Norðurslóð - 24.04.1996, Síða 6
6 - NORÐURSLÓÐ
x ^ Hermína Gunnþórsdóttir:
I Islendingabyggðum í
suðurhluta Afríku
- Frásögn af jólaheimsókn til Namibíu
Göngutúr í Luderitz.
Namibísk hangikjötsveisla. Frá vinstri: Kristín, Gunnþór, Þór, Ómar, Inga,
Arný, Arnar og Ása.
Það var á haustdögum sem drög
voru lögð að því að sá hluti fjöl-
skyldunnar sem enn hírðist á
ísaköldu landi reyndi að heim-
sækja foreldra okkar í Namibíu
um jólin. Það var þó ekki hlaup-
ið að því að fá flug og þegar
nokkuð var liðið á desember
virtist Ijóst að við kæmumst ekki
að sinni. En tími kraftaverkanna
var einmitt að ganga í garð og
rétt fyrir miðjan mánuð hringdi
pabbi í okkur með þær fréttir að
tekist hefði að útvega okkur flug
í gegnum skrifstofuna úti. Við
höfðum engan umhugsunarfrest
og vorum því á leiðinni til Nami-
bíu eftir fimm daga.
Foreldrar mínir höfðu dvalið í
Namibíu frá því í maí. Aður en þau
fóru vissi ég nánast ekkert um land
og þjóð, annað en að það væri
Afríkuríki. Namibía liggur að Atl-
antshafi, á suðvesturströnd Afríku
og er að mestu háslétta í um 1200
metra hæð, áttfalt stærra en ísland.
Loftslagið er víðast heittemprað
og mjög þurrt. Sandur er yfirgnæf-
andi í landslaginu og víða má sjá
há og tignarleg sandfjöll eða öldur.
Namibía hefur lengst af verið und-
ir stjóm annarra, Þjóðverja, Breta
og síðast Suður-Afrfku en Nami-
bía varð ekki sjálfstætt ríki fyrr en
árið 1990.
Ferðalagið hófst föstudaginn
15. desember. Við gistum hjá
Hönnu móðu í Keflavík (Hanna
móða er föðursystir mín en móður-
systir annarra frændsystkina
minna og því ávallt kölluð Hanna
móða) og svo var lagt í hann árla
morguns. Við flugum til London
og biðum á flugvellinum á Heath-
row í sex klukkutíma eftir fluginu
til Namibíu. Spiluðum Svarta-Pét-
ur á milli þess sem við virtum fyrir
okkur mergð Japana og Indverja
sem voru í miklum meirihluta í
flugstöðinni. Tveggja hæða risa-
fugl frá flugfélaginu Namibía air
var brátt tilbúinn til að flytja okkur
til Afríku. Eftir klukkutíma flug
var millilent í Frankfurt en síðan
haldið áfram. Fljótlega var borinn
fram vel útilátinn kvöldverður og
léttvín í boði fuglsins, allt með
ágætum. Við vorum þó ekki sár-
soltin því íslenski bóndinn og
bóndasonurinn höfðu lagt á það
mikla áherslu að við yrðum að
borða vel og hafa magafylli þegar
flugið hæfist, því óvíst væri að við
fengjum vott né þurrt fyrr en á
leiðarenda í Lúderitz! Annars gekk
flugið vel og við vorum lent í
Windhoek, höfuðborg Namibíu
eftir 10 klukkustunda flug frá
London, þaðan fórum við með
lítilli eins hreyfils vél til Lúderitz.
Við fengum hlýjar móttökur í
alla staði. Eftir útsýnisferð um bæ-
inn var heilsað upp á Islendingana
sem flestir búa í tveggja hæða fjöl-
býlishúsi inni í bænum. Það leyndi
sér ekki þegar við nálguðumst
slóðir íslendinganna, hlátrasköll
frá svölum hússins og íslenskir
krakkar í eltingaleik. A ströndinni
hittum við fleira fólk sem lá í sól-
baði og naut lífsins.
Allir Islendingamir í Lúderitz
og reyndar flestir sem starfa í
Namibíu, hafa atvinnu tengda
sjávarútvegi. Mikið þróunar- og
uppbyggingarstarf er unnið í
Namibíu af öðrum þjóðum og Is-
lendingar hafa m.a. sinnt sjávarút-
vegi.
í Lúderitz sem er í suður Nami-
bíu, búa um 50-60 Islendingar sem
starfa hjá Fyrirtækinu Seaflower
sem eru í eigu Islenskra sjávaraf-
urða og namibíska ríkisins. Fyrir-
tækið á nokkra togara en yfirmenn
þeirra eru allir íslenskir og stjóm-
endur fiskvinnslunnar í landi eru
einnig flestir íslenskir. Pabbi er
skipstjóri á togaranum Rex en
mamma, ásamt annarri konu, hefur
atvinnu í frystihúsinu við að kenna
vinnubrögð og ekki síst við að
halda uppi hraða sem mér skilst að
sé ekki minnsta vandamálið.
Nokkrum dögum eftir að við kom-
um til Lúderitz fómm við í heim-
í frystihúsi Seaflower. Steingerður og Sigmar raeða við gestina. Bak við þau
má greina kunnugleg form Sæplastkerjanna frá Dalvík.
Dalvíkurbœr
SUMARKVEÐJA
Með hœkkandi sól
fylgja bestu
sumaróskir til allra
Dalvíkinga
nœr og fjœr
GLEÐIRÍKT SUMAR
Dalvíkurbœr
Útgerðarfélag
Dalvíkinga
sendir sjómönnum á
b/v Björgvini og b/v Björgúlfi,
fjölskyldum þeirra, svo og öðrum
Dalvíkingum bestu óskir um
gleðilegt sumar
Sendum starfsfólki okkar á
sjó og landi, svo og
viðskiptovinum okkor
um allt lond bestu óskir um
GLEÐILEGT SUMAR
BLIKI hf.
I