Norðurslóð - 28.08.2002, Side 6
6 - Norðurslóð
Tímamót
Skírn
Þann 4,ágúst var skírður í Tjarnarkirkju Daníel Máni. Foreldrar
hans eru Flildur Birna Jónsdóttir og Hjalti Viðar Hjaltason, Ytra
Garðshorni, Svarfaðardal.
Brúðkaup
Þann 3. ágúst sl. voru gefin saman í Danmörku þau Annett Ern-
felt Anderson og Jóhannes Jakobsson. Heimili þeirra er í Syðra
Kálfsskinni á Árskógsströnd.
Þann 3. ágúst sl.
varð 75 ára
__ Valrós
Árnadóttir
Karlsrauðatorgi
12, Dalvík.
Afmæli
sl. varð 80 ára
Þórey
Jóhannsdóttir
Hlíð, Skíðadal.
Þann 26. ágúst
sl. varð 70 ára
Björn
Daníelsson
Laugabrekku,
Svarfaðardal.
Norðurslóð árnar heilla.
Andlát
Hjalti Haraldsson bóndi í Ytra-Garðshorni
lést 11. ágúst sl. Hann fæddist þann 6. desem-
ber árið 1917 á Þorleifsstöðum í Svarfaðar-
dal. Foreldrar hans voru hjónin Jón Har-
aldur Stefánsson og Anna Jóhannesdóttir.
Af systkinum Hjalta eru látin þau Stefanía
Kristín, Friðrika Vigdís, Jóhannes, Halldór
Kristinn og Lárus Blómkvist en systir hans,
Fríða Hrönn, býr í Kópavogi.
Ungur flutti Hjalti ásamt fjölskyldu sinni í
Ytra-Garðshorn í Svarfaðardal og þar var lengst af heimili hans.
Eftir grunnskólanám hugðist Hjalti læra smíðar. Fór hann inn á
Akureyri til iðnnáms, en veiktist þá af berklum og lagðist inn á
Kristneshæli í Eyjafirði. Var orðið svo tvísýnt um líf hans að
Hjalti gaf leyfi sitt fyrir því að gerð væri á honum aðgerð sem lítil
reynsla var fyrir hér á landi og heppnaðist hún vel. Um tíma var
Hjalti á Garðyrkjuskólanum í Hveragerði og á árunum 1942 til
1943 starfaði hann sem farkennari í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði.
Eftir það settist hann í bændaskólann á Hólum og varð bú-
fræðingur þaðan árið 1944. Á Hólum kynntist hann eiginkonu
sinni, Onnu Sölvadóttur frá Mikla-Hóli í Viðvíkursveit. Þau hófu
búskap á Litla-Hamri í Eyjafirði og bjuggu þar árin 1945-1950,
en fluttu þá í Ytra-Garðshorn, þar sem þau tóku við jörðinni af
foreldrum Hjalta. Ytra-Garðshorn var heimili þeirra upp frá því.
Auk bústarfa sinnti Hjalti um árabil kennslu við Húsabakka-
skóla. Anna lést árið 2000 en börn þeirra Hjalta eru: Haraldur
Gauti f. 1946, Jónína f. 1948, Halldóra Kristín f. 1950, Sölvi Hauk-
ur f. 1952. Jón Ragnar f. 1955, Anna Sigríður f. 1960, Sólveig Mar-
ía f. 1964 og Hjalti Viðar f. 1966. Afkomendur Hjalta og Önnu eru
orðnir 53 talsins.
Hjalti var oddviti í Svarfaðardalshrepppi á árunum 1964-1974
og sat á þingi sem varaþingmaður fyrir Samtök lrjálslyndra og
vinstri manna árin 1966,1968 og 1969. Meðal annarra afskipta hans
af félagsmálum má nefna stjórnarsetur í ungmennafélagshreyfing-
unni og auk þess var hann heiðurs- og stofnfélagi bæði í Golf-
klúbbnum Hamri og Kíwanisklúbbnum Hrólfi. Þá var Hjalti söng-
maður góður og tók virkan þátt í kórstarfi allt undir það síðasta.
Hjalti var jarðsunginn í Dalvíkurkirkju og borinn til grafar í
Tjarnarkirkjugarði þann 19. ágúst sl.
