Norðurslóð - 17.12.1997, Side 14

Norðurslóð - 17.12.1997, Side 14
14 — NORÐURSLÓÐ Kuldi og skortur hja heimkynnum guðanna Adda Steina Björnsdóttir skrifar frá Kazakstan \dda Steina með vinum sínum í Kazakstan. Adda Steina Björnsdóttir er fjar- lægasti kaupandi Norðurslóðar. Hún býr ásamt manni sínurn Póri Guðmundssyni, sem starfar fyrir alþjóðlega Rauða krossinn, og tveimur sonum, Unnari Þór og Birni, í Almaty (Alma Ata), höfuðborg Kazakstan. Hún sendi blaðinu þetta jólabréf. Geta má þess að eftir að bréfið var skrifað samþykkti íslandsdeild Rauða krossins að senda vetrarhjálp í formi 10 milljón króna fjárhags- aðstoðar til Kazakstan. Jólin nálgast og mér þykir eins víst að þau nái að lokum alla leið hingað til Kazakstan ef við bara bíðum þolinmóð. Kannski verðum við aðeins með seinni skipunum, hér eru engar jólaskreytingar uppi í aðventubyrj- un, engar auglýsingar um jólagjöf- ina í ár og ætli menn að komast í verulegan jólaham verða þeir að sjá fyrir því sjálfir. I fyrra rakst ég ekki á jólatré fyrr en á Þorláks- messu og var þá sagt að þau hétu nýárstré. Þau tímamót skipa hér viðlíka heiðurssess og jólin hjá okkur, þó að tilstandið sé talsvert minna. Jólahátíðin sjálf er svo 7. janúar en aðeins um þriðjungur landsmanna er kristinn og því fer lítið fyrir hátíðarhöldum. Ef einhver er ekki alveg viss hvar Kazakstan er þá nær þetta firnastóra land frá Kaspíahafi að Kína og frá Síberíu í norðri að Tien Shahn fjallgarðinum í suðri. Tien Shahn þýðir heimkynni guð- anna og við rætur þessara heim- kynna er höfuðborg landsins, Alm- aty, og hingað berst Norðurslóð mánaðarlega, einu Islendingunum í landinu til mikillar ánægju. Hvað gæti svo fólk verið að gera hér í Kazakstan fyrst það er ekki að baka, þrífa og kaupa inn fyrir jólin? Líkt og á Islandi eru menn uppteknir af því að hafa í sig og á. Baráttan hér er þó mun harð- ari og snýst oftar en ekki um að lifa af, að þreyja matarskort og kulda í von um betri tíma að vori. I nýlegri könnun sem Rauði krossinn og Rauði hálfmáninn stóðu fyrir hér í landi kom í Ijós að um 75% að- spurðra telja sig borða minna en þeir þurfa til að halda heilsu. Hjá ellilífeyrisþegum var talan 90 af hundraði. Alls voru á 12. þúsund manns spurðir ítarlega um hagi sína og niðurstaðan var sláandi. Um fjórðungur þeirra borðar minna en helming af ráðlögðum dagskammti manneldisstofnunar Kazakstan og þessi tala hækkar umtalsvert ef litið er eingöngu á bammargar fjölskyldur eða ein- stæða lífeyrisþega. 44,2% barna í úrtakinu á ekki vetrarskó, rúmlega þriðjungur bama á ekki hlý vetrar- föt. Einn tíundi barna fer ekki í skóla sakir fataskorts, hjá barn- mörgum fjölskyldum er það 15%. Þetta eru sláandi tölur í landi þar sem læsi var nær algjört og þar sem allir gátu litið á sig sem mið- stéttarborgara fyrir fáeinum árum. Kazaski veturinn er kaldur, hér í Almaty getur kuldinn farið niður í 30 stig og í norður Kazakstan í mínus 40. Alþjóðasamband rauðakrossfé- laga brást við könnuninni með sér- stakri beiðni um vetraraðstoð; matarpakka, föt og skó til bam- margra fjölskyldna og súpueldhús fyrir aldraða. Islenski rauði kross- inn