Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Page 4
Vikublað 28.–30. júní 20164 Fréttir
L
ögreglan á Vestfjörðum fékk
tilkynningu um skemmdar
verk þann 21. júní síðastliðinn.
Málningu hafði verið úðað
á veggi Vestfjarðaganga og á bak
hlið umferðarskilta í og við ganga
munnana í Tungudal, Breiðadal og
Botnsdal.
Í dagbók lögreglunnar á Vest
fjörðum kemur fram að lögreglumenn
hafi þegar hafið rannsókn málsins og
bárust böndin fljótlega að íslenskum
ferðamanni. Sá viðurkenndi við yfir
heyrslur hjá lögreglunni daginn eftir
að hafa málað á veggi ganganna og á
skiltin. Að sögn lögreglu var hald lagt
á fjölmarga úðabrúsa sem fundust í
fórum mannsins. „Málið er litið alvar
legum augum enda blasir við að tölu
verð vinna felst í því að afmá þessa
málningu,“ segir lögreglan.
Fleiri verkefni komu inn á borð
lögreglunnar á Vestfjörðum í síð
ustu viku. Að kvöldi 21. júní stöðv
aði lögregla akstur bifreiðar og við
nánari skoðun kom í ljós að einn
farþeganna hafði komið sér fyrir í
farangursrýminu. Má sá búast við
sekt fyrir uppátækið. Einn ökumaður
í umdæminu sofnaði undir stýri með
þeim afleiðingum að hann ók utan
í vegg jarðganganna undir Breiða
dals og Botnsheiði. Maðurinn hlaut
ekki alvarleg meiðsl en bifreiðin var
óökufær eftir óhappið.
41 ökumaður var kærður fyrir að
aka yfir leyfilegum hámarkshraða í
liðinni viku. Flestar þessara hraða
mælinga fóru fram í Strandasýslu
og við Ísafjarðardjúp, en einnig í
Reykhólasveit, á Barðaströnd og
í Ísafjarðarbæ. Sá sem hraðast ók
mældist á 130 kílómetra hraða þar
sem leyfilegt er að aka á 90 kíló
metra hraða við bestu skilyrði. Sekt
fyrir slíkt nemur 75.000 krónum og 2
punktum í ökuferilskrá viðkomandi
ökumanns. n
Skemmdarvargur
á Vestfjörðum
Úðaði málningu á veggi Vestfjarðaganga
PLUSMINUS OPTIC
Smáralind
www.plusminus. is
Sumar
kaupauki
Sólgler
með öllum gleraugum
Index 1,5*
Sjóngler
Aðeins
7 mín.
frá flug-
vellinum
Takk fyrir frábærar viðtökur!
s: 426 5000 - booking@bbkefairport.is - bbkeflavik.com
Frá október 2015 gistu hjá okkur
8.700 Íslendingar nóttina fyrir flug.
Gestir okkar fóru frá okkur ánægðir
með gistinguna og þjónustuna sem
við veitum. Það er okkur mikil hvatning
að gera enn betur og gera dvölina
hjá okkur einstaka og þægilega.
Við viljum þakka frábærar viðtökur og hlökkum
til að halda áfram að veita frábæra þjónustu.
Innifalið í gistingu:Skutlum og sækjum út á völl. Morgunmatur oggeymsla á bíl.
Litið alvarlegum augum Lögreglan birti
þessa mynd á Facebook-síðu sinni.
Smárakirkja selur húsnæði sitt
n Félag ásamt fjárfestum stofnað um kaupin n Óvíst hvað verður en talað um hótel
S
márakirkja, sem áður heyrði
undir Krossinn, hefur selt
húsnæði sitt í Hlíðarsmár
anum í Kópavogi og leitar
þessa dagana að nýju hús
næði undir starfsemina. Þetta stað
festi Sigurbjörg Gunnarsdóttir, for
stöðumaður Smárakirkju, í samtali
við DV. Blaðið hefur heimildir fyrir
því að húsnæðinu eigi að breyta í
hótel.
„Smárakirkja átti húsnæðið en
við ákváðum að selja vegna rekstr
arvanda og hafa samningar þar að
lútandi verið gerðir um kaupin við
nýja eigendur. Ég veit ekki hvað nýir
eigendur hyggjast fyrir með þetta
húsnæði. Við rákum áfangaheimili
í Hliðarsmára 5–7 og þar hafa verið
íbúðir sem við höfum haft undir
starfsemina. Ríkisvaldið hefur komið
að rekstrinum til þessa en framlag
þess hefur minnkað verulega en
færa á þennan málaflokk meira yfir á
sveitarfélögin en áður. Við sáum því
fyrir okkur að rekstrargrundvöllur
inn yrði ekki nægilega góður undir
þennan hluta. Þetta er megin ástæða
fyrir sölunni. Smárakirkja ætlar samt
sem áður að halda þessum rekstri
áfram en þá í nýju húsnæði sem við
leitum að logandi ljósi.“
„Við erum mjög spennt“
Sigurbjörg segir að ásættanlegt verð
hefði fengist fyrir eignina. Hún segir
að vonandi finnist nýtt húsnæði
fljótlega og er bjartsýn á framhaldið.
Nýir tímar séu framundan.
„Við erum mjög spennt en það
er virkileg þörf fyrir starfsemi sem
þessa. Við höfum rekið þarna
áfangaheimili fyrir fólk sem átt hefur
við vímuefnavandamál að stríða og
annan vanda og á ekki í önnur hús
að venda. Við höfum því eftir fremsta
megni lagt þessu fólki lið,“ segir Sig
urbjörg.
Kemur bara í ljós
„Það var stofnað sérstakt félag
ásamt fjárfestum um kaupin á
þessari eign í Hlíðarsmáranum.
Ég get ekki tjáð mig um hvað
við hyggjumst fyrir með þessum
kaupum. Það er bara verið að vinna
í málunum, hvaða starfsemi verður
þarna kemur bara í ljós síðar,“ sagði
Jóhannes Hauksson, einn þeirra
sem að kaupunum koma, í samtali
við DV. n
Jón Kristján Sigurðsson
jonk@dv.is „Við erum mjög
spennt en það
er virkileg þörf fyrir
starfsemi sem þessa.
Smárakirkja Svo gæti
farið að húsnæðið verði
nýtt undir hótel, en það
hefur ekki fengist staðfest.