Norðurslóð - 23.01.2002, Blaðsíða 8
Tí MAMÓT
Skímir
Þann 25. des. var skírð í Vallakirkju Elín Heiða.
Foreldrar hennar eru: Guðrún Tryggvadóttir og Hlini Jón
Gíslason til heimilis að Hofsárkoti, Svarfaðardal.
26. des. var skírð í Dalvíkurkirkju Steinunn Birta. Foreldrar
hennar eru Dagbjört Sigurpálsdóttir og Ólafur Ingi Steinarsson
Lokastíg 1 Dalvík.
Þann 29. des. var skírður Birnir Ringsted. Foreldrar hans eru
Ylfa Mist Helgadóttir og Haraldur Ringsted Ránargötu 4 Rvík
Þann 29.desember var skírður í Dalvíkurkirkju Símon Gestsson.
Foreldrar hans eru. Bryndís Björnsdóttir og Gestur Matthíasson
til heimilis að Karlsbraut 19 Dalvík
Þann 1. jan. var skírð í Dalvíkurkirkju Guðrún Jóhanna.
Foreldrar hennar eru: Borghildur Freyja Rúnarsdóttir og
Friðmundur H Guðmundsson til heimilis að Hringtúni 7 Dalvík
Brúðkaup
Þann 26. desember gengu í heilagt hjónaband í Vallakirkju
Heiða Hilmarsdóttir og Hilmar Þór Valgarðsson, til heimilis að
Drafnarbraut 6 Dalvík
Norðurslóð árnar heilla.
Afmæli
Þann 6. Janúar
varð 70 ára
Þorgils
Gunnlaugsson
frá Sökku (Nú í
Ölduhrygg)
Andlát
Friðjón Kristinsson lést í Reykjavík 16. desember sl. Friðjón var
fæddur í Jarðbrúargerði 30. maí 1925. Hann var elsta barn hjón-
anna Kristins Gunnlaugssonar trésmiðs og bónda á Hjalla við
Dalvík og Jóhönnu Guðrúnar Jónsdóttur. Eftirlifandi systkini
Friðjóns eru Gunnar og Elín, en hálfsystkini hans af fyrra hjóna-
bandi föður hans voru Gunnlaugur, Rósa og Þorleifur, öll látin.
Friðjón kvæntist árið 1950 Friðriku Guðjónsdóttur frá Hreiðars-
stöðum og lifir hún mann sinn. Börn þeirra eru Elsa Björg gift
Bjarna Oddssyni, Sveinbjörn kvæntur Sigrúnu Árnadóttur og
stjúpdóttir Friðjóns er Anna Jóna gift Bertil Friberg. Friðjón átti
heima á Dalvík allan sinn aldur utan síðustu sex árin er þau
hjón áttu heimili í Reykjavík.
Friðjón starfaði m.a. hjá Kaupfélagi Eyfirðinga á Dalvík, hjá
Pósti og síma á Dalvík og hjá Byggðasafni Dalvíkur.
Útför hans fór fram frá Dalvíkurkirkju föstudaginn 28. des.
s.l.
Þann 9. febrúar
verður 70 ára
Ása
Marínósdóttir í
Kálfsskinni.
Þann 13. jan varð
70 ára Sveinn
Jónsson í
Kálfsskinni.
Þann 19. janúar
varð 75 ára
Sigríður Hafstað
áTjörn.
Frétiáhorn
s
Arfell hf á Dalvík hefur hafist handa við bygg-
ingu á tveim parhúsum og tveim einbýlishús-
um í Giljahverfi á Akureyri. Að sögn Daníels
Hilmarssonar byggir fyrirtækið húsin á eigin
reikning með sölu í huga en söluhorfur þar verða
að teljast mjög góðar um þessar mundir. Þá hefur
Árfell fest sér tvær lóðir undir einbýlishús í Skóg-
arhólum á Dalvík og verður farið af stað þar í vor
ef vel horfir með sölu á þeim.
Annars er frekar rólegt yfir byggingu íbúðar-
húsnæðis í Dalvíkurbyggð um þessar mundir.
Tréverk hefur steypt upp sökkul á annarri tveggja
lóða sem fyrirtækið er með við Lynghóla og verð-
ur haldið áfram við þær framkvæmdir þegar um
hægist annars staðar. Enn er þó enginn kaupandi
til staðar. Þessa dagana er aðalverkefni fyrirtækis-
ins nýtt varphús íslandsfugls á Árskógsströnd og
nýjar innréttingar í Blikahúsinu. Þar er BGB Snæ-
fell að bæta aðstöðu fyrir hausaþurrkun og að láta
innrétta fjölda nýrra þurrkklefa.
Þórður Kristleifsson var valinn úr hópi 21 um-
sækjenda um embætti ferða- og atvinnumála-
fulltrúa Dalvíkurbyggðar nú fyrir jólin og mun
hefja störf hér þann 1. febrúar nk. Þórður er 31
árs, giftur Drífu Jennýju Helgadóttur og eiga þau
tvo syni, þriggja ára og eins árs. Drífa Jenný hefur
verið ráðin til kennslu í Húsabakkaskóla.
