Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Side 9
Vikublað 28.–30. júní 2016 Fréttir 9 Ótrúlega hressandi og mannbætandi Göngustígar þola vel áganginn „Auðvitað er ágangurinn meiri en áður en það hafa verið markmið hjá Ferðafélaginu og Skógræktinni að leggja og endurbæta göngustíga. Það hefur verið unnið vel í þessum málum en það skiptir miklu máli að ganga eftir merktum göngustíg­ um. Ég held að göngustígarnir þoli vel áganginn og gróðurinn lítur vel út.“ Auður hefur alla tíð verið göngufrík. Hún segist halda sér í formi með göngum á Esjuna en hún hefur alls gengið um 75 sinn­ um á Hvannadalshnjúk og eru ekki margir sem hafa leikið það eftir. „Að mínu mati er fólk sem er innan við klukkustund að ganga upp að Steini í ágætu formi og á er­ indi í stærri verkefni. Ég hvet alla sem geta til að ganga á Esjuna, kom­ ast þannig í þjálfun og vera innan um fallega náttúru, fuglasöng og frábært útsýni,“ sagði Auður Kjart­ ansdóttir. n Krefjandi og alls ekki auðveld É g hef mjög gaman af því að ganga á fjöll og Esjan er að­ gengilegt fjall. Þó að ég sé mikill áhugamaður um fjallgöngur og fari á flest fjöll sem ég get þá er Esjan alltaf nærtæk. Hún er þægileg að því leytinu til að hún er nálægt okk­ ur, hún er alltaf krefjandi og hún er alls ekki auðveld þó að hún sé bæj­ arfjallið. Leiðin upp hana er vel skil­ greind og það er sjaldgæft að villast á þeirri leið þó að menn séu óvan­ ir. Esjan hefur upp á margt að bjóða og margar leiðir. Það er hægt að fara, svo eitthvað sé nefnt, á Kerhóla­ kamb, upp að Steini, frá Kjósinni eða alla leið á toppinn. Það er skemmti­ leg gönguleið upp á Móskarðshnjúka og þar er öðruvísi útsýni en frá öðr­ um stöðum. Fjallaskíðamenn hafa notið Móskarðshnjúka og margir fara þangað til æfa sig þegar vetrar og fram á vor. Þar eru aðstæður ákjósan­ legar til að renna sér niður. Þetta er allt saman hluti af Esjunni,“ sagði Helgi Jóhannesson, lögfræðingur og göngugarpur, í samtali við DV. Helgi sagði að Esjan hefði ákveðið aðdráttarafl en borgarbúar hefðu hana fyrir augum sér og einhvern veginn getur þú ekki búið í Reykja­ vík án þess að ganga á fjallið. Esjan er góð áskorun fyrir þá sem virkilega eru að fá delluna því það er auðvelt að fara þangað. Helgi segist ekki hafa tölu á hve oft hann hefur gengið á Esjuna, mjög oft og í alls konar veðri í nokkuð mörg ár. Fjallgöngur hafa gert mér gott í gegnum tíðina „Það má alls ekki vanmeta Esjuna og hún er þokkalega erfitt fjall. Það get­ ur verið algjört logn niðri en síðan alveg brjáluð hríð aðeins ofar. Á vet­ urna verður göngufólk að hafa allan vara á og búa sig vel áður en lagt er af stað. Fjallgöngur hafa gert mér gott í gegnum tíðina og þetta er besta líkamsræktin sem er í boði. Fjall­ gangan er holl og líkaminn er ekki að fá á sig högg eins og í hlaupun­ um. Gangan er holl fyrir hjartað og lungu og ekki síður andlega en það er æðislegt að komast út í náttúr­ una, hvort sem það er á Esjunni eða á önnur fjöll. Aukninguna og meiri áhuga fyrir göngu á Esjuna tel ég stafa af meiri útivistaráhuga en áður. Þetta á ekki einungis við um Esjuna því áhuginn er almennt meiri um allt land,“ sagði Helgi Jóhannesson í spjallinu við DV. n Helgi Jóhannesson segir Esjuna hafa aðdráttarafl Göngugarpur Helgi Jóhannesson nýtur þess að ganga á fjöll og hefur gengið á Esjuna í mörg ár. Hér er Helgi á Þórnýjartindi í Esjunni. Í toppformi Auður Kjartansdóttir heldur sér í formi með því að ganga á Esjuna, en það hefur hún hefur gert í 24 ár. Mynd SiGtryGGur Ari Rútubílstjóri undir áhrifum áfengis Var á Suðurlandi með 18 farþega í bílnum V ið hefðbundið eftirlit vega­ lögreglunnar á Suðurlandi var bílstjóri rútubifreiðar tekinn vegna gruns um að aka undir áhrifum áfengis. Þetta atvik átti sér stað sl. fimmtudag á Suðurlandsvegi við Lögberg. „Já, ég get staðfest þetta og í bif­ reiðinni voru 18 farþegar. Umferð­ ardeildin hefur eftirlit með öxul­ þunga bíla, reglugerðum um ákvæði hvíldartíma, ökurita og öllum leyf­ um sem tengjast hópferðaakstri. Þeir hafa eftirlit með þessu á Suður­ landi, Suðurnesjum og á höfuð­ borgarsvæðinu. Það var einmitt við svona eftirlit sem öku maður þessar­ ar rútubifreiðar er bráðabirgðasvip­ ur akstri rútunnar á staðnum fyr­ ir hádegi sl. fimmtudag. Þetta eru alltaf alvarleg mál, þar fyrir utan að ökumaðurinn er með stóran hóp farþega í rútunni. Umferðardeildin mun eins og áður fylgjast vel með þessum þáttum áfram. Þetta er forvarnarvinna sem verður fylgt vel eftir á næstunni eins og jafnan,“ sagði Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Selfossi, í samtali við DV. Farþegar rútunnar þurftu að bíða í góða stund þangað til að annar ökumaður var fenginn til svo hægt væri að halda förinni áfram. n jonk@dv.is Gleraugnaverslunin Eyesland 5. hæð Glæsibæ www.eyesland.is S: 577-1015 Létt og þægileg í veiðina Veiðigleraugu með og án styrktarglugga Kíktu við og mátaðu!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.