Norðurslóð - 26.06.2002, Síða 3
Norðukslóð - 3
Gömul augnablik
Úrgangssíldin og slógiö fór í vatnsrennu og síðan í þróna sem sést hér
á myndinni. Alli Lofts útgerðarmaður sendur hér ábúðarmikill og
horfir íþróna. Sólberg stendur við hliðina á honum. Fjœr má sjá Balda
Lofts og Rósmund frá Miðbœ.
Þessi mynd er tekin við söltun á garðinum eins og sagt var, það er að segja út á hafnargarði. Þar var saltað
og oftast undir nafninu Söltunarstöðin Höfn. Stundum rak hafnarsjóður planið. Þessi mynd er líklega tekin
1959 þegar Jón Stefánsson, fyrir hönd Röðuls hf, og Alli Lofts ráku söltunarplanið á garðinum. Þá var
slegið met í söltun sem enn stendur. Yfir 8.000 tunnur saltaðar á sumrinu á því plani. Fyrir miðri mynd má
sjá Kidda á Hóli með tunnutrillu. Til hœgri er Dóri Sikk að ná sér í síldar. Signý Gests er að ganga út úr
myndinni lengst til vinstri. Báturinn nœst á myndinni er Valþór NS 10 sem Stebbi Gren var með.
Gunnar Pálsson var
litríkur síldarsaltandi á
Dalvík. Hann tók við
Múlaplaninu þegar Páll
Friðfinnsson faðir hans
lést. Hér gengur Gunnar
eftir planinu þegar
síldarsöltun stendur sem
hœst.
Myndin hér að neðan til
vinstri er tekin á SFD
planinu. Frá hœgri má
sjá Nonna í Kambi
hrœra saltskammt og
síðan Sveinbjörn í
Vegamótum og Gvend í
Hvammi. Erfitt er að
segja til um hver er að
bogra fyrir framan
Gvend. Líklega er það
Asgeir kennari.
Það er vel viðeigandi að birta myndir frá síldarsöltun nú um það
leyti árs þegar síldarvertíðin stóð sem hæst hér á árum áður.
Myndirnar á síðunni eru frá öllum plönunum þremur sem hér
voru starfandi á sjötta áratug síðustu aldar þegar Dengsi var með
myndavélina á lofti.
Júlíus Björnsson EA 216 kemur hér til lönd-
unar með nótabátinn sinn í eftirdragi. Júlíus
Bjömsson landaði hjá Söltunarfélagi Dalvík-
ur eins og aðrir bátar Egils Júlíussonar. Egill
var um árabil framkvœmdastjóri SFD.
Faxaborg RE 126 var frœgt
skip í síldarsögu Dalvíkur.
Skipið var í eigu Jóns Gísla-
sonar sem var ásamt Páli
Friðfinnssyni eigandi að
síldarsöltunarplaninu Múla
á Dalvík. Frœgt var eitt
sumarið þegar Faxaborgin
kom daglega með síld um
allt að hálfsmánaðarskeið.
Skipstjóri á Faxaborg var
Gunnar Hermannsson.
„Taka tunnu!“gœtiþessi
mynd heitið. Hér er
Hermína að taka á móti
merki fyrir tunnuna sína.
Sennilega er það Toni
Sigurjóns sem er að láta
Hermínu fá merki í stíg-
vélið. í lok söltunar fram-
vísuðu söltunarstúlkurnar
merkjunum og þá var skráð
hvað hver hafði saltað.
Þessi mynd sýnir býsna vel
hvernig síldarsöltunin gekk fyrir
sig. Síldinni var landað í tunnur
sem settar voru á vörubíl, í þessu
tilfeUi bílinn hans Villa Bjössa.
Þegar á planið var komið var
losað úr þeim í kassa sem síldar-
söltunarstúlkurnar hausskáru
uppúr. Síðan var síldin söltuð.
Stundum sáu unglingar um sölt-
unina eins og drengurinn á
myndinni sem er Valur Sigur-
jóns. Finnur Þórlaugar er lengst
til vinstri, tilbúinn að taka tunn-
ur. Hrefna í Svalbarði lítur upp
úr söltuninni fremst á myndinni
og ef vel er rýnt má sjá Ellu Jak-
obs líta upp frá hausuninni.