Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Side 10
Vikublað 28.–30. júní 201610 Fréttir Erlent 19. mars 2016 Flugfélag: United Arab Emirates Flugnúmer: 981 Látnir: 62 Farþegavél frá United Arab Em- irates brotlenti við tilraun til lendingar í Rússlandi. Allir um borð létust. Vélin, sem var á leið frá Dúbaí, var af gerðinni Boeing 737. Hún hrapaði við Rostov-on-Don-flugvöllinn en vindhviður náðu um 27 metrum á sekúndu þegar vélin fór niður, auk þess sem skyggni var slæmt. 31. október 2015 Flugfélag: Kogalymavia (Metrojet) Flugnúmer: 9268 Látnir: 224 Allir um borð fórust þegar sprengja sprakk í vélinni. Flugvélin var á leið frá Sharm el-Sheikh í Egyptalandi til Pétursborgar í Rússlandi. Hún splundraðist yfir Sinai- skaga. ISIS lýsti ódæðinu á hendur sér. 24. mars 2015 Flugfélag: Germanwings Flugnúmer: 9525 Látnir: 150 Vélin skall á Frönsku Ölpunum á leið sinni frá Barcelona á Spáni til Þýskalands. 150 voru um borð og fórust allir. Aðstoðar- flugmaðurnin, Andreas Lubitz, læsti flugstjórann frammi á gangi og grandaði vélinni viljandi. Rannsókn leiddi í ljós að hann hafði glímt við andlega vanheilsu. 4. febrúar 2015 Flugfélag: TransAsia Airways Flugnúmer: 235 Látnir: 43 Flugvélin brotlenti í á í Tapei, höfuðborg Taívan, skömmu eftir flugtak. Hrollvekjandi mynd- band náðist af slysinu. Fimmtíu og átta voru um borð og af þeim létust 43. Vélin var af gerðinni ATR 72-600 en flugstjórinn slökkti fyrir mistök á öðrum hreyfli vélarinnar eftir að hinn bilaði. 28. desember 2014 Flugfélag: Air Asia Flugnúmer: 8501 Látnir: 162 Flug 8501, sem átti að fljúga frá indónesísku borginni Surabaya til Singapúr hlaut hræðilegan endi þegar vélin ofreis – missti flugið – og brotlenti í kjölfarið í Java- hafi. Allir um borð fórust. 24. júlí 2014 Flugfélag: Air Algerie Flugnúmer: 5017 Látnir: 116 Enginn komst lífs af þegar flugvél af gerðinni MD-83 hvarf af radar og hrapaði í Malí, sumarið 2014. Vélin var á leið frá Burkina Faso til Alsír og hafði verið á lofti í um klukku- stund. Flugmennirnir breyttu um stefnu til að forðast vont veður þegar ógæfan dundi yfir. U mfangsmikil leit að braki farþegaflugvélar egypska flugfélagsins EgyptAir stendur enn yfir en vélin hvarf af ratsjám þann 9. maí síðastliðinn. Flugritar vélar- innar fundust þann 17. júní síðast- liðinn, svörtu kassarnir svokölluðu. Hún var á leið frá París í Frakklandi til Kaíró í Egyptalandi. Talið er að hún hafi hrapað skammt frá grísku eynni Karpathos. Sextíu og sex voru um borð í vélinni, þar af tíu manna áhöfn. Vonir eru bundnar við að flug ritarnir varpi ljósi á það sem gerðist þegar vélin hrapaði. Á meðal þeirra sem saknað er eru um 30 Egyptar og tíu Frakkar. Vélin var í 37 þúsund feta hæð yfir austan- verðu Miðjarðarhafi þegar hún hvarf. Um var að ræða vél af gerðinni Air- bus A320. Egypski herinn taldi sig hafa fundið brak úr vélinni, um 300 kílómetra norður af Alexandríu. Þá er talið að eitthvað hafi fundist af far- angri farþeganna. Ekki liggur fyrir hvað grandaði vélinni. Þó að flugvélar nútímans verði sífellt öruggari hafa á undanförnum misserum orðið allnokkur hræðileg og mannskæð flugslys. Þannig urðu sex slík árið 2014. Hér er úttekt sem byggir á grein CNN um tíu mann- skæð flugslys sem orðið hafa frá því í október 2014. n Tíu mannskæð flugslys n Farþegavél hvarf af ratsjám 19. maí n Mörg flugslys hafa orðið undanfarin misseri Baldur Guðmundsson baldur@dv.is Skotin niður Þegar brakið úr farþegaþotu Malaysia Airlines, sem hrapaði 17. júlí 2014, fannst reyndu menn að púsla henni saman á ný, til að freista þess að varpa ljósi á málsatvik. Mekka íssins Erum í miðbæ Hveragerðis Ís í vél, 4 tegundir | Kúluís Pinnaís | Krap | Bragðarefur Ísfrappó | Sælgæti | Franskar Samlokur | Gos | Snakk Bland í poka | Pylsur | Kaffi Opnunartími mán-fim 10 - 21 / fös 10 - 22 lau 12 - 22 og sun 12 - 21 Breiðamörk 10, Hveragerði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.