hefur áður sent hingað hlýjan fatnað og hefur að auki þegar brugðist við þessu nýja kalli. Víst er að mörgum verður hjálpað, jafn- víst að fleiri munu líða skort. Margir elstu borgaramir hafa liðið skort fyrr: á fjórða áratugnum þeg- ar þjóðin, mest kazaskir hirðingjar, var þvinguð af sléttunum í sam- yrkjubú er álitið að um fjórðungur hafi látið lífið; skortur var víða landlægur á stríðsárunum og á sjötta áratugnum flykktust hingað ungrússar til að rækta maís á landssvæði sem hentaði ekki til slíkrar ræktunar. Afleiðingin varð örfoka land og minni gresjur fyrir hjarðir kazakkanna. Það sem veld- ur skorti nú er breytt hagkerfi og vart fréttir fyrir neinn lengur, kommúnismi er aflagður, kapítal- ismi tekinn upp hröðum skrefum, verksmiðjur verða gjaldþrota, fólk atvinnulaust, framleiðsla víðast í rúst. Þegar litið er á aðstæður margra hér nú þegar jólin nálgast, fjárskort og viðvarandi rafmagnsleysi, gas- leysi, vatnsleysi þá spyr maður sig óneitanlega hvemig fólk muni lifa af veturinn. Því flestum tekst að þreyja Þorrann og Góuna. Lykilat- riði er samhjálp í þorpum og sterk fjölskyldubönd, einkum hjá fólki af kazöskum uppruna. Nýtni er líka mikil og ég get endalaust dáðst að lagni fólks hér að gera dá- indis súpu úr næstum nöglunum einum. Þegar ég kom hingað fyrst, fyrir tuttugu mánuðum, þótti mér með eindæmum hvað fólk var þungbú- ið. Það kom líka illa við mig hve allar gamlar konur hverfisins virt- ust vilja skipa mér fyrir um upp- eldi og klæðnað bama minna. Tvö- föld neitun, afgerandi í rússneskri málfræði, þótti mér einkenni á þjóðarsálinni. Eftir að hafa lesið nokkrar fræðibækur um þetta landssvæði og lönd fyrrum Sovét- ríkjanna undrast ég ekki að menn séu brúnaþungir, mér þykir miklu fremur undur að menn skuli al- mennt kreista fram bros. Því menn fá broskiprur hér stöku sinnum og menn gera sér glaðan dag. Og eftir því sem á dvölina hefur liðið hef ég fengið að kynnast því sem ekki kemur fram í fræðibókum, að und- ir alvörusvipnum er hárbeitt kímni- gáfa, fyrirskipanir gamalla bab- úska í hverfinu sýna hjálpsemi og umhyggju, samhjálp granna er mik- il og fjölskyldubönd sterk. Það sem heldur þjóðinni gangandi, það sem á eftir að halda lífinu í mörgum í vetur eru einmitt þau gildi sem við tengjum oft jólunum, örlæti, sam- hjálp og fjölskyldubönd. Sá jóla- boðskapur sem bæði kristnir og múslimar hafa tekið í arf eða til- einkað sér á eftir að hjálpa þessari þjóð í gegnum núverandi harðindi, til nýrra og - vonandi - betri tíma. VERSLUM í HEIMABYGGÐ! * Jólatilboð > i? Kjúklingar - Kalkúnar Londonlamb, frampartur -Léttreyktur lambahryggur Hangiframpartur, úrbeinaður - Hangilæri, úrbeinað Bayonneskinka - Svínakambur, úrbeinaður reyktur Svínahamborgarhryggur - Svínabógur, hringskorinn reyktur Niðursoðið grænmeti - Niðursoðnir ávextir - margar tegundir Jólakonfekt og jólakökur í miklu úrvali _________ ^ Mikið úrval af ...* ' gjafavörum og ★ leikföngum Við óskum öllum viðskiptavlnum okkar gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Starfsfólk Svarfdælabúðar SVARFDÆLABÚÐ 2 0 2

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.