Norðurslóð - 17.12.1997, Side 13

Norðurslóð - 17.12.1997, Side 13
NORÐURSLÓÐ —13 Brimar við eina mynd sína á sýningunni í Ráðhúsinu. Jóhann Kr. Pétursson Svarfdæling- ur ásamt Steingrími Matthíassyni lækni á Akureyri. Ég hef heyrt einhvem segja, að þeir Skeiðsbændur og bræður, Sveinn og Hjörtur, hafi flutt fyrsta útvarpstækið inn í sveitina. Þetta efast ég hinsvegar um að sé rétt. Ég hef alltaf staðið í þeirri mein- ingu, að Vilhjálmur á Bakka hafi fyrstur manna fengið sér slíkt tæki í dalnum. Því til staðfestingar hripa ég þennan greinarstúf.“ Eftir að Jóhann hefur sagt frá Vilhjálmi bónda á Bakka og að til að heyra í útvarpi þyrfti að reisa hátt mastur segir hann: „Nú var vandi fyrir dyrum. Engin há stöng, ekkert 10-15 metra hátt tré var til í Svarfaðardal og hafði ekki verið síðan stóra „eikin“ við Blakksgerði var felld og úr henni byggt haffært skip, sem gamla Svarfdæla getur um, ef ég man rétt. Þá var leitað til Þorsteins kaup- manns. Hann gat verið bóngóður og var vinur vina sinna. Hann átti miklar rekajarðir í Héðinsfirði, og þar rak oft á land stór og voldug tré, komin alla leið frá Síberíu. Eitt slfkt tré fékk Vilhjámur og var það dregið fram að Bakka á tveimur stórum sleðum, sem 4 hestar drógu. Og nú blasti þyngsta þrautin við, að reisa tréð upp á endann. Engir kranabílar, Iyftarar eða kraftblakkir voru við hendina. Nú varð að treysta á handaflið ein- göngu. Og margar hendur buðu sig fram. Piltar þustu heim að Bakka til að hjálpa til við að koma hinni 16 metra háu stöng upp á endann. Það tókst loksins eftir margra tíma erfiði í norðanvindi og snjóslyddu. Þegar nú loftnetið var komið á sinn stað og hin háa stöng komin lóðrétt upp á endann, styrkt með vírstrengjum í allar áttir, svo hún ylti ekki um koll í rokum, þá urðu allir fegnir að ganga í baðstofu og taka úr sér hrollinn. Og Kristín húsfreyja bar á borð heita bauna- súpu og bolaspað, eða var það lambakjöt? Allir borðuðu með bestu lyst nema Vilhjálmur. Hann gaf sér ekki tíma til að borða, en var önnum kafinn við að snúa skrúfum og tökkum á útvarpstæk- inu og reyna að fá það í gang. Það stóð á endum, að þegar ver- ið var að enda við máltíðina, þá fór útvarpið að ískra. Vilhjálmur hent- ist upp af stólnum og hrópaði af fögnuði: „Ég heyri, ég heyri“. Þustu þá allir að og vildu heyra líka. En sá galli var á gjöf Njarðar, að það var enginn hátalarinn, að- eins eitt heymartól, svo aðeins einn, eða sá, sem hafði það um höfuðið, gat heyrt. En fljótt upp- götvaðist, að legði maður eyra við eyra barst hljóðið á milli, svo margir gátu hlustað samtímis. Var þessi vangaaðferð óspart notuð þama næsta tímann, því að allir urðu að fá að heyra. Þessi atburður stendur mér ljós- lifandi fyrir hugskotssjónum enn í dag þótt hálf öld og hálft ummál hnattarins skilji mig nú frá þeim stað og þeim tíma, er saga þessi gerðist, þegar fyrstamtvarpið kom í Svarfaðardal.