Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Síða 11
Vikublað 28.–30. júní 2016 Fréttir Erlent 11 23. júlí 2014 Flugfélag: TransAsia Airways Flugnúmer: GE 222 Látnir: 48 Vélin fór niður í úrhellisrigningu þegar reynt var að lenda á Magong-flugvellinum í Penghu Island, sem er hluti af Taívan. Flugstjórinn hafði beðið um leyfi til annarrar lendingartilraunar, áður en illa fór. 17. júlí 2014 Flugfélag: Malaysia Airlines Flugnúmer: 17 Látnir: 298 Vél sem var á leið frá Amsterdam til Malasíu var skotin niður yfir Úkraínu, á svæði þar sem rússneskir aðskilnaðarsinn- ar réðu ríkjum. Vélin hrapaði skammt frá Donetsk, um 50 kíló- metra utan rússneskrar lofthelgi. Tvennum sögum fer af því hver skaut vélina niður, upp úr þurru. Allir sem voru um borð fórust. 8. mars 2014 Flugfélag: Malaysia Airlines Flugnúmer: 370 Látnir:239 Vél flugfélagsins hvarf af radar eftir að hafa farið í loft í Kúala Lúmpúr. Vélin var á leið til Peking. Í janúar 2015 hafði enn ekkert spurst til vélarinnar eftir tíu mánaða leit og sendu stjórnvöld í Malasíu frá sér yfirlýsingu um að hvarf vélarinnar mætti rekja til slyss og allir væru taldir af. Brak, sem talið er úr vélinni, hefur rekið á strendur en eftir stendur ráðgáta um hvað gerðist. 16. október 2014 Flugfélag: Lao Airlines Flugnúmer: QV301 Látnir: 48 Vélin skall til jarðar við tilraun til lendingar á Pakse-flugvellinum, nærri landamærum Laos og Taílands. Hún var á leið frá Vientiane, höfuðborg Laos. Ókyrrð er talin hafa grandað vélinni, samkvæmt þarlendum yfirvöldum. Mannfall og eyðilegging Rússneskir rannsakendur kanna brak Boeing-vélar sem hrapaði þann 19. mars síðastliðinn í Rússlandi. 62 létust. Mynd EPA Sorg Ættingjar syrgja ást- vin sem lést í flugslysinu 19. mars síðastliðinn. Mynd EPA Borgartún 23, Reykjavík / Sími: 561 1300 / Opið: mán. - fös. 10-18, lau. 11-18 & sun. 12-16 Þú getur líka pantað á netinu www.reykjavikurblom.is Blóm og gjafavara við öll tækifæri Góð og persónuleg þjónusta Skírn - Fermingar - Brúðkaup - Samúð - Útfarir Hreinsun á jakkafötum 3.160 kr. Hringbraut 119 - s: 562 7740 - Erum á Facebook Opið Virka daga 08:30-18:00 laugardaga 11:00-13:00 Forseti Tyrkland biðst afsökunar Tyrkir eru mjög háðir Rússum hvað útflutning varðar S amskipti Tyrkja og Rússa hafa verið mjög stirð í kjölfar þess að Tyrkir skutu niður rússneska orrustuflugvél í fyrra við landa- mæri Sýrlands og Tyrklands. Forseti Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan, hefur nú formlega beðið Vladimír Pútín Rússlandsforseta afsökunar. Talsmaður rússnesku stjórnarinn- ar upplýsti í gær að skilaboð hefðu borist frá Erdogan þar sem hann vott- ar fjölskyldu rússneska flugmanns- ins sem fórst í árásinni samúð sína. Erdogan ætlar að gera allt sem hans valdi stendur til að samskipti þjóð- anna verði með eðlilegum hætti á nýjan leik. Tyrkir hafa verið mjög háðir útflutningi á ýmsum vörum til Rússlands um langt skeið. Eftir árásina í fyrra hættu Rússar að ferðast til Tyrkland með þeim afleiðingum að tyrkneskur ferða- mannaiðnaður varð fyrir miklum skaða. Eins hefur ótryggt ástand í Tyrklandi dregið úr ferðalögum þang- að og hætt hefur verið við margar flugferðir sem fyrirhugaðar voru þangað í sumar. Þess má geta að yfir þrjár milljónir Rússa hafa sótt Tyrk- land árlega heim um langt skeið en straumurinn stöðvaðist gersamlega í kjölfar árásarinnar í fyrra. Mörgum hótelum í Tyrklandi hefur verið lok- að og er talið að það taki langan tíma fyrir Tyrki að rétta úr kútnum. Hátt í 60% af öllu jarðgasi og rúm- lega 30% af allri olíu kaupa Tyrkir af Rússum. Fyrir tveimur árum námu tekjur af útflutningi Tyrkja til Rúss- lands um 3.400 milljörðum króna. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.