Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Blaðsíða 38
Vikublað 4.–6. október 201634 Fólk
GlerborG
Mörkinni 4, reykjavík | SíMi 565 0000 | www.GlerborG.iS
L
eikritið Horft frá brúnni eftir
Arthur Miller var frumsýnt í
Þjóðleikhúsinu um helgina og
var margt um manninn á sýn
ingunni eins og sjá má á með
fylgjandi myndum.
Horft frá brúnni er almennt talið
eitt magnaðasta leikrit 20. aldarinn
ar en það segir frá örlögum alþýðu
fólks í hafnarhverfi í New York. Þetta
er verk um forboðnar ástir, svik og
leitina að frelsi í landi tækifæranna,
eins og segir á vef Þjóðleikhússins.
Leikstjóri sýningarinnar heitir
Stefan Metz og hefur hann starfað í
virtum leikhúsum víða um Evrópu.
Hann setti upp verkið Eldraunin í
Þjóðleikhúsinu nýverið en það verk
er einnig eftir Arthur Miller.
Einvala lið leikara kemur fram í
Horft frá brúnni. Má þar nefna Arnar
Jónsson, Hilmi Snæ Guðnason, Láru
Jóhönnu Jónsdóttur, Snorra Engil
bertsson og Baltasar Breka Samper. n
Örlög alþýðufólks í Þjóðleikhúsinu
Leikverkið Horft frá brúnni var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu um helgina
Flott
saman
Bergsteinn
Sigurðsson
útvarpsmaður
og Vigdís
Másdóttir
leikkona.
Góðir vinir
Ari Matthías
son þjóðleik
hússtjóri og
Kristbjörg
Kjeld leikkona
voru í góðu
skapi á frum
sýningunni,
enda engin
ástæða til
annars.
Flott hjón Lísa Charlotte
Harðardóttir og Sigurður
Sigurjónsson sýndu sig og
sáu aðra í Þjóðleikhúsinu
um helgina. Sigurður leikur
sem kunnugt er í einleikn
um Maður sem heitir Ove.
Órakaðir og fínir
Leikararnir Friðrik
Friðriksson og
Gunnar Hansson
voru brosmildir á
frumsýningunni.
Báðir skarta þeir
myndarlegu skeggi.
Sæt saman
Ásta Hrafnhildur
Garðarsdóttir,
ritstjóri Séð og
heyrt, og Sveinn
Andri Sveins
son lögmaður
ljómuðu á
frumsýningunni
um helgina.