á húsið sem minnti á að
þama hafi þjóðsöngurinn verið
saminn.
Dagurinn endaði síðan með því
að dansaðir voru gamlir skoskir
dansar. Það var fróðlegt fyrir fólk
sem dansað hefur svarfdælskan
mars að taka þátt í slíku. Hljóm-
sveitin samanstóð af fólki sem lék
á harmonikkur, fiðlu og trommur.
Stjómandi var uppi á sviði og lýsti
því sem gera átti og síðan var ann-
ar á dansgólfinu sem hafði forustu
þar. Heimamenn kenndu kórfélög-
um sporin og allir skemmtu sér hið
besta. Islenski hópurinn dansaði
síðan skottís við undirleik sekkja-
pípu og var hljóðfæraleikarinn að
sjálfsögðu í skotapilsi. Næsti dag-
ur var notaður til að skoða borgina
og síðan var opið hús á heimili
Jóns Helga og Margrétar um
kvöldið.
Sjómannamessa í
Grimsby
Þá var kominn sunnudagur sem
var sjómannadagurinn. Lagt var
snemma af stað frá Edinborg og
ekið sem leið liggur til Grimsby.
Komið var til Grimsby um miðjan
dag og ekið beint til aðal kirkju
staðarins, St. James, þar sem sung-
in varmessa. Sendiráðspresturinn í
London, séra Jón A. Baldvinsson,
var þar mættur og predikaði en Jón
Helgi þjónaði fyrir altari. Auk
þeirra var enskur prestur viðstadd-
ur athöfnina. Kórinn söng við
messuna en kirkjugestir voru fjöl-
margir, aðallega Islendingar á
Humbersvæðinu. Athöfnin var
ákaflega virðuleg og má segja að
íslensk sjómannamessa í Grimsby
sé í sjálfu sér söguleg athöfn.
Islendingarnir á svæðinu buðu
síðan til kaffisamsætis og söng
kórinn þar mörg lög við góðar
undirtektir áheyrenda. Síðan var
farið til Hull þar sent gist var
næstu tvær nætur. Daginn eftir var
farið í skoðunarferð til York þar
sem borgin var skoðuð og meðal
annars farið í Víkingasafnið.
Morguninn eftir héldu Jón Helgi
og fjölskylda aftur til Edinborgar
en hópurinn að öðru leyti lagði af
stað til London. Þangað var komið
síðdegis og þá um kvöldið var
farið á söngleiki. Stærsti hluti
hópsins fór á Cats sem hefur verið
á fjölunum þama í 13 ár. Nokkrir
fóru á annan söngleik sem nýlega
hófust sýningar á og nefnist Crazy
For You.
Sungið í skipi á Thamesá
Daginn eftir var London skoðuð
og meðal annars farið á nokkur
söfn. Seinnipart dags var sungið í
Dönsku kirkjunni við Regent Park.
Hópurinn gisti í London tvær
nætur. Seinni morguninn í London
var hótelið yfirgefið snemma og
allur farangurinn settur í rútuna og
síðan keyrt niður með Thames
ánni og farið um borð í togarann
Leif Eiríksson sem þangað var
kominn til að þjóna við hátíðar-
höld vegna 50 ára lýðveldisafmæl-
isins. Kór Dalvíkurkirkju hafði
það megin hlutverk þarna um borð
að syngja þjóðsönginn við vígslu
skipsins. Auk þess söng kórinn
nokkur lög við athöfnina. Skipið
sigldi á Thames og lagðist síðan
við festar þar sem það liggur enn
og þjónar meðal annars sem út-
varpsstöð. Utvarpsstöðin var vígð
nteð útsendingu á þjóðsöngnum
sem kór Dalvíkurkirkju söng þarna
við vígsluathöfn skipsins.
Að þessari athöfn lokinni var
hlaupið í búðir í miðborg Lundúna
þangað til farið var út á flugvöll og
flogið heim um kvöldið. Fyrstu ut-
anlandsferð kórs Dalvíkurkirkju
var þar með lokið. Ferðin tókst í
alla staði mjög vel og verður þeim
sem tóku þátt í henni ógleymanleg.
Kórinn fékk allsstaðar mjög góðar
undirtektir við þær athafnir og tón-
leika sem hann tók þátt í.
JA
Sparisjóður Svarfdæla
Dalvík - Árskógi - Hrísey
sendir íbúum Út-Eyjafjarðar bestu sumar-
kveðjur á afmælisári hins íslenska lýðveldis
Traust peningastofnun
í héraði er ein af
undirstöðum vel-
ferðar í byggðun-
um, sem að sínu
leyti mynda undir-
stöðu fullvalda ríkis
Megi byggðir Út-Eyjafjarðar blómgast og dafna
sem traustar stoðir lýðveldisins næstu 50 ár og
um alla framtíð
Lifið heil,
frjálsir menn í frjálsu landi
Sparisjóður Svarfdæla
Dalvík, s. 61600 - Árskógi, s. 61880 - Hrísey, s. 61785