“ Síðustu orð Brimars I jólablaðinu 1980 voru þættir úr Svarfdælu sem Árni Hjartarson tók saman og Sigrún Eldjám gerði myndir við sem hér eru birtar aftur. Síðar eða fyrir jólablöðin 1982 og 1983 valdi Ámi aftur kafla úr Svarfdælu sem myndskreyttir vom af Sigrúnu. En það er viðtal sem Brynja Grétarsdóttir tók við Brimar Sigur- jónsson sem gerir jólablaðið frá 1980 svo merkilegt. I raun og veru er þetta viðtal ein af mestu perlum sem Norðurslóð státar af. Hvort- tveggja er að viðtalið er vel gert frá Brynju hendi og örlögin höguðu því svo að Brimar dó aðeins örfá- um dögum eftir að viðtalið var tek- ið og blaðið kom út. Utgáfudagur blaðsins var 16. desember en Brimar dó 22. desember. Hann hné niður þegar hann var að taka niður myndir sem hann sýndi á göngum Ráðhússins. Viðtalið var einmitt tekið í tilefni sýningarinnar og gengu Brimar og Brynja um sýn- ingarsvæðið á meðan. Við skulum grípa niður í aðfaraorðum Brynju: „J. S. B. í homi málverks stend- ur fyrir Jón Stefán Brimar, hvorki meira né minna, auk þess er mað- urinn Sigurjónsson. Stór maður vexti og stendur undir mörgum nöfnum. Ferðast títt um bæinn á reiðhjóli; lífsins lystisemdir í hefð- bundnum skilningi þeirra orða freista hans ekki. Lífsins list stend- ur honum nær og er honum í blóð borin, nefnilega málaralistin. Sem daglaunamaður er hann húsamál- ari, en meðan aðrir láta gjaman matast af fjölmiðlum - eða sofa, talar Brimar við sinn innri mann. Þeir talast við á striga „í lit“. Þar á Jaðri, við slag bám og Brimnesár, verður sólarhringurinn langur og árangurinn eftir því; hans fáum við sem oft áður að njóta um sinn. Á göngum Ráðhúss Dalvíkur hefur Brimar hengt upp 39 verka sinna til sýnis og sölu. Ágóðinn rennur allur til Dalbæjar. Það er reyndar ekki ný saga að Brimar gefi verk sín.“ Viðtalið sjálft byrjar Brimar svona: „Þetta eru nú ekki bestu mynd- imar mínar sem eru hér núna, nei, nei. Þið fáið kannske einhvem tíma að sjá þær. Þetta eru bara svona sýnishorn. - Þessi héma er úr Ytrivrkinni, þar er gott að vera. Þessi klettur virðist í fljótu bragði ekkert sérstakur en býr yfir ýmsu ef vel er að gáð. Þú sérð líka að ég hef málað í hann fullt af vættum.“ Víst sé ég vættir. Kletturinn bókstaflega iðar af kynjaskepnm. Ætli ég þori nokkurn tíma aftur niður í Ytrivík? Slembra með ástarpungum. - Hvernig varð nafnið til?— „Já, það er nú það.“ Listamað- urinn hlær dátt. „Nafnið á henni þessari já. Það má eiginlega segja að nafn og myndefni sé til orðið fyrir áhrif frá Kjarvalsmynd sem heitir Hafragrautur og er núna í Ameríku. Nú ég hugsaði með mér, því skyldi ég ekki líka geta málað graut, til dæmis skyrhræring? Hann var nú einu sinni ein algengasta fæðutegund okkar Islendinga hér áður, fínasti matur. Og þú sérð að í myndinni er blanda af ýmsu sem okkur stendur næst. Ástarpungam- ir eru hér út um allt, en ástin - kær- leikurinn - er einmitt rauði þráður- inn í lífinu.” Við skoðum landslagsmálverk og Brimar ræðir af innlifun um áhrif náttúmnnar á mannsandann, hvernig hún göfgi og lyfti. „Umhverfi manns er stærsti áhrifavaldurinn. Það mótar og elur mann upp og sennilega er flestum það eðlilegast að eyða ævinni þar sem vaggan stóð í fyrstu. Já, þar sannast hið fomkveðna: Djúpt liggja rætur,.... römm er sú taug. og svo framvegis.“ Síðar í viðtalinu kemur þessi millifyrirsögn og viðtalið heldur áfram: Konan mesta furðuverkið Víkjum aftur að rómantískari hlið- um lífsins. Ilmur skógarins er næsti áfangastaður: íturvaxin kona situr nakin í skóginum, böðuð sólarljósi og snýr við okkur baki. Málarinn býður bolsíur og skýtur inn í: „Þú sérð að það er jafnrétti í sýningunni hjá mér. Jafn margar myndir af báðum kynjum.