Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Side 23
Vikublað 28.–30. júní 2016 Fólk Viðtal 19
Er bíllinn klár fyrir
sumarið?
Við einföldum líf bíleigandans
Ferðabox
Reiðhjóla-
grindur
Þverslár
alþjóðasamskiptum frá háskólanum
í Toronto, og þegar ég var 22 ára flutti
ég til Bretlands til að fara í meistara-
nám við Oxford-háskóla í nútíma-
sögu. Þar kynntist ég Guðna.“
Guðni og Eliza voru bæði í
róðrarliðum skólans og höfðu hist
í tengslum við það. Henni þótti Ís-
lendingurinn spennandi og langaði að
kynnast honum betur. Tækifærið fékk
hún svo þegar lið Guðna skipulagði
fjáröflun sem fór þannig fram að nöfn
allra strákanna í liðinu voru skrifuð
á bolla og svo gat hver sem er keypt
miða, skrifað nafnið sitt á hann og sett
í bolla þess sem vakti mesta áhugann.
Svo var einn miði dreginn úr hverjum
bolla, og sú heppna fékk stefnumót
með róðrarpiltinum.
„Ég keypti 10 miða og setti átta
af þeim í bollann hans Guðna, til að
virka ekki eins og eltihrellir. Að sjálf-
sögðu voru líkurnar mér í hag, mitt
nafn var dregið, og daginn eftir bauð
Guðni mér út að borða á ítalskan
veitingastað í þríréttaða máltíð. Mér
fannst það alveg meiriháttar því flest
hin stefnumótin voru á skyndibita-
staði, og 22 ára háskólastúlkan var
ekki beint vön svona fíneríi.
Guðni var þrítugur þarna og ég
man svo vel eftir því að þegar ég hitti
hann fyrst í partíi þá hugsaði ég, „Vá,
þú ert þrítugur, og það er komið mið-
nætti og þú ert að djamma.“ Ég hélt að
gamalt fólk færi hreinlega ekki í partí.“
Fyrsta stefnumótið átti sér stað
1998, en Guðni og Eliza fluttu til Ís-
lands 2003 og hafa búið hér allar
götur síðan. „Ég vann fyrsta árið hjá
hugbúnaðarfyrirtæki, en stjórnar-
formaður þess var einmitt Halla
Tómasdóttir, svo við höfum þekkst
lengi. Ég man svo vel eftir því að hún
var nýbúin að eignast barn og var
með það á brjósti á fundum – mér
fannst það ótrúlega svalt. Eftir þetta
fór ég að vinna við skrif, lengst af fyrir
Iceland Review og Grapevine, en síð-
ustu árin hafa að mestu farið í Iceland
Writers Retreat, sem er árleg, alþjóð-
leg vinnusmiðja fyrir rithöfunda, og
að ritstýra blaðinu Icelandair sem
dreift er í flugvélarnar. Núna þarf ég
að endurskoða þetta allt, að minnsta
kosti næstu fjögur árin.“
Störf og skyldur
Já, hvernig er það, eru einhver laun
fyrir að vera forsetafrú og máttu
halda þínu striki í vinnu?
„Mig langar mikið að halda áfram
vinnunni við Iceland Writers Retreat,
enda held ég að það verkefni falli vel
að því sem forsetaembættið stendur
fyrir. Það byggir á bókmenntaarfleifð
Íslands og ég hef nú þegar haldið
fjölmarga fyrirlestra um hana í
Bandaríkjunum og víðar. Annað þarf
ég að endurskoða. Ég held til dæmis
að það sé ekki viðeigandi að forseta-
frú þiggi laun frá einkareknum fyrir-
tækjum. Það er mikilvægt að mis-
nota ekki stöðu sína, og þetta þarf að
íhuga vandlega.“
Eliza fræðir mig um að það séu
engin laun greidd til forsetafrúar.
„Við munum missa aðra tekjulindina.
En auðvitað þénar forseti meira en
dósent við Háskóla Íslands, svo það
er alls ekki áhyggjuefni. Ég er mjög
spennt fyrir þeim verkefnum sem
ég mun geta sinnt sem forsetafrú, til
dæmis eru málefni innflytjenda mér
hugleikin. Ég er sjálf innflytjandi og
mín saga er lík sögu margra inn-
flytjenda, en á sama tíma ólík sögu
annarra. Annað málefni sem mig
langar að sinna er sjálfboðastarf nem-
enda á sjúkrahúsum. Í Kanada var ég
í forsvari fyrir þannig verkefni og mig
langar að nota þá reynslu til að koma
einhverju til leiðar hér.“
Slökun og svo skipulag
Fjölskyldan mun flytja úr krúttlega
húsinu á Seltjarnarnesinu í hvítt
hús með rauðu þaki á nesinu hinum
megin við sjóinn. „Það verður tals-
verð breyting fyrir fjölskylduna,
börnin byrja í nýjum skólum og svo-
leiðis, þannig að ég býst við því að
minn tími fari að mestu í það verk-
efni á næstunni. Ég býst við að við
leigjum húsið okkar út. Við höfum
reyndar viljandi reynt að hugsa ekki
lengra fram í tímann en að 25. júní.
