Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Síða 24
Vikublað 28.–30. júní 201620 Menning Daði Guðbjörnsson myndlistarmaður sýnir verk í Kirsuberjatrénu D aði Guðbjörnsson myndlistar­ maður sýnir fjölbreytileg verk á sýningu í Kirsuberjatrénu á Vesturgötu. „Þetta eru á milli 30–40 verk, yfirlit yfir það sem ég hef verið að gera í myndlistinni síðast liðinn vetur og á vordögum og sýnir vel ólíkar vinnuaðferðir í mynd­ list,“ segir Daði. „Þarna eru grafík­ myndir sem margir þekkja en ég hef verið að selja mikið af þeim síðustu ára­ tugina. Ég sýni líka vatnslitamyndir en margir eru hrifnir af slíkum myndum, þar er notuð tækni sem er skemmti­ lega erfið fyrir listamanninn og það er gaman að eiga við hana. Á sýningunni eru einnig olíumálverk og ljósmynd­ ir sem sýna borgina eða landslag og saman við þær set ég hluta úr málverk­ unum mínum með stafrænni tækni, þar er ég á nýjum slóðum.“ Daði, sem er afkastamikill lista­ maður, er spurður um vinnuvenjur sínar. „Ég er svokölluð A­týpa,“ segir hann. „Ég vakna og fæ mér morgun­ verð með konu minni og þegar hún fer í vinnuna þá fer ég í vinnustof­ una og vinn þar til hádegis. Eftir það fer ég á Mokka og breytist í kaffihúsa­ bóhem í klukkutíma eða svo. Þá er ég mjög kærulaus og læt eins og enginn sé morgundagurinn. Síðan fer ég heim og vinn aftur í þrjá til fjóra tíma.“ Andleg verk Hvernig gengur þér að lifa af listinni? „Það gekk mjög vel þar til kreppan kom, þá var ég óheppinn að því leyti að almenningur varð það skynsamur að hann fór að borga niður skuldir sínar í staðinn fyrir að fjárfesta í lista­ verkum. Núna er ástandið orðið heldur skárra og mér tekst þokkalega að lifa af listinni.“ Þú ert búinn að vera lengi að, sérðu sjálfur þróun í myndlist þinni? „Ég kom inn myndlistarheiminn um 1980 með nýja málverkinu svo­ kallaða þegar teikningin og litirnir voru hafðir mjög hráir. Spíralformið, tákn lífsorkunnar, hefur fylgt mér frá upphafi og seinni árin eru verkin orðin andlegri. Ég vinn lengur með myndirnar en áður og það sést á þeim. Litanotkunin er líka orðin yfirvegaðri, ég nota liti mikið en þeir eru ekki eins ögrandi og þeir voru á tímabili.“ Hugleiðir á hverjum degi Má ekki segja að ákveðin bjartsýni ein- kenni verk þín? „Mig langar til að færa fólki gleði. Öll þekkjum við gleðina en lífið tek­ ur stundum á okkur, gleðin og já­ kvæðnin, sem er kjarninn í okkur, stíflast. Stundum virðist sem nei­ kvæðnin hafi tekið völdin en hún er ekki kjarninn í okkur, heldur gleðin.“ Áttu auðvelt með að halda í gleðina? „Rétta svarið við þessari spurn­ ingu er Sahajayoga. Ég hugleiði á hverjum degi, á morgnana og svo aftur á kvöldin og í vinnustofunni hlusta ég mikið á hugleiðslutón­ list. Þannig að segja má að verk mín verði til í hugleiðslu.“ Finnst þér að fólk skynji andlega þáttinn í verkum þínum? „Já, fólk talar um það. Stundum koma útlendingar í vinnustofuna og þeir átta sig strax á þessu en verða um leið kannski dálítið hissa því þetta er ekki það sem þeir áttu von á. Þegar ég var að hefja minn mynd­ listarferil var það einkennandi fyrir íslenska myndlist að myndir voru dökkar og þungt yfir þeim. Lista­ mennirnir voru bundnir af hinum myrku öldum okkar, en þó eru vissu­ lega til undantekningar frá dimm­ unni í íslenskri listasögu. Þetta hefur breyst með nýjum kynslóðum, það er komin meiri birta og litadýrð í myndlistina.“ n Langar tiL að færa fóLki gLeði Daði Guðbjörnsson „Stundum virðist sem nei- kvæðnin hafi tekið völdin en hún er ekki kjarninn í okkur, heldur gleðin.“ MynD SiGtryGGur Ari Eitt eða tvö fjöll Eitt verkanna á sýningunni. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is „Segja má að verk mín verði til í hugleiðslu Hópefli í fákaseli Ingolfshvoll, 816 Ölfus | fakasel@fakasel.Is | símI: 483 5050 Matur, drykkur og skemmtun

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.