Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Side 18
Vikublað 28.–30. júní 20164 Bestu pítsurnar í bænum - Kynningarblað
„Gaman að gera þetta á gamla mátann“
B
íóbakan, Hamraborg 20a
Kópavogi, býður upp á ilm
andi góðar súrdeigsflatbökur,
pizzur bakaðar í hágæða
ítölskum steinofni. Allar
bökurnar eru útbúnar frá grunni
á staðnum úr lífrænu hveiti ásamt
bragðmikilli flatbökusósu sem er ein
göngu gerð úr ferskum hráefnum.
„Þetta er hollari týpan af pizzu
enda gerum við súrdeigið alveg sjálf
ir,“ segir Sigurður Már Davíðsson,
einn þriggja eigenda staðarins, en
hinir eru Skúli Andrésson og Þórir
Stefánsson.
„Í dag eru til margar leiðir til að
gera súrdeig en við gerum það á
gamla mátann. Við höldum deig sem
er súrt og gefum því að borða tvisvar
á dag, tökum af því eftir hentugleika
og bætum við. Það þarf stanslaust að
vaka yfir súrdeigi, þetta er heilmikið
bras en það er óskaplega gaman að
hugsa um þetta, þetta verður dálítið
eins og barnið manns, þó að það sé
skrýtið að segja það, maður er alltaf
að hugsa um hvenær maður sé búinn
að gefa því og svo framvegis,“ segir
Sigurður. Hann segir að þetta vinnu
lag gæti varla gengið upp ef staður
inn væri mikið stærri. Hann segir þó
ekki koma til greina að breyta út af
þessari upprunalegu aðferð, frekar
sleppi hann því að stækka við sig.
Síðar gæti lausnin þó orðið að stofna
annan stað:
„Ég hefði ekki nennt að gera þetta
öðruvísi. Þetta er vissulega mikil
vinna og mikil rútína, en um leið og
hún er komin af stað er þetta bara
virkilega skemmtilegt. Það er líka
bara svo gaman að gera þetta á gamla
mátann, það eru komin til sögunnar
alls konar duft til að gera súrdeig en
við sneiðum algjörlega hjá slíku.“
Með því hollara
sem hægt er að borða
Bíóbakan var opnuð þann 13. maí
síðastliðinn og viðtökur hafa verið af
bragðsgóðar. Þó að pizza flokkist al
mennt ekki undir heilsubita er ljóst
að pizzurnar á Bíóbökunni eru bráð
hollar enda er mikil áhersla lögð á líf
rænt hráefni við gerð þeirra.
„Þetta er klárlega hollara en margt
sem fólk eldar heima hjá sér og telst
hollt. Við reynum að hafa sem mest
lífrænt en undantekningarnar eru
osturinn og sumar áleggstegundirn
ar sem fólk getur valið sér, þar sem
um unnar kjötvörur er að ræða. En í
þeim tilvikum sem hráefnið er ekki
lífrænt þá veljum við alltaf íslenskt
hráefni,“ segir Sigurður.
Þess má geta að Bíóbakan stefnir
að inngöngu í samtökin GRA, Green
Restaurant Association, samtök
veitingastaða með lífrænan mat, sjá
nánar á vefsíðunni dinegreen.com.
Þar eru gerðar miklar kröfur um
endurvinnslu og flokkun sem og að
reyna að lágmarka alla koltvíoxíð
losun í andrúmsloftið. Þess vegna
valdi Bíóbakan að notast við raf
magnssteinofn í stað eldofns.
Hvers vegna Bíóbakan?
Allir eigendur Bíóbökunnar eru mikl
ir kvikmyndaáhugamenn og vísun
í bíó og kvikmyndir er sterk í ásýnd
staðarins. Réttirnir bera nöfn eins og
Naked Gun, sem er Pizza Margaríta;
Karate Kid, sem er með humri, feta
osti og hvítlauk; Dirty Dancing, sem
er með skinku og ananas, og mörg
fleiri slík.
Hér er um skemmtilegan orðaleik
að ræða, vísun í hugtakið bio – sem er
fremsti orðhlutinn í orðinu biology,
líffræði, og er þekkt hugtak í umfjöll
un um lífrænar afurðir.
„Við erum dálitlir nördar, allir
þrír,“ segir Sigurður Már þegar hann
útskýrir þetta, og bætir við að ýmsar
aðrar vísanir varðandi tölur og stærð
ir sé að finna á staðnum og viðskipta
vinir geti skemmt sér við að ráða í.
Bíóbakan er opin alla daga frá kl.
11 til 21.
Hægt er panta á staðnum, á vefsíð-
unni biobakan.is , þar sem jafnframt
er að finna allar upplýsingar varð-
andi matseðil, eða í síma 568-8887. n
Hollari týpan af pizzu
Bíóbakan: