Norðurslóð - 17.12.1997, Side 9
NORÐURSLÓÐ — 9
Úr Kolbeinseyjarferð árið 1989.
Kolbeinsey hefur minnkað hratt á umliðnuin öldum. Teikningin sýnir hvað sjórinn hefur brotið af lienni frá því að
Hvanndalabræður mældu hana fyrstir árið 1616. Myndin er byggð á stærðarmælingum við eyna og á dýptarkorti
Vita- og hafnarmála.
-------------------------
árunum 1989 og 1990
voru uppi hugmyndir
um að bjarga Kolbeins-
ey. Eyjan hafði verið að
minnka jafnt og þétt og var orðin
að litlu klettaskeri. En hún hafði
mikla efnahagslega þýðingu af því
að hún var grunnlínupunktur í fisk-
veiðilögsögunni. En þann punkt
viðurkenndu reyndar ekki margar
þjóðir. Steingrímur Sigfússon, þá-
verandi samgönguráðherra, fékk
okkur Atla á Jarðbrú með sér til
Kolbeinseyjar í ágúst 1989 en þá
var stigið fyrsta skrefið til bjargar
eynni. Eg var jarðfræðingur leið-
angursins en Atli stríðsfréttaritari.
Ferðin var æfintýraleg um margt
en út í það verður ekki farið hér.
Þetta sumar var þyrlupallur steypt-
ur upp á eynni. Með honum var
fyrsta áfanga vamaraðgerðanna
lokið. Næsta sumar fór ég aftur
norður í haf og gerði athuganir á
undirstöðum Kolbeinseyjar og
kafaði í því skyni víða umhverfis
hana. Ljóst var að einfaldasta leið-
in til að verja eyna var að girða
hana með stálþili eins og víða er í
höfnum landsins. Það er hvorki
flókin né verulega dýr aðgerð. Af
því hefur þó ekki orðið og nú hefur
verið afráðið að hætta öllum vam-
araðgerðum þótt margir séu ósáttir
við að gefast svona upp fyrir nátt-
úruöflunum og láta ysta útver
landsins hverfa viðnámslaust í sjó.
Jarðfræði
Kolbeinsey er 74 km norðnorð-
vestur af Grímsey. Skemmsta leið
til lands er um 105 km. Eyjan er á
eldvirkum neðansjávarhrygg, Kol-
beinseyjarhrygg, sem er hluti af
Miðatlandshafshryggnum en hann
teygir sig norðan úr Ishafi og suður
allt Atlandshaf langt suður fyrir
Afríku. Kolbeinsey er á grunnsjáv-
arpalli þar sem dýpið er minna en
100 m á allstóru svæði. Kolbeins-
ey hefur myndast við eldgos á
hafsbotni, líkt og Surtsey, fyrir 5-
10 þúsund árum þegar sjór stóð
nokkru lægra en hann gerir í dag.
Upphaflega hefur hún verið
allstór eyja með hraundyngju sem
talið er að hafi hvflt á móbergs- og
bólstrabergssökkli. Bergið sem
sést ofansjávar í eynni er ólivín-
basalt. Sama berg sést við köfun
niður á 20 m dýpi við eyna sjálfa, í
klettakollum á sjávarbotni út frá
henni og í blindskerjum norðvest-
an hennar.
Kolbeinsey hefur verið þekkt
allt frá fyrstu tíð og hennar er getið
bæði í Landnámu og Svarfdæla
sögu. Litlar heimildir eru um elds-
umbrot á Kolbeinseyjarsvæðinu.
Annálabrot frá Skálholti segja þó
eftirfarandi árið 1372:
„Sást úr Fljótum, og enn víðara
annars staðar fyrir norðan land,
nýkomið upp land út afGrímsey til
útnorðurs“.
