Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Qupperneq 12
Vikublað 28.–30. júní 201612 Skrýtið F eðgarnir Kai og Braiden Holt frá Hawaii kynntu fyrr í mánuðinum til sögunn- ar þriðju kynslóðar brim- brettasvínið Kama 3. Dýrið sem um ræðir er gylta og afkomandi Kama 1, svíns sem sló í gegn árið 2014 þegar myndband sem sýndi það á brimbretti varð vinsælt á Youtube. Gölturinn Kama 1, sem heitir fullu nafni Kamapua, vegur nú rétt tæp 140 kíló og þessi mikla þyngd hefur komið í veg fyrir frek- ari íþróttaafrek hans. Kai Holt fann svínið í byrjun árs 2014 og uppgötv- aði skömmu síðar einstaka hæfileika þess. Samband Kai og Kama 1 er svo gott að þeir sváfu um tíma í sama rúmi og sá eigandinn til þess að dýr- ið væri eingöngu á grænmetisfæði. Svínið varð fljótlega það frægt að bandaríska verslanakeðjan Costco ákvað að styrkja það með ókeypis brimbrettum. Einnig fékk það rausn- arlegar gjafir frá myndavélaframleið- andanum GoPro. Instagram-síða svínsins, Kamathesurfingpig, er með tæplega átta þúsund fylgjendur. Afkvæmi dýrsins, Kama 2, sem einnig getur stigið ölduna, hefur síð- ustu ár fetað í klaufafar Kama 1 og stundað brimbrettareið af kappi við strendur Hawaii. „Svínið stingur vanalega tungunni út þegar það stendur á brettinu enda líkar því vel að fá vindinn í andlitið,“ segir Braiden í samtali við fjölmiðilinn KITV í Honolulu. Kai og sonur hans Braiden eru sammála um að Kama 2 nálgist óð- fluga föður sinn Kama 1 í þyngd. Af reynslu þeirra að dæma er brim- brettaferill svína einungis um tólf mánuðir. Því er stutt í að Kama 2 leggi brettið á hilluna. Kama 3 tekur þá við keflinu sem fremsta brim- brettasvín heims. n Allt til ræktunar og fullt af fíneríi fyrir heimilið og bústaðinn HÖFÐABAKKA 3 / 110 REYKJAVÍK / SÍMI 587 2222 / litlagardbudin.is / Við erum á Facebook MagnesíuM Kísill Hin fullkomna tvenna fyrir Heilsu og fegurð Svínin sem stíga ölduna Þrjár kynslóðir svína frá Hawaii hafa öll vakið athygli fyrir brimbreittareið Kai og svínið Árið 2014 vakti svínið Kama 1 mikla athygli eftir að myndskeið af brim- brettareið þess endaði á Youtube. Kama 2 Hér má sjá annað svínið í röðinni á brimbretti. Dýrið er nú að verða of þungt fyrir íþróttina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.