Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Page 30
Vikublað 28.–30. júní 201626 Lífsstíll
S
tefnumótamenning er loks-
ins að verða til á Íslandi. Sú
tíð er nú liðin að einhleypir
geri sér að góðu lostafullt
augnaráð gegnum reykmett-
að loft skemmtistaða í aðdraganda
að bólförum eða einhverju sem varir
aðeins lengur.
Margir vilja meina að tæknin hafi
hjálpað okkur heil ósköp – að innreið
snjallsímaforritsins Tinder hafi lyft
okkur á hærra plan. Í það minnsta
virðist menningin hafa snarskánað
á ógnarhraða, enda er þjóðin þekkt
fyrir að einhenda sér í brýn verkefni.
Við fengum nokkra valin-
kunna einstaklinga, með víðtæka
stefnumótareynslu, til að gefa
lesendum góð ráð.
Álitsgjafar: Bergljót Björk, Steini
Glimmer Þóruson, Kristín Tómas
dóttir, Svanhvít Thea Árnadóttir, Jón
Örn Arnarson, Ragna Gestsdóttir,
Margrét Erla Maack n
Bæjarlind 1-3 - Kópavogur - S: 571 5464
Sjáðu úrvalið á
www.tiskuhus.is
Stærðir 38-54
Flott
sumarföt,
fyrir flottar
konur
SJÓNMÆLINGAR
LINSUR • GLERAUGU
Skólavörðustígur 2 • 101 Reykjavík
Sími: 511 2500 • www.gleraugad.is
Leiðbeiningar fyrir stefnumót
Það sem á að gera og það sem á ekki að gera
n Vertu stundvís, og láttu vita
ef þér seinkar jafnvel þótt það
sé bara um nokkrar mínútur.
n Sýndu að þér sé annt um
þann sem þú ert að hitta.
„Varstu búin/n að panta þér?“
eða „viltu áfyllingu á vatnsglasið?“,
eru mjög smekklegar spurningar.
n Farðu úr yfirhöfninni og taktu af þér
trefilinn. Ekki sitja á stefnumóti með rennt upp í
háls eins og þú sért alveg að fara.
n Talaðu fallega um fólk. Sérstaklega fyrrver-
andi kærasta/kærustur/eiginmenn/eiginkonur.
Fegurð þín vex með hverju fallegu orði sem þú
notar.
n Sýndu viðkomandi áhuga, spurðu spurninga.
Á stefnumóti er ákveðin forvitni algjörlega viðeig-
andi. Einræður eru ekki sjarmerandi.
n Vertu í víðsýna og umburðarlynda gírnum.
Þú gætir komist að því að sá eða sú sem þú situr
til borðs með hafi viðhorf eða skoðanir sem þú ert
ósammála. Mundu að fólk er alls konar.
n Þakkaðu fyrir stefnumótið, til dæmis með
skilaboðum innan sólarhrings, jafnvel þó að það
hafi ekki staðist væntingar.
n Borgaðu reikninginn ef
stefnumótið var að þínu frumkvæði.
n Skilaðu viðkomandi heim, ef þú
sóttir hann/hana.
n Ef um fyrsta stefnumót er að
ræða er þægilegast fyrir alla að fara á
stað sem býður upp á dálítið næði. Snaps
og Hverfisgata 12 eru til dæmis betri staðir en
Kex og Bazaar hvað þetta varðar.
n Heiðarleiki er heitur.
n Slakaðu á. Njóttu þess að kynnast nýrri mann-
eskju. Það er fallegt að einhver vilji gefa þér tíma
sinn – jafnvel þó að enginn muni flytja lögheimilið
í kjölfarið.
n Ef þú kynnist fólki gegnum stefnumótavefi
eða smáforrit, gættu þess þá að hafa nýjar myndir
til sýnis. Það er ekkert vit í að birta 20 ára gamlar
myndir og valda svo vonbrigðum þegar þú mætir.
n Mundu eftir augnsambandinu.
n Það er alltaf skemmtilegt þegar lögð er dálítil
hugsun í stefnumótið. Það þarf alls ekki að vera
dýrt. Byrja mætti á göngutúr í grasagarðinum og
fá sér kaffi á eftir. Upplifunin verður skemmtilegri
hvort sem þið náið saman á endanum eða ekki.
n Ekki koma með illa hirtar
tennur á stefnumót, eða
vera með illa hirtar tennur
yfir höfuð. Það er fátt
jafnfráhrindandi og skán
á tönnum og andremma.
n Ef þú finnur að tenging
er ekki að myndast á milli
ykkar, skaltu ekki sitja í klukku-
tíma til viðbótar og ljúga því svo að
þú munir hafa samband.
n Ekki tékka þig inn á samfélagsmiðil og
merkja stefnumótið þitt á Facebook ef þið
voruð að hittast. Slepptu því bara alveg
að taka upp símann.
n Ekki fara að tala um að þú sért með
holdris, nema samræður ykkar hafi tekið
hastarlega beygju í átt að samræði.
n Ekki drekka í óhófi. Já, og ekki mæta
undir áhrifum á stefnumótið.
n Ekki reyna að segja grjótharðar sögur
af slagsmálum. Ofbeldi slekkur losta.
n Ekki tala um hversu öm-
urleg fyrri sambönd hafa
verið. Að tala um hversu
steikt og sjúkt samband
þitt við fyrrverandi var
hringir mjög stórum
viðvörunarbjöllum.
n Ekki segjast finnast
gaman að ferðast ef eina
ferðalagið sem þú getur sagt frá er
stutt fyllerísferð til Köben.
n Ekki segjast ætla að hafa samband
eða lýsa vilja til að hittast aftur, nema þú
meinir það.
n Vertu fullviss um að sá/sú sem þú hitt-
ir sé í stjórn ungra sjálfstæðismanna áður
en þú heldur ræðu um hvernig íslenska
bótakerfið sé að eyðileggja íslenskan
sjávarútveg.
n Ekki bjóða henni/honum strax á
næstu grunnskólaendurfundi með
orðunum: „Núna loksins fattar fólk að ég
er ekki lúser!“
JÁ
Gerðu þetta
fyrir alla muni
Slepptu þessu alveg
NEI
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Augu þeirra
mættust
yfir kaffi-
bollunum
Augnsamband
er mikilvægt.
Mynd www.123RF.coM
Æ, reyndu nú
að vera dálítið
skemmtilegur!
Það er vandlifað í
heimi stefnumóta.
Mynd www.123RF.coM