Akkúrat núna erum við í sjöunda
himni og sigurvímu. Við fljúgum til
Nice í nótt og förum á fótboltaleik-
inn, svo komum við heim og finnum
tíma til að slaka á með börnunum,
helst úti á landi í sumarbústað með
heitum potti - en eftir það þurfum
við að skipuleggja næstu skref.“
Börn Guðna og Elizu eru fjögur,
Duncan Tind ur (f. 2007), Don ald
Gunn ar (f. 2009), Sæþór Peter (f.
2011) og Edda Mar grét (f. 2013). Að
auki á Guðni dótt ur ina Rut (f. 1994)
með fyrri eig in konu sinni. Yngra
hollið flytur nú inn á Bessastaði, en
það verður í fyrsta sinn sem slíkur
barnaskari tekur þar búsetu.
Hvernig tóku börnin framboðs
brölti foreldranna?
„Þau eru voða spennt og stolt af
pabba sínum. Þau yngstu átta sig
kannski ekki alveg á hvað er að gerast.
Við reyndum líka að ræða þetta við
þau á frekar almennum nótum, en nú
förum við smám saman að búa þau
undir breytingarnar sem eru í vænd-
um. Það er samt ekki eins og við séum
að flytja milli landa, þau geta haldið
áfram að leika við sömu vinina, og
ég er viss um að þau komi til með að
njóta tímans á Álftanesinu. Okkur
Guðna finnst þetta líka tækifæri til
að sýna heiminum að Ísland er fjöl-
skylduvænt, og að hægt sé að verða
forseti og á sama tíma uppfylla skyld-
ur sínar sem foreldri margra barna.“
Sannur, hugulsamur
og skemmtilegur
En Eliza, hvernig eiginmaður er
Guðni?
„Hann er frábær eiginmaður og
pabbi. Hann er sannur og hugul-
samur og skemmtilegur og með gott
viðhorf til lífsins. Við erum ólík en
náum góðu jafnvægi saman. Þegar
ég er stressuð nær hann að róa mig,
og þá sjaldan hann verður fúll og ein-
rænn næ ég að draga hann aftur út úr
skelinni. Við höfum alltaf skipt með
okkur húsverkunum. Hann er vonlaus
í að elda mat, en straujar til dæmis allt
sem þarf að strauja. Börnin upplifðu
ansi mikla breytingu á meðan kosn-
ingabaráttan stóð yfir, enda er hann
vanur að vera alltaf heima milli klukk-
an 17.00 og háttatíma, en var það auð-
vitað ekki á þessu tímabili.“
Vildi gjarna hitta Trudeau
Skyldur forseta fela til að mynda í
sér að fara í opinberar heimsóknir til
þjóðhöfðingja víða um heim.
Hvernig tilfinning er að eiga mögu
lega á hættu að fara í boð til Donalds
Trump í Hvíta húsið, nái hann kjöri
sem forseti Bandaríkjanna?
„Auðvitað mun ég sinna verkefn-
um og skyldum við hlið Guðna. Ég er
ekki búin að leiða hugann að Banda-
ríkjunum frekar en öðrum löndum.
Þó hef ég á tilfinningunni að Ísland
verði kannski ekki efst á boðslist-
anum þegar kemur að opinberum
heimsóknum. Mér finnst bara ótrú-
lega spennandi að fá að ferðast og
hitta alls konar fólk. Ég er líka mjög
fegin því að pabbi kenndi mér fyr-
ir löngu að halda rétt á hnífapörum.“
Hvenær kemur Justin Trudeau í
opinbera heimsókn?
„Ég hreinlega veit það ekki.
Hann er auðvitað ekki þjóðhöfðingi
Kanada, heldur forsætisráðherra,
þannig að það er frekar á valdi rík-
isstjórnarinnar að bjóða honum í
heimsókn. En ég vona svo sannar-
lega að ég fái að hitta hann ef hann
kemur.“
Varðist árásum
Á köflum varð kosningabaráttan
hörð, og þar sem Guðni hafði forystu
í öllum könnunum stóðu spjótin á
honum.
„Við bjuggumst alveg við að ein-
hverjar árásir yrðu gerðar. Auðvitað
er Guðni ekki pólitíkus og því ekki
með reynslu af þannig samskiptum.
