Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Page 21
Vikublað 28.–30. júní 2016 Sport 17
Hetjurnar okkar
st slegnir út af laginu. Á 18. mínútu
komst Ísland svo yfir eftir frábært
samspil. Kolbeinn Sigþórsson sneri
sér með boltann við vítateigslínuna
og átti fast skot í átt að hægra horni
marksins. Joe Hart markvörður náði
ekki að verja fast skotið og Ísland var
skyndilega komið yfir.
Hjólhestaspyrna
Pressa Englendinga var nokkuð
þung það sem eftir lifði hálfleiks.
Þeir áttu nokkur skot utan teigs en
engin verulega hættuleg færi. Ís-
lendingar mættu til leiks í síðari hálf-
leik fullir eldmóðs. Á 55. mínútu tók
Ragnar Sigurðsson hjólhestaspyrnu
við markteig en skotið rataði beint
í hendur Hart, sem var vel stað-
settur í markinu. Lítið hefði mátt út
af bregða til að miðvörðurinn, sem
átti stórbrotinn leik, hefði skorað sitt
annað mark í leiknum þar.
Stórleikur Ragnars
Ragnar var frábær á báðum end-
um vallarins, eins og margir leik-
menn íslenska liðsins. Hættulegasta
sókn Englendinga í síðari hálf-
leik leit dagsins ljós á 70. mínútu
þegar Jamie Vardy, annar af tveim-
ur markahæstu mönnum ensku úr-
valsdeildarinnar liðinn vetur, komst
einn inn fyrir. Eins og þruma úr
heiðskíru lofti birtist Ragnar Sig-
urðsson og tæklaði boltann af tám
sóknarmannsins fljóta. Stórbrotin
tilþrif. „Maður fann að þeir litu svo-
lítið niður á okkur,“ sagði Ragnar í
viðtali eftir leikinn en honum þótti
ekki mikið til Englendinga koma í
leiknum. „Mér fannst þeir ekki vera
að skapa neitt. Ég var eiginlega ekk-
ert stressaður í síðari hálfleik nema
síðustu mínútuna, þegar maður var
orðinn svolítið þreyttur,“ sagði Ragn-
ar, maður leiksins, í viðtalinu.
Heimir Hallgrímsson hélt ekki
vatni yfir frammistöðu miðvarðar-
ins. „Frammistaða Ragnars í kvöld
er ein allra besta frammistaða sem
miðvörður hefur sýnt í íslenska
landsliðinu. Það kæmi mér á óvart ef
þjálfarar hjá stórum liðum væru ekki
að skrifa nafnið hans niður núna.
Þeir hljóta að vera að gera það.“
Annar frábær leikmaður Íslands
í leiknum, markvörðurinn Hannes
Halldórsson, gerðist sekur um ein
mistök í leiknum – þegar hann braut
frekar klaufalega á sóknarmanni
Englendinga, svo víti var dæmt. „Ég
veit ekki hvað skal segja eftir svona
leik. Þetta er svo stórt og epískt.“ Svo
bætti hann við: „Okkur langar lengra
og við förum í alla leiki og stefnum
á sigur.“
Nálægt því að bæta við
Í kjölfarið sóttu Íslendingar. Eftir
gott samspil átti Birkir Már glæsilega
marktilraun en boltinn fór naum-
lega yfir markið. „Þetta er bara frá-
bært,“ sagði hann eftir leik. „Við
vitum að við getum unnið alla og
sýndum í dag að við getum líka spil-
að fótbolta,“ sagði hann í samtali við
Pétur Marteinsson hjá Símanum eft-
ir leik.
Þó að Englendingar væru meira
með boltann, eins og andstæðingar
Íslands hafa jafnan gert í mótinu,
fengu Íslendingar bestu færin. Aron
Einar Gunnarsson komst í frábært
færi seint í leiknum en fast skot hans,
af stuttu færi, varði Joe Hart í horn.
Hægt en bítandi fjaraði leiktíminn
út án þess að Englendingar sköpuðu
sér færi. Sigur Íslands var staðreynd
– er staðreynd – en næstu mótherjar
Íslands verða Frakkar. Leikurinn fer
fram á Stade de France, þjóðarleik-
vangi Frakka, á sunnudaginn kem-
ur. „Það er engin hindrun of stór fyr-
ir þessa stráka núna,“ sagði Heimir
strax eftir leikinn í gær. n
Englendingar niðurlægðir
Valdar fyrirsagnir og ummæli um breskum miðlum eftir leik
„Lið Hodgsons niðurlægt í skelfilegri EM-brottför“
-The Guardian
„Hodgson segir af sér“
Þeirri spurningu er varpað fram annars staðar á netsíðunni hvort frammistaða enska
liðsins sé sú versta sem það hefur nokkru sinni sýnt.
- Telegraph
„Hodgson kominn á hliðarlínuna með David Cameron“
- Daily Mirror segir frammistöðu enska landsliðsins hafa verið skelfilega og bætir við
að það sé þrennt sem sé öruggt í þessu lífi: dauðinn, skatturinn og að England sýni
ófullnægjandi frammistöðu á stórmótum.
- Daily Mirror
„England niðurlægt af smáþjóðinni Íslandi“
- BBC
„Þvílík hneisa“
„Englendingum sparkað úr Evrópukeppninni eftir vandræðalegasta tap í sögu liðsins.“
- The Sun