Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Page 23
Vikublað 28.–30. júní 2016 Fólk Viðtal 19 Er bíllinn klár fyrir sumarið? Við einföldum líf bíleigandans Ferðabox Reiðhjóla- grindur Þverslár alþjóðasamskiptum frá háskólanum í Toronto, og þegar ég var 22 ára flutti ég til Bretlands til að fara í meistara- nám við Oxford-háskóla í nútíma- sögu. Þar kynntist ég Guðna.“ Guðni og Eliza voru bæði í róðrarliðum skólans og höfðu hist í tengslum við það. Henni þótti Ís- lendingurinn spennandi og langaði að kynnast honum betur. Tækifærið fékk hún svo þegar lið Guðna skipulagði fjáröflun sem fór þannig fram að nöfn allra strákanna í liðinu voru skrifuð á bolla og svo gat hver sem er keypt miða, skrifað nafnið sitt á hann og sett í bolla þess sem vakti mesta áhugann. Svo var einn miði dreginn úr hverjum bolla, og sú heppna fékk stefnumót með róðrarpiltinum. „Ég keypti 10 miða og setti átta af þeim í bollann hans Guðna, til að virka ekki eins og eltihrellir. Að sjálf- sögðu voru líkurnar mér í hag, mitt nafn var dregið, og daginn eftir bauð Guðni mér út að borða á ítalskan veitingastað í þríréttaða máltíð. Mér fannst það alveg meiriháttar því flest hin stefnumótin voru á skyndibita- staði, og 22 ára háskólastúlkan var ekki beint vön svona fíneríi. Guðni var þrítugur þarna og ég man svo vel eftir því að þegar ég hitti hann fyrst í partíi þá hugsaði ég, „Vá, þú ert þrítugur, og það er komið mið- nætti og þú ert að djamma.“ Ég hélt að gamalt fólk færi hreinlega ekki í partí.“ Fyrsta stefnumótið átti sér stað 1998, en Guðni og Eliza fluttu til Ís- lands 2003 og hafa búið hér allar götur síðan. „Ég vann fyrsta árið hjá hugbúnaðarfyrirtæki, en stjórnar- formaður þess var einmitt Halla Tómasdóttir, svo við höfum þekkst lengi. Ég man svo vel eftir því að hún var nýbúin að eignast barn og var með það á brjósti á fundum – mér fannst það ótrúlega svalt. Eftir þetta fór ég að vinna við skrif, lengst af fyrir Iceland Review og Grapevine, en síð- ustu árin hafa að mestu farið í Iceland Writers Retreat, sem er árleg, alþjóð- leg vinnusmiðja fyrir rithöfunda, og að ritstýra blaðinu Icelandair sem dreift er í flugvélarnar. Núna þarf ég að endurskoða þetta allt, að minnsta kosti næstu fjögur árin.“ Störf og skyldur Já, hvernig er það, eru einhver laun fyrir að vera forsetafrú og máttu halda þínu striki í vinnu? „Mig langar mikið að halda áfram vinnunni við Iceland Writers Retreat, enda held ég að það verkefni falli vel að því sem forsetaembættið stendur fyrir. Það byggir á bókmenntaarfleifð Íslands og ég hef nú þegar haldið fjölmarga fyrirlestra um hana í Bandaríkjunum og víðar. Annað þarf ég að endurskoða. Ég held til dæmis að það sé ekki viðeigandi að forseta- frú þiggi laun frá einkareknum fyrir- tækjum. Það er mikilvægt að mis- nota ekki stöðu sína, og þetta þarf að íhuga vandlega.“ Eliza fræðir mig um að það séu engin laun greidd til forsetafrúar. „Við munum missa aðra tekjulindina. En auðvitað þénar forseti meira en dósent við Háskóla Íslands, svo það er alls ekki áhyggjuefni. Ég er mjög spennt fyrir þeim verkefnum sem ég mun geta sinnt sem forsetafrú, til dæmis eru málefni innflytjenda mér hugleikin. Ég er sjálf innflytjandi og mín saga er lík sögu margra inn- flytjenda, en á sama tíma ólík sögu annarra. Annað málefni sem mig langar að sinna er sjálfboðastarf nem- enda á sjúkrahúsum. Í Kanada var ég í forsvari fyrir þannig verkefni og mig langar að nota þá reynslu til að koma einhverju til leiðar hér.