Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2016, Blaðsíða 8
Helgarblað 5.–8. ágúst 20168 Fréttir
Sérmerktu
persónulegu
gjafavörurnar
ALLT MERKILEGT
GarðatorG 3, Garðabæ - S: 555 3569 - Sala@alltmerkileGt.iS - alltmerkileGt.iS - Sala@alltmerkileGt.iS
Pantaðu í netversluninni
Hægt er að fá bæði sent heim
eða sækja í nýju versluninni okkar!
Allt
merkilegt
10 árA
FjárFestarnir í Borgun
Fengu 205 milljóna arð
a
ðalfundur Eignarhalds-
félagsins Borgunar stað-
festi í byrjun júní ákvörðun
um að hluthafar þess
fengju 205 milljónir króna
í arð. Greiðslan var vegna reksturs
samlagsfélagsins í fyrra en það ár
greiddi greiðslukortafyrirtækið Borg-
un, sem Eignarhaldsfélagið Borgun
á tæpan þriðjungshlut í, eigendum
sínum 800 milljónir króna í arð.
Eignarhaldsfélagið keypti
24,96% hlut í Borgun af Lands-
bankanum í lokuðu söluferli í
nóvember 2014. Félagið á í dag
25,48% hlut í greiðslukortafyrir-
tækinu samkvæmt hlutafélaga-
skrá Ríkisskattstjóra (RSK). Stofnfé
Eignarhaldsfélagsins Borgunar er í
eigu samlagsfélagsins Orbis Borg-
unar og þrettán einkahlutafélaga. Í
þeim hópi eru meðal annars Stál-
skip ehf., fjárfestingarfélag Guðrún-
ar Lárusdóttur og fjölskyldu henn-
ar, og Pei ehf. sem er í eigu Einars
Sveinssonar, fjárfestis og föður-
bróður Bjarna Benediktssonar, fjár-
mála- og efnahagsráðherra.
Aðalfundurinn var haldinn 2.
júní en fundargerð hans, sem DV
hefur undir höndum, var skilað inn
til RSK rúmum mánuði síðar. Sam-
kvæmt henni staðfesti aðalfundur-
inn þá einnig að stofnfé félagsins
yrði aukið um 288 milljónir króna.
„Það er vegna kaupa á hluta af
eign BPS í Borgun,“ segir Magnús
Magnússon, forsvarsmaður
Eignarhaldsfélagsins Borgunar
í samtali við DV. BPS ehf. keypti
6,24% hlut í Borgun í sölu Lands-
bankans í nóvember 2014 og á nú
7,77%. Greiðslukortafyrirtækið
greiddi hluthöfum sínum 2,2 millj-
arða króna í arð á þessu ári eða
sömu upphæð og Eignarhaldsfélag-
ið Borgun og BPS greiddu fyrir alls
31,2% hlut Landsbankans í Borgun.
Líkt og DV greindi frá um miðjan
júlí þá hafa Borgun og samkeppn-
isaðilinn Valitor nú fengið í sinn
hlut eingreiðslu upp á samtals vel
á annan tug milljarða króna vegna
kaupa Visa Inc. á Visa Europe.
Landsbankinn gerði ekki fyrirvara
um hlutdeild í greiðslunni sem
rann til Borgunar. n
n eigendur eignarhaldsfélagsins Borgunar greiddu út arð og juku stofnféð
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Borgun Fjárfestahópurinn að baki Eignarhaldsfélaginu Borgun keypti 24,96% hlut í
greiðslukortafyrirtækinu af Landsbankanum í nóvember 2014. Mynd SiGtryGGur Ari
er númer fjögur
í hjartaröðinni
Halldór liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi á Spáni
s
öfnun hefur verið hrint af stað
vegna veikinda Halldórs Grét-
ars Gunnarssonar úr Hafnar-
firði sem liggur þungt haldinn
á sjúkrahúsi í Cordoba á Spáni eftir
að hafa fengið hjartaáfall aðfaranótt
17. júlí sl. Börn hans hafa verið við
hlið hans, eins og klettar, frá því að
ósköpin dundu yfir. Félagar þeirra
segja það ekki auðvelt að takast á við
svona erfiðleika og þurfa á sama tíma
að hafa áhyggjur af fjármálunum.
Að sögn Jóns Más Guðmunds-
sonar, vinar Halldórs, sem kemur að
söfnuninni hefur verið ákveðið að
létta undir með aðstandendum Hall-
dórs.
Aðstandendur söfnunarinnar
ætla einnig að vera með bauka á
Reykjavík Custom Bike Show 2016
sem haldið verður í miðbæ Reykja-
víkur á Menningarnótt 20. ágúst
næstkomandi.
„Dóri er búinn að vera þekktur í
röðum mótorhjólamanna um árabil
og mjög áberandi í öllu sem hann
hefur tekið sér fyrir hendur. Hann
hefur oft verið fyrstur manna á vett-
vang þegar þurft hefur að rétta fram
hjálparhönd og aðstoða einhvern í
vanda. Dóri hefur líka verið áberandi
í tónleikahaldi og þeir sem þekkja til
hans hafa ekkert annað en gott um
að hann segja. Dóri er drengur góð-
ur,“ segir Jón Már en Halldór Grétar
var í sumarfríi á Malaga með kærustu
sinni þegar hann veiktist skyndilega.
Jón Már segir að Halldór Grétar
bíði núna eftir því að komast í hjarta-
aðgerð. Hann er á biðlista eftir nýju
hjarta og hafa læknar tjáð aðstand-
endum að biðin verði vonandi ekki
löng. Hann sé kominn framar-
lega í röðina, fjórir aðrir séu á und-
an honum. Hægt er að leggja þeim
lið hér: Reikningur: 0537-26-020691
Kennitala 020691-2209. n jonk@dv.is