Fréttablaðið - 31.05.2017, Blaðsíða 20
markaðurinn
Útgáfufélag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5000 | Fax 512 5301
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is
Stefnt er að verklokum við lúxus-
hótel Icelandair á Landssímareitnum
við Austurvöll vorið 2019 og mun
opnun þess því seinka um eitt ár.
Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri
Lindarvatns, eiganda bygginganna og
lóðanna á reitnum, segir breytingar
á deiluskipulagi svæðisins hafa tafist
hjá Reykjavíkurborg.
„Við erum að bíða eftir svörum
frá borginni varðandi breytingar
á deiluskipulaginu. Þangað til það
liggur fyrir gefur borgin ekki út nein
framkvæmdaleyfi. Við erum að von-
ast til að þetta liggi fyrir á allra næstu
vikum og að verklok verði vorið
2019,“ segir Davíð.
„Við höfum gert borginni grein
fyrir því að við erum nokkuð ósátt
við hvað þetta hefur tekið langan
tíma. Það er leiðinlegt sérstaklega
fyrir borgarbúa að þarna í hjarta
borgarinnar séu þessi hús í því
ástandi sem þau eru og engin starf-
semi þar.“
Icelandair Group keypti helm-
ingshlut í Lindarvatni í ágúst 2015
af hinum eiganda reitsins, Dalsnesi
ehf., sem er alfarið í eigu Ólafs Björns-
sonar, eiganda matvöruheildverslun-
arinnar Innness. Lindarvatn stóð í
byrjun mars í fyrra fyrir 3,1 milljarðs
króna skuldabréfaútgáfu til að fjár-
magna framkvæmdirnar á reitnum.
Hótelið verður 160 herbergja eða
ellefu þúsund fermetrar að stærð af
þeim fimmtán þúsund sem gert er
ráð fyrir á reitnum. Þar verða einn-
ig veitingastaðir, verslanir, íbúðir
og að sögn Davíðs einnig að öllum
líkindum safn um sögu Alþingis. – hg
Opnun lúxushótels seinkar um ár
Framkvæmdum við nýtt hótel við Austurvöll átti að ljúka vorið 2018.
Eigendur Cintamani kanna sam-
kvæmt heimildum Markaðarins
mögulega sölu á öllu hlutafé
íslenska fataframleiðandans og
hafa þeir fengið sænska fjármála-
fyrirtækið Beringer Finance til að
sjá um samskipti við valinn hóp
fjárfesta. Stutt fjárfestakynning (e.
teaser) var send út fyrir skemmstu
og fjárfestum gefinn frestur til júní-
loka til að skila inn óskuldbindandi
tilboðum.
Einar Karl Birgisson, fram-
kvæmdastjóri Cintamani, segir
formlegt söluferli ekki hafið og að
engin ákvörðun hafi verið tekin
um hvort fyrirtækið verði boðið
til sölu. Beringer hafi verið fengið
til að meta næstu skref eftir að eig-
endum fataframleiðandans barst
tilboð í fyrirtækið fyrir nokkrum
mánuðum.
„Eigendum félagsins barst tilboð
fyrir nokkrum mánuðum og upp
úr því leituðu þeir til Beringer til að
gera ákveðna kostagreiningu. Það er
hvaða kostir eru í stöðunni eftir að
tilboðið barst og hvað sé rétta skref-
ið í stöðunni. Fyrirtækið er því ekki
í eiginlegu söluferli því eigendurnir
eru alveg eins líklegir til að stíga
önnur skref ef niðurstaða Beringer
verður á þá leið,“ segir Einar Karl.
„Við höfum verið í gríðarlega
mikilli uppbyggingu á félaginu
innan frá undanfarna fjórtán mán-
uði. Við skynjum árangur þess og
því þótti mér áhugavert að við feng-
um tilboð í fyrirtækið sem var ekki
svarað á annan hátt en að menn
fóru í þessa vinnu með Beringer.“
Cintamani er í eigu Kristins Más
Gunnarssonar, stjórnarformanns
fyrirtækisins, og Frumtaks slhf. Krist-
inn á 70 prósenta hlut en Frumtak
er í eigu Nýsköpunarsjóðs atvinnu-
lífsins, sex lífeyrissjóða og stóru við-
skiptabankanna þriggja.