Karlakór Dalvíkur hélt sína árlegu styrktartón-
leika fyrir Dalvíkurkirkju laust fyrir áramótin.
Dalvíkurkirkja var troðfull út úr dyrum svo þeir
sem síðastir komu urðu frá að hverfa. Karlakórinn
söng fyrst jólalög í nýjum útsetningum eftir stjórn-
andann Guðmund Ola Gunnarsson, Rósa Kristín
Baldursdóttir söng þá einsöng með kórnum í
tveimur lögum en hápunktur tónleikanna var sam-
leikur Helgu Bryndísar Magnúsdóttur og Jónasar
Ingimundarsonar á tvo flygla. Undir lokin steig
karlakórinn aftur á svið og söng þrjú lög í útsetn-
ingu Jóns Þórarinssonar og endaði svo á hinu
magnþrungna “ Brennið þið vitar” eftir Pál ísólfs-
son og Davíð Stefánsson við undirleik Helgu og
Jónasar á flyglana tvo við mikinn fögnuð áheyr-
enda.
Freyvangsleikhúsið í Eyjafirði æfir nú nýtt leik-
rit með söngvum eftir Hjörleif Hjartarson.
Leikritið nefnist „Halló Akureyri" og er annað
leikrit hans í fullri lengd. Árið 1999 frumsýndi
Leikfélag Dalvíkur leikritið „Frumsýning" sem
hann skrifaði sérstaklega fyrir það. Halló Akureyri
gerist eins og nafnið bendir til um verslunar-
mannahelgi á Akureyri og fjallar á gamansaman
hátt um þetta merkilega fyrirbæri í íslenskri menn-
ingu og mannlífi.Tónlistin í verkinu en einnig eftir
Hjörleif en leikstjóri er Oddur Bjarni Þorkelsson.
Hann er Dalvíkingum af góðu kunnur frá því
hann leikstýrði „Gefið hvort öðru“ hér fyrir
tveim árum eða svo. Frumsýning er áætluð 23.
febrúar.
Og meira af menningarviðburðum. Menningar-
hátíðin “Svarfdælskur mars” verður haldin
helgina 22.-24. mars. Eins og lesendum er kunnugt
var hátíðin haldin í fyrsta skipti í fyrra og heppnað-
ist einstaklega vel. Eins og þá verður þemað svarf-
dælsk menning og mannlíf. Heimsmeistarakeppnin
í brús verður á sínum stað og sömuleiðis svarf-
dælski marsinn en á laugardeginum verður mál-
þing þar sem tónlistarlíf hér um slóðir verður sér-
staklega til skoðunar. Búist er við að kór Svarfdæl-
ingafélagsins komi að sunnan og haldi tónleika og
reiknað er með fleiri gestum enda stutt í páska og
skíðasnjór nægur í fjallinu ef marka má spár veður-
spekinga.
Á samkomunni kom fram þessi kvartett. F v: Steinar Stein-
grímsson, Einar Amgrímsson, Stefán Friðgeirsson og Helgi
Indriðason.
Þann 4. janúar gekkst Hestamannafélagið
Hringur fyrir tónleikum og dansleik að Rim-
um. Þar stigu á stokk hinir og þessir hestamenn
og fluttu einsöngva tvísöngva og kvartettsöng við
undirleik Helgu Bryndísar Magnúsdóttur. Þar
kom í ljós það sem flestir vissu fyrir að í röðum
svarfdælskra hestamanna er að finna hvern söngv-
arann öðrum betri. Þá kom Hjalti Haraldsson
einnig fram með sög sína og lék eitt lag með
Helgu. Við þetta tilefni var undirritaður 3ja ára
samstarfssamningur milli hestamannafélagsins og
Dalvíkurbyggðar og sagði Hilmar Daníelsson tón-
leikana haldna í þakklætisskyni fyrir stuðning
sveitarfélagsins. Mæltist hann til þess að önnur fé-
lög fylgdu fordæmi hestamannafélagsins og efndu
til menningarkvölda í byrjun hvers árs. Eftir söng-
dagskrána steig svo á stokk ný danshljómsveit
“Kastað toppi” sem stofnuð var að þessu tilefni.
Fyrir henni fór að sjálfsögðu Helga Bryndís Magn-
úsdóttir sem mestan veg og vanda átti að samkom-
unni.
Líkamsræktartækin sem setja á upp í
sundlaugarhúsinu eru komin á staðinn og bíða
þess að takast á við Dalvíkinga og nærsveitamenn,
ná af þeim aukakílóunum og styrkja þá á alla lund.