“ Slökun og svo skipulag Fjölskyldan mun flytja úr krúttlega húsinu á Seltjarnarnesinu í hvítt hús með rauðu þaki á nesinu hinum megin við sjóinn. „Það verður tals- verð breyting fyrir fjölskylduna, börnin byrja í nýjum skólum og svo- leiðis, þannig að ég býst við því að minn tími fari að mestu í það verk- efni á næstunni. Ég býst við að við leigjum húsið okkar út. Við höfum reyndar viljandi reynt að hugsa ekki lengra fram í tímann en að 25. júní. Akkúrat núna erum við í sjöunda himni og sigurvímu. Við fljúgum til Nice í nótt og förum á fótboltaleik- inn, svo komum við heim og finnum tíma til að slaka á með börnunum, helst úti á landi í sumarbústað með heitum potti - en eftir það þurfum við að skipuleggja næstu skref.“ Börn Guðna og Elizu eru fjögur, Duncan Tind ur (f. 2007), Don ald Gunn ar (f. 2009), Sæþór Peter (f. 2011) og Edda Mar grét (f. 2013). Að auki á Guðni dótt ur ina Rut (f. 1994) með fyrri eig in konu sinni. Yngra hollið flytur nú inn á Bessastaði, en það verður í fyrsta sinn sem slíkur barnaskari tekur þar búsetu. Hvernig tóku börnin framboðs­ brölti foreldranna? „Þau eru voða spennt og stolt af pabba sínum. Þau yngstu átta sig kannski ekki alveg á hvað er að gerast. Við reyndum líka að ræða þetta við þau á frekar almennum nótum, en nú förum við smám saman að búa þau undir breytingarnar sem eru í vænd- um. Það er samt ekki eins og við séum að flytja milli landa, þau geta haldið áfram að leika við sömu vinina, og ég er viss um að þau komi til með að njóta tímans á Álftanesinu. Okkur Guðna finnst þetta líka tækifæri til að sýna heiminum að Ísland er fjöl- skylduvænt, og að hægt sé að verða forseti og á sama tíma uppfylla skyld- ur sínar sem foreldri margra barna.“ Sannur, hugulsamur og skemmtilegur En Eliza, hvernig eiginmaður er Guðni? „Hann er frábær eiginmaður og pabbi. Hann er sannur og hugul- samur og skemmtilegur og með gott viðhorf til lífsins. Við erum ólík en náum góðu jafnvægi saman. Þegar ég er stressuð nær hann að róa mig, og þá sjaldan hann verður fúll og ein- rænn næ ég að draga hann aftur út úr skelinni. Við höfum alltaf skipt með okkur húsverkunum. Hann er vonlaus í að elda mat, en straujar til dæmis allt sem þarf að strauja. Börnin upplifðu ansi mikla breytingu á meðan kosn- ingabaráttan stóð yfir, enda er hann vanur að vera alltaf heima milli klukk- an 17.00 og háttatíma, en var það auð- vitað ekki á þessu tímabili.“ Vildi gjarna hitta Trudeau Skyldur forseta fela til að mynda í sér að fara í opinberar heimsóknir til þjóðhöfðingja víða um heim. Hvernig tilfinning er að eiga mögu­ lega á hættu að fara í boð til Donalds Trump í Hvíta húsið, nái hann kjöri sem forseti Bandaríkjanna? „Auðvitað mun ég sinna verkefn- um og skyldum við hlið Guðna. Ég er ekki búin að leiða hugann að Banda- ríkjunum frekar en öðrum löndum. Þó hef ég á tilfinningunni að Ísland verði kannski ekki efst á boðslist- anum þegar kemur að opinberum heimsóknum. Mér finnst bara ótrú- lega spennandi að fá að ferðast og hitta alls konar fólk. Ég er líka mjög fegin því að pabbi kenndi mér fyr- ir löngu að halda rétt á hnífapörum.“ Hvenær kemur Justin Trudeau í opinbera heimsókn? „Ég hreinlega veit það ekki. Hann er auðvitað ekki þjóðhöfðingi Kanada, heldur forsætisráðherra, þannig að það er frekar á valdi rík- isstjórnarinnar að bjóða honum í heimsókn. En ég vona svo sannar- lega að ég fái að hitta hann ef hann kemur.