Alþýðublaðið - 17.12.1919, Page 1
Alþýðublaðið
Greíið lit af Alþýðuflokknum.
1919
Miðvikudaginn 17. desember
43. tölubl.
Slangió raRleitt
í Hljóðfœrahús Reykjavíkur. Aðalstræti 5, e£ þér viljið íá yður stórt eða smátt hljóðfæri. Kaupið hljóð-
fœri að eins i sérverzluninni, því að þar er trygging fyrir því, að þér fáið eingöngu góðar vörur fyrir
sanngjarnt verð. — Hvort sem þér þurflð að fá yður Grammófón, Pianó eða eitthvert annað hljóðfœri,
þá snúið yður beint
1 fil úCljéófœraRúss iSteyRaviRur, cMðalsfrcefi ð
Rafmagnsmálið.
Blekkingar Vísis.
12. þ. m. er ritstjórnargrein í
Vísi um rafmagnsmálið. Greinin
er sýnilega skrifuð til þess, að
geðjast þeim, sem andstæðir eru
því að bærinn virki Elliðaárnar,
en ekki af því, að blaðið, eða rit-
stjórinn, sé rnálinu andvígur, því
begar búið er í meginhluta grein-
arinnar með svigurmælum og
dylgjum að ala á tortryggni gegn
uokkrum bæjarfulltrúum, sem mál-
inu fylgdu, þá er niðurstaðan sú,
að „Vísir vill engan dóm leggja á
það“, hvort það sé „ráðlegt eða
óráðlegt fyrir bæinn að ráðast í
þetta fyrirtæki nú“.
Þó að blaðið þannig vilji engan
dóm leggja á málið, þá lætur það
eér þó sæma, að rægja og óvirða
suma þá, sem því voru fylgjandi,
og beinist þar eingöngu að full-
trúum verkamanna í bæjarstjórn-
inni, sem blaðið telur hafa „snar-
snúist", og gefur jafnvel í skyn,
að það sé fyrir „einhver áhrif ut-
an frá“.
Dylgjur þessar og svigurmæli
verða því undarlegri, ef svo er
®em kunnugir fullyrða — styrkist
enda af niðurlagsorðum greinar-
innar í Vísi — að rits'jóri Vísis
Bíálfur sé alls ekki mólfallinn
8erðum bæjarstjórnarinnar í raf-
thagnsmálinu, heldur „hallist"
®ihöiitt að þeira. A.ftur verður þá
hitt greinilegra, að hann hefir hér
gerst málpípa einhverra þeirra illu
„anda“ sem ekkert tækifæri láta
ónotað, til að gera lítið úr verka-
mönnum og starfsemi fulltrúa
þeirra og ala á tortryggni gegn
þeim, eða þá að hann hefir lánað
afarreiðum andstæðingi rafmagns-
málsins dálka blaðsins til þess að
skeyta skapi sínu.
Um „snúning" verkamannafull-
trúanna, sem greinin gerir að um-
talsefni, er hægt að sanna að
Vísir fer með vísvitandi rang-
færslur.
Fyrst er þá það, að vitanlegt
er, að fulltrúar verkamanna hafa
ekki allir verið fylgjandi því, að
Elliðaárnar yrðu teknar til virkj-
unar. Þorv. Þorvarðsson hefir t.
d. ávalt verið því mótfallinn að
byggja 1000 hestafla stöð, og
greiddi atkvæði gegn því bæði í
rafmagnsnefnd og bæjarstjórn. Frá
þessu hefir Vísir skýrt þegar hann
sagði frá úrslitum málsins í bæj-
arstjórn — hann hefir því ekki
snúist. Um hina fulltrúa verka-
manna er það kunnugt, að þeir
hafa verið virkjun ánna fylgjandi.
Er því heldur ekki um snúning
að ræða, hjá þeim. Má í því sam*
bandi benda á, að á fundi bæjar-
stjórnar 19. sept. 1918 var tillaga
rafmagnsnefndar um að „byggja
rafmagnsstöð fyrir bæinn með afli
úr Elliðaánum", samþ. í e. hlj.,
og á aulcafundi 26. sept. s. á. var
málið samþ. við 2. umr. með 11
samhlj. atkv. (Ben. Sv. og B. B.
greiddu ekki atkv,).
Og þó að endanlegri ákvörðun
um [það hvar stöðin ætti að vera við
árnar (áður var búið að samþ. að
byggja þar stöð eins og að ofan
segir) væri frestað í sumar, sem
sumpart var til frekari og endan-
legri rannsóknar, og sumpart til
þess að sjá hvað þingið gerði við-
víkjandi virkjun Sogsins, því það
gat haft áhrif á það, hvort heldur
ætti að reisa minni og ódýrari
stöð við Ártún, eða stærri og dýr-
ari í Grafarvogi, þá sannar það
ekki neinn „snúning", hvorki hjá
einum né öðrum, þó stöðin hafi
verið samþykt nú, nema ef ein-
hver afturkippur hefir komið i
samherja Vísis, lögmann íslands-
félagsins Svein Bj., sem á síðustu
stundu barðist fyrir að setja stöð-
ina niður í Grafarvogi. Hefði þó
mátt ætla, eftir afstöðu hans til
málsins í sumar að dæma, að
hann féllist á að byggja 1000
hestafla stöð við Ártún, ef rann-
sókn leiddi í ljós, að hægt væri
að stækka hana upp í 1500
hestöfl.
Var sú rannsókn framkvæmd
eftir tillögu Sveins. Og kunnugt
er, að Kirk heitinn komst að
þeirri niðurstöðu að stækka mætti
stöðina í 1500 hestöfl, og stað-
festi að því leyti áætlanir þeirra
J. Þorl. og G. Hlíðdals.
Það má vera, að þingið hafi
gert það í þessu máli, sem við
var búist. En hér kemur fleira til
greina. Kosningarnar 15. nóv. sl.
sýna, að þingið er alt í smáflokks-
| brotum og sundurleitum mjög, og