Hann er bara með svo mikið jafn-
aðargeð og gekk þess vegna vel að
halda ró sinni á meðan þetta gekk
yfir. Hann missti ekki kúlið og svar-
aði af kurteisi án þess að fara niður
á sama plan. Ég er mjög stolt af hon-
um fyrir það. Það reynir auðvitað á
þolrifin þegar fólk reynir að rang-
túlka orð manns, eða slíta þau úr
samhengi en mér fannst hann gera
þetta vel. Okkur fannst líka greini-
legt að íslenskir kjósendur höfðu
engan áhuga á neikvæðri kosninga-
baráttu. Stundum er ég fegin að ís-
lenskan mín sé ekki fullkomin. Ég
les íslensku til að mynda mjög hægt,
og sleppi því alveg að fylgjast með
kommentakerfum. Ef ég byrja að
lesa eitthvað sem lítur út fyrir að vera
í neikvæðum tón get ég bara hætt,
ég fer að minnsta kosti ekki að nota
tíma minn í að Google-þýða neikvæð
lýsingarorð.“
Áhugi kanadískra fjölmiðla á
Elizu og Guðna hefur verið mikill
síðan kosningabaráttan hófst. „Þeir
hafa fylgst vel með okkur, rétt eins
og íslenskir miðlar mundu gera ef
Íslendingur væri í sömu stöðu er-
lendis. Vinir mínir og fjölskylda í
Kanada eru auðvitað búin að vera
mjög spennt líka. Foreldrar mínir
eru staddir hér núna og hafa hjálp-
að til með börnin, frænka mín kom
líka til að styðja okkur, og þau eru öll
mjög stolt og spennt fyrir þessu.“
Já, það er óvenjulegt fyrir alþýð-
legt háskólafólk að vera í þeirri stöðu
sem Eliza og Guðni eru í þennan
morguninn. Hvað skyldi hafa verið
óvenjulegast? „Hingað streymir fólk
með blómvendi, það er skrýtið. Svo
er garðurinn minn fullur af sjón-
varpsfólki að setja upp vélar, það er
vægast sagt óvenjulegt. Það var fleira
sem kom mér á óvart í kosninga-
baráttunni, eins og að við vorum
látin sitja fremst í þeim flugvélum
sem við ferðuðumst með, og fólk var
alltaf að færa okkur gjafir. Óvenjulegt
en skemmtilegt á sama tíma.“
Forsetahúsgögn?
Flutningur á Bessastaði liggur fyrir
fjölskyldunni. Ég spyr Elizu hvort
þau þurfi að nota sérstök forsetahús-
gögn eða hvort búslóðin fylgi þeim.
„Ég hef ekki hugmynd um það. Ég
hef nokkrum sinnum komið í hús-
ið þar sem móttökur eru haldnar, en
aldrei í forsetabústaðinn, svo ég veit
ekki hvort húsið er fullt af húsgögn-
um sem eru óhentug fyrir börn, eða
hvort við Guðni erum að fara að taka
með okkur 15 ára gömlu Ikea-hús-
gögnin. Sófann sem þú situr í keypt-
um við til að mynda fyrir 15 þúsund
krónur á Facebook.“
Glamúrinn fer kannski að flæða
í auknum mæli inn í líf þeirra hjóna
núna. „Þó að við berum virðingu fyrir
embættinu erum við Guðni bæði
mjög jarðbundin og viljum alls ekki
að aðstæður barnanna okkar verði
óeðlilegar eða að þau alist upp í að
finnast þau eiga meiri rétt en aðrir. Ég
mun kannski ekki setja gamla sófann
í herbergi þar sem tekið er á móti
gestum embættisins, en mun glöð
nota hann á stað þar sem fjölskyldan
getur hangið saman og haft það kósí.“
Femínistinn í farþegasætinu
Eliza er sjálfstæð, menntuð og dríf-
andi kona, skyldi hún ekki hafa
blendnar tilfinningar að einhverju
leyti gagnvart hlutverkinu og því að
horfa fram á næstu árin í farþegasæti
forsetans. „Ekki gleyma að segja að
ég sé femínisti, ég vil endilega að það
komi fram. En jú, auðvitað hef ég
leitt hugann að því. Ég hef til dæmis
aldrei verið jafnmikið í sviðsljósi fjöl-
miðla og núna, ég hef reyndar tals-
verða reynslu af viðtölum, en þau
hafa snúist um mig og mín verkefni.
Núna snýst allt um eiginmann minn
og ég er aukaleikari. En ég er bara
óskaplega stolt af honum og ánægð
með að hann sé í sviðsljósinu. Ég
veit að hann verður frábær forseti.
Það eru mikil forréttindi fyrir okkur
bæði að fá þetta tækifæri. Við tökum
þennan heiður mjög alvarlega. Ég
mun gera mitt besta til að nota mitt
hlutverk til góðs og styðja Guðna.“ n
„Ég er
líka
mjög fegin
því að pabbi
kenndi mér
fyrir löngu að
halda rétt á
hnífapörum
Blómin streymdu að
Hamingjuóskum rigndi yfir nýju
forsetahjónin. Mynd SigTryggur Ari