Norðurslóð - 17.12.1997, Qupperneq 20

Norðurslóð - 17.12.1997, Qupperneq 20
20 — NORÐURSLÓÐ Hið svarfdælska söltunarfélag að störfum, frá vinstri: Björn Þórleifsson, Halldór Jóhannsson, Sigurður Marinósson, Björn Daníelsson, Jóhann Daníelsson og Jóhannes Haraldsson. Einn fé- lagsmanna, Hjalti Haraldsson, var fjarri góðu gamni. Þess ber að geta að þótt karlar séu í meirihluta á myndunum einkenndist samkoman í ríkum mæli af daðri kvenna við afmælisbarnið. Það festist hins vegar illa á filmi, af einhverjum ástæðum. Tekið var á móti gestum með trompettleik en um hann sáu Rögvaldur S. Friðbjörnsson, Einar Arngrímsson og Eiríkur Stephensen. Jóhann Daníelsson sjötugur: Einskonar frásögn af afmæli Afmælisbarnið ásamt Gíslínu konu sinni. Á milli þeirri má greina Kristínu Gestsdóttur. Það þýðir ekkert fyrir mann eins og Jóhann Daníelsson að ætla sér að vera að heiman á afmæli sínu. Vinir hans hlusta ekki á slíkt. Þeir vilja sýna honum viðeigandi sóma. Þegar Jóhann hafði látið þau boð út ganga að hann yrði að heiman á sjötugsafmælinu tóku nokkrir vinir hans til sinna ráða og skipulögðu uppákont- ur honum til heiðurs og ánægju. Helgina fyrir afmælið tóku nokkrir vinir afmælis- barnsins sunnan heiða á móti þeim hjónum Jóhanni og Gíslínu og var í tilefni tímamót- anna ýmislegt gert til hátíðarbrigða. A af- mælisdaginn sjálfan náði Karlakór Dalvíkur að syngja fyrir Jóhann og reyndar söng af- mælisbarnið einsöng með kómurn í laginu „Vorið kemur“ eða Lóunni eins lagið er oft- ast kallað. Hámarki náðu síðan hátíðarhöld- in fimmtudagskvöldið 27. nóvember sl. þegar tónleikar, til heiðurs Jóhanni sjötug- um, voru haldnir að Rimum í Svarfaðardal. Það er á flestra vitorði að Jóhann Daníels- son, kennari, söngvari og lífskúnstner, er Samherji hf. sendir starfsfólki, viðskiptavinum og Dalvíkingum öllum bestu óskir um gleðileg jól og farsœld á komandi ári. Þökkum samstarfið á liðnum árum. vinamargur maður og eiga margir honum ýmislegt að þakka. Ymsir hafa bent á það að óvenju rík sönghefð er á Dalvík og í Svarf- aðardal. Sönghefðin á sér áralangar rætur og auðvitað hafa margir lagt því lið að skapa þessa hefð og viðhalda henni. Þáttur Jó- hanns í að viðhalda henni er ekki lítill. Margir eru þeir fyrrum nemendur Dalvíkur- skóla sem eiga Jóhanni það að þakka að þeir eru þorrablóts- og rútubílahæfir í söng og jafnvel þokkalega kórhæfir. Margar eru þær samkomurnar þar sem Jóhann hefur stjórnað almennum söng og/eða spilað undir söng. Jóhann hefur einnig komið víða við í starfi kóra á Dalvík og í Svarfaðardal. Söngskemmtunin að Rimum til heiðurs Jóhanni bar talsverð merki afmælisbamsins eins og vera bar. f bland voru fluttar perlur söngbókmenntanna, létt lög, grín og gaman- mál. Samkoman hófs með trompetblæstri miklum, einskonar opnunarstef hátíðarinnar. Þeir sem blésu í trompeta voru Rögnvaldur Skíði Friðbjömsson, Einar Arngrímsson og Eiríkur Stephensen. Kynnir samkomunnar var Bjöm Þórleifsson fyrrum skólastjóri á Húsabakka. Bjöm var þar einskonar fulltrúi Hins Svarfdælska Söltunarfélags og las á milli atriða úr misgjörðabók félagsins sent hefur ýmsan fróðleik og kveðskap að geyma. Norðurslóð hefur stundum komist í misgjörðabókina og birt úr henni valda kafla. Það kom hins vegar í ljós þetta kvöld að ýmislegt er óbirt enn. Annars var það tónlistin sem réð ríkjum á Rimum. Söltunarfélagsmenn sungu auðvit- að sumt af því sem þeir höfðu ort í gegnum tíðina. En til að gera því skil hverjir það voru sem komu fram er rétt að byrja upptalningu með því að nefna Friðrik Hjörleifsson sem flutti lög af jólasnældunni sem hann hefur sent frá sér. Samkór Svarfdæla söng undir stjóm Rósu Kristínar Baldursdóttur. Rósa Kristín söng auk þess einsöng og þar á með- al óperuaríur t.d. úr Carmen. Rósa Kristín kom einnig við sögu þegar Tjamarkvartett- inn söng en Kristjana