Kolbeinseyjarvísur
Guðbrandur Þorláksson Hólabisk-
up sendi menn í rannsóknarför til
Kolbeinseyjar árið 1616. Það voru
bræður þrír frá Hvanndölum, sem
er dalskora á milli Ólafsfjarðar og
Héðinsfjarðar. Leiðangur þeirra
varð allfrægur. Skýrslan um hann
er týnd en efni hennar hefur að ein-
hverju leyti varðveist í sextugri
drápu sem sr. Jón Einarsson í
Stærra-Arskógi orti árið 1665.
Kvæðið heitir Kolbeinseyjarvísur.
Erindi 52-54 hljóða svo:
Eyjarfrónið fyrst þeir kanna
að faðmamáli og stikuðum vað,
fjögurhundruð full það sanna
fyndi að lengd, þeir sögðu það,
hœð og breidd að gátum granna
glögt sextíu í annan stað.
Flest sérþar um foldu kynna,
fimmslags grjót um bjargið breitt,
langvíurnar. veiða og vinna
vænan geirfugl höndla greitt,
eggjamargan fýlung finna,
fást því ekki við hann neitt.
Allt þeirþetta eyláð greina
uppvaxið með hóla og gjár,
gátu að líta grjót og steina
grastó engin milli stár;
mörgu hlýt eg loks að leyna, -
Ijóði þeir, sem gengur skár.
Fyrsta vísan greinir frá mæling-
um þeirra bræðra á stærð eyjarinn-
ar. Ef hún er tekin bókstaflega
mældu þeir lengdina með kvörð-
uðum kaðli en hæð og breidd var
metin. Lengdin var 400 faðmar en
breidd og hæð 60 faðmar. Líkleg-
ast er að þessir faðmar séu miðaðir
við Hamborgaralin (51,7 cm), sem
í gildi var á þessum tíma.
Samkvæmt Hamborgaralin hef-
ur eyjan verið 690 m löng, 100 m
breið og 100 m há. Þessi hæð er
ótrúleg enda er nær algilt að menn
ofmeti hæðir þegar ágiskunum er
beitt.
I miðvísunni segir að þeir hafi
séð fimm tegundir bergs í eynni.
Því miður er þeim ekki nánar lýst
svo aldrei verður vitað hvaða berg
þetta var. Lflclega er hér um að
ræða mismunandi ásýndir basalts.
I dag má hugsa sér að tvær teg-
undir bergs séu í eynni, þétt basalt
og frauðkennt basalt. Ef leifar gíg-
rásarinnar hafa verið ofansjávar á
þessum tíma hefðu þær vafalaust
skorið sig svo frá öðru bergi að
réttlætanlegt hefði verið að telja
bergið þar sérstaka tegund. Annars
er tilgangslítið að velta vöngum
yfir þessu.
Seinna í vísunni nefna þeir
fuglana, langvíu, geirfugl og fýl-
ung. Fuglafræðingum kemur vafa-
laust ekki á óvart að þessar tegund-
ir hafi verpt í Kolbeinsey. Það má
velta því fyrir sér hvort geirfuglinn
hefði orðið langlífari sem tegund
ef sjávarrofið hefði ekki eytt þess-
ari afskekktustu fuglabyggð við
Island. Ef til vill lifði hann þá enn í
dag. I síðustu hendingunum segir
að þeir hafi séð mikið af fýlung en
ekkert fengist við hann því hann
var á eggjum. Hér er þessi fugla-
tegund nefnd fyrst í íslenskum
heimildum svo vitað sé. Fýllinn
eða fýlungurinn var sjaldgæfur
fugl allt fram undir aldamótin
1900. Heimkynni hans voru við
Vestmannaeyjar og í Grímsey,
annars staðar er hvergi um hann
getið nema hér, í Kolbeinseyjar-
vísum. Það var ekki fyrr en á 20.
öld að fýl tók að fjölga ótæpilega
og nú er hann orðinn einn algeng-
asti fugl við strendur landsins.
