Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Blaðsíða 2
Vikublað 4.–6. október 20162 Fréttir HVAR ER SÓSAN? Tvö brauð, ostur, buff og grænmeti nægja ekki til að gera góðan borgara. Ef sósuna vantar er eins gott að sleppa þessu. Þú gleymir ekki sósunum frá E. Finnsson. V erð á hefðbundnum burðar- pokum úr plasti er um 93% hærra í verslunum 10–11 en gengur og gerist að jafnaði í öðrum matvöru verslunum. Einn burðarpoki kostar nú 55 krón- ur í verslunum 10–11. Á sama tíma er algengt verð á plastpokum 20 krónur í öðrum verslunum, líka þeim sem eiga aðild að Pokasjóði þar sem 7 krónur af hverjum seldum poka renna til sjóðsins sem nýttur er til styrktar góðum málefnum. 10–11 er ekki aðili að sjóðnum og rennur því hagnaður af sölu pokanna óskipt til verslunarinnar. Poki er þó ekki það sama og poki, segir forstjóri 10–11. Viðskiptavinum sem keypt hafa burðarpoka hjá 10–11 hefur mörg- um brugðið þegar þeir sjá verðið, hafi þeir þegið kassakvittun. Fæstir gefa því gaum hvað plastpokar kosta nú til dags þar sem þeir kosta jafn- an svipað í flestum verslunum. Þó að flestir séu meðvitaðir um að verð í klukkubúðun- um svokölluðu sé oftar en ekki hærra en gengur og gerist í lágvöruverðsversl- unum, þá virðist sú álagning líka ná til plastpokanna. Ýms- ir þættir geta haft áhrif á verðið, segir Árni P. Jónsson, for- stjóri 10–11, þegar DV leitaði skýringa á verðinu sem Árni segir að hafi hækk- að í ársbyrjun um 6 krónur. Meiri gæði? „Mér er auðvitað ekki kunnugt um það hver álagningin er hjá öðrum. En pokar eru ekki bara pokar – þar skipta nokkrir þættir máli í því hvað pokinn kostar s.s. þykktin á hon- um, hvort hann sé heillitaður og svo framvegis.“ Til samanburðar þá segir for- maður Pokasjóðs í samtali við DV að algengasta verðið á plastpokum verslana, sem eiga aðild að sjóðn- um, um 20 krónur. Verslanir Haga, Samkaupa, ÁTVR, ýmis kaupfélög og minni verslanir eru aðilar að Poka- sjóði líkt og um 65 prósent af dag- vörumarkaðinum á Íslandi. Af hverj- um seldum poka þeirra verslana renna 7 krónur í Pokasjóð. Með tilliti til innkaupaverðs, virðisaukaskatts upp á 4–5 krónur og rýrnun er ljóst að álagning verslana er að jafnaði ekki himinhá. En það sem safnast síðan í Poka- sjóð er notað til góðra málefna, tækjakaupa á Landspítala m.a., og svo má nefna að í desember í fyrra afhenti stjórn sjóðsins Hjálparstarfi kirkjunnar og Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur 20 milljónir króna til að deila út til nauðstaddra fyrir jólin. Svo dæmi sé tekið. En markmið Pokasjóðs er þó að draga úr plast- pokanotkun að sögn Bjarna Finns- sonar, formanns sjóðsins, og því í raun innan ákveðins fjölda ára að leggja sjálfan sig niður. Minna magn hærra verð Verslanir 10–11, líkt og fjölmargar aðrar verslanir, eru ekki aðilar að þessum sjóði enda enginn skylda. Plastpokar eru enda eingöngu vara eins og hver önnur sem verslanir selja. Hagnaður af álagningu rennur þá til verslana eða í önnur verkefni að þeirra vali. Bjarni bendir á að einn möguleiki fyrir verslanir sem vilja að dregið verði úr notkun plastpoka sé einmitt hugsanlega með neyslu- stýringu á borð við að hækka verðið hraustlega. Á endanum hætti fólk þá hugsanlega að kaupa plastpoka og færi sig yfir í umhverfisvænni fjöl- nota möguleika. Ekkert kom fram í svari forstjóri 10–11 við fyrirspurn DV um slík markmið verslunarinnar. Árni bend- ir hins vegar á að annað sem skipti máli líka, þegar litið sé til verðlagn- ingar á plastpokum, sé magnið sem keypt sé inn. Stærri innkaup þýði hagstæðara verð. „Þar erum við mun minni en stóru aðilarnir hér á matvörumark- aðnum.“ Bendir hann á að lítill burðar- poki, minni en þeir sem fást í 10–11, hjá 7/11 í Kaupmannahöfn kosti 4 danskar krónur, eða tæpar 70 krón- ur íslenskar. Það er því eitthvað fyrir neytend- ur að hafa í huga næst þegar þeir greiða fyrir plastpoka; að pokarnir í 10–11 eru um 35 krónum dýrari þar en gengur og gerist að jafnaði. Ljóst er þó að erlendir ferðamenn, sem ætla má að séu stór hluti viðskipta- vina verslana 10–11 að jafnaði, geri sér ekki grein fyrir því. n PlastPoki kostar n 93 prósent dýrari en í flestum verslunum Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is 55 krónur í 10–11 „Pokar eru ekki bara pokar Ræða sérframboð Illa hefur gengið að ná sam- bandi við Framsóknarmenn eftir að flokksþingi flokksins lauk á sunnudag. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir DV svöruðu fáir flokks- menn síma eða skilaboðum og þeir sem náðist í voru dulir í svörum. Ljóst er þó að mjög þungt er í stuðningsmönnum Sig- mundar Davíðs Gunnlaugsson- ar, sem laut í lægra haldi í for- mannskosningunni fyrir Sigurði Inga Jóhannssyni. Heimildir DV herma meðal annars að rætt sé af miklum þunga um þann möguleika að blása til sérfram- boðs undir forystu Sigmundar. Blaðamaður reyndi ítrekað að ná sambandi við Sigmund og skildi eftir skilaboð þess efnis hjá að- stoðarmanni hans en hafði ekki erindi sem erfiði. Því er hvorki hægt að segja af eða á um hvort Sigmundur gæti hugsað sér slíkt framboð. Þá hefur DV heimildir fyrir því að Framsóknarmenn sem tekið hafa sæti á framboðs listum séu nú að hugsa sinn gang. Þannig birti Gunnar Kristinn Þórðarson, sem skipaði fimmta sæti á lista flokksins í Reykja- víkurkjördæmi norður, færslu á Facebook á sunnudag þar sem hann greindi frá því að hann hygðist segja sig frá sætinu og trúnaðarstörfum fyrir flokkinn í kjölfar úrslita formannskosn- inganna. Fleiri eru að velta hinu sama fyrir sér, meðal annars frambjóðendur í Suðvesturkjör- dæmi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.