Amgrímsdóttir úr kvartettinum söng einnig einsöng. Karlpen- ingurinn úr kvartettinum, það eru þeir Kristján og Hjörleifur Hjartarsynir, mynd- uðu síðan EMMA (MA) kvartettinn með Einari Amgrímssyni og Eiríki Stephensen og sungu þeir nokkur hefðbundin lög í anda MA kvartettsins. Kirkjukór Dalvikur söng einnig undir stjóm Hlínar Torfadóttur. Haf- liði Ólafsson spilaði á harmoniku og í sum- um lögum spiluðu Bimir Jónsson og Heimir Kristinsson með honum t.d. í marsi sem af- mælisbamið samdi og hlaut hann umsvifa- laust nafnið „Svarfdælskur mars“. Lóukór- inn flutti nokkur lög en það er kór sem Jó- hann Daníelsson hefur mikið spilað undir hjá. Kórinn er skipaður núverandi og fyrr- verandi kvenkennurum Dalvíkurskóla og kemur fram þegar mikið liggur við. Hér áður fyrr aðallega á þorrablótum kennara en nú nær eingöngu við hátíðleg tækifæri eins og að Rimum þarna um kvöldið. Dagskráin stóð í þrjár klukkustundir og lauk með þakkarávarpi Jóhanns og söng. Eins og sjá má af þessari upptalningu var þama um mikla og skemmtilega dagskrá að ræða. Fjölmenni var á tónleikunum og skemmti fólk sér hið besta. Frásögn af hátíð sunnan heiða verður ekki fest á blað þó þar væru bæði ræður góðar, frumortur kveð- skapur og meira að segja flutt lög sem samin höfðu verið í tilefni afmælisins. Norðurslóð hefur verið samferða Jóhanni Daníelssyni varðandi afmæli. Eins og kunn- ugt er kom fyrsta blað Norðurslóðar út 25. nóvember 1977 og í því blaði er sagt frá því að Jóhann Daníelsson hefði orðið fimmtugur 18. þess mánaðar. Þegar Norðurslóð varð 10 ára var í jólablaði það ár viðtal við Jó- hann, undir fyrirsögninni „Söngsins unaðs- mál“, í tilefni þess að hann varð 60 ára. Nú eru enn liðin tíu ár og talsvert hefur verið rifjað upp af gömlu efni og því ekki úr vegi að taka tvo kafla úr viðtalinu við Jóhann frá 1987. Þar segir hann um tónlist og söng í bernsku: „Ég var víst 9 ára gamall þegar við Júlíus bróðir og Lárus í Ytra-Garðshomi tróðum fyrst upp á bamaskemmtun á Bakka. Um fermingu var ég með í kvartett sem söng á afmælisfagnaði Ungmennafélagsins Þor- steins Svörfuðar á Gmndinni. Kvartettinn var undir stjóm Sigurðar í Syðra Holti. Mér er þetta minnisstætt, ekki síst fyrir þá sök að ég þurfti að standa upp á kassa til að vera jafnstór hinum. Við vorum aldir upp við söng á heimil- inu. Bæði mamma og pabbi störfuðu mikið í kórum og heima var mikið sungið. Þórarinn á Tjöm hafði líka mikil áhrif í þessum efnum því hann lét alltaf syngja eitthvað á hverjum degi í skólanunt og sló þá gjaman taktinn." Jóhann tók þátt í kvikmyndinni Landi og sonum sem tekin var upp í Svarfaðardal 1979. í viðtalinu er rifjuð upp blaðagagnrýni Ingibjargar Haraldsdóttur þar sem hún segir meðal annars: „Eitt atriði í myndinni mun áreiðanlega líða seint úr minni. Það er atrið- ið í göngunum, þar sem alþýðusöngvari syngur hárri skýiri tenórröddu Við fjalla- vötnin fagurblá. Hann stendur á bakka fjalla- vatnsins og í baksýn sjást félagar hans ganga framhjá án þess að gefa honum neinn sér- stakan gaum. Þegar söngvarinn lýkur laginu taka aðrir við og syngja önnur lög. Haust- stemmingin er allsráðandi og hjarta landsins slær“. Síðan segir: „Myndin hefur verið sýnd í sjónvarpi víða urn heim t.d. í Japan. Ekki höfum við fengið blaðagagnrýni þaðan svo við vitum ekki hvernig Japanir hafa skynjað haust- stemmninguna og alþýðutenórinn. Hins veg- ar hefur Sveinbjöm Steingrímsson sagt frá því, hrærður, að þegar hann og fjölskyldan höfðu komið sér fyrir í Noregi á síðasta ári til árs dvalar og kveiktu í fyrsta sinn á sjón- varpi hefðu fyrstu tónamir verið alþýðuten- órsins en þá var Norska sjónvarpið að endur- sýna myndina." Rétt er að ljúka þessari frásögn nú með heillaóskum Norðurslóðar til Jóhanns í til- efni sjötugsafmælisins. J.A.

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.