Norðurslóð - 17.12.1997, Blaðsíða 3
NORÐURSLÓÐ — 3
FréttahorN
til
Pann 3
november sl
barst
tjarnarkirkju að gjöf nýr altarisdúkur.
Gefendur voru börn Engilráðar og Þórs á Bakka, þau Kristín, Ósk,
Eva, Helga, Rannveig og Vilhjálmur. Dúkinn gáfu þau í minningu
foreldra sinna en 30. nóvember var giftingardagur þeirra. Dúkinn
saumaði Jóhanna Einarsdóttir á Urðum og sést hún hér við altarið í
Tjarnarkirkju.
Utvegssvið VMA á Dalvík:
Dalvíkurbær afhendir húsnæði 1999
- samningur hefur verið undirritaður
Samningur liggur nú fyrir milli
menntamálaráðuneytisins og
VMA annars vegar og Dalvíkur-
bæjar hins vegar um að Dalvík-
urbær afhendi útvegssviði VMA
norðurálmu gamla grunnskól-
ans til eignar og afnota í upphafi
haustannar 1999. Samningurinn
Gestir frá
vinabæ
Eins og sagt hefur verið frá í
Norðurslóð hefur Dalvík eign-
ast vinabæ á Grænlandi. Vinabær-
inn er á austurströndinni og heitir á
grænlensku Ittoqqortoormitt en við
þekkjum sennilega betur undir
nafninu Scoresbysund. Síðastlið-
inn fimmtudag voru fjórir fulltrúar
þessa nýja vinabæjar staddir á Dal-
vík. Þar voru á ferð forseti bæjar-
stjómar, bæjarstjórinn og tveir bæj-
arstjómarmenn. Annar þeirra er
jafnframt þingmaður á þingi þeirra
Grænlendina. Gestimir færðu Dal-
víkurbæ trommu að gjöf og má
geta þess að tromman er til sýnis í
anddyri ráðhússins. J.A.
hefur verið undirritaður af öll-
um hlutaðeigandi aðilum og er
þar með koniin varanleg lausn á
húsnæðisvanda framhaldsdeild-
arinnar sem tryggir stýrimanna-
og fiskvinnslunámið í sessi.
Húsnæðið sem um er að ræða er
sá hluti gamlaskólans sem byggður
var upp úr 1950 og tekinn í notkun
1955-6. Elsta hluti skólahúsnæð-
isins nýtir Tónlistarskóli Dalvíkur
nú og verður svo í framtíðinni en
samningurinn nú tryggir Dalvíkur-
bæ umgangsrétt á öðru en kennslu-
húsnæðinu einmitt vegna tónlistar-
skólans.
Dalvíkurbær fær til eignar í
staðinn lausu kennslustofuna sem
er við heimavistina og útvegssvið-
ið notar núna. Stofan verður afhent
um leið og útvegssviðið fær hús-
næðið, það er haustið 1999. Ljóst
er samkvæmt þessum samningi að
taka verður nýbyggingu grunn-
skólans sem byrjað verður á næsta
vor í notkun haustið 1999 svo hægt
verði að losa það húsnæði sem
samningurinn nær til. J.A.
Ný verkleg aðstaða
fiskvinnslunema á Dalvík
Nýverið var tekin í notkun ný aðstaða fyrir verklega kennslu á
fiskvinnsluhraut útvegssviðs VMA á Dalvík. Frarn að þessu hefur
verkleg aðstaða verið til húsa í Frystihúsi KEA á Dalvík, nú Snæ-
felli hf.
I nýju aðstöðunni eru nemendur út af fyrir sig með sínum kennara
en þar er pláss fyrir 8-10 nemendur í senn og einnig er þar ein kennslu-
stofa fyrir bóklegt nám. Húsnæðið var innréttað í fyrrverandi móttöku
Frystihúss KEA en hráefni er að mestu fengið frá frystihúsinu enda að-
eins nokkrir metrar á milli þessara tveggja staða.
Sendum viðskiptavinum okkar og
velunnurum bestu óskir um
gleðileg jól ogfarsœld á
komandi ári.
Happdrætti Háskóla íslands
vænlegast til vinnings!
Umboðið á Daluík:
Röðull - Sólveig Antonsdóttir - Hafnarbraut 5 - S. 466 1300
Unglingaráðstefnan „Okkar mál“
var haldin í Dalvíkurskóla
fimmtudaginn 4. desember sl. en
ráðstefnan er orðin árviss viðburð-
ur í skólanum þar sem nemendur
eldri bekkja taka til umfjöllunar
málefni sem snerta unglinga á einn
eða annan hátt. A dagskrá voru er-
indi frá bæjarstjóra, fulltrúum nem-
enda í grunn- og framhaldsskóla,
lögreglu á Dalvík og Akureyri og
Þorsteinn Pétursson sagði frá for-
eldraröltinu á Akureyri. Þá var
boðið upp á veitingar og Friðrik
Hjörleifsson kynnti nokkur lög af
nýútkominni jólaspólu sinni. Mæt-
ing nemenda var góð en fjöldi full-
orðinna var minni en vonast hafði
verið eftir.