“ Hann bendir á þrjár myndir af körlum og aðrar þrjár af konum. „Konan er mesta furðuverkið í allri sköpuninni, það hef ég alltaf sagt þótt ég hafi aldrei verið gift- ur.“ Brirnar hlær dátt. „Það má líka segja að konan hafi frá upphafi verið driffjöðrin í allri list, sem myndefni og tilfinn- ingaleg hvatning til listsköpunar. Hún hefur verkað sem krydd á list- ina, það er ekki nokkur vafi. Það er vegna þess hve mikil ást er alltaf í kringum konuna. Ástin er alls staðar grunntónninn og án hennar verður ekkert gert. Ást okkar á líf- inu, náttúrunni, ást milli karls og konu; hún streymir alls staðar gegnum tilveruna. Hvað sjáum við til að mynda fegurra en unga elsk- endur sem haldast í hendur? Það bókstaflega geislar út frá þeim.“ Listamaðurinn baðar út hönd- um af innlifun í umræðuna um konur og ást og bendir næst á mynd í grænum lit sem heitir Flóra: „Hér sprettur konan, furðuverk skaparans í allri sinni mynd upp úr blómkrónu við rætur fjallanna - það má segja að þetta séu eilífðar- fjöllin. Öll búum við í skjóli fjalla og verðum fyrir áhrifum frá þeim.“ Brynja lýsir síðan göngu þeirra um sali og að listamaðurinn hafi boðið upp á harðfisk um leið og fjallað er um myndir sem tengjast sjónum. Blaðamaður spyr hvort hann hafi aldrei bundið sig við neina eina ákveðna stefnu í mynd- sköpun? „Nei, nei. Ég hef alltaf lifað frá degi til dags hvað það snertir og leyft áhrifunum að ráða eftir því hvemig þau koma yfir mig hverju sinni. Sjáðu til dæmis hvernig Pi- casso málar - alltaf eitthvað nýtt með hverri mynd. Enda er list hans sífellt lifandi og áhrifin frá henni dofna aldrei." - Brimar hlær. - „Já, maður finnur til smæðar sinnar frammi fyrir þessum stóru körlum og má ekki mikið segja, en það veitir mikla innsýn í lífið og listina að grúska í verkum þeirra. Og maður gerir eins og maður getur, Bóndi og Eyrarkarl nefndi Brimar þessar myndir. Júlíus Daníeisson eldri. ekki betur. Um það er ekki að fást, bara að passa sig á að mála ekki of mikið. Það er hættulegt. Ég fer stundum í ham og ræðst í hluti sem ég ræð ekkert við. Það er vont, og þá verð ég að éta harðfisk til að halda aftur af mér. Já, já. Það er ágætt ráð að éta harðfisk. Það er stundum eins og eitthvað yfimátt- úrulegt stjórni mér þegar ég er að vinna. Eins og það sé ekki ég sjálf- ur sem held á penslinum. Þá mála ég og mála klukkustundum saman og stend svo steinhissa á þessu öllu saman. Nei ég held að það sé verra að binda sig við eitthvað ákveðið. Prófa nýtt, Ieita. Það er það sem gildir. Ég fór til að mynda fyrir stuttu að prófa þessar dekoratífu myndir eins og þessa héma. Óður til trésins. Hún er gerð í tilefni af ári trésins. Það er lygilegt hvað fánýtir hlutir geta nýst vel í myndir. Þessi hjólkoppur hérna ber fjögra laufa smárann uppi og gefur honum góðan bakgrann. Þar upp af teygir sig lífsins tré, fulltrúi hinnar eilífu móður náttúru, í sólargeislana. Sag- að, neglt og málað, það er gaman að þessu. En þetta er nú meira svona dekoratíft en beinlínis list- rænt.