Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Blaðsíða 30
Vikublað 28.–30. júní 201626 Lífsstíll S tefnumótamenning er loks- ins að verða til á Íslandi. Sú tíð er nú liðin að einhleypir geri sér að góðu lostafullt augnaráð gegnum reykmett- að loft skemmtistaða í aðdraganda að bólförum eða einhverju sem varir aðeins lengur. Margir vilja meina að tæknin hafi hjálpað okkur heil ósköp – að innreið snjallsímaforritsins Tinder hafi lyft okkur á hærra plan. Í það minnsta virðist menningin hafa snarskánað á ógnarhraða, enda er þjóðin þekkt fyrir að einhenda sér í brýn verkefni. Við fengum nokkra valin- kunna einstaklinga, með víðtæka stefnumótareynslu, til að gefa lesendum góð ráð. Álitsgjafar: Bergljót Björk, Steini Glimmer Þóruson, Kristín Tómas­ dóttir, Svanhvít Thea Árnadóttir, Jón Örn Arnarson, Ragna Gestsdóttir, Margrét Erla Maack n Bæjarlind 1-3 - Kópavogur - S: 571 5464 Sjáðu úrvalið á www.tiskuhus.is Stærðir 38-54 Flott sumarföt, fyrir flottar konur SJÓNMÆLINGAR LINSUR • GLERAUGU Skólavörðustígur 2 • 101 Reykjavík Sími: 511 2500 • www.gleraugad.is Leiðbeiningar fyrir stefnumót Það sem á að gera og það sem á ekki að gera n Vertu stundvís, og láttu vita ef þér seinkar jafnvel þótt það sé bara um nokkrar mínútur. n Sýndu að þér sé annt um þann sem þú ert að hitta. „Varstu búin/n að panta þér?“ eða „viltu áfyllingu á vatnsglasið?“, eru mjög smekklegar spurningar. n Farðu úr yfirhöfninni og taktu af þér trefilinn. Ekki sitja á stefnumóti með rennt upp í háls eins og þú sért alveg að fara. n Talaðu fallega um fólk. Sérstaklega fyrrver- andi kærasta/kærustur/eiginmenn/eiginkonur. Fegurð þín vex með hverju fallegu orði sem þú notar. n Sýndu viðkomandi áhuga, spurðu spurninga. Á stefnumóti er ákveðin forvitni algjörlega viðeig- andi. Einræður eru ekki sjarmerandi. n Vertu í víðsýna og umburðarlynda gírnum. Þú gætir komist að því að sá eða sú sem þú situr til borðs með hafi viðhorf eða skoðanir sem þú ert ósammála. Mundu að fólk er alls konar. n Þakkaðu fyrir stefnumótið, til dæmis með skilaboðum innan sólarhrings, jafnvel þó að það hafi ekki staðist væntingar. n Borgaðu reikninginn ef stefnumótið var að þínu frumkvæði. n Skilaðu viðkomandi heim, ef þú sóttir hann/hana. n Ef um fyrsta stefnumót er að ræða er þægilegast fyrir alla að fara á stað sem býður upp á dálítið næði. Snaps og Hverfisgata 12 eru til dæmis betri staðir en Kex og Bazaar hvað þetta varðar. n Heiðarleiki er heitur. n Slakaðu á. Njóttu þess að kynnast nýrri mann- eskju. Það er fallegt að einhver vilji gefa þér tíma sinn – jafnvel þó að enginn muni flytja lögheimilið í kjölfarið. n Ef þú kynnist fólki gegnum stefnumótavefi eða smáforrit, gættu þess þá að hafa nýjar myndir til sýnis. Það er ekkert vit í að birta 20 ára gamlar myndir og valda svo vonbrigðum þegar þú mætir. n Mundu eftir augnsambandinu. n Það er alltaf skemmtilegt þegar lögð er dálítil hugsun í stefnumótið. Það þarf alls ekki að vera dýrt. Byrja mætti á göngutúr í grasagarðinum og fá sér kaffi á eftir. Upplifunin verður skemmtilegri hvort sem þið náið saman á endanum eða ekki. n Ekki koma með illa hirtar tennur á stefnumót, eða vera með illa hirtar tennur yfir höfuð. Það er fátt jafnfráhrindandi og skán á tönnum og andremma. n Ef þú finnur að tenging er ekki að myndast á milli ykkar, skaltu ekki sitja í klukku- tíma til viðbótar og ljúga því svo að þú munir hafa samband. n Ekki tékka þig inn á samfélagsmiðil og merkja stefnumótið þitt á Facebook ef þið voruð að hittast. Slepptu því bara alveg að taka upp símann. n Ekki fara að tala um að þú sért með holdris, nema samræður ykkar hafi tekið hastarlega beygju í átt að samræði. n Ekki drekka í óhófi. Já, og ekki mæta undir áhrifum á stefnumótið. n Ekki reyna að segja grjótharðar sögur af slagsmálum. Ofbeldi slekkur losta. n Ekki tala um hversu öm- urleg fyrri sambönd hafa verið. Að tala um hversu steikt og sjúkt samband þitt við fyrrverandi var hringir mjög stórum viðvörunarbjöllum. n Ekki segjast finnast gaman að ferðast ef eina ferðalagið sem þú getur sagt frá er stutt fyllerísferð til Köben. n Ekki segjast ætla að hafa samband eða lýsa vilja til að hittast aftur, nema þú meinir það. n Vertu fullviss um að sá/sú sem þú hitt- ir sé í stjórn ungra sjálfstæðismanna áður en þú heldur ræðu um hvernig íslenska bótakerfið sé að eyðileggja íslenskan sjávarútveg. n Ekki bjóða henni/honum strax á næstu grunnskólaendurfundi með orðunum: „Núna loksins fattar fólk að ég er ekki lúser!“ JÁ Gerðu þetta fyrir alla muni Slepptu þessu alveg NEI Ragnheiður Eiríksdóttir ragga@dv.is Augu þeirra mættust yfir kaffi- bollunum Augnsamband er mikilvægt. Mynd www.123RF.coM Æ, reyndu nú að vera dálítið skemmtilegur! Það er vandlifað í heimi stefnumóta. Mynd www.123RF.coM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.