Að sögn Bjarna Gunnarssonar er á þessu stigi
málsins ekki hægt að segja nákvæmlega hvenær
tækin verða komin í gagnið en til stóð að það yrði
nú um mánaðamótin. Sem kunnugt er hafa
Guðmundur Jónsson og Ósk Jórunn Árnadóttir
sjúkraþjálfarar haft aðstöðu í húsnæðinu og hefur
gengið nokkuð hægt að semja um
framtíðarhúsnæði fyrir starfsemi þeirra. Þau hafa
haft augastað á húsnæði í kjallara Dalbæjar og
hefur mikill áhugi verið þar á bæ fyrir að fá þau
þangað enda augljós hagur af því fyrir heimilið.
Stjórn Dalbæjar óskaði eftir því á fundi að
Dalvíkurbyggð legði fram fé til nauðsynlegra
breytinga á húsnæðinu en bæjarstjórn hafnaði því
á þeim forsendum að þar sem Dalbær væri
sjálfseignarstofnun væri eðlilegt að hún tæki lán til
framkvæmdanna sem síðan yrði greitt upp af
leigutekjum af aðstöðunni. Eins og málin standa
nú er enn verið að skoða húsnæðismál
sjúkraþjálfunarinnar og hefur málinu aftur verið
vísað til bæjarráðs með einhverjum nýjum
formerkjum. Bjarni sagði opnun líkamsræktar-
innar í sundlauginni velta töluvert á því hvaða
niðurstöður fengjust með sjúkraþjálfunina en það
gæti þó ekki dregist mikið úr þessu.
Hcrmann Aðalsteinsson, lést á Dalbæ þann 31. desember 2001.
Hermann fæddist á Einhamri í Hörgárdal hinn 7. maí 1927,
foreldrar hans voru Steinunn Guðmundsdóttir og Aðalsteinn
Tómasson. Hermann var sjötti í röð tólf systkina. Hann ólst frá
sex ára aldri upp á Geirbjarnarstöðum, hjá hjónunum Halldóru
Þuríði Kristjándóttur og Kristjáni Jónssyni. Hermann var bóndi
á Klængshóli lengist af starfsæfi sinnar. Kona hans var Jónína
Kristjánsdóttir frá Klængshóli, börn þeirra eru Jón Bjartmar, f.
21,júní 1953, og Anna Dóra f.24.mars 1957, auk þess átti Jónína
soninn Kristján Gretar Sigvaldason f 17.apríl 1945. Hermann var
jarðsettur frá Dalvíkurkirkju þriðjudaginn 8. janúar 2002,
jarðsett var í Vallakirkjugarði. Hans er minnst hér inni í blaðinu.
Frímann Sigurðsson frá Dalvík, f. 18. des 1902, andaðist að
Hrafnistu Hafnarfirði 31. des. 2001. Útför hans fór fram frá
Glaumbæjarkirkju í Skagafirði 5. jan. sl. Hann varð jarðsettur í
heimagrafreit að Sólheimum í Sæmundarhlíð þaðan sem kona
hans Árný Þorleifsdóttir var en hún andaðist fyrir nokkrum
árum.
Jóhann Sævaldur Sigurðsson, lést á Dalbæ, 28.desember
síðastliðinn. Sævaldur var fæddur 22.febrúar 1912 á Gjallanda á
Upsaströnd. Foreldrar hans voru Anna Sigurðardóttir og
Sigurður Jón Guðsjónsson. Sævaldur var fjórði í röð ellefu
systkina.
í tilefni af 70 ára afmæli mínu 6. jan. sl. vil ég þakka þeim sem
glöddu mig með rausnarlegum gjöfum.
Þorgils Gunnlaugsson
Tóbakslaust skíðalandsmót
Undirbúningur fyrir Skíðamót
íslands 2002 sem haldið verður á
Dalvík og Ólafsfirði 4. - 7. apríl
nk. hefur gengið vel og er verið
að ganga frá samningum við
styrktaraðila þessa dagana.
Stærstu styrkjendur mótsins eru
Esso og Útilíf en auk þeirra
koma fjöldi annarra að því m.a.
Tóbaksvarnanefnd og er ætlun
Skíðafélagsmanna að hafa mót-
ið tóbakslaust. Skíðafélag Dal-
víkur er 30 ára um þessar mund-
ir og m.a. vegna þeirra tímamóta
opnaði félagið nýja heimasíðu
nú um áramótin. Höfundur
hennar er Gunnlaugur Jónsson
(Halldórssonar) en faðir hans
var einmitt aðalhvatamaður að
stofnun félagsins á sínum tíma.
Síðan, skidalvik.is er hin glæsi-
legasta, myndir af aðstöðunni í
Böggvisstaðafjalli, rakin er saga
félagsins og sagðar nýjustu frétt-
ir af skíðafólkinu okkar um leið
og hlutirnir gerast. Skíðafélags-
menn hyggjast opna aðra heima-
síðu í sambandi við skíðalands-
mótið þar sem hægt verður að
fylgjast með tímum og öðru um
leið og keppnin fer fram. Þá hef-
ur skíðafélagið látið hanna tvö
veggspjöld til auglýsinga og
kynningar á félaginu og skíða-
svæðinu. Formaður skíðafélags-
ins og mótstjóri Skíðamóts Is-
lands er Óskar Óskarsson.