Fréttablaðið - 31.05.2017, Qupperneq 13
Nichole Leigh Mosty, þing-maður Bjartrar framtíðar og formaður velferðar-
nefndar Alþingis, setti í umræðum
um fjármálaáætlun ríkisstjórnar-
innar, 24. maí síðastliðinn, fram
þá hugmynd sína, að setja ætti
pólitíska stjórn yfir Landspítalann
og bætti við ákaflega dónalegum
ummælum um forstjóra spítalans.
Hún sagði: „Ég ætla að vera alveg
hreinskilin, það er ég sem hef verið
að hlaupa hérna um þinghúsið að
leggja fram hugmyndir um stjórn
yfir spítalann. Ekki á pólitískum
forsendum heldur faglegum, að
við setjum fagaðila í reksturinn svo
að forstjóri spítalans þurfi ekki að
vera í baráttu, í pólitískri baráttu á
fundum eftir pening, að hann þurfi
ekki að koma hérna niður í þinghús
fimm mínútum í afgreiðslu fjárlaga
til þess að betla um pening.“
Hér er margt að athuga. Til
dæmis má benda á að Alþingis-
húsið hentar ekki mjög vel til að
hlaupa um, frekar að hægt sé að
hlaupa um í Costco sem þingkonan
þekkar vafalaust vel frá heimalandi
sínu.
Minna má á að yfir Landspítal-
anum var sérstök stjórn fyrr á árum,
það var sjö manna stjórn. Fjórir
kosnir af Alþingi, tvo völdu starfs-
menn spítalans og ráðherra skipaði
svo formann. Þegar Borgarspítalinn
og Landspítalinn voru samein-
aðir um aldamótin var umrædd
stjórn lögð af. Hefur Nich ole kynnt
sér hvernig þessi stjórn vann og
hvernig hún lét til sín taka? Sá þessi
stjórn um að sækja fjárveitingar til
Alþingis? Enn eru í fullu fjöri nokkr-
ir þeirra sem sátu síðast í umræddri
stjórn og hæg heimatökin að hafa
samband við þá aðila til að afla sér
þekkingar um málið.
Uggvænlegt
Það er uggvænlegt ef þingmaður-
inn hefur í huga það fyrirkomu-
lag á slíkri stjórn að velja í hana
„fagaðila“ sem eru kunnir rekstri
fyrirtækja, eins og tíðkast mjög í
Bandaríkjunum, þ.e. fá í stjórnina
forstjóra sem eru aldir upp í fyrir-
tækjum þar sem markmiðið er
að hámarka gróðann. Gamlir og
ungir forstjórar hafa yfirleitt enga
þekkingu á rekstri sjúkrahúsa og
vita mjög lítið um þá starfsemi
sem þar fer fram. Þannig að ekki
er líklegt að slíkir „fagaðilar“ leggi
margt gott til málanna. Raunar er
á hreinu hvernig slík stjórn yrði
skipuð, hún kæmi að meiri hluta
frá ríkisstjórn á hverjum tíma, yrði
pólitískt skipuð þótt vera kynni að
hún væri „fagleg“ á yfirborðinu.
Tilgangurinn með tillögunni
er augljós. Núverandi ríkisstjórn
stefnir að því að þrengja að Land-
spítalanum en styrkja einkavædda
heilbrigðisþjónustu. Liður í því er
að hemja forstjóra spítalans svo
hann sé ekki sífellt niðri á Alþingi
til að betla peninga, eins og þing-
konan orðar svo smekklega. Eða
getur hún ekki dulið fyrirlitningu
sína á umræddum manni?
Það er einkennileg aðferð að
viðra ekki slíkar hugmyndir fyrst
við forstjóra spítalans og forráða-
menn hans, að minnsta kosti að
kynna sér hvað þeim finnist. Marg-
ir geta haft skoðanir á rekstri spítal-
ans, bæði vel og illa ígrundaðar, en
samt sem áður þá er kunnáttan og
þekkingin í höndum þeirra sem
halda þar um stjórnvölinn.
Ættum ekki að ameríkanísera
heilbrigðisþjónustuna
Við ættum ekki að ameríkanísera
heilbrigðisþjónustuna og ég mun
berjast gegn því eins lengi og ég hef
krafta til og reyna að fá fólk með
mér, enda er ástandið í heilbrigð-
ismálum í Bandaríkjunum ekki
gæfulegt, að minnsta kosti ekki
fyrir þá sem eiga lítið af peningum,
og varla batnar það í tíð núverandi
forseta þar.
Ég byrjaði að vinna á Land-
spítalanum 1968 og hef unnið þar
mestalla starfsævina og fylgst með
peningaleysi þar á bæ. Það er ekki
sómasamlegt þegar kemur fyrir
að fötur standi á göngunum til að
mæta húsleka. Ég þekki spítalann
vel, bæði sem starfsmaður og not-
andi, vann þar rúm 40 ár og þykir
mjög vænt um vinnustaðinn. Hef
fengið þar mjög góða þjónustu
og starfsfólkið sýnt mér hlýju og
umhyggju.
Það þarf bæði að huga að ytra
útliti og innri starfsemi og þar þarf
Alþingi heldur betur að taka sig á,
bæði með að bæta tækjakost og
viðhald, en það hafa stjórnvöld
vanrækt mjög undanfarin ár.
Nichole er vinsamlega beðin að
kynna sér mannkosti fólks áður
en hún fer að núa því um nasir að
það komi á fund Alþingis að betla
og sníkja fyrir starfsemi sína. Vil að
endingu minna á að þjóðin á Land-
spítalann en ekki formaður velferð-
arnefndar Alþingis, sem hleypur
fram og til baka, að eigin sögn, en
talar ekki við þá sem best þekkja til.
Væri ekki betra að hlaupa minna en
hlusta á forstjóra spítalans þegar
hann rekur fyrir velferðarnefnd
hverjar þarfir spítalans eru.
Stjórn yfir Landspítala?
Sigríður
Kristinsdóttir
sjúkraliði
Nichole er vinsamlega beðin
að kynna sér mannkosti
fólks áður en hún fer að núa
því um nasir að það komi
á fund Alþingis að betla og
sníkja fyrir starfsemi sína.
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Rexton™ heyrnartækin gera meira en að hjálpa þér að heyra betur.
Þau opna nýjar leiðir í samskiptum, rjúfa þögnina og gefa tóninn.
Þau auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu
heyrnartæki lánuð til reynslu.
Við hjálpum þér
að bæta lífsgæðin
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13M i ð V i k u D A G u R 3 1 . M A í 2 0 1 7
3
1
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
F
9
-F
0
2
0
1
C
F
9
-E
E
E
4
1
C
F
9
-E
D
A
8
1
C
F
9
-E
C
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
3
0
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K