“ Síðasta millifyrirsögnin er: Sáttur við menn og skepnur Og síðan lýkur viðtalinu með þessu frá listamanninum: „Maður má ekki standa utan við, það er nauðsynlegt að hrærast með og lifa listina - lífsins list. Ég elska lífið og tilveruna í kringum mig. Að vera sáttur við menn og skepnur er það sem færir manni frið. Og að geta brosað. Þú hefur kannski tekið eftir nafninu sem ég valdi þessari fyrstu eiginlegu einkasýningu minni: Lítið lífsins bros? Hversu margir hafa ekki brotið heilann um bros Mónu Lísu gegnum tíðina? Já, það er ekki lítils virði að geta brosað. Og að muna eftir skapara sínum svo að ekki fari fyrir manni eins og Adam og Evu þegar þau héldu að þau væru ein í Paradís." Listamaðurinn hlær konung- lega og að því búnu kveðjumst við. Þjóðsögur Rétt er að ljúka þessari upprifjun úr fyrstu jólablöðum Norðurslóða með einunt af þremur þjóðsagna- þáttum sem birtust 1980 en þeir voru skráðir af Júlíusi J. Daníels- syni en hann hefur verið mjög dug- legur að skrifa fyrir blaðið allt frá fyrstu dögum þess. Aðfaraorðin 1980 voru eftirfarandi: „Einn af bestu vinum Norður- slóðar, Júlíus J. Daníelsson rit- stjóri frá Syðra-Garðshorni sendi blaðinu fyrir alllöngu þrjá neðan- skráða þætti í þjóðsagnastíl. Þeir hafa ekki áður verið skráðir á blað. Þetta er „jólalegt“ efni, sem blaðið birtir hér með mikilli ánægju: Huldukonurnar þrjár Afi minn, Júlíus J. Daníelsson, bóndi í Syðra-Garðshorni (f. 1859) ólst upp í Tjamargarðshomi (nú Laugahlíð) í Svarfaðardal. Þegar hann var 11 eða 12 ára gamall, var það eitt kvöld að vorlagi, að hann sat úti, upp á baðstofunni, og smalahundurinn Bósi hjá honum. Sér hann þá, hvar 3 konur koma gangandi þar utan og neðan og hafa stefnu á bæinn. Dettur honum í hug, að þetta séu stúlkur frá Tjörn, sem séu að ganga sér til skemmtunar með prjóna sína, og bíður úti til að bjóða stúlkunum inn. Eftir skamma stund tekur hann eftir því, að þær ganga ekki þá leið, sem venjulega var farin á milli bæjanna, heldur rniklu ofar. Þegar þær koma nær sér Júlíus, að þessar stúlkur hefur hann aldrei séð fyrr. Þær ganga hratt og þegj- andi. Þegar þær koma að bæjar- læknum, sem rennur skammt fyrir utan bæinn, beygja þær uppeftir og ganga nokkum spöl með læknum, þangað til þær fara suður yfir hann og taka stefnu suður og upp í holt- in. Hundurinn Bósi urraði og gelti að stúlkunum allt þangað til þær fóru suður yfir lækinn, þá þoldi hann ekki mátið og stökk geltandi á eftir þeim. Þegar þær urðu hundsins varar hertu þær gönguna sem mest þær máttu og skunduðu nú beint uppeftir. Þessum fleng héldu þær meðan Júlíus sá til þeirra og hurfu svo upp af Tjarnar- garðshorns-brúninni. Spurst var fyrir um þessar stúlkur á næstu bæjum, en enginn vissi nein deili á þeim. (Ritað 18. febr. 1939 eftir sögn Júlíusar eldra.) Heimasíða í undirbúningi Ég hef nú einungis flett í gegnum tvö jólablöð í þessari upprifjun og satt best að segja skilið ýmislegt eftir sem vert hefði verið að taka með úr þeim blöðum. Jólablöðin sem gefin hafa verið út eftir 1980 hafa verið með svipuðu sniði og oftast 24 síður. Þegar á heildina er litið er rnikill fróðleikur saman kominn í þessum blöðurn. Ákveð- ið hefur verið að útbúin verði heimasíða Norðurslóðar á internet- inu. Það verði einskonar afmælis- gjöf Norðurslóðar til sjálfrar sín og verður þá hægt að nálgast ýmislegt efni þar í framtíðinni og kannski þegar tímar líða verða gömlu Norðurslóðarblöðin sett á netið. Þangað til verður okkur ef til vill á að rifja upp gamalt efni í blaðinu sjálfu, en við látum hér staðar numið að sinni. JA

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.