Síðasta vísan sem hér er birt
bætir litlu við lýsinguna nema því
að enginn gróður hafi verið í eynni,
einungis grýttir hólar og gjár.
Seinna í kvæðinu er sagt að þeir
bræður hafi dvalið í eynni 5 dægur,
veitt 800 fugla, tekið egg í stórum
stíl og á heimleiðinni drógu þeir
þorsk. Þeir tóku land 2. júlí 1616.
Gaman hefði verið að vita hvemig
þeir náðu öllum þessum fugli. Lík-
legast er að þeir hafi náð mest af
langvíunni með flekaveiði. Þeir
voru á vegum Hólabiskups og
menn hans stunduðu flekaveiðar í
stórum stfl við Drangey ár hvert.
Rof Kolbeinseyjar
Roföflin við Kolbeinsey eru mikil
og hraðvirk. Vindar og brim, frost-
sprenging, hafís og ísing vinna öll
saman að niðurrifi eyjarinnar.
Bergið losnar bæði í stórum og
smáum blokkum og veltur út á
grunnsævisbotninn. Þar heldur
ölduhreyfing sjávar áfram að velta
því til og vinna á því þar til það
hefur borist niður fyrir rofmörk,
sem eru á allt að 40 m dýpi. A sjáv-
arbotninum næst eynni er mest-
megnis stórar bergblokkir að sjá,
smærra efni rótast fljótt lengra út.
Tafla: Mælingar á stærð Kol-
beinseyjar
Ár Lengd Breidd Hæð
1616 700 100 100
1900 300 30-60
1933 #70 30-60 8
1962 #52 36 7,5
1971 #41 39 6-8
1978 #43 38 5,4
1986 #42 32
Dýptarmælingar sem gerðar
voru af starfsmönnum Vita- og
hafnarmála á næsta nágrenni eyj-
arinnar sumarið 1990 sýna grunn-
sævishrygg þar sem dýpið er innan
við 12 m. Hann er um 700 m lang-
ur og 100-200 m breiður með
stefnu lítið eitt austan við norð-
vestur. Eyjan er nálægt suðaustur-
enda hryggjarins.
Ekki er ólíklegt að útlínur Kol-
beinseyjar hafi verið nálægt þessu
lagi um 1600. Á 19. öld hafði hún
minnkað mikið og heimildir nefna
að þarna hafi verið skerjaklasi um
700 m að lengd og um aldamótin
1900 er Kolbeinsey talin 300 m
löng. Tíu metra dýptarlínan um-
hverfis eyna markar einmitt um
300 m langt svæði og norðvestur
af því eru grunn á þremur stöðum
þar sem dýpið er innan við 10 m. Á
20. öld hefur eyjan minnkað ört,
einkum virðis hún hafa beðið mik-
ið afhroð einhvem tíma á árunum
milli 1900 og 1930. Vitað er að á
síðasta áratug hefur hún minnkað
að mun t.d. urðu menn varir við
umtalsverðar breytingar á henni
veturinn 1992-1993. "
Augljóst er að með þessu
áframhaldi er þess ekki langt að
bíða að Kolbeinsey hverfi í hafið.
Árni Hjartarson
Kæru vinir á Dalvík og í Svarfaðardal
Guð gefi ykkur gleði og frið
á helgri jólahátíð.
Megi komandi ár verða ykkur farsælt.
Hjartans þakkir fyrir allar
samverustundir liðinna ára.
Jón Helgi, Margrét, Hilmar,
Friðjón og Pétur Örn
FLUGFELAG ISLANDS
Air Icelattd
H
FLUGLEIÐIR
Umboð Flugleiða
og Flugfélags
Islands, Dalvík
óskar viðskiptavinum gleði-
legra jóla og farsœldar á nýju
ári.
Þakka mikil og góð viðskipti á
árinu sem er að líða.
Röðull
Hafnarbraut 5 • Sími 466 1300
Sólveig Antonsdóttir