Heimildir Markaðarins herma að
í fjárfestakynningunni hafi áætlaðar
tekjur Cintamani á þessu ári verið
gefnar upp. Þær eigi að nema um
1.100 milljónum króna og gert sé ráð
fyrir að rekstrarhagnaður (EBITDA)
muni nema um 145 milljónum
króna. Fataframleiðandinn var rek-
inn með tæplega 30 milljóna króna
hagnaði árið 2015 samkvæmt síðasta
birta ársreikningi hans. Afkoman
þá var mun betri en árið á undan
þegar reksturinn skilaði 3,7 milljóna
hagnaði. Aðalstarfsemi Cintamani er
fólgin í hönnun, framleiðslu og sölu
á útivistarfatnaði og rekur fyrirtækið
sex verslanir hér á landi.
haraldur@frettabladid.is
hordur@frettabladid.is
Óska eftir tilboðum í
allt hlutafé Cintamani
Sænska fjármálafyrirtækið Beringer Finance sendi út fjárfestakynningu fyrir
hönd eigenda Cintamani. Frestur til að skila inn óskuldbindandi tilboðum
rennur út í lok júní. Formlegt söluferli ekki hafið að sögn framkvæmdastjórans.
Cintamani rekur sex verslanir hér á landi. FréttAblAðið/Anton brink
Fyrirtækið er því
ekki í eiginlegu
söluferli því eigendurnir eru
alveg eins líklegir til að stíga
önnur skref ef niðurstaða
Beringer verður á þá leið.
Einar Karl Birgisson, framkvæmda-
stjóri Cintamani
Fjárfestingarsjóður á vegum banda-
ríska eignastýringarfyrirtækisins
Wellington Management er kom-
inn í hóp stærstu hluthafa Nýherja
með tæplega 1,8 prósenta hlut.
Þetta er þriðja skráða fyrirtækið
í Kauphöllinni þar sem sjóðir í
stýringu Wellington Management
komast á lista yfir tuttugu stærstu
hluthafa en fyrr á árinu eignuðust
þeir talsverða eignarhluti í N1 og
Símanum.
Sjóðurinn Wellington Trust
Company National Association,
sem eignaðist hlut sinn í Nýherja
núna í maímánuði, er þannig tólfti
stærsti hluthafi félagsins en miðað
við núverandi gengi bréfa Nýherja
er hluturinn metinn á um 265 millj-
ónir. Markaðsvirði Nýherja
er um 14,9 milljarðar –
aðeins Skeljungur er
með lægra markaðs-
virði af skráðum
félögum í Kauphöll-
inni – en gengi bréfa
upplýsingatækni-
fyrirtækisins hefur
hækkað um liðlega
58 prósent frá ára-
mótum.
Tekjur Nýherja jukust
um 20 prósent á
fyrsta fjórð-
ungi ársins
og námu
u m
f j ó r u m
m i l l j -
örðum.
Það er
e k k i
s í s t
góður árangur í hugbúnaðartengdri
starfsemi Nýherja, meðal annars
hjá dótturfélaginu Tempo, sem
hefur dregið vagninn í tekjuvext-
inum. Á árinu 2016 námu tekjur
Tempo um 13 milljónum dala og
jukust um 40 prósent á milli ára. Á
fyrsta fjórðungi var tekjuaukning-
in 46 prósent. Nýherji skoðar nú
þann möguleika að selja meiri-
hluta hlutafjár í Tempo.
Fjárfestingar erlendra sjóða
í skráðum félögum námu
19 milljörðum fyrstu fjóra
mánuði ársins borið saman
við 11 milljarða á öllu árinu
2016. – hae
Bandarískur sjóður í hóp
stærstu hluthafa Nýherja
Finnur oddsson er
forstjóri nýherja
14,9
milljarðar er núverandi
markaðsvirði nýherja.
Microsoft Enterprise
Mobility + Security
Verndar tölvur og gögn fyrirtækisins með
öryggisbúnaði sem byggir á persónulegri
auðkenningu.
microsoft-ems.is
3 1 . m a í 2 0 1 7 m I Ð V I K u D a g u R2 markaðurinn
3
1
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
F
A
-0
D
C
0
1
C
F
A
-0
C
8
4
1
C
F
A
-0
B
4
8
1
C
F
A
-0
A
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
3
0
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K