Laugardaginn 6. desember sl.
opnaði Guðrún Þórisdóttir
myndlistarsýningu á Cafe Menn-
ingu. Guðrún er búsett á Olafsfirði,
hefur búið þar frá 9 ára aldri og
stundaði nám við Myndlistarskól-
ann á Akureyri 1990-1994 í mál-
unardeild. Verkin á sýningunni eru
öll olíuverk unnin á striga og papp-
ír og unnin á síðustu mánuðum.
Guðrún hefur tekið þátt í nokkrum
samsýningum auk einkasýninga og
var m.a. gestalistamaður í Austur-
ríki veturinn 1996. Sýningin stend-
ur fram að jólum.
/
Afyrstu hæð Ráðhúss Dalvíkur
sýnir Einar Emilsson pastel-
myndir.
/
Arlegur föndurdagur Dalvíkur-
skóla var haldinn sunnudag-
inn 7. des. s.l. Foreldrar og böm
áttu þar ánægjulegar stundir við
fjölbreytt jólaföndur, 10. bekkur
seldi að venju kaffi og kökur gegn
vægu gjaldi og kór Dalvíkurskóla
söng opinberlega í fyrsta skipti.
Að vanda var vel mætt og hvert
sæti setið.
Jóladagskrá á Café Menningu:
Fram að jólum: Upplestrar úr
nýjum bókum. Helgin 19.-20. des-
ember: Jólamatur og dansleikur
um kvöldið. 2. í jólum: Hljóm-
sveitin Bylting leikur fyrir dansi.
3. í jólum: Hljómsveit Ingu Eydal.
Gamlárskvöld: Hljómsveitin Tvö-
föld áhrif. Milli jóla og nýárs:
Ljósmyndasýning tveggja áhuga-
ljósmyndara: Olafs Helga Rögn-
valdssonar og Olafs Steins. Ann-
ars opið eins og venjulega.
Troðfullt hús var þegar Friðrik
Hjörleifsson hélt útgáfutón-
leika á Café Menning 4. des sl.
í síðasta blaði var auglýst opið hús í
þrem glæsilegum fjósum á austur-
kjálkanum. Er skemmst frá því að
segja að hátt í 200 manns þekktust
boðið og marseruðu á milli fjósanna,
skoðuðu dýrðina og þáðu veitingar.
A Hofi hélt ein kýrin upp á daginn
með því að bera og var í miðjum
klíðum við að kara kálfinn þegar
blaðamann bar að garði.
Koníaksstofan í Sökkufjósinu er
annað og meira en nafnið tómt. Þar
var haldin ærleg vígsluhátíð þegar
aðstaðan var tekin í notkun. Meðal
gjafa sem gefnar voru að því tilefni
var þessi forláta koníaksbar smíðað-
ur af Arna Þorgilssyni.
Aðventukvöld voru haldin að Rimum þann 7. des og í Dalvíkurkirkju þann
14. des. Að Rimum söng samkór Svarfdæla ásamt barnakórnum „Góðir
hálsar“.
Friðrik söng lög af hinni nýút-
komnu jólasnældu sinni „Jólasal-
at“ m.a. hin frumsamda smell „Jól
um jól“ við rífandi undirtektir
áheyrenda. Sem kunnugt er rennur
ágóði af sölu snældunnar til styrkt-
ar Rauða krossi Islands og þakkaði
Friðrik á milli laga þeim fjölmörgu
aðilum og fyrirtækjum í bænum
sem styrktu útgáfuna. Forsvars-
menn fyrirtækja sem staddir voru í
salnum voru augljóslega harla
ánægðir með útkomuna og keppt-
ust við að ausa hinn unga tónlistar-
mann lofi og jafnvel gjöfum. Þann-
ig fékk hann dálaglegar peninga-
upphæðir frá bæði Sparisjóði
Svarfdæla og Fiskmiðlun Norður-
lands. I lok tónleikanna var svo
frumsýnt myndband það sem Frið-
rik gerði í samvinnu við Traust-
mynd á Akureyri við „Jól um jól“
sem væntanlega er jólasmeilurinn í
ár.
Að undanförnu hefur ágætt skauta-
svell verið á tjörnum og pollum. Að
vísu snjóaði á það og spillti það
nokkuð aðstæðum til skautahlaups.
Krakkarnir á Húsabakka kunnu ráð
við því. A myndinni eru þau Sigga,
Halli, Oli, Dúna og Sigurlaug og hin
lifandi snjóskafa Hulda en eftir þeim
fer Sólveig kennari.
Frá Tjarnarkirkjugarði
Þeir sem hafa hug á aá vera með
Ijósakrossa á leióum í garðinum
yfir jólin, eóa fá þá leigáa, hafi
samband viá Sigríói í síma 466
1555, en hún gefur nánari
upplýsingar.
Sóknarnefnd