“ Varðist árásum Á köflum varð kosningabaráttan hörð, og þar sem Guðni hafði forystu í öllum könnunum stóðu spjótin á honum. „Við bjuggumst alveg við að ein- hverjar árásir yrðu gerðar. Auðvitað er Guðni ekki pólitíkus og því ekki með reynslu af þannig samskiptum. Hann er bara með svo mikið jafn- aðargeð og gekk þess vegna vel að halda ró sinni á meðan þetta gekk yfir. Hann missti ekki kúlið og svar- aði af kurteisi án þess að fara niður á sama plan. Ég er mjög stolt af hon- um fyrir það. Það reynir auðvitað á þolrifin þegar fólk reynir að rang- túlka orð manns, eða slíta þau úr samhengi en mér fannst hann gera þetta vel. Okkur fannst líka greini- legt að íslenskir kjósendur höfðu engan áhuga á neikvæðri kosninga- baráttu. Stundum er ég fegin að ís- lenskan mín sé ekki fullkomin. Ég les íslensku til að mynda mjög hægt, og sleppi því alveg að fylgjast með kommentakerfum. Ef ég byrja að lesa eitthvað sem lítur út fyrir að vera í neikvæðum tón get ég bara hætt, ég fer að minnsta kosti ekki að nota tíma minn í að Google-þýða neikvæð lýsingarorð.“ Áhugi kanadískra fjölmiðla á Elizu og Guðna hefur verið mikill síðan kosningabaráttan hófst. „Þeir hafa fylgst vel með okkur, rétt eins og íslenskir miðlar mundu gera ef Íslendingur væri í sömu stöðu er- lendis. Vinir mínir og fjölskylda í Kanada eru auðvitað búin að vera mjög spennt líka. Foreldrar mínir eru staddir hér núna og hafa hjálp- að til með börnin, frænka mín kom líka til að styðja okkur, og þau eru öll mjög stolt og spennt fyrir þessu.“ Já, það er óvenjulegt fyrir alþýð- legt háskólafólk að vera í þeirri stöðu sem Eliza og Guðni eru í þennan morguninn. Hvað skyldi hafa verið óvenjulegast? „Hingað streymir fólk með blómvendi, það er skrýtið. Svo er garðurinn minn fullur af sjón- varpsfólki að setja upp vélar, það er vægast sagt óvenjulegt. Það var fleira sem kom mér á óvart í kosninga- baráttunni, eins og að við vorum látin sitja fremst í þeim flugvélum sem við ferðuðumst með, og fólk var alltaf að færa okkur gjafir. Óvenjulegt en skemmtilegt á sama tíma.“ Forsetahúsgögn? Flutningur á Bessastaði liggur fyrir fjölskyldunni. Ég spyr Elizu hvort þau þurfi að nota sérstök forsetahús- gögn eða hvort búslóðin fylgi þeim. „Ég hef ekki hugmynd um það. Ég hef nokkrum sinnum komið í hús- ið þar sem móttökur eru haldnar, en aldrei í forsetabústaðinn, svo ég veit ekki hvort húsið er fullt af húsgögn- um sem eru óhentug fyrir börn, eða hvort við Guðni erum að fara að taka með okkur 15 ára gömlu Ikea-hús- gögnin. Sófann sem þú situr í keypt- um við til að mynda fyrir 15 þúsund krónur á Facebook.“ Glamúrinn fer kannski að flæða í auknum mæli inn í líf þeirra hjóna núna. „Þó að við berum virðingu fyrir embættinu erum við Guðni bæði mjög jarðbundin og viljum alls ekki að aðstæður barnanna okkar verði óeðlilegar eða að þau alist upp í að finnast þau eiga meiri rétt en aðrir. Ég mun kannski ekki setja gamla sófann í herbergi þar sem tekið er á móti gestum embættisins, en mun glöð nota hann á stað þar sem fjölskyldan getur hangið saman og haft það kósí.“ Femínistinn í farþegasætinu Eliza er sjálfstæð, menntuð og dríf- andi kona, skyldi hún ekki hafa blendnar tilfinningar að einhverju leyti gagnvart hlutverkinu og því að horfa fram á næstu árin í farþegasæti forsetans. „Ekki gleyma að segja að ég sé femínisti, ég vil endilega að það komi fram. En jú, auðvitað hef ég leitt hugann að því. Ég hef til dæmis aldrei verið jafnmikið í sviðsljósi fjöl- miðla og núna, ég hef reyndar tals- verða reynslu af viðtölum, en þau hafa snúist um mig og mín verkefni. Núna snýst allt um eiginmann minn og ég er aukaleikari. En ég er bara óskaplega stolt af honum og ánægð með að hann sé í sviðsljósinu. Ég veit að hann verður frábær forseti. Það eru mikil forréttindi fyrir okkur bæði að fá þetta tækifæri. Við tökum þennan heiður mjög alvarlega. Ég mun gera mitt besta til að nota mitt hlutverk til góðs og styðja Guðna.“ n „Ég er líka mjög fegin því að pabbi kenndi mér fyrir löngu að halda rétt á hnífapörum Blómin streymdu að Hamingjuóskum rigndi yfir nýju forsetahjónin. Mynd SigTryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.