Norðurslóð - 17.12.1997, Qupperneq 24

Norðurslóð - 17.12.1997, Qupperneq 24
Karlsárfjall ... Fláandi '•**n ur Stórhóll Pollttlækur Iiólsnaust Hrunka .. Þorsteinn Skaftason: Ornefni í Karlsár- og Hólslandi Litli Hnjukur Svðri Seti Ytri Seti \ o,. ■Æ . Skógarbrekkur Hriinnes- 4, ..... ^ /«/ blettur %. % /. k/aufjjr V \\ \\^» \ V ^ Stekkur Storholl Katlar ' V KötluUignrhólar , . Karlsárskógur Oeroi ; Cirastcinn lunp Evvindarpollur I.eili F.ngiasund I lalioll Skotklauf Bikholl | I Karlsanaust (ívendahrunnur I hasteinn Stekkjargjá ^olahvanimur í^uj1<>11 Lnngiinelur Svöri oflani vri Fófukofanef Skolti Ytri Skollamvri Eins og algengt er hér heitir dalurinn sem Karlsá rennur um tveim nöfnum Karlsárdalur norðan ár en Hólsdalur sunnan. Um dalinn liggja tvær gönguleiðir til Ólafsfjarðar, leiðin um Dranga og Bræðravegur. Allmörg ömefni eru á túnunum við bæina sem ekki eru sýnd á myndinni.Við Hólsnaust voru nokkrar þurrabúðir: Háiskáli. Hólkot og Framnes sem enn stendur, en gamla Framnes nokkru norðar, Hólskot byggt á fjárhúsastæði Hóls 1670-1711, Töðugerði suður og upp frá Hóli, þar er sagt að Hóll hafi staðið í fymd- inni, en verið fluttur þaðan undan snjóflóðum. Býlið Fell var byggt við fjallsrætur syðst í landi Hóls árið 1900 en flutt norðar strax árið eftir, því um veturinn féll snjóflóð úr Merkjagili alveg að bænum og heitir þar Fellstún. Býlið Svæði var byggt á túninu á Karlsá 1905, þar var einnig Karlsárkot í byggð 1680-1712, nálægt þar sem minnis- merki um Duggu-Eyvind stendur. I skýringum Þorsteins Þorsteinssonar um Órnefni sem tilheyra helst Svarfaðardal segir eftirfarandi: „Ekki vita menn fyrir vissu hvar Karl og fylgjarar hans hafa verið lagðir í haug, en munnmæli hafa verið gömul að þeir hafi verið heygðir í melhöfða þann sem er á sjávarbakkanum skammt fyrir utan ána og Bygghóll er kallaður. Það er afar hár hóll hruninn og brotinn framan af sjávargangi, en blásinn af veðri sunnan, en grastó stór á hon- um ofan, og er auðséð að hann hefur fyrrmeir verið grasivax- inn og hef ég heyrt að þá hafi sést á honum girðingamót sunnan og vestan til á hólnum. Annar hóll er þar sunnar og ofar skammt frá, sem Rauðshóll eða Rauðhóll ernefndur og er alllíklegt að sá hóll hafi fengið það nafn af því að Karl Rauði hafi verið lagður þar í. Ekki sjást samt nein merki til að grafið hafi verið í þann hól.“ Bikhóll eins og hann heitir í dag hefur, samkvæmt þessu og öðrum heimildum einnig, áður heitið Bygghóll. Gvendarbrunnur er nafn á lindum í sjávarbakkanum sem árabáta- og skútusjómenn sóttu drykkj- arvatn í. Ömefnaskrár segja lindimar heita Jónsbrunn, kenndar við Jón föður Eyvindar Duggusmiðs, en heimildir hef ég fyrir því að þær heiti Gvendarbrunnur, kenndar við Guðmund góða biskup. Heimildir: Örnefnaskrár Jóhannesar Óla Sæmundssonar og Mar- geirs Jónssonar. Örnefni sem tilheyra helst Svarfaðardal eftir Þorstein Þorsteinsson frá Upsum. Björn Þorleifsson, Steingrímur Þorsteinsson og Haraldur Guðmundsson. Þorsteinn Skaftason Snæfell hf. Glæsileg vígsluhátíð Föstudaginn 28. nóvember sl. var haldin mikil hátíð í Víkur- röst á Dalvík. Tilefni hennar var að fagna stofnun Snæfells hf. sem hefur nú þegar tekið til starfa sem eitt af öflugustu sjáv- arútvegsfyrirtækum á landinu. Strax um morguninn hafði sér- stökum gestum fyrirtækisins og fjölmiðlafólki verið boðið að kynnast starfseminni, bæði í frystihúsinu á Dalvík og í Hrís- ey. Gestirnir fóru í gegnum frystihúsið á Dalvík undir ör- uggri leiðsögn forráðamanna og sama er að segja um pökkunar- stöðina í Hrísey. Þar gafst mönnum kostur á að sjá fram- leiðsluvörur fyrirtækisins og smakka á þeim. Veislan í Víkurröst hófst síðan klukkan hálffjögur og var starfs- mönnum Snæfells boðið þangað auk annarra gesta. Boðið var upp á léttar veitingar, þar á meðal sér- bruggað öl - Snæfellsás - sem var á sérmerktum flöskum. Allmargar ræður voru haldnar við þetta tæki- færi, ýmist til að segja frá fyrir- tækinu eða flytja árnaðaróskir. Karlakór Dalvíkur söng nokk- ur lög og var með því að endur- gjalda myndarlegan styrk frá ís- lenskum sjávarafurðum hf., en ÍS sér um sölu afurða Snæfells hf. og tæknimenn þeirra sáu að stórum hluta um hönnun á endurbyggingu frystihússins á Dalvík en frá henni sögðum við í októberblaði Norð- urslóðar. Jóhannes Kristjánsson eftirherma fór með gamanmál. Veislunni lauk formlega með mikilli ilugeldasýningu sem fram fór á malarvellinum ofan við Vík- urröst. Yfirlýsing sem Ari Þorsteins- son framkvæmdastjóri Snæfells gaf þennan dag um að afkoma ís- fisktogara og landvinnslu félags- Glaðbeittir forystumenn um borð í Hrísejarferjunni: Ari Þorsteinsson (t.v.) frkvstj. Snæfells og Jóhannes Sigurgeirsson stjórnarformaður Kaupfélags Eyfirðinga. ins í bolfiski væri í raun betri en frystitogara hefur vakið mikla at- hygli. Haldist það má segja að kaflaskil séu að varða í sjávarút- vegi eða kannski réttara sagt að eitthvert jafnvægi sé að komast á milli landvinnslu og frystingar úti á sjó. J.A. Fylgst af athygli með handbrögðum í fiskvinnslunni, frá vinstri: Svanfríður Jónasdóttir, Guðný Sverrisdóttir, Ingbjörg Svava Siglaugsdóttir og að baki henni eiginmaðurinn, séra Pétur Þórarinsson, en hann og Guðný eiga sæti í stjórn KEA. Karlakór Dalvíkur söng af þrótti og innlifun á hátíðinni í Víkurröst undir stjórn Jóhanns Olafssonar. Á niyndinni til vinstri fylgjast þeir Benedikt Sveinsson forstjóri ÍS (t.v.) og Bjarni Gunnarsson bæjarfulltrúi á Dalvík með útskýringum Gunnars Að- albjörnssonar rekstrarstjóra fiskvinnslunnar á Dalvík.

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.