Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Qupperneq 8
Vikublað 28.–30. júní 20168 Fréttir
Þ
að hefur færst í vöxt hin
síðustu ár að ganga á Esj-
una, jafnt hjá einstak-
lingum, hópum og einnig
starfsmönnum fyrirtækja
sem hafa tekið sig saman og geng-
ið á fjallið sér til yndisauka og
heilsubótar. Einhverjir kunna að
spyrja hvað valdi þessum aukna
áhuga. Að ganga á Esjuna er allra
meina bót, styrkir og eykur þolið
og býður einnig upp á frábæra ná-
lægð við náttúruna. Æ fleiri ganga
á Esjuna og árlega ganga hana tug-
þúsundir manna á öllum aldri og
útlendingar eru farnir að nýta sér
þennan möguleika í meira mæli en
áður.
Esjan stendur við Kjalarnes í
Reykjavík og er eitt af einkennum
höfuðborgarsvæðisins. Talið er að
Esjan hafi myndast á fyrri hluta ís-
aldar. Hún byggðist upp úr blágrýt-
is- og móbergslögum og talsvert
er um innskot og bergganga í fjall-
inu. Esjan er syðsta blágrýtisfjallið
á landinu. Nafn fjallsins er gjarnan
rakið til móbergslaganna í fjallinu
en nafnið þýðir tálgusteinn. Kalk
fannst í giljunum fyrir ofan Mó-
gilsá og árið 1873 var þar stundað-
ur námugröftur.
Í Kjalnesingasögu er talað um
bæinn Esjuberg þar sem land-
námsmaðurinn Örlygur Hrappsson
bjó þegar hann kom til Íslands frá
Suðureyjum í Skotlandi. Í sögunni
er sagt frá því að írsk kona að nafni
Esja hafi komið í Kollafjörð og hafa
menn þá leitt að því líkur að nafnið
sé írskt að uppruna.
Gönguleiðir vel merktar
Aðalgönguleiðin á Þverfellshorn
liggur frá bílastæði og upp að út-
sýnisskífu á Þverfellshorni í
um 780 metra hæð yfir sjávar-
máli. Gönguleiðin er vel merkt og
heildarlengd Þverfellsleiðar til og
frá bílastæði er um átta kílómetrar.
Gönguleiðin á Þverfellshorn er
bæði fjölbreytt og reynir með víð-
tækum hætti á líkamann. Fjölmargir
fara leiðina nokkrum sinnum í viku
en samspil heilsueflingar og fjall-
göngu ætti að vera einstaklingum
góð leið til bóta á líkama og sál.
Skógræktarfélag Reykjavíkur hef-
ur látið útbúa skilti við gönguleiðina.
Er það gert með öryggi göngufólks í
huga og til þess að fólk átti sig á hvar
það er staðsett á leið sinni á topp-
inn.
Ekki ganga allir á Þverfellshorn
en á leiðinni þangað eru sex göngu-
leiðir og er Steinn þeirra vinsælastur.
Gengið er þangað upp í 587 metra
hæð þar sem merktur „Steinn“ er
efst á Langahrygg. Aðrar gönguleiðir
á leiðinni á Þverfellshorn eru Skógar-
stígur í 65 metra hæð, Þvergil í 140
metra hæð, Göngubrúin í 240 metra
hæð, Vaðið í 383 metra hæð, Steinn
eins og áður hefur verið lýst og loks
Klettabeltið í 670 metra hæð og þá
eru eftir er 90 metra hækkun áður en
toppnum er náð. n
A
uður Kjartansdóttir hefur
gengið á Esjuna í um 24
ár. Hún byrjaði að ganga á
fjallið þegar hún hóf störf
sem nýliði í hjálparsveitunum, þá
nýorðin 17 ára.
„Það er mér mjög eftirminnilegt
þegar ég gekk fyrst með foreldrum
mínum og þá voru fáar göngu-
leiðir. Þá þurfti að stika yfir tröpp-
ur þar sem varðan er í miðju fjall-
inu. Þetta er mikið breytt síðan
enda hefur Ferðafélagið stuðlað
að því að leggja göngustíga og setja
niður upplýsingaskilti, en þessi leið
er orðin miklu fjölfarnari í dag en
fyrir rúmum tuttugu árum,“ sagði
Auður Kjartansdóttir sem starfar
sem leiðsögumaður á sumrin og
sérfræðingur í ofanflóðum á Veður-
stofunni á veturna.
Aðspurð hvað hún hefði gengið
oft á Esjuna sagðist hún ekki hafa
nákvæma tölu yfir það en hún
gengi að jafnaði 2–3 í viku á fjallið.
Notar fjallið til að halda sér í formi
„Ég nota fjallið mjög mikið og þá
ekki síst til að halda mér í formi
fyrir aðrar áskoranir. Ég lít á þetta
sem leikfimi en þetta er ótrú-
lega hressandi og mannbætandi
á allan hátt. Ég er ekkert frekar
að fara upp toppinn og finnst
mjög fínt að ganga upp að Steini.
Á veturna verður maður að fara
með gát og gæta fyllsta öryggis.
Þá er stundum töluverður snjór
á leiðinni og gott að fara gæti-
lega yfir. Mér finnst alltaf jafn
skemmtilegt að ganga á Esjuna og
ætli ég hafi ekki stundað fjallgöng-
ur á þetta merka fjall í um 24 ár,“
sagði Auður.
Af hverju heldur þú að það sé
svona vinsælt að ganga á Esjuna,
en nú hefur orðið geysileg aukn-
ing í þeim efnum hin síðustu ár?
„Esjan hefur ákveðið aðdráttar-
afl. Fjallið er fallegt með frá-
bæru útsýni yfir höfuðborgina.
Esjan býður upp á fjölbreytilegar
gönguleiðir og þangað er hrein-
lega hægt að skreppa eins og að
fara í ræktina. Maður fær líkamlega
útrás fyrir gönguna og er fljótur að
koma sér í ágætis form. Þegar ég
var í barnsburðarleyfi fannst mér
afskaplega gott að hengja börnin
utan á mig og skella mér upp.
Börnin lúrðu á meðan, leið vel og
ég fékk góða útrás og kom mér í
gott form eftir barnsburðinn.“
Auður sagðist hafa heyrt að um
30–40 þúsund manns gengju ár-
lega á Esjuna. Að ganga á fjöll er
heilsueflandi á allan hátt og virki-
lega skemmtilegt. Auður sagði
gaman að sjá heilu hópana ganga
á fjallið.
Tugþúsundir ganga
á Esjuna á hverju ári
Nokkrar gönguleiðir í boði í frábæru umhverfi og nálægð við náttúruna
Ótrúlega hressandi og mannbætandi
Jón Kristján Sigurðsson
jonk@dv.is
Auður Kjartansdóttir hefur gengið á fjallið í 24 ár
Fallegt umhverfi Það fátt betra
en að ganga á Esjuna, efla styrk og
njóta náttúrunnar. MyNd SiGtryGGur Ari
Eldbakaðar pizzur
hafnargata 36a, kEflavík / nálægt flugstöðinni
salur
fyrir
hópa
sími 557 1007
hamborgarar,
salöt, pasta,
kjúklingavængir
og flEira