Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Blaðsíða 19
Vikublað 28.–30. júní 2016 Lífsstíll 15
ljúffengur morgunmatur
alla daga
Kaffivagninn / Grandagarði 10, 101 Rvk.
Sími: 551 5932 / www.kaffivagninn.is
Opið virka daga frá 07:30–18:00
og um helgar frá 09:30–18:00
gamla
höfnin
Einu eggin á neytendamarkaði
með löggilda vottun
Lífrænu hænurnar
hjá Nesbúeggjum
• Fá lífrænt fóður
• Fá mikið pláss
• Njóta útiveru
nesbu.is
NESBÚ
EGG
Gott með grillinu
Þrjú ómótstæðileg salöt fyrir næstu grillveislu
S
umarið er tíminn þegar sólin
skín og logar í grillum. Grill-
matur getur verið óskap-
lega fjölbreyttur, enda er það
eldunaraðferðin ein sem
skilgreinir máltíð sem grillmáltíð. Þá
gildir einu hvort maður kastar hrefn-
ukjöti, risarækjum, nautatungu eða
portobellosvepp yfir logana. Með-
lætið getur skipt sköpum, og þar er
sannarlega hægt að láta sköpunar-
gleðina njóta sín. Hér eru þrjú salöt
sem borin voru á borð í grillveislu á
Ægissíðunni um daginn. Húsráðandi
lagði til rækjur, lambafille og naut á
grillið, en gestir mættu með salötin.
Svona salöt passa með hverju sem
er og eru því tilvalin í veislur þar sem
réttir koma úr ýmsum áttum. Gjörið
svo vel! n
Hið ómótstæðilega
sumarsalat
n Icebergsalat
n Klettasalat
n Mangó
n Cherry-tómatar
Hér kemur svo galdurinn:
n 2 bollar svartar Doritos-flögur, muldar
n 1 bolli kasjúhnetur
n 3 msk. hlynsíróp
n 2 msk. sykur
Aðferð: Skerið salatið í strimla,
tómatana í fjórðunga, mangóið í teninga og setjið í skál með klettasalatinu. Magnið
fer eftir því hversu margir eru í veislunni og hversu svangir gestirnir eru. Þó er líklegt
að salatið muni klárast óháð stærð, svo gómsætt er það nefnilega. Hitið pönnu
miðlungsmikið og þurrristið kasjúhneturnar. Þegar þær eru rétt byrjaðar að fá á
sig gullinn lit er Doritos-flögunum bætt út á pönnuna. Þurrristið blönduna saman í
nokkrar mínútur og bætið svo við hlynsírópi og sykri. Steikið áfram í nokkrar mínútur.
Látið kólna og brjótið niður áður en dásemdinni er dreift yfir salatið.
Klassíska
kartöflu-
salatið
n Soðnar kartöflur
n Graslaukur
n Rauð paprika
n Kóríander
n 4 msk. majónes
n ½ dós sýrður rjómi
Aðferð: Blandið
majónesi og sýrðum
rjóma í skál. Skerið
kældar kartöflur og
papriku í bita. Klippið
væn knippi af graslauk
og kóríander og blandið
við salatið.
Nýstárlega
kartöflu-
salatið
n Soðnar kartöflur
n Sellerí
n Döðlur
n 2 msk. dijon-sinnep
n 4 msk. extra virgin-ólífuolía
n Salt
Aðferð: Byrjið á að setja
sinnepið og ólífuolíuna saman
í skál og hræra duglega. Skerið
kældar kartöflur í bita, sellerí
í sneiðar og döðlur smátt.
Blandið öllu saman í skál og
saltið eftir smekk. Þetta salat
bragðast best eftir klukku-
stund í kæli.
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Svona er best að skera mangó
Hér er komin hin fullkomna aðferð til að nýta
mangóávöxtinn sem best. Skerið meðfram
steininum báðum megin og notið
glas eða bolla til að skafa
kjötið úr hýðinu.
Safaríkt Mangóið
nýtist vel með þessum skurði.
Guðdómlega gott Þetta einfalda
salat slær alltaf í gegn. MyndiR SiGtRyGGuR ARi
Klassíska kartöflusalatið
Í fallegri skál með ferskum
kryddjurtum.
Ótrúlega bragðgott
Kartöflusalat sem
kemur á
óvart.