Þann 29. júlí lést Hildur Pétursdóttir. Hún var
fædd 22. febrúar 1926 á Halldórsstöðum í Lax-
árdal í Suður-Þingeyjarsýslu. Foreldrar henn-
ar voru Regína Frímannsdóttir og Pétur
Jónsson, ábúendur í Árhvammi í Laxárdal.
Hildur var elst ellefu systkina, en hin eru:
Guðrún og Guðný, báðar látnar; Guðrún,
kvænt Halli Þór Hallgrímssyni; Jón, kvæntur
Hildi Jónasdóttur; Hallgrímur, kvæntur Vigdísi
Láru Viggósdóttur; Þorkell, látinn, eiginkona
hans var Sólveig Guðrún Jónasdóttir; Þórður,
kvæntur Sigrúnu Jónsdóttur; Pétur, kvæntur Sig-
rúnu Sigurbjörnsdóttur; Aðalsteinn, kvæntur Hafdísi Laufdal
Jónsdóttur. Einn dreng misstu foreldrar Hildar í barnæsku.
Hildur naut venjubundinnar skólagöngu í Laxárdal og sótti
námskeið í saumaskap á Húsavík. Hún var í vist á ýmsum stöð-
um, m.a. Hvoli í Aðaldal, við Laxárvirkjun, á Þórshöfn og í
Reykjavík en þar kynntist hún eiginmanni sínum, Jóhanni Ferdi-
nand Gunnlaugssyni. Jóhann vann ýmis störf en aðalvinna hans
var kaupmennska. Hildur og Jóhann byrjuðu að búa í Lækjar-
bakka en fluttu árið 1955 í Bessastaði.
Frétevhorn
Heldur hefur verið lítil veiði í
Svarfaðardalsá í sumar en
nú virðist hún vera farin að
glæðast. Veiðitíminn fór vel af
stað en júlímánuður var slappur
og fyrstu vikur ágústmánaðar
einnig. Sömu sögu er reyndar að
segja um fleiri ár hér í grennd-
inni, s.s. Eyjafjarðará. Nokkuð
fer þó misjöfnum sögum af veið-
inni; annálaðir veiðihundar sem
blaðið hefur rætt við segja þetta
með verstu veiðiárum sem þeir
hafa upplifað á meðan aðrir láta
nokkuð vel af sér. Nú fyrir helgi
veiddist lax á fimmta svæði og
þar hefur einnig fiskast vel af sil-
ungi síðustu daga.
Þá fer einnig nokkuð misjöfn-
um sögum af berjasprettu.
Fer það nokkuð eftir því við
hvern er rætt hvort menn álíta
þetta með betri berjaárum eða
bara miðlungi gott. Svo virðist
sem mikið sé víðast hvar af aðal-
berjum en sömu sögu er ekki að
segja um bláberin. Þessa dagana
má sjá berjatínslufólk hvarvetna
þar sem vænta má berja enda
komið hið besta veður eftir lang-
varandi kulda, þoku og rigningar.
Göngur og réttir verða í Dal-
víkurbyggð 7.-8. september.
Aðrar göngur verða helgina 20,-
21. sept og stóðréttir 5. október.
Atvinnuástand í Dalvíkur-
byggð er gott um þessar
mundir og eru fiskvinnslufyrir-
tæki og fleiri aðilar þessa dagana
að auglýsa eftir fólki til að
manna hjá sér reksturinn þegar
skólafólk hverfur aftur til náms.
Samherji hefur auglýst eftir fólki
bæði í frystihús og hausavinnslu
en aftur á móti var 10 starfs-
mönnum fyrirtækisins á Ár-
skógsströnd sagt upp þegar
ákveðið var að loka saltfiskverk-
un félagsins þar. Áætlað er að
vinnslu verði þar hætt í lok sept-
ember en starfsfólkinu bjóðist
vinna hjá Samherja á Dalvík.
Framfarafélag Dalvíkurbyggð-
ar hélt málþing um skólamál í
Dalvíkurskóla sl. fimmtudags-
kvöld. Fundurinn var ágætlega
sóttur og fór umræðan víða.
Framsögu fluttu Óskar Þór Sig-
urbjörnsson skólamálafulltrúi,
Hermann Tómasson kennari í
VMA og Þuríður Jóhannsdóttir
hjá Rannsóknarstofnun KHI.
Nr. 395. Smjörmót
Gefendur: Ólafur Tryggvason og Friðrika Har-
aldsdóttir frá Ytra-Hvarfi, Svarfaðardal.
Smjörmót voru oft fagurlega útskorin, þetta mót
var keypt tilbúið og til þess notað að forma smjör
eftir strokkun, þá var smjörið til prýði á borðum.
Ólafur sagði að í þetta mót var settur blautur
smjörpappír áður en að smjörið var formað í því.
Mynd 4. Hvað er þetta?
(Lengd ca. 8-10 sm)
Börn Hildar og Jóhanns eru: Unnsteinn Guðni,
f. 1947; Sigurður Gunnar, f. 1948; Jón Pétur, f.
1950; Lovísa Guðrún, f. 1951; Regína Gunnhild-
ur, f. 1951; Skarphéðinn.f. 1953; Jóna Arinbjörg, f.
1954; Ása Anna, f. 1956, lést á fyrsta ári; Anna
Rósa, f. 1956; María Kristín Kristjánsdóttir, f.
1955.
Hildur og Jóhann slitu samvistir. Árið 1962
flyst eftirlifandi eiginmaður Hildar, Sigurður
Kristinn Guðmundsson, í Bessastaði. Börn Hild-
ar og Sigurðar eru: Guðmundur Aðalsteinn, f.
1963; Kristín, f. 1964. Árið 1967 eignuðust Hildur
og Sigurður dóttur er lést dagsgömul. Barnabörn
Hildar eru 21 og barnabarnabörnin 11.
Hildur vann ýmis verkakvennastörf á Dalvík,
flest sumur við síldarsöltun hjá Blika og einnig
margar sláturtíðir hjá sláturhúsi KEA á Dalvík.
Þegar heilsu Hildar fór að hraka fluttist hún á
Dalbæ og þar andaðist hún þann 29. júlí sl. Utför
hennar fór fram frá Dalvíkurkirkju 7. ágúst sl. og
var hún jarðsett í Upsakirkjugarði.
Þann 17. ágúst andaðist á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak-
ureyri, Lilja Hannesdóttir.
Foreldrar hennar voru Hannes
Benediktsson og Sigríður
Björnsdóttir. Hún var fædd að
Skefilsstöðum á Skaga næst
elst 7 systkina. Hún ólst upp í
Hvammkoti á Skaga og bjó
þar til 17 ára aldurs. Fjölskyld-
an flutti þá að Hvammi í Laxárdal.
Lilja gekk í Kvennaskólann á Blönduósi. Hún
fékkst við ýmis störf, m.a. á hótelum og við
veitingasölu bæði á Sauðárkróki og í Varmahlíð.
Þar kynntist hún manni sínum Pálma Jóhannssyni
frá Búrfelli í Svarfaðardal og giftust þau 1948.
Eftir það bjó hún á Dalvík og starfaði við fisk-
vinnslu og félagsheimilið Víkurröst um árabil.
Börn þeirra Lilju og Pálma eru tvíburarnir
Óskar og Ásdís f. 1948. Pálmi andaðist 1997. Af-
komendur þeirra eru nú orðnir 15 talsins.
Lilja var jarðsett í Dalvíkurkirkjugarði 26. ágúst.
Munir og minjar
Á byggðasafninu í Hvoli er fjöldi muna sem bera
vitni urn horfna starfshætti og margir þeirra
koma nútímabörnum ef til vill spanskt fyrir sjón-
ir. íris Olöf Sigurjónsdóttir forstöðumaður Byggða-
safnsins í Hvoli gerir hér lítilleg skil munum og
minjum af safninu, auk þess sem birtar eru
myndir af skrýtnum hlutum sem lesendur mega
ráða í til hvers voru notaðir. Ef þið hafið ein-
hverjar upplýsingar um rnunina hvetjum við ykk-
ur tií að hafa samband við írisi á byggðasafninu í
síma 466-1497 eða 892-1497.